Morgunblaðið - 30.04.1982, Síða 2

Morgunblaðið - 30.04.1982, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1982 Sjúkrahús Keflavíkur: Reyndustu Ijósmæðurnar segja upp vegna óánægju með ráðningu deildarstjóra TV/KK af reyndustu Ijósmæðrum við Sjúkrahús Keflavikur, þær Kagnheiður Brynjólfsdóttir og l>óra l'orgilsdóttir, hafa nú sagt upp störfum vegna óánægju með ráðningu deildarstjóra við fæðingardeildina þar. Eins og fram hefur komið í fréttum Morgunblaðsins hafa 1.019 konur á svæði læknishéraösins ritað undir mótmæli vegna þessa og krafizt skýringa hjá stjórn sjúkrahússins. Astæður þessarar óánægju eru ur eitt og einn stjórnarmanna skil- þær að fyrir skömmu var staða deildarstjóra á fæðingardeild sjúkrahússins auglýst laus til um- sóknar og var þar um nýja stöðu að ræða. Var hún auglýst eins og venja er innan sjúkrahússins, að sögn Alberts K. Sanders, eins af stjórnarmönnum sjúkrahússins. Tvær umsóknir bárust, frá Sól- veigu Þórðardóttur og Ragnheiði Brynjólfsdóttur. Hafði Ragnheiður 19 ára starfsreynslu sem Ijósmóðir og hefur tekið á móti tæplega 3.000 börnum, en Sólveig eins árs starfsreynslu, en er hjúkrunar- fræðingur að mennt auk þess að vera ljósmóðir. Hjúkrunarforstjóri sendi stjórn sjúkrahússins ummæli um umsækjendur og taldi þá báða hæfa, en mælti með ráðningu Ragnheiðar vegna reynslu hennar. Atkvæðagreiðsla innan stjórnar- innar fór síðan á þann veg að Sól- veig fékk 3 atkvæði af 5, Ragnheið- Opið hús í Val- höll á morgun Sjálfstæðisfélögin í Keykjavík standa fyrir opnu húsi í Valhöll, Háa- leitisbraut 1, á morgun, laugardaginn I. mai. Formaður 1. maí-nefndar sjálf- stæðisfélaganna í Reykjavík setur samkomuna klukkan 16.15. Strengjasveit Tónlistarskólans í Reykjavík leikur undir stjórn Mark Reedmans. Magnús L. Sveinsson, formaður Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, flytur ræðu. Elísabet Erlingsdóttir syngur lög við ljóð eft- ir Halldór Laxness við undirleik Jór- unnar V'iðar. Margrét S. Einarsdótt- ir sjúkraliði flytur ávarp. Hafliði Jónsson leikur á píanó og Magnús Kjartansson hljómlistarmaður ann- ast tónlistarflutning. Kynnir verður Ásdís Loftsdóttir. Veitingar eru ókeypis. Allt sjálfstæðisfólk er velkomið á samkomuna, sem haldin er undir kjörorðinu „Stétt með stétt". aði auðu. Sólveig Þórðardóttir skipar þriðja sætið á lista Alþýðubanda- lagsins í Keflavík til komandi sveitarstjórnarkosninga, en að sögn Alberts K. Sanders eru engar líkur á því að hér hafi verið um pólitískt mál eða stöðuveitingu að ræða. I bréfi, sem mótmælunum fylgdi, segir meðal annars að undirritaðar telji ákvörðun meirihluta stjórnar sjúkrahússins jaðra við siðleysi og að þeir ættu ekki að hrekjast fyrir annarlegum sjónarmiðum, gleyma því að gæta hófs og virða að vettugi almennar reglur um val starfs- fólks, meðal annars um reynslu og starfsaldur. Sagði Albert ennfremur að stjórn sjúkrahússins hefði enn ekki rætt málið formlega, en það yrði væntanlega tekið fyrir í næstu viku. Akureyri: Hjúkrunar- fræðingar segja upp Hjúkrunarfræðingar á Akureyri héldu fund um kaup og kjör í gær. Á fundinum kom fram mikil óánægja með stöðu mála og var samþykkt samhljóða að segja upp störfum frá og með 1. maí með þriggja mánaða uppsagnarfresti. Fundinn sátu 40 hjúkrunarfræð- ingar. Sáttanefnd ríkisins: Spurt og svarað um garðyrkju Athygli er vakin á því, að lesendur geta haft samband við ritstjórn Morgunblaðsins í síma 10100 á milli kl. 11 og 12 á morgnana og komið á framfæri fyrirspurnum um garðyrkjumál. Morgunblaðið hefur fengið Hafliða Jónsson, garðyrkju- stjóra, til að svara spurning- um lesenda og munu fyrstu svörin birtast fljótlega. Veit- ir hann svör við spurningum varðandi blómarækt, trjá- rækt, sem og ræktun mat- jurta. Rétt er að geta þess, að nauðsynlegt er að nafn og heimilisfang spyrjenda fylgi með. Frá fundi Vöku. Formaður stúdentaráðs úr röðum Vöku eftir 12 ára hlé ÞANN 24. apríl sl. var haldinn að- alfundur Vöku, félags lýðræðis- sinnaðra stúdenta við Háskóla ís- lands. Aðalfundur var haldinn óvenju seint að þessu sinni vegna þeirrar óvissu sem ríkti um mynd- un meirihluta í Stúdentaráði en er nú lokið meö endumýjuðu sam- starfi Vöku og Félags umbóta- sinna. Aðalfundurinn var með hefð- bundnu sniði. Stjórn Atla Eyj- ólfssonar skilaði skýrslu um störf stjórnar félagsins á liðnu ári og lagðir voru fram endur- skoðaðir reikningar félagsins. I stjórn Vöku fyrir næsta starfsár voru kosnir: Formaður Sigur- björn Magnússon, ritstjóri Vöku- blaðsins Oli Björn Kárason, og fimm meðstjórnendur, þau Margrét Jónsdóttir, Pétur Gunn- arsson, Kristján Jónsson, Karl Konráð Andersen og Hannes Heimisson. Á fundinum kom fram að Vökumanna bíða mörg verkefni. I sumar verður haldinn í fyrsta sinn hér á landi aðalfundur Evr- ópusamtaka lýðræðissinnaðra stúdenta (European Democratic Students, EDS) en Vaka er aðili að þessum samtökum. Hingað koma 35—40 erlendir stúdentar frá 15—17 Evrópulöndum. Al- menn ánægja var með að tekizt hafði að mynda meirihluta í Stúdentaráði og sérstaklega að Vökumaður er nú formaður Stú- dentaráðs eftir um 12 ára hlé. Er það Gunnar Jóhann Birgisson, hann var efsti maður á lista Vöku í Stúdentaráðskosningun- um í vor, segir í frétt frá Vöku. Fundurinn var fjölsóttur og um- ræður fjörugar. Geir Hallgrímsson í útvarpsumræðunum: Tókum einvígisáskor- un Alþýðubandalagsins — Við heyrðum það í ræðu Svav- ars Gestssonar hér fyrr í kvöld, að hann lítur á sveitarstjórnarkosn- ingarnar sem átök milli Alþýðu- bandalagsins og Sjálfstæðisflokksins. Sjálfstæðismenn taka þessari einvig- isáskorun, sagði Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í út- varpsumræðunum á Alþingi i gær- kvöldi. Hann sagði Sjálfstæðisflokk- inn berjast fyrir frelsi einstaklingsins til orðs og æðis en Alþýöubandalagið sækja fram undir kúgunar- og mið- stýringarstcfnu kommúnismans. — Alþýðubandalagið ætlaði að reyna að sameina andstæðinga sjálfstæðismanna um eitt framboð gegn þeim i sveitarstjórnarkosn- ingunum í nágrannabyggðum Reykjavíkur, en það tókst ekki, sagði Salome Þorkelsdóttir (S) í ræðu sinni. Taldi hún einsýnt, að tekist yrði á miili Sjálfstæðisflokks og Alþýðubandalags í komandi sveitarstjórnarkosningum. Halldór Blöndal (S) sagði það vera í rökréttu framhaldi af lands- fundi Sjálfstæðisflokksins, að full eining hafi náðst meðal sjálfstæð- ismanna í Reykjavík um framboð til borgarstjórnarkosninga, sömu sögu væri að segja um Akureyri og hvarvetna annars staðar. Taldi hann margt benda til þess, að sú verði gifta flokks og þjóðar, að Sjálfstæðisflokkurinn rísi upp sterkari en nokkru sinni fyrr. Svavar Gestsson, formaður Al- þýðubandalagsins, taldi, að „milli- flokkarnir" skiptu engu máli í kom- andi sveitarstjórnarkosningum, átökin væru á milli Sjálfstæðis- flokks og Alþýðubandalagsins. Vil vita hver er af- staöa Jafnréttisráðs — segir Þorsteinn Halldórsson — í ÖLLll þessu tali um jalnrétti, sem mér finnst oft vera nokkur þvæla, datt mér í hug að kanna hvort Jafnréttisráð myndi vilja líta á þetta mál kvenna- framboðanna, sagði Þorsteinn Hall- dórsson, tvítugur piltur úr Kópavogi, •m kærði kvennaframboð í Keykja- Ákvörðun um frestun tekin síðar vík og á Akureyri til Jafnréttisráðs, en ráðið tekur kæruna til meðferðar nk. miðvikudag. — Mér sýnist í fljótu bragði ekki frekara jafnrétti á ferðinni í kvennaframboðunum en annars staðar og þótt þær hafi sagt að karlmenn séu meðal stuðnings- manna, þá er á framboðslistann að líta, þar eru eingöngu konur og hvaða jafnrétti er það? Þess vegna vildi ég kanna hvaða afstöðu Jafn- réttisráð, sem starfar á kostnað skattborgaranna, tæki til þess arna, enda eru til sérstök lög um jafnrétti, sagði Þorsteinn Halldórsson einnig. Mætum að sjálfsögðu á boðaða sáttafundi, segir Þorsteinn Pálsson SÁTTANEFND ríkisins ákvað á fundi sínum í gær að halda skyldi þá sáltafundi í kjaradeilu ASÍ og VSÍ, sem þegar hefur verið boðað tii, þrátt fyrir beiðni VSÍ um frestun við- ræðna fram yfir kosningar. I>ví verða fundir á mánudag með félög- um og samtökum innan ASÍ og á þriðjudag með sáttanefndum ASl og VSÍ. Sáttanefndin mun síðan taka frekari afstöðu til frestunarbeiðn- innar eftir þá fundi. Morgunblaðið hafði samband við Þorstein Pálsson, fram- kvæmdastjóra Vinnuveitendasam- bandsins, vegna þessa. Sagði hann að fulltrúar Vinnuveitendasam- bandsins myndu að sjálfsögðu mæta á sáttafundi, sem sátta- semjari boðaði til, það væri bæði skylt að lögum og eins teldu þeir það eðlilegt að hlýða því kalli. Það hefði reyndar verið tekið fram við sáttasemjara þegar honum hefði verið afhent yfirlýsing VSÍ. Hitt væri annað mál, að fundirnir yrðu alveg jafn tilgangslausir og áður. Þess væri ekki að vænta að þar yrði um neinn árangur að ræða frekar en á fyrri fundum. Afstaða VSÍ byggðist einfaldlega á því að þeir vildu ekki halda áfram að hlekkja fólkið í landinu með því að mæta stöðugt til funda og láta líta svo út sem einhverjar alvöruvið- ræður væru í gangi, eftir að marg- ir helztu forystumenn ASI hefðu lýst því opinberlega yfir, að úrslit samninganna fengjust ekki fyrr en eftir 22. maí. VSÍ teldi að það væri rangt að blekkja almenning í landinu með því að halda ein- hverju öðru fram. Það réðist síðan eftir þessa fundi hvert framhaldið yrði, það væri ekkert hægt að segja um það á þessu stigi. Það væri alfarið á valdi sáttasemjara að boða til sáttafunda. „Hann og sáttanefndin verða að meta það, okkar ósk var sett fram vegna þess að það var orðið ljóst að margir helztu forystumenn verkalýðshreyfingarinnar ætluðu sér ekki að semja á næstunni og því vildum við ekki vera að halda uppi þessum blekkingaleik. Ákvörðun um framhaldið er á valdi sáttasemjara og henni hlýð- um við,“ sagði Þorsteinn. Samningar um Blöndu aö takast ATVINNUMÁLANEFND Sameinaðs Alþingis sat á fundi i mest allan gær- dag og fjallaði meðal annars um Blönduvirkjun. Eggert Haukdal, formaður nefndarinnar, sagði seint í gær- kvöldi, að málin hefðu þokast áfram og kvaðst hann halda að samningar væru að takast. Sagði Eggert að annar fundur væri boðaður hjá nefndinni klukkan 8 árdegis í dag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.