Morgunblaðið - 23.05.1982, Page 16
16
____A------------------------------
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MAÍ1982
Ævar Jóhannesson við kirlian-myndatækið sem hann smíðaði. L^“m' Kris,j*n ^rn E,iaMon
Hvað er það sem kemur
fram á Kirlian-myndum?
Kirlian-ljósmyndir, eins og þær sem eru hér á síðunni, hafa vakið
ttíluverða umræðu í almennum tímaritum, sem fjalla um sálarfræði
og líffræði eða skildar greinar. Ekki virðast menn á eitt sáttir um
hvernig beri að túlka þetta fyrirbæri eða hvað það sé sem kemur
fram á Kirlian-ljósmyndum, en ýmsar tilgátur hafa verið settar fram
til að skýra það. Sumir hallast að dulrænum skýringum — að
mtínnum hafi með þessari aðferð tekist að mynda blik mannsins eða
áru sem „skyggnir“ menn hafa lýst — en aðrir telja að fyrirbærið
eigi sér „eðlilegar" líffræðilegar skýringar. En hvað sem tíllum
skýringum líður fannst blm. Mbl. að hér væri um forvitnilegt efni að
„Það var rússneski rafmagns-
fræðingurinn S. Kirlian sem upp-
Kötvaði þessa Ijósmyndatækni í
lok síðustu heimsstyrjaldar, nán-
ast fyrir tilviljun. Reyndar hafði
tékkneski vísindamaðurinn Nikola
Tesla fengist við svipaðar rann-
sóknir í lok síðustu aldar — hann
tengdi geysiöflug háspennutæki
við dauða hluti og fólk þannig að
geislandi blik myndaðist í kring
um það. Enginn hefur þorað að
endurtaka þessar tilraunir Tesla á
fólki, og féllu þessar aðferðir hans
eiginlega í gleymsku að honum
látnum.
„Umhverfis hlutina
myndaöist
reglulegt ljósblik“
Kirlian uppgötvaði sama fyrir-
bærið af tilviljun þegar hann var
að gera við hátíðnispennutæki í
myrkri, og fór að gera frekari til-
raunir með það. Með því að leggja
ýmsa hluti ofan á Ijósmyndafilmu
og beina háspennuriðstraum síðan
að þeim tókst honum að fá fram
afar sérkennilegar myndir. Um-
hverfis hlutina myndaðist reglu-
legt Ijósblik sem virtist geisla út
frá yfirborði þeirra. Það vakti
strax athygli Kirlians að lifandi
hlutir s.s. laufblöð og fingur höfðu
allt öðruvísi blik en dauðir hlutir
— blik þeirra hafði miklu flóknara
mynstur og í því komu fram allir
regnbogans litir, í stað þess blá-
leita bjarma er stafaði af dauðum
hlutum.
Eftir að hafa rannsakað þessi
fyrirbæri um nokkurn tíma rak
Kirlian sig á nokkuð einkennilegt,
sem átti eftir að hafa afdrifarík
áhrif á rannsóknir hans. Einn
daginn var hann að mynda hendur
sínar með tækinu en allar tilraun-
ir hans mistókust því lítið sem
ekkert blik kom fram á filmunni.
Hann fékk þá konu sína til að
framkvæma tilraunirnar í sinn
stað, og brá þá svo undarlega við
að allar myndir heppnuðust ágæt-
lega hjá henni. Skömmu síðar
veiktist Kirlian hastalega og datt
honum þá í hug að hugsanlega
hyrfi blikið eða minnkaði þegar
líkaminn væri sjúkur, og væri það
skýringin á því að allar tilraunir
hefðu mistekist hjá honum áður
en hann veiktist, en kona hans
fékk fram venjulegar myndir í
sömu tækjum. Það furðulega er að
sjúkdómar virðast koma fram á
Kirlian-myndum, þannig að það
dregur úr blikinu og það breytist
ef viðkomandi vefur er sýktur.
Eitt sinn komu tveir vísinda-
menn heim til Kirlians og höfðu
meðferðis tvö laufblöð sem þeir
báðu hann að mynda. Honum
tókst hins vegar aldrei að ná góðri
mynd af öðru laufblaðinu, þó hitt
myndaðist ágætlega. Er Kirlian
skýrði þeim frá þessu urðu þeir
kampakátir og sögðu: „Þér hefur
þá tekist það.“ Laufblaðið sem
ekkert blik myndaðist í kringum
hafði nefnilega verið tekið af tré
sem sýkt hafði verið — ómögulegt
var hins vegar að greina þennan
sjúkdóm með nokkurri þekktri að-
ferð fyrr en að nokkrum mánuðum
liðnum.
Skömmu eftir þetta fékk Kirli-
an rannsóknaraðstöðu við land-
búnaðarháskóla við Svartahaf og
ræða og |>egar ég frétti að Ævar Jóhannesson tækjafræðingur hjá
Háskóla Islands hefði smíðað sér Kirlian-ljósmyndatæki ákvað ég
að reyna að fá við hann viðtal. Það fylgdi reyndar sögunni að Ævar
hefði verið fyrsti maðurinn í Evrópu sem smíðaði svona tæki, en þau
höfðu þá verið til í Sovétríkjunum um nokkurt skeið. Ævar smíðaði
sitt tæki eftir teikningum frá Moskvu-háskóla, en Kirlian-mynda-
tæknin er rússnesk að uppruna og svo virðist sem Kússar hafi náð
mun meiri árangri á þessu sviði en Vesturlandamenn. Ég hitti Ævar
að máli þar sem hann var að sttírfum hjá Háskólanum og spurði
hann fyrst hver væri uppruni Kirlian-myndatækninnar.
Kirlian-hjónin sem uppgötvuðu kirlian-myndatæknina og hafa þau nú starfað
við rannsóknir á henni um árabil.
hefur starfað eingöngu að þessum
rannsóknum síðan. Svo virðist
sem Sovétmenn verji verulegu fé
til þessara rannsókna og byndi við
þær töluverðar vonir."
Nú hefur verið talað um dulræn
fyrirbæri í sambandi við Kirlian-
ljósmyndir?
„Phantom leaf effect“
— draugafyrirbærið
„Ég veit ekki hvort á að kalla
þau dulræn. Eitt fyrirbæri sker
sig þó mjög úr, svonefnt „Phant-
om leaf effect" eða draugafyrir-
bærið, sem við getum kallað. Ef
tekin er mynd af laufblaði sem
skorinn hefur verið hluti af gerist
það undarlega að Kirlian-myndin
sýnir ljósþokumynstur þess hluta
sem skorinn var burt. Svona
myndir hafa verið teknar í Rúss-
landi en hér á Vesturlöndum hefur
það gengið erfiðlega að fá fyrir-
bærið staðfest, þó einstakir aðilar
fullyrði að þeir hafi náð svona
myndum. Sjálfum hefur mér aldr-
ei tekist að fá fram mynd sem sýn-
ir þetta „draugafyrirbæri" í mínu
tæki, en það getur átt sínar skýr-
ingar. Mér skilst að myndatökur
af þessu tagi misheppnist oft,
þannig að menn þurfi að taka s.s.
100 myndir til að fá tvær sem sýna
svona draugafyrirbæri. Eins gæti
verið að ég sé ekki með nógu gott
tæki.
Það eru líka til athyglisverðar
myndaraðir af blómum sem eru að
deyja í Kirlian-myndatækjum.
Fyrst er ljósblikið í kringum jurt-
ina eðlilegt og einkennist af reglu-
legri lögun og litadýrð. Eftir
nokkra stund taka litirnir hins
vegar að fölna og blikið verður
óskýrara og óreglulegra. Loks
verður Kirlian-mynd af blóminu
eins og af dauðum hlut, pappírs-
blaði eða einhverju þess háttar.
Óþekkt orkusvið
Rússar hafa sjálfir sett fram þá
kenningu að umhverfis lifandi vefi
sé orkusvið sem þeir nefna bíó-
plasma-svið og sé það úr orku-
sveiflum sem menn hafi ekki enn
náð að greina. Tilgáta þeirra er að
bíóplasma-sviðið sé þannig eins
konar mynstur, sem rafeindirnar
leiti eftir við Kirlian-myndatöku
og komi þannig tiltölulega ná-
kvæm eftirlíking af bíóplasma-
sviðinu fram á filmunni.
Til nánari útskýringar mætti
líkja þessu við venjuleg segulsvið.
Þú ert með segulstál en segulsvið-
ið er að sjálfsögðu ósýnilegt. Ef þú
leggur hins vegar pappírsblað yfir
segulinn og dustar á það fínu
járnsvarfi þá kemur lögun seg-
ulsviðsins í ljós á því hvernig
járnsvarfið raðar sér. í þessu
dæmi samsvara rafeindirnar í
Kirlian-ljósmyndatækninni járn-
svarfinu en bíóplasma-sviðið seg-
uisviðinu.
Skýring Sovétmanna á „drauga-
fyrirbærinu" er sú að bíóplasma-
svið laufblaðs sem klippt hefur
verið af geti varað heilt nokkra
stund og komi því fram á Kirlian-
myndum. Mér þykir þessi tilgáta
Sovétmanna alveg skoðandi. Það
eitt að slík tilgáta hafi verið sett
fram er athyglisvert, þar sem það
er regla í allri vísindastarfsemi að
setja ekki fram nýjar tilgátur
varðandi fyrirbæri nema það þyki
fullreynt að eldri þekking dugi
engan veginn til að skýra þau.
Rússneskir vísindamenn líta
þannig á málið að hér sé ekki dul-
rænt fyrirbæri á ferð, heldur sé
bíóplasma-sviðið einfaldlega teg-
und geisla eða bylgjna sem menn
hafa ekki ennþá náð að greina —
rétt eins og gamma-geislar, sem
fundust fyrir nokkrum áratugum,
vöfðust á tímabili fyrir mönnum."
Nú hefur verið talað um að
Rússum hafi tekist að greina
sjúkdóma á algjöru byrjunarstigi
með þessari aðferð?
Sjúkdómsgreiningar
meÓ Kirlian-myndum
„Já, og það virðist vera eitthvað
til í því. Við Alma Ata-háskólann
í Síberíu er sérstök deild undir
stjórn dr. V. Inyushin prófessors,
þar sem eingöngu er fengist við
rannsóknir sem tengjast Kirlian-
myndum, m.a. er fengist við