Morgunblaðið - 15.06.1982, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 15.06.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ1982 5 MORGUNBLAÐIÐ birti sl. fóstu- dag frásögn af grein Alfreðs Þor- steinssonar í Timanum og ummæli Kristjáns Benediktssonar vegna hennar, en í greininni deildi Alfreð m.a. á Kristján fyrir frammistöðu hans í borgarstjórn og þá ákvörðun hans að gefa kost á sér áfram. í gær hafði Alfreð eftirfarandi að segja í tilefni ummæla Kristjáns: „Ég veit ekki, hvort ég á að segja, að svör Kristjáns Benediktssonar hafi beinlinis komið mér á óvart. Það vill oft verða þannig, þegar menn hafa slæman málstað, að þeir ýmist svara ekki efnisatriðum eða grípa til ósanninda. Hvort tveggja henti Kristján Benediktsson í um- ræddu Morgunblaðsviðtali. Þögn hans við helztu gagnrýnisatriðum má kannski túlka svo, að hann sé sammála gagnrýni minni, og verður þá ekki annað sagt en að batnandi manni sé bezt að lifa. En varðandi meintan áhuga minn á borgarfulltrúastarfi skaut Kristján óþarflega langt yfir markið. Hann ætti að minnast þess, að á sama fundi hjá Fram- sóknarflokknum og hann var varaður við ýmsum yfirvofandi skyssum í borgarmálum, lýsti ég því yfir, að ég sæktist ekki eftir borgarfulltrúastarfi. Við þá yfir- lýsingu stóð ég, þrátt fyrir áskor- anir um að taka þátt í prófkjöri. Ég óttaðist ekki, að ég fengi ekki viðunandi fylgi, en ég kæri mig hreinlega ekki um að starfa að jafnveigamiklum málum og borg- arstjórnarmálum nema í sam- vinnu við dugandi og hugmynda- ríka menn. Það segir sig sjálft, að þegar menn eru búnir að starfa að borgarmálum um 20 ára skeið og INNLENT Tveir sækja um Bjarnar- nesprestakall Alfreð Þorsteinsson: Þegar menn hafa slæman málstað... SIGURÐUR Arngrímsson og Önund- ur Björnsson guðfræðingar, hafa sótt um Bjarnanesprestakall í Skafta- fellsprófastsdæmi, en sr. Gylfi Jóns- son sem þar hefur þjónað hefur verið skipaður Skálholtsrektor. Sigurður lauk guðfræðiprófi nú í vor, en Önundur í janúar sl. Um- sóknarfrestur rann út 10. júní og verður væntanlega kosið í júlíbyrj- un, segir í frétt frá Biskupsstofu. Söðulsholtsprestakall hefur ver- ið auglýst laust til umsóknar með umsóknarfresti til 18. júlí, en séra Einar Jónsson í Söðulsholti var kjörinn prestur að Árnesi á Ströndum 16. maí sl. Aðalfund- ur SÍF hefst í dag AÐALFUNDUR Sölusambands ísl. fiskframleiðenda hefst klukkan 9.15 árdegis í dag, þriðjudag, að Hótel Sögu. Að þessu sinni stendur aðal- fundurinn í tvo daga og á aðalfundinum verður minnst 50 ára afmælis, SÍF. PORTOROZ Næsta brottför 18. júní — nokkur sæti laus. 9. júlí — uppselt. Hinn rómaði dvalarstaður viö Adriahafiö. Frábærir gististaöir og aöstaöa til íþróttaiökana hin ákjósanlegasta. Ógleymanlegar kynnisferöir og fjörugir skemmtistaöir. Austurstræti 17, Reykjavík, símar 26611 og 20100. Kaupvangsstræti 4, Akureyri, sími 96-22911. ekkert fararsnið á þeim, þá staðna þeir. Þetta er nokkuð almenn regla og alls ekki bundin við Kristján Benediktsson einan. Eftir stendur að Framsóknar- flokkurinn fékk mjög slæma kosn- ingu í Reykjavík, svo slæma, að ef um þingkosningar hefði verið að ræða, hefði hann aðeins náð inn einum manni. Það er langt í frá, að ég sé eini framsóknarmaðurinn í Reykjavík sem hef áhyggjur af þessari þróun. En það er líka rétt, að til eru menn í Framsóknar- flokknum af sama sauðahúsi og Kristján Benediktsson, sem kjósa að loka augunum fyrir staðreynd- um.“ 37 erindi um manninn og stjórnmálin RÁÐSTTEFNAN um Manninn og stjórnmálin, sem Líf og land efndi til á sunnudag, stóð frá kl. 10 um morgun- inn og fram undir kl. 7 síðdegis og voru þar flutt 37 erindi um viðfangs- efnið út frá ýmsum sjónarhornum. Var töluverð aðsókn allan daginn, sumir komu og fóru en aðrir sátu sem fastast allan daginn. Undir lok- in komu fulltrúar stjórnmálaflokk- anna og skýrðu í stuttu máli frjáls- hyggjuna, sósíalismann, samvinnu- hugsjónina og jafnaðarstefnuna. Hér er í ræðustól Friðrik Sophusson, sem talaði um frjálshyggjuna. Fund- arstjóri á þessum síðasta hluta fundarins var Ester Guðmundsdótt- ir. í öllum þessum erindum er mikill og aðgengilegur fróðleikur, en þau lágu fyrir í bókaflokki Lífs og lands og eru þar fáanleg. ' > i-v * ' ORFA SÆTI ENN LAUS 17. OG 24. JUNI í SUMARLEYFISPARADÍSINNI COSTA DEL SOL Vettvangur heimsviöburöa á sviöi íþrótta og lista, dýrölegt veöur og rómaður aðbúnaöur Útsýnarfarþega. GRÍPIÐTÆKIFÆRIÐ! SÉRSTÖK GREIÐSLUKJÖR NÆSTU FERDIR Á EFTIR UPPSELDAR KVEÐJA FRA LIGNANO: Viö kunnum okkur ekki læti, þetta er algjör paradís, sólskin og veöursæld dag eftir dag, ströndin sú yndislegasta sem viö þekkjum. Viö höfum veriö hér áöur, en staöurinn og aöstaöan er betri en nokkru sinni fyrr, nýir frábærir veitingastaöir og skemmtistaöir aö ógieymdum hinum rómuöu kynnisferðum t.d. þriggja landa sýn og Rómarferðinni ógleymanlegu. Hér er nóg viö aö verafyrir alla á öllum aldri og staöur númer 1 fyrir börnin. Mælum meö lignano viö alla okkar vini og kunningja. Þakklótir farþegar í Lignano. Næsta brottför 18. júní — nokkur sæti laus. 9. júlí — uppselt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.