Morgunblaðið - 30.04.1982, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1982
19
Nýja skip-
ið fær nafn-
ið Keflavík
llli) nýja skip skipafélagsins Víkur
hf. cr va-ntanlegt til landsins seinni
hluta maímánaAar. Finnbogi Kjeld,
forstjóri Víkur, sagði í samtali við
Morgunblaðið að nýja skipið hlyti
nafnið Keflavik, en það hét áður
('harm og var í eigu danskra aðila.
Keflavík verður afhent í Svendborg í
Danmörku í næsta mánuði.
Keflavík er tæplega 4000 dwt að
stærð, 94 metra langt milli stafna,
en lengd milli lóðlína er 85 metrar.
Breidd skipsins er 15,7 metrar.
INNLENT
Einar Ben
til veiða í
næstu viku
TtMiAKINN Kinar Benediktsson fer
væntanlega til veiða á miðvikudag eða
fimmtudag í næstu viku. Níels Ár-
sælsson skipstjóri á Kinari Benedikts-
syni sagði í samtali við Morgunblaðið i
gær, að nauösynlegum breytingum á
togaranum væri nú að Ijúka, en eig-
endur skipsins hefðu enga fyrir-
greiðslu getað fengið í bönkum hér-
lendis til breytinganna og ennfremur
hefðu þeir ekki getað fengið útgerðar-
lán.
Níels kvað þetta vera bagalegt, en
sjálfir hefðu eigendurnir getað lagt
fram fé til breytinganna, auk þess
sem mörg fyrirtæki hefðu verið
þeim hjálpleg og veitt ýmsa fyrir-
greiðslu. Sagði Níels að þeir hefðu
getað farið fyrr til veiða, en nú
stæði yfir þorskveiðibann bátaflot-
ans.
1. maí hátíðarhöld-
in í Stykkishólmi
Stykkishnlmi. 29. apríl.
1. maí verður haldinn hátíðlegur í
félagsheirailinu i Stykkishólmi og
hefst hann klukkan 14 með leik
Lúðrasveitar Stykkishólms undir
stjórn l)aða Kinarssonar. Ræðu dags-
ins flytur síðan Aðalheiður Bjarn-
freðsdóttir frá Reykjavík. Þá verð-
ur kynning á rithöfundinum Hall-
dóri Laxness á vegum Leikfélagsins
Grímnis í Stykkishólmi. Jassband
úr Stykkishólmi leikur síðan. Um
kvöldið verður dansleikur og þar
leikur hljómsveitin Stykk fyrir
dansi.
Malcolm McDowell og Mary Steenburger í hlutverkum sínum í myndinni.
„í kapphlaupi við tím-
ann“ í Austurbæjarbíói
Austurbæjarbíó hefur tekið til
sýningar bandarísku kvikmyndina
„Kapphlaup við tímann".
Myndin er framleidd af Warner
Brothers og í aðalhlutverkum eru
Malcolm McDowell, David Warner
og Mary Steenburger. Stjórnandi
myndarinnar er Nicholas Mayer.
Á frummálinu heitir myndin
„Time after time“.
Rannsóknum lokið í Helguvík
„Jarðvegsrannsóknum er nú lokið
í Helguvík og verða niðurstöður send-
ar til réttra aðila á næstu dögum,“
sagði Guðmundur Sigurösson hjá
Orkustofnun i samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Sagði Guðmundur, að rannsókn-
irnar hefðu tekið rúmlega tvær
vikur og þeim hefði lokið 24. apríl
síðastliðinn. Kvað hann rann-
sóknirnar hafa gengið vel, að öðru
leyti en því að erfitt hefði verið að
fara um svæðið, sökum bleytu. Sök-
um þessa hefðu sumsstaðar orðið
skemmdir á jarðvegi, en þær yrðu
lagaðar um leið og betur viðraði og
jarðvegur þornaði.
Handtekinn
vegna inn-
brots í Toll-
vörugeymsl-
una um jólin
TVÍTUGUR piltur í Reykja-
vík hefur játað að hafa,
ásamt bróður sínum á 16. ári,
brotist inn í Tollvörugeymsl-
una um síðustu jól og stolið
|>aðan mörgum heimilistækj-
um og hljómflutningstækj-
um. Hafði lögreglan grunað
pilt og var hann handtekinn í
gær og hefur játað stuldinn.
Um siðustu jól var rofið gat á
einn útvegg Tollvörugeymslunnar
og farið inn í geymslur fjögurra
fyrirtækja. Var þaðan stolið ýmis
konar raftækjum til heimilisnota
og hljómflutningstækjum og er
verðmæti þeirra talið nema tugum
þúsunda króna. Reyndust þeir
hafa verið tveir bræður að verki
og hefur tekist að hafa upp á nær
öllu þýfinu. Piltarnir hafa báðir
komið áður við sögu hjá lögregl-
unni.
Ekki hefur enn tekist að upp-
lýsa innbrotið í verslunina Gull og
silfur í Reykjavík, en maður, sem
var í haldi grunaður um verknað-
inn, hefur nú verið látinn laus.
Engar sannanir voru fyrir hendi
og neitaði hann öllum sakargift-
um.
Rauði kross íslands:
Viðræður við pólska
flóttamenn 15. maí
Fulltrúar frá Rauða krossi ís-
lands munu fara utan til Austur-
ríkis hinn 15. mai næstkomandi,
til viðræðna við flóttafólk frá
Póllandi er kynni að vilja setjast
Stykkishólmur:
Tónskólanum
slitið í kvöld
Slykkishólmi, 29. apríl.
í Tónlistarskólanum í Stykkishólmi
hafa verið 65 nemendur í vetur. Ilafa
þeir stundað bæði píanóleik, blást-
urshljóðfæraleik og gítarleik.
Kennarar hafa verið þrír og
skólastjóri hefur verið Davíð Þór
Einarsson. Nú verða lokatónleikar
um leið og skólaslit í félagsheimil-
inu í Stykkishólmi í kvöld, föstu-
dag, klukkan 20.30. Allir eru vel-
komnir til að hlusta á hvernig nem-
endum hefur farið fram í vetur.
Einnig verða þar afhent skírteini.
Víkur hf.:
að hér á landi, að því er Jón Ás-
geirsson, framkvæmdastjóri
Rauða krossins, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær. Mikill
fjöldi landflótta Pólverja er í
Austurríki, og hafa íslensk
stjórnvöld, sem kunnugt er, boð-
ist til að veita tuttugu til tuttugu
og fimm þeirra landvist hér sem
pólitískum flóttamönnum. Eru
hinir fyrstu raunar þegar komnir,
eins og áður hefur verið skýrt frá
í Morgunblaðinu, hjón með eitt
barn.
Jón Ásgeirsson sagði, að byrjað
yrði á því að kanna hverjir hefðu
áhuga á að fara til íslands, eftir
að hafa fengið fyrstu upplýsingar
um land og þjóð. Síðan yrði svo
rætt við hvern einstakan um hugs-
anlega flutninga til íslands.
Af flóttamönnunum frá Víet-
nam, sem komnir voru til íslands
en hurfu síðan sporlaust í Kanada,
sagði Jón ekkert frekar að frétta,
eftir að þeir loks gáfu sig fram á
ný. Samkvæmt síðustu fréttum
væri mál þeirra til athugunar hjá
Rauða krossinum í Kanada.