Morgunblaðið - 23.05.1982, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MAÍ1982
37
Hríseyjarrerjan Sævar hefur valdið byltingu í samgöngumálum Hríseyjar og siglir hún oft á dag milli lands og eyjar,
auk þess sem hægt er að leigja hana til aukaferða.
Mestu máli skipti fyrir mig, að þeg-
ar ég kom hingað og byrjaði á
þessu, voru hér málefnalegir menn,
sem veittu mér byr og stuðning, þó
aðrir væru mér andvígir. Ég held að
einhverjir aðrir hafi verið að spá í
þetta, en það er ekki nóg að ganga
með hugmyndina í maganum, ef
hún fæðist aldrei. Það var bara
spurning um tíma og mann hvenær
þessi veitingarekstur hæfist, því
ferjan auðveldar ferðir hér á milli
Hríseyjar og Árskógssands og er
ódýr og hægt að leigja hana fyrir
hópa.
Ég kom hingað um miðjan júlí og
keypti þetta hús. Það var þá í
slæmu ástandi, nánast eins og fok-
helt, en ég gerði það upp sjálfur og
hef íbúð niðri og veitingastofuna
uppi. Ég opnaði 4. september og
þetta fór heldur hægt af stað, en ég
var þó með fasta menn í fæði frá
byggingarfélagi á Akureyri, sem
hér byggði einingahús. Þá voru
nokkur viðskipti við eyjarskeggja.
Það var svo varla fyrr en um miðj-
an janúar, að ég hélt kútmagakvöld,
að fólk áttaði sig endanlega á því að
staðurinn var til. Það komu hér um
40 manns eða um 20% eyjarskeggja
og voru ánægðir með veitingarnar
og tilbreytinguna. Síðan hef ég ver-
ið hér með konukvöld og ýmislegt
fleira og viðskiptin aukast stöðugt
þrátt fyrir að ferðamenn séu ekki
farnir að koma hér svo nokkru
Segja má að ég sé í
sjálfskipuðum
fangabúðum
„ I sumar set ég svo upp eins kon-
ar útibú frá veitingastofunni, þar
sem verða á boðstólum aðrar veit-
ingar en heitur matur, og hreinlæt-
isaðstaða opin öllum og verður hún
sett upp í samvinnu við hrepps-
nefndina. Þetta geri ég meðal ann-
ars af því að ég er bjartsýnn á
framhaldið, ég heid að annað sé
ekki hægt vegna þess að það á að
vera hægt að gera Hrísey að góðum
ferðamannastað og í því tilefni væri
bátaleiga álitlegur möguleiki. Bæði
væri hægt að leigja út báta til fisk-
veiða og einnig til einkaafnota. Hér
er næg atvinna og einkaframtakið
ryður sér stöðugt til rúms og ný-
byggingum íbúðarhúsa fjölgar.
Þetta bendir til þess að aukinn
áhugi sé á eynni og fólk vilji í aukn-
um mæli setjast hér að. Það kemur
bara tvennt til með bættum sam-
göngum eins og ferjunni, annað-
hvort fjölgar hér eða fólk stingur af
í stórum hópum og hér virðist ætla
að fjölga.
Ég er fæddur og uppalinn
Strandamaður en hef búið bæði
fyrir vestan og í Reykjavík. MesUn
hluta ævi minnar hef ég verið
matsveinn á sjó, eða síðan ég var 16
ára með nokkrum hléum. Ég er sem
sagt dreifbýlismaður í eðli mínu og
kann því vel við mig hér fjarri
skarkala heimsins. Veitingastofan
hjá mér er opin frá 8 á morgnana
til 11 á kvöldin dag hvern svo það
má segja að ég hafi sett mig sjálf-
viljugan í fangabúðir hér, þar sem
ég er enn einn um daglegan rekstur.
Það hefur verið anzi erfitt að eiga
við þetta allt einn, sérstaklega á
þorranum, er ég seldi þorramat í
eynni og allt út til Dalvíkur og inn á
Það var kuldalegt þogar blaðamenn heimsóttu Hrísey og Hrísalundur víða
hulinn snjó, en nú vorar þar og ferðamenn eru byrjaðir að heimsækja eyna.
Akureyri, en nú fæ ég fljótlega að-
stoð.“
Sitjum einir að
Galloway-kjöt
kötlunum
„Þá er rétt að geta þess að Hrísa-
lundur er eina veitingastofan á
landinu, sem leyfi hefur til að selja
Galloway-nautakjöt. Einangrun-
arstöð holdanauta, sem hér er
starfrækt, vinnur að því að koma
upp þessum nautastofni með fram-
leiðslu sæðis, sem flutt er í land.
Kjötið má hins vegar ekki flytja í
land og því sitjum við Hríseyingar
og gestir okkar einir að þeim kjöt-
kötlum. Þetta kjöt er nokkuð frá-
brugðið íslenzka nautakjötinu,
helzt vegna þess að það rýrnar ekki
þó það hangi talsvert. Þá er það
nokkuð bragðminna en það ís-
lenzka, en þó mjög bragðgott miðað
við að þetta kjöt, sem ég fæ, er yfir-
leitt af 1 til 2 ára skepnum. Kostur-
inn við þetta kjöt er sá að maður
veit hvað maður er með í höndunum
gagnstætt islenzka kjötinu, sem
bæði er af nautum og beljum á öll-
um hugsanlegum aldri.
Það er full ástæða fyrir ferða-
menn að koma til Eyjafjarðar og
Hríseyjar. Þetta er eitthvert feg-
ursta svæði landsins og það var ein-
hver góður maður, sem sagði að
Hrísey væri perla Eyjafjarðar,"
sagði Auðunn að lokum.
Flugræningi
yfirbugaður
Obu, 21. maí. AP.
FYRRVERANDI sykur-
bóndi, sem rændi flugvél í
innanlandsflugi á Fiiippseyj-
um, var yfirbugaður í dag eft-
ir að hann hafði haft flugvél-
ina á valdi sínu í átta stundir.
Engan sakaði.
Flugræninginn var yfirbugaður
er embættismenn komu um borð í
þeim tilgangi að reyna samninga
við hann. Er þeir réttu honum um-
slag með peningum, stakk hann
handsprengju sinni í jakkavasann
og þá stukku farþegar og embætt-
ismenn á hann. í sömu mund flýðu
40 farþegar út um afturdyr vélar-
innar og 10 út um neyðardyr.
Sykurbóndinn fékk að tala við
fréttamenn eftir að hann var yfir-
bugaður. Hann sagðist hafa rænt
vélinni til að krefjast meira frelsis
fyrir fjölmiðla, betri laun fyrir
kennara og útflutningsfrelsi fyrir
sykur- og kókóshnetubændur.
Hann krafðist einnig vangoldinna
bóta að upphæð 7.150 dollara fyrir
sykurakur, sem hann missti vegna
landbúnaðarstefnu stjórnarinnar.
Ballingslöv
Kynnum nýjar eldhús og baöinnréttingar í sýningarsal okkar í Sundaborg. Einnig úrval
fataskápa. Af því tilefni og vegna mjög mikillar sölu á Ballingslöv innréttingum til íslands,
15%
verölækkun á öllum Ballingslöv
hefur okkur tekist aö ná samningum um
innréttingum til 6. júní 1982.
Minnum jafnframt á mesta úrval landsins af parketi. Glæsilegu frönsku hreinlætistækin frá Selles
koma eftir 2—3 daga.
Ath: Pantanir á innréttingum sem afgreiöast eiga frá verksmiöjunni fyrir sumarleyfi
þeirra í júlí, þurfa aö berast okkur fyrir 26. maí.
Opið í dag kl. 1—4
innréttingaval hf.
Sundaborg, sími 84333.
Ath: innkayrala frá Klappaveg lokuð, aökoma frá Sundaborg.
Velkomin í sýningar-
sal okkar í Sundaborg