Morgunblaðið - 26.05.1982, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ1982
5
„Þórdís þjófamódir ...“ er lokaverkefni þeirra við leiklistarskólann.
Nemendaleikhús Leiklistarskólans:
Frumsýnir leikrit eft-
ir Böðvar Guðmundsson
Nemendaleikhús Leiklistarskóla
íslands frumsýnir í dag, miðviku-
daginn 26. maí, nýtt íslenskt leikrit
eftir Böðvar Guðmundsson, „Þórdís
þjófamóðir, börn, tengdabörn og
barnabörn.“
Leikrit þetta er skrifað útfrá at-
burðum sem gerðust á Snæfells-
nesi árið 1749, og greinir frá fá-
tæklingum, lífsbaráttu þeirra og
samskiptum við yfirvöld, segir í
frétt frá Nemendaleikhúsinu.
Leikstjóri er Hallmar Sigurðs-
son, leikmynd og búninga gerir
Messíana Tómasdóttir, en tónlist
og leikhljóð semur Karólína Ei-
ríksdóttir.
Aðeins fáar sýningar verða á
þessu verki, sem er þriðja við-
fangsefni Nemendaleikhússins á
þessu leikári, og jafnframt loka-
verkefni átta ungra leikara, sem
nú útskrifast frá Leiklistarskóla
Islands, en þeir eru: Arnór Benón-
ýsson, Ellert A. Ingimundarson,
Erla B. Skúladóttir, Kjartan
Bjargmundsson, Pálmi Á. Gests-
son, Ragnheiður Tryggvadóttir,
Sólveig Pálsdóttir og Orn Árna-
son.
Styrkir úr sjóði
Ludvigs Storr
AUGLÝST er eftir umsóknum um
styrki úr Menningar- og framfara-
sjóði Ludvig Storr fyrir árið 1982.
Sjóðurinn var formlega stofnað-
ur árið 1979, en tilgangur hans er
eins og stendur í skipulagsskrá:
„Að stuðla að framförum á sviði
jarðefnafræða, byggingariðnaðar
og skipasmíða með því að styrkja
vísindamenn á sviði jarðefna-
fræða, verkfræðinga, arkitekta,
tæknifræðinga og iðnaðarmenn til
framhaldsnáms, svo og að veita
styrki til rannsókna á hagnýtum
úrlausnarefnum í þessum grein-
um.“
Umsóknareyðublöð fást á skrif-
stofu Háskólans og ber að skila
umsóknum fyrir 10. júní.
Júgóslavía
PORTO
Njótið
hvítasunnuhátíðarinnar
í Höfn rósanna
Blómum skrýdd Portoroz — Höfn rósanna
stendur í skjóli hæöanna viö Piran-flóann á
vesturströnd Istria-skagans, frægur
heilsubaöstaöur með röð nýtízku hótela og
veitingahúsa við strandgötuna og skógi-
vöxnum hæðum og vínekrum f kring. Frá
flugvellinum, Rochi, handan við landamæri
Ítalíu er aðeins klukkustundar akstur. Útsýn
hefur náð samningum við beztu gisti-
staðina, sem tryggja farþegum fyllstu þæg-
Reykjavík: Austurstræti 17, sími 26611 og 20100. Akureyri: Kaupvangsstræti 4, simi 22911.