Morgunblaðið - 15.06.1982, Síða 21

Morgunblaðið - 15.06.1982, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1982 21 HM-keppnin: Brasilía sigraði Rússland 2-1 og sýndi góðan leik Rússar höfðu yfir í hálfleik, 1-0 Sevilla, Spáni. AP. Brasilíumenn sigruðu Rússa 2—1, í fyrsta leik liðanna í HM-keppninni. Leikur liðanna þótti vel leikinn þó alveg sérstaklega af hálfu Brasilíu- manna sem sýndu oft á tiðum frá- bæran sóknarleik. En þrátt fyrir það tókst þeim illa að ráða við rússnesku vörnina. Það voru Rússar sem náðu for- ystunni í leiknum. Á 35. mínútu fyrri hálfleiksins átti Andrei Bal þrumuskot að marki Brasilíu af um 30 metra færi. Markvörður Brasilíu misreiknaði skotið al- gjörlega og í netið fór boltinn. Eft- ir að hafa skorað markið léku Rússar mjög stífan sóknarleik og vörðust vel. Einstaka sinnum áttu þeir þó mjög hættulegar skyndi- sóknir og voru mjög nálægt því að skora annað mark í fyrri hálf- leiknum. En færið fór forgörðum og staðan í hálfleik var 1—0. í síðari hálfleik leit lengi vel út fyrir að Rússum tækist að hanga á markinu og ætluðu að fara með sigur af hólmi í leiknum. En fyrir- liði Brasilíumanna, læknirinn Socrates, jafnaði leikinn á 72. mínútu. Eftir glæsilega sóknar- lotu fékk hann góða sendingu og náði góðu skoti af um 30 metra færi, og skoraði glæsilegt mark. Við þetta elfdust Brasilíumenn og sóttu nú án afláts. Sigurmark þeirra skoraði svo Eder þegar að- eins tvær mínútur voru til leiks- loka. Hann skoraði fallegt mark með skoti frá vítateigslínu. Gífur- legur fögnuður braust út hjá leik- mönnum Brasilíu þegar sigurinn var í höfn. Leikmenn Brasiliu sýndu í þessum leik svo ekki var um að villast, að lið þeirra er mjög sigurstranglegt í keppninni að þessu sinni. En Brasilúmenn hafa unnið HM-keppnína oftar en nokkur önnur þjóð. Sóknarleikur Brassanna í gærkvöldi var oft stórkostlega góður. Og þrátt fyrir mjög sterkan varnarleik og mikla baráttu tókst rússneska birninum ekki að halda markinu hreinu. Þar sem blaðið fór snemma í prentun í gær verður frekari frá- sögn að bíða. Pólski landsliðsþjálfarinn: Það besta sem ég hef séð til ítala í langan tíma „Þetta voru góð úrslit fyrir okkur, sérstaklega með tilliti til þess hvern- ig leikurinn gekk fyrir sig,“ sagði Antonie Piechniczek, þjálfari pólska landsliðsins í knattspyrnu eftir að Pólland og Ítalía höfðu skilið jöfn í markalausum leik á HM í gær. Hann hélt síðan áfram: „Þetta var það besta sem ég hef séð til ítala í langan tíma, þeir voru betri en við, úthaldið var betra, þeir voru fljótari og með sterkari liðsheild." Enzo Beerzot, þjálfari ítalska liðsins var eftir atvikum ánægður með úrslitin og frammistöðu sinna manna. Hann sagði: „Það var mik- ilvægt fyrir bæði liðin að tapa ekki leiknum. Annars hefur ít- alska liðið verið óheppið í síðustu leikjum sínum. Við sköpum okkur tækifæri, en nýtum þau ekki og það er við engan að sakast, því svona gengur þetta stundum. Und- ir þessum kringumstæðum hefði liðið ekki getað gert betur.“ „Ég hafði aðeins áhyggjur snemma í síðari hálfleiknum, er pólska liðið virtist ætla að ná tök- um á vallarmiðjunni. En mínir menn náðu sér aftur á strik og við vorum nær sigri. Við áttum skot í þverslá og áttum auk þess einu marktækifærin sem buðust í leiknum. Nokkrir af leikmönnum mínum voru mjög þreyttir í leiks- lok, til dæmis Paolo Rossi, en ég vildi ekki breyta liðinu, því ég óttaðist að nýr leikmaður myndi raska jafnvæginu í leiknum og það hefði getað komið niður á ítalska liðinu ekki síður en því pólska." Ólafur H. Jónsson þjálfar Þrótt 1. deildar-lið Þróttar í handknatt- leik hefur endurráðið Ólaf H. Jóns- son til þjálfunarstarfa fyrir næsta keppnistímabil. Ólafur hefur bæði þjálfað og leikið með Þrótti síðustu árin með mjög góðum árangri, undir hans stjórn hefur liðið rifið sig upp úr 2. deild upp i að vera eitt af bestu liðum 1. deildarinnar. Óvíst er hvort tílafur mun einnig leika með Þrótti, það ræðst með tímanum. Félagið hefur aðeins misst einn leikmann úr sínum röðum, Gunnar Gunnarsson, sem gekk aftur í Víking. Nær öruggt er að Sigurður Sveinsson mun leika áfram með liðinu, en vitað var að hann átti möguleika á því að komast til erlendra liða. Þróttarar þreifuðu um tíma fyrir sér fyrir austan tjald, skrif- uðu Sovétmönnum og fleirum, en enginn þessara aðila taldi sig hafa frambærilega þjálfara á lausu einsog staðan var. — gg. Holmes gekk frá Cooney í þrettándu lotu Hnefaleikatröllið svarta, Larry Holmes, varði þungavigtartitil sinn um helgina í tólfta skiptið er hann sigraði hinn hvíta Gerry Cooney á tæknilegu rothöggi í 13. lotunni. Þjálfari Cooneys, Victor Valle, stökk inn í hringinn og tók Cooney undir verndarvæng sinn eftir að Holmes hafði lokið við að slá Cooney í gólfið í annað sinn í sömu lotunni. Sýnt var að Cooney var sigraður, úthaldið var þrotið og kappinn vissi varla hvar hann var staddur þó svo að hann maldaði i móinn. Valle braut talsvert af hnefaleikareglum með því að stökkva inn í hringinn þegar hann gerði það, en þeir mannúðlegu munu ekki telja það eftir honum, hann og Cooney hafa verið eins og feðgar ár- um saman og Valle vildi binda endi á slaginn áður en Cooney biði óbæt- anlegan skaða af. Valle faðmar strákinn sinn að sér, en Gerry Cooney er bugaður. Annars var það Cooney sem hafði betur framan af, yngri, þyngri og hærri virtist hann vera sigurstranglegur meðan hann dansaði í kring um Holmes fyrstu 5—6 loturnar. Cooney gerði Holm- es lífið leitt með hættulegum höggum, en Holmes gamli varðist bara vel. Þá fór úthaldið að gefa sig hjá Cooney og fór þeim mun hraðar þverrandi þeim mun oftar sem Holmes barði Cooney. Þegar komið var fram í tólftu lotu hafði Holmes náð algerum yfirburðum og barði hann Cooney þá eins og harðfisk. Þrettánda lotan hófst í sama dúr og steinlá Cooney þá tví- vegis áður en Valle hoppaði inn í hringinn og stöðvaði leikinn. Var Cooney þá illa leikinn, með stóran og mikinn skurð á enninu og blóð- ið fossandi um allt. Cooney tv. og Holmes t.h. skiptmst i höggum og ef myndin prentast vel má sjá svitaflauminn þyrlast út i loftið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.