Morgunblaðið - 15.06.1982, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ1982
3
Félag um stein-
ullarverksmiðju
í Þorlákshöfn
Á AÐALFUNDI Jarðefnaiðnaöar hf.,
sem haldinn var á Hvoli siðastliðinn
sunnudag, var tekin ákvörðun um
stofnun rekstrarfélags um steinullar-
verksmiðju i Þorlákshöfn og stofn-
samningur þar að lútandi var undir-
ritaður. Stofnfundur þess félags er
boðaður 20. júní næstkomandi í Gagn-
fræðaskólanum á Selfossi og hefst
klukkan 15.
í samþykkt fundarins er lýst
fyllstu vanþóknun á þeirri ákvörðun
Belgarnir
MÁL BELGANNA tveggja, sem voru
gómaðir á Keflavíkurflugvelli með hátt
á annað hundrað egg er þeir höfðu
tekið í Mývatnssveit, var i gær sent frá
Kannsóknarlögreglu ríkisins til emb-
ættis Ríkissaksóknara. Þeir eru í far-
banni; það er vegabréf hafa verið tekin
af þeim þar til Ijóst er hver framvinda
málsins verður.
Við yfirheyrslur hjá RLR sögðust
Belgarnir hafa verið við eggjatöku í
eigin þágu og kváðust ókunnugir því,
að eggjataka og flutningur úr landi
varðaði við lög.
iðnaðarráðherra og ríkisstjórnar-
innar, að brjóta á bak aftur frum-
kvæði einkaframtaksins og hafa að
engu arðsemislíkur steinullarverk-
smiðju með því að ætla slíkri verk-
smiðju stað á Sauðárkróki í stað
Þorlákshafnar. „Aðalfundur Jarð-
efnaiðnaðar hf. skorar jafnframt á
Sunnlendinga að sýna mótmæli við
slíku gerræði í verki með því að
fylkja sér um byggingu sunnlenzkr-
ar steinullarverksmiðju í Þorláks-
höfn.“
í farbanni
Fyrir skömmu voru á Alþingi
samþykktar breytingar á refsi-
ákvæðum laga um fuglavernd og
fuglafriðun. Viðurlög við eggjaþjófn-
aði og flutningi úr landi voru veru-
lega þyngd. Hins vegar voru lögin
ekki birt fyrr en á fimmtudag, eða
daginn áður en Belgarnir hugðust
fara úr landi. Því er ekki ljóst, hvort
Belgarnir verða dæmdir eftir nýju
lögunum eða þeim eldri, en refsi-
ákvæði þeirra eru miklu mun væg-
ari.
„Onedin-
skúta“ í
Reykjavík
í Reykjavíkurhöfn getur nú
að líta rennilega seglskútu að
nafni Sören Larssen. Skútan
kom hingað í gær frá Glou-
chester á Englandi og fer eftir
14 daga héðan til Grænlands
og þaðan svo aftur til South-
ampton í Englandi.
Aðspurður um í hvaða er-
indagjörðum siglingamenn
væru svaraði Barry Gill,
sem er einn af áhöfn skút-
unnar, því til að BBC sjón-
varpsstöðin væri að gera
heimildakvikmynd um land-
könnuðinn Shackleton, en
íslendingar ættu að kannast
við Sören Larssen úr ann-
arri sjónvarpsmyndaröð,
þar sem skútan kom mjög
við sögu í Onedin þáttunum,
sem sjónvarpið sýndi á sín-
um tíma við miklar vinsæld-
ir.
Ljósm. Mbl. ÓI.K.M.
Nú kostar blessaöur sopinn á bílinn 10,70 kr. pr. líter og þaö
eru hreinar línur aö þrátt fyrir veröbætur á laun um síöustu
mánaöamót mun þessi hækkun koma mörgum mann-
inum illa og þrengja enn aö fjárhag hans og var þó a
ekki ábætandi.
Viö getum hins vegar leyst vanda örfárra ^|
aöila, sem tryggja sér síöustu bílana
af Daihatsu Charade Runabout
boöstólum. Þetta eru allt *
glæsivagnar, sjálfskiptir og ' **
ótrúlega sparneytnir og veröiö \
er eins og lygasaga.
VIDURKENND GÆÐI, VIOURKENND ÞJÓNUSTA OG VALIÐ ER AUÐVELT OG ÖRUGGT