Morgunblaðið - 23.05.1982, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MAÍ1982
17
RÞFERÐ-fl
Háiíb nisi rau mgjaf /
/0-lookHz,20-4ökV
fíÐFERÐ -JB
HátíÚnisiraumgjQfi
!0 - lövkHZ' 20 - VOkV
;e
11 RcfsHeu^t
£/T+y^rutf
E wv,o-i^rmt +
Raf\W*ut
ri&inmuhii ■
ffofslrau/ f I
a -vt^yn^f
■Ví
o
<M
<N
Há/i ini-
S pmn/r
Háh lni ■
Srttnmir
Einfaldaöar skýringarmyndir af tveim geröum kirlian-myndaUekja.
Þessar teikningar eru teknar úr bókinni „The Human Aura“ eftir dr. W.
Kilner. Kilner fullyrti að hann sæi blik í kringum fólk og af blikinu mætti ráða
hvernig heilsufari þess væri varið, og greina sjúkdóma þess, jafnt sálræna sem
líkamlega. Sumir telja að hluti þessa bliks komi fram á kirlian-myndum.
Þannig lítur „draugafyrirbærið** út. Hluti af lauf-
blaðinu hefur verið kiipptur burtu en samt sýnir
kirlian-myndin Ijósþokumynd af hlutanum. Ekki
eru menn á eitt sáttir um áreiðanleika þessara
mynda.
„Hið sterka blik sem er í
kringum þennan fót bendir til
góðrar heilsu. En takiö eftir að
blikið er skert í kringum stóru-
tána — það bendir til að við-
komandi þjáist af höfuöverk."
(Myndin ásamt textanum er
tekin úr tímaritinu „The Un-
explained“.)
Tékkneski hugvitsmaðurinn N. Tesia starfaði lengst af í Bandar-
íkjunum og var um skeið samstarfsmaður T.A. Edisons. Tesla
tengdi háspennuriðstraumstæki við fólk þannig að það lýsti eins
og neonljós. Enginn hefur þorað að endurtaka þessar tilraunir
hans.
Efri myndin var tekin af fingri huglæknisins séra Johan Scudd-
er, þegar hann reyndi að „senda orku“ út frá fingrinum, en
neðri myndin er af fingri hans þegar hann einbeitir sér ekki að
neinu sérstöku til samanburðar. Ævar hefur tekið mjög hliö-
stæðar myndir af fingrum þekkts íslenzks huglæknis, sem ný-
lega er látinn.
sjúkdómsgreiningar á fólki með
þessari aðferð. Þarna hafa fengist
niðurstöður sem virðast benda til
þess að hægt sé að greina ýmsa
sjúkdóma, s.s. krabbamein, með
þessum hætti, löngu áður en nokk-
ur einkenni, sem greinanleg eru
með venjulegum aðferðum, koma í
ljós. Ég get ekki borið um hvort
þetta er satt eða ekki, en þetta hef
ég lesið í tímaritum og bókum sem
greina frá þessum rannsóknum.
Þessar fullyrðingar hafa að
sjálfsögðu vakið forvitni vísinda-
manna á Vesturlöndum, en hins
vegar hefur gengið erfiðlega að fá
nákvæmar upplýsingar um þessa
starfsemi frá Rússum og stundum
er engu líkara en þeir leggi kapp á
að halda öllu leyndu sem varðar
þessa starfsemi. Á ofanverðum
áttunda áratugnum fór bandaríski
dularsálfræðingurinn Thelma
Moss til Alma Ata-háskólans í
Síberíu i þeim tilgangi að kynna
sér þessa hluti nánar. Prófessor V.
Inyushin tók henni vel í fyrstu,
sýndi henni rannsóknarstofur og
myndir sem henni þóttu afar
merkilegar. Hann lofaði að daginn
eftir skyldi hann afhenda henni
ýmis gögn sem greindu frá afar
merkilegum hlutum varðandi
rannsóknir á Kirlian-myndum.
En þegar Thelma Moss kom til
háskólans daginn eftir var pró-
fessorinn hinn vandræðalegasti og
sagðist því miður ekki geta afhent
henni nein gögn. Svo virðist sem
einhversstaðar hafi verið kippt í
spotta og lagt bann við að upplýs-
ingar um þessar rannsóknir bær-
ust til Vesturlanda."
Telur þú að Rússar hafi náð
meiri árangri í þessum rannsókn-
um en vísindamenn hér á Vestur-
löndum?
„Það er ekki nokkur vafi. Það er
staðreynd að Sovétmenn hafa
veitt í þetta töluverðu fé og all
stór hópur vísindamanna starfar
þar eingöngu að þessum rann-
sóknum. í Evrópu og Bandaríkj-
unum hafa þessar rannsóknir hins
vegar mest verið stundaðar af
áhugamönnum, sem smíðað hafa
tækin fyrir eigið fé. Það segir sig
sjálft að með þeim hætti ná menn
ekki miklum árangri. Vísinda-
menn á Vesturlöndum hafa marg-
ir hverjir litið á rannsóknir af
þessu tagi sem hindurvitni og ekki
viljað skoða þær sem „vísinda-
legar". Ég tel hiklaust að þarna sé
um fordómafull sjónarmið að
ræða — þessar myndir sýna harla
merkilega hluti, þó auðvitað megi
menn ekki láta ímyndunaraflið
hlaupa með sig í gönur hvað þetta
varðar fremur en annað. Þarna
þarf t.d. alls ekki að vera neitt
dulrænt á ferð — hugsanlega sýna
þessar myndir einhverja óþekkta
tegund geisla sem mönnum hefur
ekki tekist að greina ennþá.
Kirlian-myndir og
dulrænar kenningar
Nú er það haft eftir „skyggnum"
mönnum að þeir sjái blik eða áru
umhverfis mannslíkamann, og sé
hún afar misjöfn að formi og lita-
samsetningu eftir því hvernig
skapsmunum og heilsufari við-
komandi er háttað. Telur þú að
Kirlian-myndir renni stoðum und-
ir þessa gömlu kennisetningu?
„Það er erfitt að svara svona
spurningu þannig að vel fari. Að
öllu samanlögðu virðast Kirlian-
myndirnar renna stoðum undir
þessar kenningar fremur en hitt.
Þær eru t.d. afar mismunandi
bæði að lit og lögun eftir því hvar
af mannslíkamanum þær eru
teknar. Sjálfur á ég afar sérkenni-
lega mynd sem ég tók af fingrum
þekkts íslenzks huglæknis. Mynd-
ina tók ég meðan hann var að
lækna sjúkling sem hjá okkur var.
Hvernig sem á því stendur er blik-
ið í kringum fingur hans á þessari
mynd mikið stærra og skýrara en
á hliðstæðum myndum af fingrum
venjulegs fólks, sem ég hef tekið
hundruðum saman. Því er heldur
ekki að leyna að Kirlian-myndum
frá Rússlandi, sem ég hef séð, ber
oft furðu vel saman við myndir
sem „skyggnir" menn hafa teiknað
af bliki mannslíkamans. Þá hafa
sumir sálfræðingar haldið því
fram að skapsmunir manna og
jafnvel persónuleika megi ráða af
Kirlian-myndum — það merkilega
er, að séu menn í æstu skapi verð-
ur blik þeirra á Kirlian-myndum
kröftugra og stærra að umfangi.
Ég held hins vegar að óskynsam-
legt sé að mynda sér ákveðnar
skoðanir á þessum hlutum áður en
ítarlegri rannsóknir hafa farið
fram á þessum fyrirbærum. Þess-
ar gömlu hugmyndir um blik eða
áru eru auðvitað skoðandi, en
jafnvel þó eitthvað kunni að vera
hæft í þeim eru þær sjálfsagt
blandaðar hjátrú og hindurvitn-
um.
„Plasma“
fjórða ástand efnis
Rússar eru miklir efnishyggju-
menn og blanda því ógjarnan sam-
an dulhyggju og vísindum. Ef til
vill hefur það orðið til þess að
þeim hefur orðið meira ágengt við
rannsóknir á svonefndum dulræn-
um fyrirbærum en Vesturlanda-
mönnum. Tilgáta þeirra um bíó-
plasma, sem ég minntist á áðan, er
athyglisverð sem skýring á fyrir-
bærum á Kirlian-myndum, og alls
ekki úr lausu lofti gripin. Fyrri
hluti orðsins, „bíó“, merkir líf.
„Plasma" merkir eiginlega fjórða
ástand efnis, og fjallar verulegur
hluti nútíma eðlisfræði um það.
Efni getur verið fast, fljótandi og
loftkennt en einnig i þessu
svonefnda „plasma“-ástandi.
„Plasma“-ástand efnis næst hins
vegar ekki nema við mikinn hita
en t þvi ástandi hafa efni allt aðra
eiginleika en í föstu, fljótandi eða
loftkenndu formi.
Kenning Sovétmanna er eigin-
lega sú að hluti atóma í lifandi vef
sé í þessu „plasma“-ástandi og gefi
þau því frá sér útgeislun þá sem
fram kemur á Kirlian-myndum.
Samkvæmt þessari tilgátu er ekk-
ert dulrænt við þessi fyrirbæri,
heldur hefur mönnum opnast sýn
inn á nýtt svið líffræðinnar —
rannsóknarsvið sem hugsanlega
gæti fært vísindamönnum aukna
þekkingu á lífinu sjálfu og þar
með á andstæðum þess, sjúkdóm-
um og dauða."