Morgunblaðið - 30.04.1982, Blaðsíða 8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1982
ÞESSA viku hefur staðið yfir í
Reykjavík svonefnt Evrópumót
hvítasunnumanna. Hittast hér
til fundahalda fulltrúar safnaða
hvitasunnumanna í Evrópulönd-
um. Eitt aðalverkefni þeirra hér
er að skipuleggja næsta Evrópu-
þing hvítasunnumanna, sem
halda á í Þýskalandi árið 1984.
Morgunblaðið ræddi stutt-
lega við tvo fulltrúa á mótinu,
annan frá Rúmeníu og hinn
frá Ungverjalandi.
— Þetta er í fyrsta sinn,
sem ég er á íslandi, en þetta
er greinilega forvitnilegt land
og hér býr gott fólk og
hæfileikamikið, sagði Trand-
afir Sandru, sem býr í Búkar-
est. — Eg er prestur í kirkju
hvítasunnumanna í Búkarest
og er auk þess ritstjóri tíma-
rits kirkju okkar og stjórna
einnig eins konar námskeiða-
haldi í guðfræði.
Ég kom til starfa í hvíta-
sunnuhreyfingunni eftir
stríðið, en kirkja hvítasunnu-
manna hóf að starfa í Rúm-
eníu 1922 þegar fyrsta kirkjan
var opnuð. Starfið var ýmsum
erfiðleikum bundið framan af
og hófst eiginlega ekki að
marki fyrr en eftir stríð þegar
okkur var leyft að starfa að
fullu frelsi. Núna eru hjá
okkur 800 kirkjur, en auk
hvítasunnumanna eru í Rúm-
eníu m.a. rétttrúnaðarsöfnuð-
ir og söfnuðir mótmælenda.
Er mikill áhugi á kirkju og
kristni?
— Hann hefur verið mjög
vaxandi síðustu árin og það
höfum við glöggt fundið. Allar
kirkjur eru opnar og stöðugt
fjölgar trúuðu fólki. Við fáum
að starfa svo lengi sem við
förum að lögum og eigum ekki
í útistöðum við yfirvöld, sem
láta okkur afskiptalaus.
Þetta hafa verið ánægju-
legir dagar hér í Reýkjavík og
okkur er það mikils virði að
geta farið og hitt trúbræður
Trandafir Sandru frá Rúmeníu
okkar frá öðrum löndum, það
er alltaf mikilvægt að taka
þátt í samstarfi sem þessu.
Einnig var rætt stuttlega
við Attila Fabián, en hann
býr í Búdapest í Ungverja-
landi:
— Ég hef tekið þátt í starfi
hvítasunnumanna í Ungverja-
landi frá 1962 er ég var 17 ára,
en faðir minn var einnig
prestur og hef ég verið um
nokkurra ára skeið prestur í
einum söfnuði hvítasunnu-
manna.
Við höfum gott samband
við Norðurlöndin, aðallega
Svía og Finna, en einnig önn-
ur lönd í Evrópu. Við höfum
t.d. fengið gesti heim og þeir
hafa prédikað hjá okkur og
við ferðumst til annarra
landa til að taka þátt í sam-
starfi og sjá hvernig aðrir
söfnuðir skipuleggja sitt
starf. í samanburði við mót-
mælendur eru hvítasunnu-
menn kannski ekki margir, en
þeim fer fjölgandi og af þeim
l-jósm. Krislján
Kirkjum hvítasunnu-
manna fer fjölgandi
— segja tveir fulltrúar þeirra frá Ungverjalandi og Rúmeníu
Frá Evrópuþingi hvítasunnumanna:
Attila Fabían frá IJngverjalandi
söfnuðum sem telja má full-
orðinsskírendur eru söfnuður
hvítasunnumanna í öðru sæti
næst á eftir baptistum.
Áður fyrr máttu þessir
kristilegu söfnuðir ekki starfa
í landinu, en við eigum nú
heilbrigð og eðlileg samskipti
við ríkisstjórn og yfirvöld og
eftir síðari heimsstyrjöldina
hefur fjölda safnaða verið
leyft að taka til starfa í Ung-
verjalandi.
Mér hefur verið það mikil
ánægja að kynnast Islending-
um, hér býr gott og rólegt fólk
og hér virðist ekki ríkja sá asi
og flýtir sem stundum verður
vart í sumum öðrum löndum,
og sláum við þá botninn í
spjall við fulltrúa hvítasunnu-
manna, enda voru þeir á leið
að hitta forseta íslands, en
síðan biðu þeirra frekari
fundahöld. Lýkur fundum
þeirra hér á laugardag, en á
kvöldin hafa þeir tekið þátt í
samkomum í kirkju Fíladelf-
íusafnaðarins í Reykjavík.
Fulltrúar hvítasunnusafnaða frá mörgum Evrópulöndum þinga þessa viku í Reykjavík.
Færði Grímseyjar-
kirkju góða gjöf
GÍSLI Sigurbjörnsson forstjóri af-
henti biskupi fslands, herra Pétri
Sigurgeirssyni, nýlega gjöf að upp-
hæð kr. 20.000 til Grímseyjarkirkju
og með gjöfinni fylgdi eftirfarandi
bréf.
„Á þessu ári eru sextíu ár liðin
frá því að Elli- og hjúkrunarheim-
ilið Grund tók til starfa.
Séra Sigurbjörn Á. Gíslason,
einn stofnenda og formaður
stjórnarnefndar til æviloka, lét
sér annt um fólkið í Grímsey og
þótti vænt um það.
Meðfylgjandi ávísun er gjöf til
kirkjunnar í Grímsey til minn-
ingar um hann og samstarfsmenn.
Með bestu kveðju frá okkur á
Grund til fólksins í Grímsey og
herra biskupsins, sem um langt
árabil var prestur þess.“
íslenska kirkjan þakkar þessa
Verðmæti Spánar-
samningsins 170
millj. króna
EINS OG Morgunblaðið skýrði frá
í gær, þá hefur Sölusamband ísl.
fiskframleiðenda nú gengið frá
sölu á 6000 tonnum af saltfiski af
þessa árs framleiðslu til Spánar.
Verðmæti samningsins er á milli
15 og 16 milljónir dollara eða 160
til 170 milljónir króna að því er
Morgunblaðinu var tjáð í gær.
myndarlegu gjöf og þann hlýhug
sem að baki liggur. Stjórn Elli- og
hjúkrunarheimilisins Grundar
með Gísla Sigurbjörnsson í far-
arbroddi hefur hlynnt að mörgum
góðum málum um langt skeið og
gefið þar fordæmi og vakið marga
til meðvitundar um félagsleg og
kirkjuleg mál.
(Fréll frá Biskupslofu.)
Ingólfsstræti 18 s. 27150
Viö Ljósheima
Urvals 3ja herb. ibúð í lyftu-
húsi með útsýni.
í Háaleiti
Góð 3ja herb. íbúð.
í Hraunbæ
Úrvals 4ra herb. ibúð.
Viö Sörlaskjól
Falleg 3ja herb. kjallara-
íbúð. Samþykkt. Tvöfalt
verksmiðjugler. Harðviðar-
eldhús. Sér hiti. Sér inn-
gangur.
Viö Njálsgötu
Snyrtileg 3ja herb. íbúð á
hæö í steinhúsi. Sala eöa
skipti.
4ra herb. m. bílskúr
Góö endaibúð á annarri
hæö viö Hvassaleiti. Laus í
júlí. Einkasala. Akveöin sala.
Við Eyjabakka
Úrvals 4ra herb. íbúð á
þriðju hæð (efstu). Víðsýnt
útsýni. Laus 1. sept.
Auk annarra eigna á söl-
uskrá.
Benedikt Halldórsson sölustj.
Hjalti Steinþórsson hdl.
Gústaf Þór Tryggvason hdl.
SIMAR 21150-21370
SOIUSTJ LARUS Þ VAL0IMARS
L0GM J0H Þ0ROARS0N HDl
Til sölu og sýnis yfir helgina:
Parhús við Hávallagötu
meö 6 herb. ibúö á tveim hæðum 64x2 fm. Kjallari um 75
fm með einstaklingsíbúð, þvottahúsi og geymslum. Trjá-
garöur. Þetta er góö eign, vel byggö og vel meö farin. Laus
í júlí nk.
Úrvalsíbúð við Austurbrún
ofarlega í háhýsi. 2ja herb. um 56 fm. Stórkostlegt útsýni.
Nánari uppl. á skrifst.
Suður íbúð við Sléttahraun
á 3. hæö um 105 fm. Ný eldhúsinnrétting, nýleg teppi,
þvottahús á hæðinni. Laus strax. Gott verö. Bílskúrsréttur.
4ra herb. íbúð við írabakka
á 3. hæö rúmir 90 tm. Tvennar svalir, góö sameign. Verö
aöeins kr. 850 þús. Laus eftir óskum kaupanda.
Höfum á skrá fjölda
fjársterkra kaupanda.
AtMENNA
FASTEIGHASALAH
LAUGAVEG118 SIMAR 21150-21370
endur athugið
Erum þátttakendur aö alþjóölegri matvælasýningu í
París í haust. Tökum aö okkur ýmsar kynningar á ísl.
matvælum, svo sem auglýsingar, bæklingadreifingar,
vörukynningar o.s.frv.
Þessi sýning er stærsta sinnar tegundar í Evróþu
meö rúmlega 200.000 gesti frá yfir 120 löndum.
Frekari upplýsingar veita:
í Reykjavík: Kristján Einarsson (91) 24015.
í Grimsby: Hilmar F. Foss (90 44) 472 44721.
Fylkir LTD,
Wharncliffe Road,
Fish Docks,
Grimsby, England,
tlx.: 527173.