Morgunblaðið - 30.04.1982, Page 24

Morgunblaðið - 30.04.1982, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1982 Byggingahappdrætti SAA: Kanna vatnasvæði Köldukvíslar og þykkt Köldukvíslarjökuls Hér má sjá Landsvirkjunarmenn á leið til starfa sinna á Köldukvíslarjökli. STARFSMENN Landsvirkjunar eru um þessar mundir að kanna vatnasvæði Köldukvíslar og þykkt jökulsins, því Kaldakvísl er mikilvægur liður i miðlunar- kerfi Landsvirkjunar. Leiðangursstjóri í þessari ferð er Helgi Björnsson jarð- eðlisfræðingur á Raunvísinda- stofnun Háskólans, en þykkt jökulsins er einmitt mæld með svokallaðri jöklasjá sem Helgi hefur fundið upp og smíðað. Þegar er búið að mæla Tungnárjökul og Eyjabakka- jökul á sama hátt. Það eru um 10 manns, sem stunda þessar rannsóknir og búist er við að þær taki nokkr- ar vikur, en þeim verði lokið ursmenn hafa þegar dvalið um miðjan maí en leiðang- tvær vikur þarna efra. Nettohagnadur 3 milljónir l'ng stúlka, Jóhanna Vilhjálms- dóttir, dregur út miða hinna heppnu í byggingahappdrætti SAA. Rennur til byggingar „Þetta happdrætti tókst í alla staði mjög vel, og við áætlum að nettóhagnaður nemi tæplega þremur milljónum króna, eða 300 milljónum g.kr.“ sagði Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær. Dregið var í byggingahapp- drætti SÁÁ hjá borgarfógeta hinn 7. þessa mánaðar, og hafa nokkrir vinningshafa þegar sótt vinninga sína, en 11 bifreiðar voru í vinn- ing. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sagði, að selst hefðu um 100 þús- und miðar, að andvirði um 4,5 milljónir króna. Áætlaður kostn- nýrrar sjúkrastöðvar aður við hina nýju sjúkrastöð SÁÁ í Grafarvogi væri 11 milljón- ir króna, og kæmi hagnaðurinn af happdrættinu sér því vel. Teikn- ingu og hönnun sjúkrastöðvarinn- ar miðaði vel, framkvæmdir hæf- ust nú í vor, og áætlað væri að ljúka framkvæmdum innan árs. „Við erum afskaplega þakklát öllum þeim fjölda fólks er veitti okkur lið í þessari fjáröflunarher- ferð okkar. Fénu verður varið til starfs í baráttunni við áfengis- vandamálið, sem er eitt mest að- kallandi verkefni í heilbrigðismál- um okkar Islendinga um þessar mundir," sagði Vilhjálmur að lok- um. Innra-Hólmskirkja 90 ára — afmælisins minnst á sunnudag INNRA HÓLMSKIRKJA er 90 ára um þessar mundir, en hún var vígð 27. marz 1892. Afmælisins verður minnzt nk. sunnudag (2. maí). Hátið- arguðsþjónusta verður í kirkjunni kl. 14. Biskup íslands, herra Pétur Sigur- geirsson, prédikar. Guðrún Tómas- dóttir syngur einsong við undirleik Fríðu Lárusdóttur og kirkjukór sókn- arinnar syngur undir stjórn Baldurs Sigurjónssonar orgelleikara. Að lokinni hátíðarguðsþjónust- unni bjóða hreppsnefndir Innri- Akraneshrepps og Skilmanna- hrepps til kaffiveitinga í félags- heimilinu Miðgarði. Þar verður rakin saga kirkju og staðar á Innra-Hólmi, þá mun Guðrún Tómasdóttir syngja einsöng og ávörp verða flutt. Innri-Hólmur er með allra elztu kirkjustöðum á landinu. Þar reistu írskir menn kirkju löngu fyrir kristnitöku. Kirkja var lögð niður á Innra-Hólmi 1815, en reist að nýju 1891 fyrir forgöngu Árna Þor- valdssonar hreppsstjóra á Innra- hólmi, og var kirkjan vígð í marz árið eftir, eins og fyrr greinir. Kirkjusmiður var Jón Mýrdal skáldsagnahöfundur. Til hátíðarinnar á sunnudag er boðið öllum sóknarbúum og öðrum velunnurum kirkjunnar. Prestur Innra-Hólmskirkju er séra Jón Einarsson, prófastur í Saurbæ, og formaður sóknarnefnd- ar er frú Ragnheiður Guðmunds- dóttir, húsfreyja á Ásfelli. Ferming í Ar- bæjarkirkju Fermingarbörn í Árbæjarkirkju, Kirkjuhvolsprestakalli, sunnudaginn 2. maí. Prestur er séra Auður Eir Vil- hjálmsdóttir. Anna Lára Pálsdóttir, Lækjarbraut 3, Rauðalæk. Hrafnhildur Björnsdóttir, Lyngási. Jónas Benóný Guðmarsson, Meiri-Tungu. Sigríður Ólafía Gísladóttir, Meiri-Tungu. Sigríður Þ. Sæmundsdóttir, Lækjarbraut 14, Rauðalæk. Steinar Jónsson, Lyngási. Sverrir Norðfjörð Bergsson, Lyngási. Hollenskir dagar á Hótel Loftleiðum HOLLENSKUR þjóðdansaflokkur, Schermer Dansers að nafni, mun næstu kvöld skemmta að Hótcl Loft- leiðum, en þar verða Hollenskir dag- ar með túlípönum, músík og dansi fram á sunnudagskvöld. Þessi þjóðdansaflokkur sam- anstendur af 18 körlum og konum, áhugafólki sem hefur farið víða og sýnt hollenska dansa. Flokkur þessi var stofnaður árið 1948 og tilgangurinn var að endurvekja áhuga fólks fyrir þjóðdönsum og þjóðbúningum, en hollenskir þjóð- búningar eru með þeim skraut- legri er þekkjast. Sérstaklega er höfuðbúningur dansaranna at- hyglisverður en þar er skraut úr skíra gulli. Flokkurinn hefur sem fyrr segir sýnt í mörgum löndum svo sem Danmörku, Frakklandi, Ítalíu, Þýskalandi, Englandi og Suður- Afríku. Flestir dansararnir eru bændur sem eiga býli sín rétt utan við Alkmaar, en þar eru hinir frægu Hollensku ostar m.a. fram- leiddir. Með hópnum eru tveir harmónikuleikarar og er vart að efa að mikil kátína mun ríkja í sölum Hótels Loftleiða meðan Hollendingarnir staldra við. Á hverju kvöldi verður happ- drætti. Vinningurinn er far fyrir tvo til Amsterdam. Hollensku dagarnir standa sem fyrr segir fram á sunnudagskvöld. Hollendingar brugðu á leik á Lækjartorgi í hádeginu á miðvikudag og fylgdist fjöldi fólks með þessari óvæntu uppákomu. (Ljósm. köe.) 27. mars sl. voru afhentir i Langholtskirkju vinningar vegna Sunnudags- gátu Kórs Langholtskirkju og eru nöfn vinnenda þessi: Svava Bjarnadóttir, Melbæ 5, Reykjavík, Magna Sigfúsdóttir, Hjálmholti 2, Reykjavík, Auðbjörg Ilíanna Árnadóttir, Varmalandi, Mýrasýslu, Krla Ingibjörg Guðjónsdóttir, Grettisgötu 24, Reykjavík, Ásdís M. Gilsfjörð, Vall- holti 4, Olafsvík. Kosningaskjálfti gerir vart við sig í Garðinum (.arói, 29. apríl. Kosningaskjálfti er nú farinn að gera vart við sig hjá listunum tveim- ur sem bjóða fram í hreppsnefnd- arkosningunum 22. maí nk. I-list- inn, sem er listi vinstri manna i byggðarlaginu, sem kalla sig óháða borgara, hcfir gefið út blað sitt, Skiphól, og opnað kosningaskrif- stofu. H-listinn, sem er listi sjálf- stæðismanna og annarra frjáls- lyndra hyggst opna skrifstofu nú á næstu dögum og í bígerð er að gefa út málgagn. Að þessu sinni mun verða kosið í barnaskólanum en .undanfarin 20 ár hafa kosningar farið fram í þingstað hreppsins sem er sam- komuhúsið. Er þetta ákvörðun I-listans sem telur að óeðlilegt sé að kosið sé í öðrum sal samkomu- hússins og að kvenfélagskonur selji kaffi í hinum salnum eins og í undanförnum kosningum. I síðustu hreppsnefndarkosn- ingum var opin talning eftir að kjörfundi lauk og safnaðist þá saman mikill fjöldi Garðmanna í samkomuhúsinu og fylgdist með talningunni. Þetta verður ekki hægt að þessu sinni og er líklegt að þetta sé megin ástæðan fyrir því að vinstri meirihlutinn vildi ekki láta kjósa í samkomuhúsinu. I kosningunum 1978 fékk I-list- inn 233 atkvæði en H-listinn 204 atkvæði. Búast má við að titring- urinn í kosningaslagnum fari vaxandi með degi hverjum hér frá. Hafa listarnir ákveðið að hafa sameiginlegan fund 13. maí nk. fyrir væntanlega kjósendur en í kosningum þar sem tveir list- ar eru í kjöri eins og hér er, má segja að hver kjósandi ráði yfir meira en einu atkvæði eða a.m.k. að vægi hvers atkvæðis sé mikið. Ef ekki er kosið H þá er kosið I eða öfugt. Arnór

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.