Morgunblaðið - 23.05.1982, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MAÍ1982
41
ji ^
SZSteaÉP. 'Wg
Við afgreidalu í Bamaskóianum (janúar 1977.
Þáverandi bókavörður horfir þangaö sem aafnið var. (Myndin tekin 29.
mars 1973.)
Bókasafnið flutt
undan jarðeldi
Hinn 16. febrúar 1973 féll þak
bókasafnsins undan miklum ösku-
þunga. Leiðslur í húsinu sprungu
og vatn lak víöa. Loftið seig og var
ekki hættulaust að vera innan
dyra. Voru þá settar stoðir undir
loftið til öryggis. Gamlar neta-
hrúgur voru uppi á loftinu yfir
safninu og tóku mesta fallið af
þakinu, sem annars hefði lagst
með ofurþunga á bókaskápana og
öngvu verið bjargað.
Nokkrir heimamenn, björgunar-
sveit, sem hélt til í húsi bókavarð-
ar, brá við og bjargaði öllum bók-
um, sem eftir voru í safninu og
voru þær fluttar í hús Gagnfræða-
skólans, sem stendur á hæð ofan
við bæinn. Áður flutti bókavörður
(höfundur þessarar greinar)
dýrmætasta hluta safnsins í gám
til Reykjavíkur. Síðasta daginn
unnu nokkrir amerískir hermenn
við flutninginn. Tveir menn sem
að þessu verki unnu urðu veikir af
vægri gaseitrun.
Ekki er vitað til að almenn-
ingsbókasafn hafi fyrr eða síðar
verið flutt undan jarðeldi.
Hinn 28. mars fór síðasta leigu-
húsnæði Bókasafns Vestmanna-
eyja undir hraun. Bókavörður var
staddur í bænum og hann heldur
eftir lyklunum að húsinu til minja
um lok þessa kapítula í sögu
safnsins.
„Heima á ný“
Endurreisnarstarfið eftir eldgos
hófst þegar björgunarstarfinu
lauk, og þó heldur fyrr. Fjöldi
fólks vann að hreinsun í bænum
og við önnur störf, m.a. sjálfboða-
liðar frá einum 30 löndum sumar-
ið 1973.
Bókavörður fór nú að gera því
skóna að lána þessu ágæta fólki
bækur. Fékkst greiðlega leyfi að
flytja í Barnaskólann, því nú voru
öll Eyjabörn víðsfjarri. En fyrst
þurfti að hreinsa dyngjur af ösku
og vikri innan skóla og ekki síst
utan.
Var nú tekið til við útlán 6. júlí.
Ekki komu nema 10 fyrsta daginn,
en viðskiptafólki fjölgaði brátt, og
var af mörgum þjóðernum.
í Barnaskólanum var safnið
fjögur árin næstu, fyrst í tveimur
skólastofum allstórum, en eftir
tvö ár þurfti að nota aðra stofuna
vegna kennslu, því þá voru mörg
börn komin heim.
Þá er gaus voru 4.000 bindi í
útláni. Um 1.500 töpuðust undir
hundrað metra hátt hraun, í flutn-
ingum eða með öðrum hætti.
Eitt sinn er bókavörður var að
taka á móti lánsbókum í Reykja-
vík, sagði kona nokkur um leið og
hún skilaði fjórum bókum: „Það
var sex metra öskulag yfir húsinu
okkar, en það var grafið niður á
þakið, því að við gátum haft mið
af staur. Við náðum ýmsu úr hús-
inu og hérna eru bækurnar."
Hinn 6. júní 1974 hófst loks að
nýju smíðavinna við Safnahúsið,
og var henni lokið að mestu í nóv-
ember 1977.
1. desember 1977 voru húsa-
kynni bókasafnsins vígð við hátíð-
lega athöfn. Daginn eftir voru
fyrstu bókaútlán, þúsund bindi
lánuð á þrem klukkustundum.
Aðalsafnsalur er 250 ferm,
barna- og unglingadeild 70 ferm,
lesstofa 50 ferm og vinnustofur
100 ferm. Kjallara er skipt milli
bóka- og skjalasafns. Þar er hita-
kerfi og minjasafn hefur þar
nokkurt rými.
Hillubúnaður er frá dönsku
fyrirtæki, Reska, en húsgögn að
öðru leyti finnsk (Alvar Aalto) og
íslensk.
Frá því bókasafnið var stofnað
1862 hefur það verið flutt 20 sinn-
um og 8 sinnum að öllu eða hluta
þau 28 ár, sem skrifari þessa
greinarkorns var bókavörður.
Bókaverðir hafa verið 13 frá byrj-
un.
Þetta laustengda ágrip af sögu
almenningsbókasafns á Islandi er
líklega ekki ósvipað sögu ýmissa
annarra slíkra safna. Með þeirri
undantekningu þó, að hús Bóka-
safns Vestmannaeyja eyddist í
jarðeldi.
Saga þessa litla safns í fiski-
mannaplássi hefur verið baráttu-
saga á ýmsa lund. Barátta við
fjárskort, skilningsleysi og fyrir
því að lenda ekki á götunni. En
trúlega lýkur menningarbarátt-
unni aldrei?
í nýja bókasafninu 1. des. 1977 (hlutl af barnadsild).
Sjóstangaveiðihjól
hr Kkr
ri A ! /%
2 gerðir.
Verð kr. 974,- og kr. 1298,-
utiuf
Glæsibæ, sími 8
Sameiginleg verk-
fallsstjórn 25. maí
á vegum:
Málarafélags Reykjavíkur,
Múrarafélags Reykjavíkur,
Sveinafélags bólstrara,
Sveinaféiags húsgagnasmiöa,
Sveinafélags pípulagningamanna,
Trésmiöafélags Reykjavíkur og
Veggfóörarafélags Reykjavíkur
hefur aðsetur sitt aö Suöurlandsbraut 30, 2. hæö.
Síminn er 39180
Félagsmenn fjölmennið á verkfallsvaktina.
Verkfallsstjórnin.
TÖSKU OG
HANZKABUÐIN HF.
SKOLAVORÐUSTIG 7
S.15814 REYKJAVIK.