Morgunblaðið - 15.06.1982, Síða 2

Morgunblaðið - 15.06.1982, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1982 SeÖlabanki Islands: Tekur 222,5 millj. króna lán í Japan SAMNINGUR um 5 milljaröa yena (222,5 milljónir króna) lántöku Seðlabanka íslands verður undir- ritaður í Japan í dag. Lánið er til 15 ára og verður á 8,6% vöxtum. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins hélt Davíð Ólafsson, bankastjóri Seðlabankans utan í gær til að undirrita samninginn, en hann er gerður við ýmis trygg- ingafyrirtæki í Japan með milli- göngu fjárfestingabankans Nikko Securities og er hér um skulda- bréfalán að ræða. Ákveðið hefur verið að lán þetta verði síðan veitt nýlegum hitaveitum til að breyta skammtímalánum í langtímalán. Þá má geta þess að íslenzka rík- ið tók sams konar lán og að sömu upphæð í Japan árið 1978. Verkfallsbrot á skrif- stofu Alþýðubandalags leið um Grettisgötuna þegar þeir veittu athygli ritvéladyn um opna glugga á skrifstofuhúsnæði Al- þýðubandalagsins. Bönkuðu þeir upp á til þess að gæta hverju sá dynur sætti og kom í ljós að á skrifstofunni voru við vinnu Bald- ur Óskarsson, framkvæmdastjóri Alþýðubandalagsins, sem jafn- framt á sæti í trúnaðarmannaráði Verzlunarmannafélags Reykjavík- ur og skrifstofustúlka sem var að vinna við sína ritvél, en hafði ekki heimild til vinnu í verkfallinu. Verkfallsverðir Verzlun- armannafélags Keykjavíkur stóðu starfsmenn á skrifstofu Alþýðubandalagsins í Reykjavík að verkfallsbroti seinni verkfallsdaginn í síð- ustu viku. Verkfallsverðir stöðvuðu þegar vinnu á skrifstofunni. Nokkrir verkfallsverðir frá Verzlunarmannafélaginu voru á Jón Gíslason frá Hofí látinn JON Gíslason, fyrrum bóndi á Hofi í Svarfaðardal, lézt á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri síð- astliðinn sunnudag, 81 árs að aldri. Jón fæddist á Syðra-Hvarfi í Skíðadal 2. ágúst árið 1900. Hann Jón Gislason var sonur hjónanna Gísla Jóns- sonar frá Syðra-Hvarfi og Ingi- bjargar Þórðardóttur frá Hnjúki. Hann fluttist ungur með foreldr- um sínum að Hofi í Svarfaðardal og tók þar við búi af föður sínum 1927. Hann lét af búskap árið 1964, er fóstursonur hans, Agnar Þorsteinsson, tók við jörðinni og bjó síðustu ár æfi sinnar hjá syni sínum, Gísla Jónssyni á Akureyri. Jón kvæntist Arnfríði Sigurhjart- ardóttur frá Urðum árið 1924 og eignuðust þau tvo syni, en annar dó í æsku. Arnfríður Iézt árið 1952. Að loknu barnaprófi sótti Jón kennslu hjá Þórarni Eldjárn á Tjörn í Svarfaðardal og var síðar einn vetur á Bændaskólanum á Hóium. Jón tók alla tíð mikinn þátt í félags- og trúnaðarstörfum í sinni sveit. Átti meðal annars þátt í stofnun Ungmennafélags Dalvík- ur, vann í flestum nefndum og fé- lögum innan hreppsins og sat um árabil í hreppsnefnd. Þá var hann t Búnaðarfélaginu, Nautgripa- ræktarfélaginu, nýbýlanefnd og forðagæzlumaður í tugi ára. Þrennt í slysadeild Þrennt var flutt í slysadeild eftir árekstur á gatnamótum Barónsstígs og Eiríksgötu laust eftir kl. 16.30 á sunnudag. Citröén-bifreið var ekið vestur Eiríksgötu og í veg fyrir Plymouth-bifreið, sem ekið var norður Barónsstíg, með þeim afleiðingum að Citröén-bifreiðin valt. Ökumaður Citroen-bifreiðarinnar sinnti ekki stöðvunarskyldu en hann bar, að hann hefði gleymt sér við aksturinn. Meiðsli fólksins eru ekki alvarleg. Steinn Lárusson: Vandræðaástand að skap- ast í ferðamannaþjónustunni ÁHRIFA yfirvofandi verkfalls þann 18. þesa mánaöar er þegar farið að gæta innan ferðamanna þjónustunn- ar. Sem dæmi um það má nefna, að tveir 120 manna hópar frá Noregi, sem væntanlegir voru hingað á veg- um Ferðaskrifstofunnar Úrvals, hafa hætt við að koma. Steinn Lárusson, framkvæmda- stjóri ferðaskrifstofunnar, sagði í samtali við blaðið, að fyrri hópur- inn, sem væntanlegur var í morg- un, hefði verið hljómlistar- og söngfólk og hefði átt að koma óbeint inn í dagskrá Listahátíðar og skemmta í Reykjavík á þjóð- hátíðardaginn. Þegar það var ljóst að verkfall var yfirvofandi og ekki hægt að tryggja að mál leystust, þannig að tryggt væri að hópurinn kæmist úr landi án efiðleika var hætt við ferðina. Steinn sagði ennfremur, að ætlunin hefði verið að nýta þetta flug með því að senda um 100 manna hóp, þar á 99 Hell Drivers“ á Seyðisfirði ÖKUNÍÐINGARNIR „The Hell Driv- ers“ koma til íslands öðru sinni með Smyrli í dag og munu þeir sýna listir sínar víða um land. Annað kvöld sýna þeir á Seyðisfirði klukkan 21.00. Þar mun trúður sýna ýmsar kúnstir á vélhjóli, stokkið verður 20 metra á vélhjólum og bílum og ekið verður á tveimur hjólum, svo eitt- hvað sé nefnt. Frá Seyðisfirði fara„ The Hell Drivers til Vestmannaeyja. Erum alls ekki ánægðir með tilboð fjármálaráðuneytisins — segir Þórir Steingrímsson, tæknimaður útvarps „TILBÖÐ fjármálaráðuney tisins hljóðaði aðeins upp á eins launa- flokkshækkun til tæknimanna og nokkurra annarra félaga innan Starfsmannafélagsins frá og með fyrsta ágúst. Að mati okkar tækni- manna er það hvergi nærri nóg og vantar enn þrjá launaflokka upp á að kröfum okkar sé fullnægt,“ sagði I»órir Steingrímsson, tækni- maóur hjá útvarpinu, er Morgun- blaðið innti hann álits á stöðu samningamála. Þórir sagði ennfremur, að þetta væri flókið mál vegna þess að óvænt hefði tilboð fjármálaráðu- neytisins verið til alls starfsmannafélagsins og því þyrfti að ganga frá kröfugerð starfsmannafélagsins og yrði hún lögð fram á samningafundi á mið- vikudag. Því væri enn ekki ljóst hvað úr yrði, en hvað sem því liði væru tæknimenn alls ekki ánægð- ir. Þeirra krafa væri að laun yrðu í samræmi við almennan vinnu- markað, það er 19. launaflokk BSRB eftir 5 ára starf. Tækni- menn útvarps væru nú í 15. launa- flokki eftir 5 ára starf og nú væri boðin hækkun um einn launaflokk frá og með 1. ágúst, þannig að enn vantaði þrjá launaflokka upp á að kröfum þeirra yrði fullnægt. meðal um 50 eldri borgara í Reykjavík, með vélinni til Noregs. Það mál hefði þó tekizt að leysa og færi hópurinn út í kvöld með Flugleiðavél. Síðari hópurinn ætti að koma hingað þann 21. þessa mánaðar og væri það mál allt í biðstöðu nú. Þá sagði Steinn, að það virtist að hópferðir hingað, sem væntanlegar hefðu verið á næstunni, væru allar að riðlast og hópar, sem væntanlegir hefðu ver- ið um helgina hefðu hætt við. Þetta gæti haft víðtæk áhrif, bæði á framhaldið og hvað fjárhag snerti. Ferðamenn tækju ekki áhættuna á því að verða innlyksa og því yrði nýting á hótelum léleg og þá hefði þetta áhrif á alls konar þjónustu. Það væri því hægt að segja að vandræðaástand ríkti vegna þessa. Röntgen- og meina- tæknar segja upp frá 1. september nk. RÖNTGEN- og meinatæknar á ríkis- spítölunum og Landakoti hafa sagt upp störfum frá 1. september nk„ en Mbl. skýrði frá því i gær að sömu stéttir hefðu sagt upp frá sama tíma á Borgarspítalanum í Reykjavik. Að sögn Davíðs Ólafssonar fram- kvæmdastjóra ríkisspítalanna hafa uppsagnir þessa starfsfólks verið að 5,29% hækk- un dollara- verðs á ein- um mánuði ERLENDIR gjaldmiðlar hækka stöðugt dag frá degi og má nefna, að á einni viku hefur dollaraverð hækkað um 1,05%, en sölugengi dollars var skráð 7. júní sl. 11,016 krónur, en í gærdag var það skráð 11,132 krónur. Á einum mánuði hefur doll- araverð hækkað um 5,29%, en sölugengið var skráð 14. maí sl. 10,572 krónur, en 11,132 í gær- dag. Ef þessi eins mánaðar hækkun er framreiknuð í 12 mánuði kemur í ljós liðlega 85,63% hækkun. Frá áramótum hefur dollara- verð hins vegar hækkað um tæplega 36%, en síðasta dag ársins var sölugengi dollarans skráð 8,185 krónur. Allt síðasta ár hækkaði dollaraverð til sam- anburðar um 31%. berast síðustu daga, einnig hefur borist sérstakt bréf frá Röntgen- tæknafélaginu. Logi Guðbrandsson framkvæmdastjóri Landakotsspít- ala sagði að sömu starfsmenn þess spítala hefðu einnig sagt upp frá sama tíma. í bréfi Röntgentæknafélagsins segir: „Röntgentæknar samþykktu einróma á félagsfundi 26. maí sl. að grípa til þess neyðarúrræðis að segja upp störfum sínum með fjöldauppsögnum. Eins og hjá mörgum öðrum heilbrigðisstéttum virðist þetta eina færa leiðin til að ná fram eðlilegri launahækkun milli kjarasamninga til jafns við aðrar starfsstéttir bæði innan BSRB og utan. Röntgentæknar óska eftir viðræðum um kröfugerð sína með tilliti til þeirra launaflokka- hækkaná sem hafa átt sér stað und- anfarið." Garðyrkjuþjónusta Morgunblaðsins MORGUNBLAÐIÐ minnir lesendur sína á, að garðyrkjuþjónusta blaðsins stendur aðeins út þessa viku. Þeir, sem vilja koma fyrirspurnum á fram- færi geta sem áður haft samband við ritstjórn blaðsins á milli kl. 11 og 12 á morgnana í síma 10100. Blaðið kemur fyrirspurnum áleiðis til Hafliöa Jónssonar, garð- yrkjustjóra Reykjavíkurborgar, og svör hans birtast síðan hér í blað- inu. Munið að þetta er síðasta tæki- færið til að koma fyrirspurnum á framfæri að sinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.