Morgunblaðið - 30.04.1982, Side 5

Morgunblaðið - 30.04.1982, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1982 5 Akureyri: Kristinn G. Jóhannsson sýnir í Rauða húsinu Akureyri. KRISTINN G. Jóhannsson listmálari hefur opnað myndlist- arsýningu í Rauða húsinu. Þar sýnir hann 7 svartlistarsyrpur, alls um 40 myndir. Flestar eru myndirnar dúkristur af ýmsum mynstr- um á hlutum í Minjasafninu á Akureyri, svo sem útskurði á rúmfjöl og hurð, prjónlesi og vefnaði, og vinnur listamaður- inn úr þessum mynstrum á margvíslegan hátt. Aðeins ein mynd er til af hverri dúkristu. Auk mynstranna eru nokkrar svarthvítar teikningar. Sýningin er opin daglega kl. 16—20 fram á sunnudaginn 2. maí. Sv.P. Skólasýningu Asgríms- safns lýkur 2. maí nk. SKÓLASÝNINGU Ásgrímssafns sem opin hefur verið sl. þrjá mánuði lýkur sunnudaginn 2. maí. Sýningin, sem er mjög fjöl- breytt, er öllum opin. Ásgríms- safn, Bergstaðastræti 74, verður opið kl. 13.30—16.00 á sunnudag. Safnið verður síðan lokað um hríð meðan nýrri sýningu verður komið fyrir. Davíð afgreiddi mál- ið innan sólarhrings ÞORSTEINN Haraldsson, Melbæ vid Sogaveg, kom með eftirfarandi bréf á ritstjórn Mbl. og bað um að það yrði birt. Fer það hér á eftir: „Við, sem búum við Sogaveg, höfum lengi öslað drullupolla og for. Ófrágengin gangbraut fram- an við húsin norðanmegin við göt- una er sannkölluð hryggðarmynd. Ibúarnir hafa lengi gengið í geitarhús borgarinnar að leita ullar — mætt fyllstu kurteisi, fengið klapp á bakið, en engar framkvæmdir. Með langlundargeði og þolin- mæði hefur baráttunni fyrir mannsæmandi umhverfi verið haldið áfram. Það var þó ekki fyrr en mánudaginn 26. apríl, að und- irrituðum hugkvæmdist að af- henda Davíð Oddssyni afrit af bréfi sínu til borgarstjóra og önn- ur gögn varðandi gangbraut þessa. Tæpum sólarhring síðar var málið komið á borð borgarráðs. Fyrir tilstuðlan þeirra Davíðs og Alberts Guðmundssonar, sem flutti málið ásamt honum, er gangbrautin komin á teikniborð- ið. Þó svo sum okkar séu fylgjandi löngu tímabæru kvennaframboði og einhverjir íbúanna styðji litlu flokkana (eins og gengur), breytir það ekki því að við kunnum að þakka það sem vel er gert. Það hefur verið sagt um Davíð, að hann eigi að halda sig að leik- ritagerð og frá borgarmálefnum. Víst er að maðurinn skrifar góð leikrit — en ofangreint dæmi sýn- ir, að hann er jafnframt mannteg- und, sem sízt er of mikið af í opinberum stöðum. Þorsteinn Haraldsson, Melbæ við Sogaveg." „Ibúarnir hafa lengi gengið í geitarhús borgarinnar til að leita ullar,“ segir m.a. i bréfinu, en jafnframt aó fyrir tilstuðlan Davíðs og Alberts Guðmundssonar, sem flutti málið með honum, sé gangbraut við Sogaveginn nú komin á teikniborð. Úr fórum borgarstiórnar 1978—1982: Glundroði 1 Æskulýðsráði Ofstjórn nefnda og ráöa hjá vinstri mönnum í borgarstjórn- inni í Reykjavík hefur gert allt stjórnkerfi borgarinnar þungt í vöfum og seinvirkt. í hverri nefnd og ráöi þurfa þrír stjórnmála- flokkar þar aö auki aö bræöa saman ólík sjónarmið og koma niöurstööunni í gegnum kerfiö til endanlegrar samþykktar flokks- • bræöra sinna í borgarráöi og borgarstjórn, því er ekki aö furöa þótt mál séu afgreidd seint og illa og stundum aldrei. Æskulýösmál ættu aö vera laus viö stjórnmála- og persónu- deilur innan meirihluta borgar- stjórnarinnar. Þaö segir því sína sögu aö vinstri fulltrúar í Æsku- lýösráöi, sem bera ábyrgö á æskulýösmálum borgarinnar, hafa frá upphafi rifizt innan ráös- ins. Fundargeröir Æskulýösráös eru opinberar heimildir um starfshætti vinstri flokkanna hjá Reykjavíkurborg. Þeim sem vilja kynnast svokölluöu „samstarfi" þessara flokka, mun vafalaust þykja fróölegt aö sjá hvernig þaö hefur veriö í reynd samkvæmt skráöum fundargeröum. Þar sem mikiö hefur veriö bókaö á heilu kjörtímabili, veröur aö nægja aö taka nokkur dæmi af handahófi. Fundur 18. desember 1978 Tekin var fyrir tillaga frá for- manni Æskulýösráðs, Sjöfn Sig- urbjörnsdóttur, en upphaf henn- ar var á þessa leið: Æskulýðsráó Reykjavíkur lýsir megnustu vanþóknun á þeirri róðabreytni Rauð- sokkahreyfingarinnar aö selja vín og leyfa vínneyzlu í Tónabæ á fjölskyldu- samkomu samtakanna þar 4. nóv. sl.“ Fulltrúar Alþýöubandalagsins brugöust skjótt viö og fluttu til- lögu, sem hófst þannig: „Vió undírrituð leggjum til aö tillögu Sjafnar Sigur- björnsdóttur veröi vísað frá.“ Fulltrúi Framsóknarflokksins lét ekki sitt eftir liggja og flutti þriöju tillöguna og má af því marka, aö hann hafi haft sér- skoðun á málinu, þótt ekki sé vel Ijóst, hver hún var. Þaö voru síöan sjálfstæðis- menn, sem skáru úr ágreiningi vinstri mannanna meö því að samþykkja tillögu formannsins. Fundur 12. febrúar 1979 Fulltrúar Framsóknarflokksins og Alþýöubandalagsins fluttu til- lögu, þar sem segir m.a.: „Meö vísan til áður yfirlýstr- ar stefnu fulltrúa í Æsku- lýösráöi mótmælir ráöió harölega þeim fyrirætlunum aó leggja Útideild niöur.“ Hér mótmæla fulltrúar tveggja vinstri flokka í Æskulýðsráöi fyrirætlunum vinstri manna í borgarráði harðlega. En oddviti vinstri manna í Æskulýösráöi, fulltrúi Alþýðu- flokksins, var ekki á sama máli og lét m.a. bóka: „Á fundi, sem 8 borgar- fulltrúar meirihlutans héldu fyrir viku, var samþykkt m.a. með atkvæðum alþýðu- bandalagsmanna aö leggja niður starf Útideildar mest- an hluta árs 1979.“ Fulltrúar Alþýöubandalagsins og Framsóknarflokksins svöruöu þessari bókun meö nýrri bókun, mjög langri, þar sem þeir ávíta sína menn í borgarstjórn fyrir þaö m.a. aö ráöast á garöinn þar sem hann sé lægstur og aö hafa ekki samráö við þá, sem málum séu kunnugastir, þ.e.a.s. flokks- bræöur sína í Æskulýösráöi. Um þetta segir orörétt í bókuninni: „Viö teljum aö finna megi aðrar leiöir til sparnaðar en aö ráöast á garöinn þar sem hann er lægstur, og aö í þessu sambandi hefói veriö happasælla aö hafa samráö viö þær stofnanir, sem mál- inu eru kunnugastar.“ Fundur 26. marz 1979 Fundum Æskulýösráös er aö sjálfsögöu stjórnaö af formanni þess, og eins og fram er komiö gegnir fulltrúi Alþýðuflokksins formennskunni. Eitthvaö hlýtur því aö hafa veriö á undan gengiö, þegar fulltrúar hinna samstarfs- flokkanna létu gera svohljóöandi bókun: „Aö gefnu tilefni óskum viö undirrituð eftir aö framvegis veröi fariö aó fundarsköpum á fundum ráósins. Auglýstir dagskrárliöir fái sitt rúm á fundum ráösins, málfrelsi fundarmanna sé tryggt og aö athugasemdir og bókanir séu færöar til bókar sé þess óskað.“ Ekki veröur þetta skiliö ööru vísi en svo, aö vinstri menn hafi svipt hvern annan málfrelsi, brot- iö fundarsköp o.s.frv. Fundur 23. apríl 1979 Bókun, sem fulltrúi Alþýöu- bandalagsins lét gera á þessum fundi, er athyglisverö þótt efniö sé ekki merkilegt, svo vel sem hún lýsir því hvaö vinstri menn hafa eytt kröftum sínum í „sam- starfinu" mikla í borgarstjórn Reykjavíkur. Bókunin hljóöar svo í heilu lagi: „Ég fer hér með fram á þaö aö í framtíöinni veröi liöur- inn önnur mál jafnan síöasti liöur á dagskrá á fundum ráösins." Þessi bókun á heima í afreka- skrá vinstri meirihlutans í borgar- stjórn Reykjavíkur! Fundur 21. ágúst 1979 Þaö gæfi ekki rétta mynd af samstarfi vinstri manna i Æsku- lýösráöi aö geta ekki um neina tillögu, sem þeim tókst að veröa sammála um. Hér veröur ein slík nefnd. Svohljóöandi bókun var samþykkt: „Æskulýösráó mótmælir harölega þeim drætti, sem oröið hefur á ákvöróun borg- arráös um aó ráóa í stööu framkvæmdastjóra ráösins. Jafnframt krefst Æskulýðs- ráö þess, aó málió veröi af- greitt á næsta fundi borgar- ráðs, þ.e. á föstudag nk. Vill Æskulýösráð í þessu sam- bandi minna á óþolandi seinagang borgarráös á af- greiöslu samþykktar Æsku- lýðsráös Reykjavíkur varö- andi Tónabæ, en afgreiðsla borgarráðs á því máli hefur nú staðið í tæpt ár og er ólokiö enn.“ Þessa tillögu sem er í raun árás á vinstri meirihlutann i Borgarráöi, studdu sjálfstæöis- menn og var hún því samþykkt meö öllum greiddum atkvæöum. Fundur 28. ágúst 1979 Svo var komiö vinstra sam- starfinu á þessum fundi, aö full- trúi Framsóknarflokksins lét gera um þaö bókun aö vinnubrögö Sjafnar Sigurbjörnsdóttur í til- teknu máli væru „óheiöarleg og lýstu vanviröu vió borgarfulltrú- ann Kristján Benediktsson“. Hér hefur veriö rakinn stuttur kafli úr samstarfssögu vinstri manna í borgarstjórn Reykjavík- ur meö þeirra eigin oröum. Lengi mætti halda áfram aö segja svip- aöa sögu úr Æskulýösráöi og öörum nefndum og ráöum undir stjórn vinstri manna. Um slíkt stjórnarfar hefur lengi veriö not- aö oröiö glundroöi og er þaö enn i fullu gildi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.