Morgunblaðið - 23.05.1982, Blaðsíða 1
76 SÍÐUR
110. tbl. 69. árg.
SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Argentínumenn
orðnir uggandi
Huenos Aires og London, 22. maí. Al*.
NÚ ÞEGAR Falklandseyjadcilan hefur magnast og alvarleg
átök þegar orðið virðist það æ aigengara að argentínskir
borgarar velti því fyrir sér hvers vegna í ósköpunum þessi
deila hófst. Tvær grímur eru farnar að renna á marga, sem
telja, að yfirvöldum væri nær að helga sig öðrum mikilvægari
málefnum en stríösrekstri.
„Fjöldi fólks hefur ekki
nægan mat að borða,“ sagði
auglýsingastjóri, sem rætt var
við. „Það er út í hött að hefja
styrjöld á meðan ástandið er
þannig heima fyrir.“
Leigubílstjóri sem stöðvaði
bíl sinn og hrópaði til vegfar-
Frelsi — Brezkur landgönguliði þiggur tebolla hjá falklenzkri fjölskyldu eftir uppgöngu
brezka landgönguliðsins á föstudagsmorgun. Uppgangan kom Falklendingum og argentínska
hernámsliöinu á óvart. sím»mynd ap.
Einni brezkri freigátu
sökkt og 20 er saknað
London, 22. maí. AP.
ARGENTÍNSKAR flugvélar sökktu brezku freigétunni „Ardent" í hinum hörðu
orrustum um Falklandseyjar é föstudaginn, um 20 er saknað af éhöfninni og talið
að 30 hafi særst, að því er John Nott landvarnaréðherra tilkynnti í dag, laugardag.
„Ardent" var með 175 manna
áhöfn og var eitt fimm brezkra
herskipa, sem löskuðust í loftárásum
Argentínumanna á Falklandssundi.
Nott sagði að annað skip hefði lask-
azt alvarlega og væri með ósprungna
sprengju í vélarúminu, en vopn þess
væru óskemmd. Minniháttar tjón
hefði orðið á hinum herskipunum
þremur og þau væru í viðgerð.
Yfirmaður varnarráðsins, Sir Ter-
ence Lewin, sagði að skipin hefðu
laskazt þegar þau vörðu landgöngu-
skip og kaupskip við hina háskalegu
landgöngu í gær. Um tjónið sagði
Lewin að það væri „ekki meira,
kannski minna, en búast mátti við“.
Nott endurtók að Argentínumenn
hefðu misst 9 Mirage-þotur, 5 Sky-
hawk-flugvélar, 2 Pucara-flugvélar
og 4 þyrlur. Hann sagði að Bretar
hefðu misst eina Sea Harrier-þotu
og tvær Gazelle-þyrlur. Eftir missi
„Ardent" hafa Bretar misst 25 menn
og 57 eru særðir.
Landgangan tókst vel í alla staði,
sagði Nott, og Bretar mættu lítilli
sem engri mótstöðu. Hann varaði við
því að meiri bardagar væru fram-
undan, en sagði að hættulegustu að-
gerðinni, uppgöngunni á eyjarnar,
væri lokið. „Þeir berjast núna frá
öruggri bækistöð og hættustund
fyrstu uppgöngunnar er að baki. Við
erum komnir aftur til Faiklandseyja
með öflugt lið og við ætlum að
tryggja að árás borgi sig ekki.“
Um 2.500 brezkir hermenn réðust
á land og í dag treystu þeir fótfestu
sína við höfnina San Carlos, sauð-
fjárræktarbú þar sem 30 Falklend-
ingar búa, í aðeins 80 km fjarlægð
frá meginliðsafla Argentínumanna,
4.500 mönnum í höfuðstaðnum Port
Brezkt herskip af sömu gerð og „Ardent“
Stanley. En brezku hermennirnir
bjuggu sig undir að mæta meirihátt-
ar gagnárás.
Press Association hafði eftir
leyniþjónustuheimildum að búizt
væri við að argentinsku hermennirn-
ir í Port Stanley reyndu að sækja
með stuðningi skriðdreka til brezka
landgönguliðsins við San Carlos
„innan 30 klukkustunda“. Frétta-
stofan sagði að búizt væri við nýjum
argentínskum loftárásum.
Meðan ráðizt var í land á fjórum
stöðum og fótfestu náð við San Carl-
os héldu brezk herskip uppi árásum
á skotmörk umhverfis Port Stanley
og Harrier-þotur réðust til atlögu
gegn stöðvum umhverfis Fox Bay á
Vestur-Falklandi, þar sem um 1.500
argentínskir hermenn munu vera til
varnar. Við San Carlos streymir
liðsauki búinn Scorpion-skriðdrek-
um og Rapier-eldflaugum í land.
Sjá nénar bls. 23.
anda hafði eftirfarandi fram
að færa. „Það er nær enga
vinnu að hafa hér. Þeir sem
hafa atvinnu gera ekki betur
en svo að lifa af henni. Við
höfum verið án þessara eyja í
149 ár. Við getum alveg verið
án þeirra í 149 ár til viðbótar.“
Hann bætti síðan við: „Stríð
gegn Bretum er það síðasta
sem við þurfum. Við erum að
drepa gæsina, sem verpti gull-
egginu.“
„Fólk utan Argentínu gerir
sér ekki grein fyrir því hversu
mikilvægt þetta mál er í land-
inu,“ sagði Ronald Briant, for-
stjóri breska verslunarráðs-
ins, sem styður Argentínu-
menn í deildinni, þrátt fyrir
breskan uppruna.
„Börnum er kennt það strax
í skóla, að breskir sjóræningj-
ar hafi hrifsað Malvinas
(Falklandseyjar) úr höndum
landstjórans og flutt íbúana
upp á meginlandið. Argent-
ínumenn velta því oft fyrir sér
undanfarið hvort Bretar telji
þá vera einhverja indíána,
sem auðvelt sé að eiga við,“
sagði Briant.
Almenningur í Argentínu
er samt í heildina tekið
bjartsýnn á að her þeirra tak-
ist að sigrast á Bretum. „Við
munum gersigra þá,“ sagði
gamall maður er hann hlust-
aði á útvarpsfréttir þar sem
skýrt var frá síðustu atburð-
um á eyjunum.
Landganga brezku hermannanna
kom Argentínumönnum á óvart
Ixindon, 22. maí. AF.
FRÉTTAMENN brezku sjónvarps.slöövanna BBC og ITN, sem voru um borð i
brezku flotadeildinni, sem réðist til landgöngu á Falklandseyjum, hafa sent
frá sér lýsingu á uppgöngunni. Þeir segja uppyönguna hafa komið Falklend-
ingum og argentínskum hermönnum á óvart.
Aðstæður voru hinar ákjósan-
legustu, alskýjað, hellirigning og
rok, segir fréttamaður BBC. Hann
gekk á land með fallhlífadeild af
ferjunni Norland í þröngum firði,
og skipin úti fyrir vörðu uppgöngu-
sveitirnar með stanzlausri skot-
hríð á stöðvar í landi.
„Aðeins einni uppgöngusveitinni
var veitt mótspyrna. Kom til
snarps bardaga, nokkrir Arg-
entínumenn féllu og aðrir voru
teknir til fanga. Þeir voru fluttir
um borð í Canberra, sem breytt
hefur verið í spítalaskip, og þar
gert að sárum manna. Argentínu-
mennirnir voru flestir táningar.
Linnulausum árásum var haldið
uppi á Canberra meðan bjart var
og oft munaði hársbreidd að skotin
hæfðu skipið. Freigáturnar börð-
ust hatrammri baráttu við flugher
Argentínu, og var það blóðugur
bardagi," segir fréttamaður BBC.
„Þrjár Pucara-flugvélar, sem
gerðar eru til að leita uppi skæru-
liða, svipuðust um eftir landgöngu-
liðunum, þar sem þeir reyndu að
hreiðra um sig upp til fjalla. Ein
þeirra varð fyrir skoti frá herskipi
og sá ég flugmanninn bjarga sér á
síðustu stundu í fallhlíf þegar vélin
steyptist í ljósum logum til jarð-
ar,“ sagði fréttamaður BBC.
Fréttamaður óháðu stöðvarinn-
ar, ITN, segir þúsundir landgöngu-
liða hafa tekið þátt í uppgöngunni,
fyrsti landgöngupramminn hafi
siglt að landi klukkan 6.30 að stað-
artíma, eða kl. 8.30 að íslenzkum
tíma. Þyrlur fluttu vopn og birgðir
án afláts. Veðurfarslýsingu hans
bar ekki saman við lýsingu frétta-
SimamyndAI*.
Brezkir landgönguliðar draga
brezka fánann að húni eftir upp-
göngu Breta á eyjarnar.
manns BBC, hann sagði liðið hafa
lagt til uppgöngu við tunglsljós, að
bjart hafi verið og kalt.
„Þeir stóðu glaðværir í löngum
biðröðum á skipunum, með mikla
byrði vopna og vista í stórum
bakpökkum. Einn hermaðurinn
sagði að þeim væri ætlað að leggja
undir sig strandlengjuna og sækja
þaðan upp yfir fjöllin og setja upp
varðstöðvar í fjallshlíðunum fjær.
Það tók fjórar stundir að setja lið-
ið á land og á meðan var haldið
uppi skothríð á stöðvar Argentínu-
manna upp til fjalla. Aðeins á ein-
um stað var veitt mótspyrna.
Landgöngusveitirnar björguðu
31 Falklendingi, þar af 14 börnum,
úr litlu þorpi við eina víkina. Þeir
eru allir heilir á húfi. Fyrr en varði
mátti sjá að landgönguliðið var bú-
ið að koma fyrir loftvarnabyssum í
landi, byggja þyrluvelli, reisa tjöld,
og Scorpion-skriðdrekarnir létt-
byggðu fóru fyrir sveitunum, sem
sóttu upp til fjalla.
Fyrr en varði gerðu Argentínu-
menn loftárás. Fyrst komu Puc-
ara-flugvélar, þvfnæst Mirage-
orrustuþotur. Var skotið án afláts
á þær frá herskipunum, og sáum
við hvernig eldflaugar eltu þær
uppi og grönduðu tveimur rétt hjá
okkur. Flugmennirnir sveigðu og
beygðu á alla kanta til að sleppa
undan flaugunum. Harrier-þotur
frá Invineible og Hermes grönduðu
sumum argentínsku flugvélunum
áður en þær komust á vettvang, og
einnig öðrum sem komust héðan,“
sagði fréttamaður ITN.
Fréttamaður um borð i Hermes
sagði skipin hafa siglt út úr Falk-
landssundi þegar landgónguliðið
hefði verið búið að konta sér fyrir í
landi. Argentínumenn hefðu hald-
ið uppi miklum loftárásum á skip-
in og hæft þrjú þeirra. Tvö skip-
anna hefðu laskast il'a, en óljóst
væri um manntjón. Hann sagði
mannfall mikið í liði Argentínu-
manna og að rnargir þeirra hefðu
gefist upp.