Morgunblaðið - 30.04.1982, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 30.04.1982, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1982 15 Svíþjóð: Verkalýðsfélögin hóta allsherjarverkfalli Stokkhólmi, 29. apríl. Krá (•uórinnu'Kagnarsdóttur, fréttaritara Mbl. SÆNSKII verkalýössamtökin hóta allsherjarverkfalli, ef atvinnurekendur neita að greiða launþegum sjúkradagpeninga fyrir 3 fyrstu veikindadagana en þá kröfu ætla samtökin að leggja fram um miðjan mai. Ríkisstjórnin mun sennilega taka ákvörðun um það innan skamms um að fella niður alla sjúkrasamlagsgreiðslur fyrir þessa daga. Striðið um sjúkradagpeningana hefur staðið í marga mánuði, einnig innan ríkisstjórnarinnar. Nokkrir þing- menn Miðflokksins hafa meðal annars hótað að fella tillöguna en Thorbjörn Fálldin, forsætisráðherra og formaður Miðflokksins, hefur barizt harðlega fyrir að vinna tillögunni fylgi. Verkalýðssamtökin, bæði LO þannig kjör launþeganna. Hingað (ASÍ) og TCO (BSRB) hafa mót- til hafa bæja- og ríkisstarfsmenn mælt eindregið þessari ákvörðun haft sjúkradagpeninga frá fyrsta ríkisstjórnarinnar að skerða veikindadegi, en verkamenn frá 2. Komust undan HELMSTEDT — Þrír Austur- Þjóðverjar óku þungri dráttarvél gegnum stálgirðingu á landamær- unum við Helmstedt á fimmtudag og komust heilu og höldnu til Vestur-Þýzkalands. Minni verð- bólga BtíSSEL - Verðbólgan í EBE- löndunum í marz var minni en hún hefur verið í tvö ár. Verð á neyzluvöru á tólf mánaða tímabili, sem lauk 31. marz, hækkaði um 11,7%, sem er minnsta hækkun á ári síðan hún nam 11,4% á árs- grundvelli í september 1979. Kuldakast í Júgóslavíu BELGRAD — Vorsáningu hefur seinkað í Júgóslavíu vegna kulda- kasts og spáð er uppskerubresti, snjóað hefur í nokkra daga í vest- ur- og miðhluta landsins, svo að hættulegt er að aka á ýmsum veg- um, og í Sarajevo hefur mælzt minnsti hiti á þessari öld í april- lok, við frostmark. veikindadegi. Ef allar sjúkrasam- lagsgreiðslur verða felldar niður fyrir fyrstu þrjá veikindadagana, samsvarar það um það bil 3.000 króna (sænskra) tekjuskerðingu fyrir hvern verkamann í Svíþjóð. Launþegasamtökin munu krefj- ast þess að atvinnurekendur taki nú á sig kostnaðinn vegna sjúkra- dagpeningagreiðslna. Að öðrum kosti er hótað allsherjarverkfalli. LO og TCO hafa komið sér saman um að láta þessar kröfur ganga fyrir öllum öðrum kröfum og þær munu ekki hafa áhrif á launakröf- ur í væntanlegum samningum verkalýðsfélaganna og ríkisstjórn- arinnar. En með þessari hótun sinni vonast verkalýðsfélögin lík- lega til að ríkisstjórnin dragi til baka tillögur sínar. I dagblöðunum í dag birtir Miðflokkurinn stórar auglýsingar, sem kynna hvers vegna landið hafi ekki ráð á að borga sjúkradagpen- inga fyrir launþega. Miðflokkur- inn leggur áherzlu á, að þessar sparnaðarráðstafanir komi verst niður á hátekjufólki en valdi lág- launafólki tiltölulega litlum baga. Ef tillögur jafnaðarmanna um söluskattshækkun næðu fram að ganga, segir Miðflokkurinn, kæmu þær harðast niður á láglaunafólk- inu og barnafjölskyldur yrðu þá fyrir mestri tekjuskerðingu. Mitterrand hvetur Dani til samstarfs Kaupmannahörn, 29. april. Al’. FRANCOIS Mitterrand Frakklandsfor- seti hvatti danska þingið i ræðu i dag til að vinna að nánari tengslum Kvrópurikja til að vega upp á móti vaxandi valdatog- streitu austurs og vesturs og kallaði KBK „meiriháttar friðarafl". Hann varði kjarnorkustefnu Frakka og kvað kjarnorkuvopnabirgðir þeirra nauðsynlegar til að þeir gætu varðveitt sjálfsákvörðunarrétt sinn ef til átaka kæmi. „Frakkar vilja aðeins verja sig,“ sagði Mitterrand. „Ekkert ríki ætti að bíða þangað til því verður ógnað.” Hann hrósaði Dönum fyrir að verja 1% þjóðartekna til aðstoðar við þróun- arríki og sagði að ein alvarlegasta hættan, sem heimurinn stæði and- spænis, væri vaxandi klofningur ríkra þjóða og fátækra. Þetta er 16. utanlandsferð Mitterr- ands síðan hann varð forseti fyrir 11 mánuðum. í kvöldverðarboði skálaði hann fyrir Danmörku sem „eina land- inu sem Frakkland hefði aldrei átt í stríði við.“ ííeUrJlorkSiincö Rússar ganga á lagið í Falklandseyjadeilunni Argentínumenn hafa nú af þvi vaxandi áhyggjur, að þeir séu að einangrast á alþjóðavettvangi vegna innrásar sinnar í Falklands- eyjar. Við þessu hafa herforingj- arnir brugðist með því að hefja eins konar hræðsluherferð gegn fulltrúum vestrænna ríkja i Buen- os Aires og er þá klifað á því sýknt og heilagt, að stríð við Breta hefði í fór með sér mjög aukin áhrif Sov- étmanna í Argentinu, sem eru þó ekki lítil fyrir. Herforingjar jafnt sem hátt- settir embættismenn Argentínu- stjórnar hafa að undanförnu út- málað það mjög fyrir sendi- mönnum Bandaríkjastjórnar og Vestur-Evrópuríkja, að Argent- ínumenn eigi brátt ekki um ann- að að velja en treysta samband sitt við Sovétríkin og þessum áróðri hefur einnig verið lekið til erlendra fréttamanna. „Þeir einu, sem hagnast á þessu, eru Sovétmenn, og þeir, sem tapa mestu, eru Bandaríkjamenn," lét einn háttsettur maður í hernum hafa eftir sér. Sovétmenn hafa vissulega séð sér leik á borði í Falklandseyja- deilunni og þeir telja það þjóna hagsmunum sínum best að taka undir allar landakröfur Argent- ínu. I Pravda, málgagni sovéska kommúnistaflokksins, er stefna Breta kölluð „fallbyssupólitík" og Haig, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem unnið hefur að lausn málsins, kallaður „senditík breska heimsvalda- sinna". Stjórnarfarinu í Argent- ínu hefur að vísu verið lýst sem hálffasísku einræði en Sovét- menn láta sig það litlu skipta og þeir eru ekki eina kommúnista- ríkið, sem það gerir. Kúbumenn, sem til þessa hafa kynnt landið sem griðastað fyrir útlæga vinstrimenn frá Argent- ínu, hafa nú ákveðið að taka upp nánari samskipti við herfor- ingjastjórnina í Buenos Aires og nýskipaður sendiherra þeirra þar, Emilio Aragones Navarro, lét svo ummælt á blaðamanna- fundi sl. laugardag, að nú væri kominn tími til að styðja við bakið á Argentínustjórn. Verslunarviðskipti Sovétríkj- anna og Argentínu hafa stórvax- ið á síðustu árum og einkum eft- ir að Argentínumenn brutu í raun á bak aftur kornsölubann Carters á Sovétríkin vegna inn- rásarinnar í Afganistan. Korn- kaup Sovétmanna í Argentínu tvöfölduðust í fyrra og voru 15,7 milljónir tonna, eða 11% af út- flutningi argentínskra landbún- aðarafurða. Ýmsir áhrifamenn í Argentínu hafa litið með ugg til þessarar þróunar og talið það varasamt að gerast of háðir ein- um kaupanda. Innrásin í Falk- landseyjar var þó ekki fyrr um garð gengin er gerðir voru samn- ingar um enn nánari samskipti þjóðanna í efnahagsmálum. Viðskiptin við Sovétmenn hafa verið Argentínumönnum mjög hagstæð. Á síðasta ári fluttu þeir út vörur þangað fyrir 3,4 milljarða dollara en keyptu á móti aðeins fyrir 67 milljónir. Þessu vilja Sovétmenn breyta og hafa m.a. þess vegna fengið að koma upp tveimur fyrirtækjum til að gera út á fiskveiðar við strendur Suður-Argentínu. Sjötta apríl sl., fjórum dögum eftir innrásina í Falklandseyjar, var svo samið um, að Sovétmenn sæju Argentínumönnum hér eft- ir fyrir úraníum í kjarnorkuver- ið í Buenos Aires en Bandaríkja- menn, sem höfðu áður gert það, hættu því þegar Argentínustjórn neitaði að undirrita samninginn um takmörkun kjarnorkuvopna. I Argentínu hafa margir af því áhyggjur, að hugsanleg stríðs- átök gætu auðveldlega breiðst út og hefur Jæssi ótti magnast við fréttir um sovéska kafbáta á Suður-Atlantshafi og þær full- yrðingar, að Sovétmenn veiti argentínska hernum upplýsingar um ferðir bresku herskipanna. Sendiherra vestræns ríkis í Buenos Aires segir, að Rússar séu „eins og sjálfgefið var, flækt- ir í þessa deilu" og að líklegt sé, að þeir hefji bein afskipti af henni ef stríð brýst út. Argent- ínumenn voru að vísu mjög óánægðir með að Rússar skyldu sitja hjá í atkvæðagreiðslu ör- yggisráðsins, þegar Argentínu- menn voru hvattir til að hverfa með her sinn frá Falklandseyj- um, en með tilliti til yfirlýsinga Rússa að undanförnu virðast þeir ætla að styðja enn betur við bakið á herforingjunum en hingað til. Jesus Iglesias Rouco, dálka- höfundur við óháða, argentínska dagblaðið La Prensa, velti því fyrir sér í fyrri viku hvort her- foringjastjórnin myndi biðja um hjálp Rússa ef hún sæi fram á algeran ósigur sinn í Falklands- eyjadeilunni. Rouco varaði al- varlega við slíkum aðgerðum og sagði, að afleiðingar þeirra á al- þjóðavettvangi myndu koma fyrst og fremst niður á Argent- ínumönnum sjálfum. „Okkur er ekki aðeins lífsnauðsyn að forð- ast slíka beiðni, heldur ættum við líka opinberlega og afdrátt- arlaust að hafna aðstoð Rússa þótt þeir bjóði hana," sagði Rouco. — Sv. Galtieri hershöfðingi og forseti Argentínu á fundi með ráðherrum sínum nokkrum stundum eftir innrásina i Falklandseyjar. Stjórnarfarið í Arg- entinu er oftast nær kennt við fasisma en nú bregður svo við, að herforingjarnir njóta mests stuðnings frá kommúnistaríkjunum með Sov- étríkin og Kúbu í broddi fylkingar. ÍSLANDS Lestun í erlendum höfnum AMERÍKA PORTSMOUTH Junior Lotte 5. maí Mare Garant 14. mai Junior Lotte 24. maí Mare Garant 4. júni NEW YORK Junior Lotte 7. mai Mare Garant 15. mai Mare Garant 5. júni HALIFAX Hofsjökull 10. mai Selfoss 28. mai BRETLAND/ MEGINLAND ROTTERDAM Alafoss 3. mai Eyrarfoss 10. mai Álafoss 17. mai Eyrarfoss 24. maí ANTWERPEN Alafoss 4 mai Eyrarfoss 11. maí Álafoss 18. mai Eyrarfoss 25. maí FELIXSTOWE Alafoss 5. mai Eyrarfoss 12. mai Alafoss 19. mai Eyrarfoss 27. mai HAMBORG Álafoss 6. mai Eyrarfoss 13. mai Alafoss 20. maí Eyrartoss 28. mai WESTON POINT Helgey 5. mai Helgey 18. mai NORÐURLÖND/ EYSTRASALT BERGEN Dettifoss 10. mai Dettifoss 24. mai Dettifoss 7. júni KRISTIANSAND Mánafoss 3. maí Mánafoss 17. mai Mánafoss 31. maí MOSS Mánafoss 4. mai Dettifoss 11. maí Mánafoss 18. mai Dettifoss 26. maí GAUTABORG Mánafoss 5. mai Dettifoss 12. mai Mánafoss 19. mai Dettifoss 27. maí KAUPMANNAHÓFN Mánafoss 6. maí Dettifoss 13. mai Mánafoss 20. mai Dettifoss 28. mai HELSINGBORG Mánafoss 7. maí Dettifoss 14. mai Mánafoss 21. mai Dettifoss 29. maí HELSINKI Condor 5. mai Irafoss 17. maí Múlafoss 1. júni RIGA Irafoss 13. mai Múlafoss 3. júni GDYNIA Irafoss 14. mai Mulafoss 3. júni HORSENS Múlafoss 10 mai Irafoss 24. mai THORSHAVN Mánafoss 27. mai VIKULEGAR STRANDSIGLINGAR - framog til baka frð REYKJAVÍK alla mánudaga frá iSAFIROI alla þriöiudaga frá AKUREYRI alla fimmtudaga EIMSKIP SlMI 27100

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.