Morgunblaðið - 30.04.1982, Síða 12

Morgunblaðið - 30.04.1982, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1982 MEYJASKEMMAN: „Hún smýgur manni bein- línis inn að hjartastað“ „Það er með nokkrum endemum hvernig þessi söngleikur, Meyja- skemman, kemur fram í sviðs- ljósið," sagði Sigmundur. „Þeir fé- lagarnir Dr. A.M. Willner og H. Reihert sömdu leikinn. Handritið sendu þeir svo til Heinrich Berté tónskálds og mæltust til að hann semdi tónlist við leikverkið. Berté brást vel við en þegar til kom vildi enginn taka verkið til sýningar. Það var ekki fyrr en töluvert löngu síðar að leikhússtjóri nokk- ur dregur handritið upp úr skúffu hjá sér og skoðar það nánar, að skriður fer að komast á málið. Honum leist ekkert á tónlistina eftir Berté, en eitt lag sem Berté hafði notað eftir Schubert féll honum forkunnar vel. Leikhús- stjórinn setti það skilyrði fyrir uppfærslu að öll lögin yrðu eftir Schubert, og því varð Berté að hlíta þó honum þætti það súrt í broti." Er þá ekkert í þessu verki sem er eftir Berté? „Það er eiginlega ekkert nema uppröðun og samhengi laganna — það eru til yfir 700 sönglög eftir Schubert, þannig að úr mörgum var að velja, og vissulega hefur Berté tekist að velja þau smekk- lega. Meyjaskemman var svo sýnd 1916 og varð strax mjög vinsæl meðal almennings. Schubert var þá þegar orðinn þekkt og virt tónskáld en var þó ekki orðinn mjög kunnur meðal almennings. Verkið bögglaðist hins vegar fyrir brjóstinu á gagnrýnendum í Schubert gefur Hönnu dóttur Tschöll hirðglermeistara hýrt auga. (Sigurður Björnsson og Katrín Sigurðardóttir í hlutverkum sínum.) Giuditta Grisi, hirðóperusöngkona, hefur Franz von Schober barón grunaðan um fjöllyndi í ástarmálum og veitir honum átölur. (Júlíus Vífill og Anna Júlíana Sveinsdóttir.) „Markmið okkar skemmtileg sýning var hugljúf og — ekki annatV4 fyrstu, og reyndar hefur það viljað loða við síðan. Maður getur vel skilið það ef maður vill. Hugsaðu þér t.d. ef Jónasi Hallgrímssyni væri stillt upp í söngleik á svipað- an hátt og Schubert í Meyja- skemmunni! í fyrstu uppfærslun- um var Schubert líka hafður mikið aulalegri en hann er í þessari sýn- ingu — í þessari uppfærslu er fremur lögð áherzla á hið mann- lega í fari hans.“ Hvernig finnst þér að þessi upp- færsla hafi heppnast? „Mér finnst að hún hafi heppn- ast vel, þó það sé reyndar ekki mitt að dæma um það. Þessi leik- gerð Steiners er að ýmsu leyti frábrugðin eldri uppfærslum, en Meyjaskemm'an er gamalt verk sem auðvitað ber merki síns tíma. Það hefur mikið verið lagt í að gera þessa sýningu sem best úr garði og raunverulega má segja að blóminn úr íslenskri söngvara- stétt taki þátt í þessu. Þá eru mjög góðir leikarar jafnvel í smáhlut- verkum, Arni Tryggvason fer t.d. á kostum í hlutverki leynilög- reglumannsins og lífgar mikið uppá þótt hann sé ekki lengi á sviðinu. Burðarásinn í þessu verki er hins vegar tónlistin — þetta er söngleikur fyrst og fremst. Það er hreint ótrúlegt hvað tónlistin í þessu verki á mikinn hlut í manni — hún smýgur manni beinlínis inn að hjartastað, eins og komist er að orði í Meyjaskemmunni. Þegar verið var að velja fólkið í sýninguna stóðum við frammi fyrir því að velja annaðhvort leik- ara sem gætu sungið þokkalega eða söngvara sem gætu leikið þokkalega. Það má segja að síðari leiðin hafi verið valin." Og hvernig hefur söngvurunum gengið að leika? „Að öllu samanlögðu má segja að þeir standi sig mjög vel. Það er „Meyjaskemman er söngleikur þar sem söguþráðurinn er ástarsaga — kannski dálítið grátbrosleg. Þar segir frá ástarraunum Schuberts — hann er ástfanginn af einni meyjanna í meyjaskemmunni, Hönnu, dóttur Tschöll hirðglermeistara. Schubert bregður á það ráð að semja til hennar ástaróð en er svo óframfærinn að hann biður Schober barón, góðvin sinn, að syngja lagið fyrir hana í sinn stað. En Schober er ekki við eina fjölina felldur — Hanna fellur aö vísu fyrir ástaróðnum en hún verður ástfangin af Schober, og Schubert situr eftir með sárt ennið. Þó þessi söguþráður sé skáldskapur eiga persónurnar í söngleiknum sér fyrirmyndir í vinum og samtíðarmönnum Schuberts," segir Sigmundur Örn Arngrímsson, aðstoðarleikstjóri Meyjaskemmunnar, er Þjóöleikhúsið sýnir um þessar mundir. Austurríkismaðurinn Wilfried Steiner sá um að setja Meyjaskemmuna á svið, enda er hann höfundur þeirrar leikgerðar verksins sem uppfærð hefur verið í Þjóðleikhúsinu. Hlutverk Sigmundar er hins vegar að halda í horfinu og æfa inn nýja leikara, gerist þess þörf. Meyjaskemman hefur tvisvar áður verið sviðsett hér á landi — fyrst 1934 og hafði Hljómsveit Reykjavíkur veg og vanda af, en sýnt var í Iðnó. Árið 1939 var Meyjaskemman svo aftur sett á svið í Iðnó. Frá brúókaupsatrióinu. Meyjarnar þrjár úr meyjaskemmunni standa fremst á myndinni. ( Kristján Viggósson, Júlíus Vífill Ingvarsson, Jón S. Gunnarsson, Kristín Snædal Sigtryggsdóttir, og Elísabet Eiríksdóttir.) óhætt að segja að þetta unga fólk sem er að koma hér fram í fyrsta sinn hafi skilað óhemjumikilli vinnu og sýnt mikinn dugnað. Hinu er ekki að leyna að margir söngvarar eru hreinir nýliðar hvað leiklist varðar og það er ekki hægt að ætlast til að þeir geti leik- ið eins og atvinnuleikarar." Hvernig finnst þér að áhorfend- ur hafi tekið verkinu? „Mjög vel. Þetta er skemmtileg og hugljúf sýning, en hér er að sjálfsögðu ekki um þungt verk að ræða. Meyjaskemman kallar ekki á neinar bollaleggingar um lífið og tilveruna. Sumir eru óánægðir með það og fordæma verkið þess vegna. Markmið okkar var hins vegar hugljúf og skemmtileg sýn- ing og ekki annað," sagði Sig- mundur Örn. — bó „Það hefur verið létt yfir áhorfendum“ „Jú, þetta er mitt fyrsta hlut- verk á sviði. En söngnám á Ítalíu er sem betur fer alhliða þannig að ekki þurfa að verða skörp skil þeg- ar farið er út í starfið sjálft," sagði Júlíus Vífill Ingvarsson, sem fer með hlutverk Schober baróns í Meyjaskemmunni, er blm. Mbl. spurði hann hvernig honum hefði fundist að taka við þessu hlut- verki. „Ég hef haft ákaflega gam- an af að taka þátt í þessu, einkum og sérílagi hefur mér þótt gaman að fá tækifæri til að leika, en það hef ég ekki prófað áður nema í leiklistardeild skólans á Ítalíu." Hvað finnst þér um Meyja- skemmuna sem söngleik? „Meyjaskemman er óperetta sem byggir jafnt á sönglist og leiklist. Þetta er mjög sérstakur stíll sem menn kynnast best með því að gera sér ferð til Vínarborg- ar. Ég hef oft komið þar í aðalóp-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.