Morgunblaðið - 15.06.1982, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ1982
11
GflMLfl SflGRN
Stöður hjá
sjónvarpinu
STÖÐUR dagskrárritstjóra og
dagskrárgerðarmanns í frétta- og
fræðsludeild sjónvarpsins hafa verið
auglýstar lausar til umsóknar. Um-
sóknarfrestur vegna fyrri stöðunnar
rennur út 20. júní og vegna þeirrar
síðari 27. júní.
Það eru Halldór Halldórsson,
sem lætur af störfum dagskrárrit-
stjóra og Baldur Hermannsson,
sem lætur af störfum dagskrár-
gerðarmanns. Reiknað er með að
nýir starfsmenn taki við þessum
stöðum að loknu sumarfrí sjón-
varpsins.
Hafnarfjörður
Öldugata
3ja herb. ca. 80 fm hæð í eldra
tvíbýlishúsi. Utborgun 525 þús.
Móabarð
3ja herb. ca. 80 fm ris hæð í
þríbýlishúsi.
Tjarnarbraut
4ra herb. 80 fm miöhæö í þrí-
býlishúsi. Laus strax.
Miðvangur
Góð 140 fm 5—6 herb. íbúð í
fjórbýlishúsi.
Suðurgata
í smíðum tvær góöar hæðir í
þríbýlishúsi ca. 140 fm auk
bílskúrs. Tilbúið til afhendingar
í ágúst. Fokhelt. Verð: 850 þús.
Fokhelt aö innan, tilbúiö aö
utan með gleri og útihuröum kr.
950 þús.
Breiðvangur
150 fm sér hæð í tvibýlishúsi,
auk ca. 70 fm í kjallara. (Mögu-
leiki á lítilli íbúö). 4 svefnherb.
Góðar stofur og bílskúr.
Hraunbrún
Einbýlishús hlaðið og ris. Stærö
2x70 fm auk bílskúrs. Verð 1.3
millj.
Norðurbær
Gott einbýlishús 138 fm auk 50
fm bílskúr. Frágengin lóð.
Vönduð eign, vandaðar innrétt-
ingar.
Kaplahraun
lönaöarhúsnæöi i byggingu 760
fm. Tilbúið til afhendingar í
sumar.
Árni Grétar Finnsson hri.
Strandgotu 25, Hafnarf
sími 51 500
Athugasemd við „Gárur“ Elínar
Pálmadóttur, sunnudaginn 13. júní
Hingað til hef ég haft það álit á
Elínu Pálmadóttur, að hún kynnti
sér rækilega þau málefni, sem hún
skrifar um í greinum sínum. Þetta
álit mitt á Elínu beið mikinn
hnekki við að lesa „gárur“ hennar
í sunnudagsblaði Morgunblaðsins,
sem fjallar um gjöld til Pósts og
sima af talfærum. Allt, sem kem-
ur fram um þessi gjöld er annað
hvort rangt eða mistúlkað og
skora ég hér með á Elínu að leið-
rétta þessa grein sína í næstu
„gárum". Allir góðir blaðamenn
ættu að starfa eftir því heilræði
að hafa það sem sannara reynist.
Athugsemdir við „gárur" Elín-
ar:
1. í greininni segir Elín að leigu-
gjald fyrir venjulegt talfæri sé
kr. 10,12 á tveggja mánaða
fresti og geri það kr. 121 á ári,
kr. 1.214,40 á 20 árum og
2.428,80 á 40 árum.
Svar: Rekstrargjald á árs-
fjórðungi (3 mán.) með sölu-
skatti af talfæri eins og Elínar
er kr. 10,12 og því á ári kr.
40,48, á 20 árum kr. 809,60 og á
40 árum kr. 1.619,20. Af þessu
rekstrargjaldi á ársfjórðungi
fær Póstur og sími kr. 8,20, en
kr. 1,92 er söluskattur, sem
gengur til ríkisins. Elín tekur
það fram á þrem stöðum í grein
sinni að kr. 10,12 gjaldið sé
fyrir tvo mánuði í stað árs-
fjórðungs eða 3 mánuði.
2. í greininni fer Elín mörgum
orðum um það hve talfærin séu
miklar gullhænur og gersemar
fyrir Póst og síma og að þau
gefi látlaust af sér gullegg upp
á rúmar 1.000 kr. gamlar á
tveggja mánaða fresti. Með
þessum orðum tjáir Elín þá
meiningu sína að á móti
talfæragjaldinu komi engin út-
gjöld frá Pósti og síma.
Svar: Rekstrargjaidið stendur
undir öllu viðhaldi talfæranna
vegna bilana, sem orsakast af
eðlilegri notkun þeirra, en sé
um skemmdir að ræða greiðast
þær sérstaklega. Flestir sím-
notendur hljóta að kannast við
það, að þegar talfæri frá Pósti
og síma bilar, þá er hringt í
bilanatilkynningar, 05 og við-
gerðarmaður er sendur heim til
viðkomandi án þess að sérstak-
ur reikningur komi þar fyrir.
Rekstrargjaldið fer því í að
standa undir launum viðgerð-
armannanna og kostnaði við
verkstæði, varahlutalager og
bíla þeirra.
3 Elín hefur eftir einhverri stúlku
hjá Pósti og síma að leiga af
talfæri hafi áður verið innifalin
í afnotagjaldi og ennfremur:
„ Spurningu um hvort þessi
leiga á talfærinu væri þá ekki
dregin frá afnotagjaldinu og
lækkaði það, var svarað neit-
andi.“
Svar: Því miður eru ekki allar
stúlkur hjá Pósti og síma nægi-
lega upplýstar um gjald-
skrármál eða ef til vill hefur
þetta brenglast í meðförum hjá
Elínu eins og annað í grein
hennar. Hjá Pósti og síma er
starfandi gjaldskrárnefnd og
hefði Elín átt að snúa sér til
hennar í leit að gjaldskrárupp-
lýsingum og þá hefði hún fengið
svar við spurningu sinni.
Á miðju árinu 1981 (15. 06.
1981) gaf samgönguráðherra út
reglur um heimild til annarra
en Pósts og síma til þess að
selja talfæri til símnotenda. í
reglunum eru ákvæði um að
innflytjendur talfæranna
skyldu ábyrgjast viðhald á
þeim. Eftir þessa breytingu var
ekki mögulegt að hafa rekstr-
argjaldið af aðaltalfærum inni-
faiið í ársfjórðungsgjaldinu.
Þess vegna var þetta rekstr-
argjald tekið út úr ársfjórð-
ungsgjaldinu við gjaldskrár-
hækkunina 1. ágúst 1981, en þá
fékk Póstur og sími heimilað
8% hækkum símgjalda.
Ársfjórðungsgjaldið hefði átt
að hækka úr kr. 171,10 í kr.
171,10X1,08=184,80 án sölu-
skatts en hækkað aðeins upp í
kr. 176,60, sem er kr. 184,80+
8,20 en kr. 8,20 er einmitt
rekstrargjald aðaltalfærisins á
ársfjórðungi án söluskatts. Það
rétta í þessu máli er því að
rekstrargjald aðaltalfærisins
var dregið frá ársfjórðungs-
gjaldinu þegar þessi gjöld voru
klofin í sundur.
4. Elín segist hafa greitt allan
stofnkostnað við heimilissím-
ann, þ.e. „símatalfæri, húslagn-
ir og hvers konar búnað, sem
setja þarf upp samkvæmt
kostnaðarverði á hverjum tíma,
Svar
Gáruhöfundar
Gárur eru persónulegur dálkur,
skrifaður út frá því sem fyrir þá
hversdagslegu persónu, gáruhöf-
und, kemur í daglegu lífi og eigin
hugleiðingar um það. Viðkomandi
dálkur byggði á:
1. Meðfylgjandi reikningi símnot-
anda, þar sem stendur júní—ágúst
og neðar talfæri venjulegt kr.
10,12.
2. „Einhver stúlka" á símanum
sat í gjaldkerastúku þeirri, sem
símnotandinn þurfti að rétta inn
um greiðsluna kr. 325.40 og
tvístaðfesti að þetta væri greiðsla
fyrir 2 mánaða leigu á símtóli. Nú
kemur í ljós hennar misskilningur
að þeir eru þrír. Svo og veitti hún
aðrar upplýsingar, sem fram
komu. Fleiri starfsmenn hlustuðu
á og hæg heimatökin að fá það
staðfest. Nú þegar upplýst er að sú
afgreiðslustúlka hafi ekki umboð
sem telst innkaupsverð eða
framleiðsluverð að viðbættum
umsýslukostnaði".
Annars staðar í greininni
nefnir Elín að hún hafi greitt af
tækinu sínu í 15 ár.
Svar: Engin talfæri voru seld
á kostnaðarverði fyrr en eftir
gjaldskrárbreytinguna 10. nóv-
ember 1978. Öll aðaltalfæri
fyrir þann tíma voru greidd
með sameiginlegu stofngjaldi
fyrir númer í stöð, línu óg tal-
færi og var það stofngjald að-
eins lítið brot af raunveru-
legum kostnaði. Talfærið hjá
Elínu er því eign Pósts og síma
og hefur því Elín engan ráð-
stöfunarrétt á því.
5. Elín segir að símnotandi hafi
samkvæmt prentuðu reglunum
um gjaldskrá „ráðstöfunarrétt
á þeim búnaði, sem greiddur
hefur verið á kostnaðarverði"
með leyfi frá póst- og
símamálastjóra þó.
Svar: Enginh hemill er á
ráðstöfunarréttinum á þeim
búnaði, sem greiddur hefur ver-
ið á kostnaðarverði, en óheimilt
er að tengja hann við hið al-
menna fjarskiptakerfi, nema
með samþykki Póst- og síma-
málastofnunarinnar og gegn
greiðslu á rekstrargjaldi, en
ekkert rekstrargjald er tekið
fyrir ótengdan búnað.
Mjög algengur misskilningur er
að Póstur og sími sé fyrirtæki,
sem græði á tá og fingri á of háum
og óréttlátum gjöldum fyrir síma-
til að veita upplýsingar um hvað
gjaldendur eru að greiða fyrir og
að símnotandi eigi að snúa sér til
gjaldskrárnefndar í leit að upplýs-
ingum, þarf að upplýsa hvar sú
nefnd situr í húsinu og hvort hún
er við og tiltæk á opnunartíma af-
greiðslunnar. Gætu símnotendur
þá fengið annað svar og „betra"
við fyrirspurnum um reikninga
sína. Gáruhöfundi datt það
einfaldlega ekki í hug að stúlkurn-
ar ættu bara að taka við pening-
um, en gjaldskrárnefnd að veita
upplýsingar um fyrir hvað.
3. Upplýsingar um stofngjald eru
teknar á bls. 560 í símaskrá, þar
væntanlega birtar til upplýsingar
fyrir almenna símnotendur. Hafi
komið í ljós að gáruhöfundur
skildi þær ekki, þá verður að biðja
forláts. En kannski finnast fleiri
álíka tregir og mætti setja þær á
skiljanlegra mál. Annars voru
þær teknar upp orðrétt, svo langt
sem þær náðu og lesendur ein-
notkunina. Það sanna er að stofn-
unin er rekin þannig að póst- og
símagjöld standa undir öllum
rekstri og framkvæmdum hennar
og stefnt er að því að arður sé lítill
sem enginn. Árlega eru gerðar
rekstrar- og fjárfestingaráætlan-
ir, sem sendar eru Samgönguráðu-
neytinu og Alþingi (fjárveitinga-
nefnd) til samþykktar og oftast
eru áætlanirnar stórlega skornar
niður í þeim umfjöllunum. Eftir
að samþykktar áætlanir liggja
fyrir á fjárlögum Aiþingis fer
stofnunin fram á gjaldskrár-
hækkanir sem nægja rétt fyrir
rekstri og framkvæmdum án þess
að skila ágóða.
Oft kemur það fyrir að slíkar
hækkunarbeiðnir ná ekki fram að
ganga og er þá stofnunin neydd til
þess að skera niður framkvæmdir,
sem hafa hlotið heimild í fjárlög-
um. Komið hefur fyrir að Alþingi
hefur skyldað stofnunina til þess
að leggja fram þjónustu án þess að
fullt endurgjald komi fyrir, eins
og gjaldfrjálsa síma til öryrkja og
aldraðra með fullri tekjutrygg-
ingu, 85% afslátt á uppsetningu
og skrefum kosningasíma, stóraf-
slætti á burðargjaldi blaða o.fl.
Þessi síðustu atriði koma til með
valda viðbótargjaldskrárhækkun
hjá hinum almenna símnotenda
og hefur þeim verið mótmælt bæði
af starfsmönnum Pósts og síma,
Verslunarráði o.fl.
13. júní, 1982,
Þorvarður Jónsson,
yfirverkfr. Pósts og síma.
faldlega bent á að fletta því upp
sjálfir.
4. Gáruhöfundur hefur hvorki
nefnt „að síminn græði á tá og
fingri á of háum og óréttlátum
gjöldum fyrir símnotkunina“. Það
eru orð yfirverkfræðingsins. Um
vanrækslu gáruhöfundar að leita
upplýsinga vísast til ofangreinds,
og oftrúar á starfsfólki símans og
prentuðum leiðbeiningum símans.
Yfirverkfræðingurinn hefur ekki
talað við höfund greinarinnar
sjálfan, og getur þá að sjálfsögðu
ekki orðið um persónuleg orða-
skipti að ræða við embættismann-
inn.
Það er sem sagt í þessu langa
bréfi komið í ljós að maður greiðir
í leigu af símtóli kr. 10,12 á
þriggja mánaða fresti, en ekki
tveggja, og biður gáruhöfundur
forláts á að hafa látið segja sér
annað. En finnst enn að tólið hans
sé býsna dýrmætur gripur.
— E.Pá.
PÓST- OG SlMAMALASTOFNUNIN
omem*
ELIN PALMADOTTIR
SÍMAREIKNINGUR
KLEPPSVEGI 120
104 RÉYKJAVIK
fítHkmnytnúmm' tfncnúmer 91-82932 .IUNI-kGliST
Ottgeelntng mrthninge -ll^JObíuJDLL. tMM|MI Mtmkv mtewðina 3.QJ1 FEBR. -APKIL
Degimmmg T*g Tem Tií N-jmw 'Sitn | Fiá Ntet/L»od»r»krift j F|OWI •ímnge Ctning»r*^S V«rð **
AFNOTAGJALD BUNAÐAR:
HEIMILISSIMI tNUMER OG LINA) 1 298,12
TALFARI VENJULEGT 1 10,12
HÍKKUN » AFNOTAGJALDI FRA 82.05.01 12,20
82.02.28 A1 ELIN PALMAOOTTIR. VEKJA KL.S.45 D - o • 1 1 4,94 4,95
Raðhús við Hvassaleiti Vorum aö fá til sölu 200 fm vandað raöhús viö Hvassaleiti meö innbyggöum bílskúr. Á neöri hæö Garóabær
eru samliggjandi stofur, hol, eldhús, gestasnyrting, geymsla o.fl. Á efri hæö eru 4 rúmgóö svefnherb., fiölskylduherb., baöherb. og þvottaherb., gott skápa- rými Tvennar svalir. Góöur garöur. Laust eftir sam- komulagi. Allar nánari upplýsingar á skrifstofunni. Til sölu er einbýlishús viö Smáraflöt í Garðabæ. Hús- ið er mjög vel staösett rétt viö verslanir og skóla. Húsiö er ca. 200 fm og er leyfi til byggingar á tvöföld- um bílskúr. 1200 fm vel ræktuö lóö. Upplýsingar gefa
Svala Thorlacius hdl., Háaleitisbraut 68,
r-Tl FASTEIGNA símar 81570, 81580, 81516 og
(láJ MARKAÐURINN Hafsteinn Hafsteinsson hrl., Suðurlandsbraut 6,
! f Óðinsgölu 4. Símar 11540-21700. Jón Guðmundsson, Leó E Löve lögfr sími 81335.