Morgunblaðið - 15.06.1982, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ1982
Vésteinn bætir sig
í kringlukastinu
Vésteinn Hafsteinsson HSK setti
persónulegt met í kringlukasti, sem
var aukagrein á þeim hluta
Meistaramóts íslands, sem háður
var á Selfossi á laugardag og sunnu-
dag. Kastaði hann 58,60 metra, sem
er þriðja bezta afrek íslendings frá
upphafi, aðeins ÍR-ingarnir Erlendur
Valdimarsson og Óskar Jakobsson
eru betri, en þeir eru báðir í fullu
fjöri. í öðru sæti varð Þráinn bróðir
Vésteins, kastaði 50,40 metra.
í meistaramótsgreinunum urðu
úrslit þau, að Sigfús Jónsson ÍR
varð Islandsmeistari í 10 km
hlaupi á 32:51 mínútu. Annar varð
Sighvatur D. Guðmundsson á
34:11,1 og þriðji Steinar Frið-
geirsson IR á 34:13,2. Fjórði varð
Garðar Sverrisson ÍR á nýju
sveinameti, 35:22,6 mín, bætti
eldra metið um 14 sekúndur, en
það átti Hafsteinn Óskarsson IR.
Sveit ÍR sigraði í 4x800 metrum
á 8:19,6 mín., önnur varð sveit FH
á 8:29,3 pg þriðja sveit HSK á
9:09,3. í ÍR-sveitinni voru Ágúst
Ásgeirsson, Jónas Egilsson, Gunn-
ar Birgisson og Gunnar Páll Jóa-
kimsson.
íslandsmeistari í 3000 metra
hlaupi kvenna varð Aðalbjörg
Hafsteinsdóttir HSK á 11:04,7,
sem er hennar bezti árangur, en
Aðalbjörg hefði getað gert tals-
vert betur með einhverri keppni.
Bryndís Hólm ÍR varð meistari í
sjöþraut kvenna, hlaut 4504 stig,
sem er næst bezti árangur ís-
ienzkrar konu, Helga Halldórs-
dóttir á metið, sem er 4646 stig.
Önnur varð Hildur Harðardóttir
HSK með 3761 stig, sem er
Skarphéðinsmet, og þriðja Linda
B. Loftsdóttir FH með 3538 stig,
sem er Hafnarfjarðarmet.
Loks varð Elías Sveinsson KR
Islandsmeistari í tugþraut, en Elí-
as hefur þó sjaldan verið í eins
lítilli æfingu og nú, hlaut aðeins
6428 stig, eða eittþúsund stigum
færra en hann á bezt. Þorsteinn
Þórsson ÍR varð fyrir því óláni að
meiðsli tóku sig upp eftir áttundu
grein og varð hann að hætta
keppni, en þá var hann mörg
hundruð stigum á undan Elíasi. I
öðru og þriðja sæti urðu þeir Unn-
ar og Aðalsteinn Garðarssynir
HSK, Unnar með 4635 stig og Að-
alsteinn með 3975 stig. Árangur
Elíasar í einstökum greinum var
sá, að hann hljóp 100 m á 11,7
sekúndum, stökk 5,87 metra í
langstökki, varpaði kúlu 13,55
metra, stökk 1,70 í hástökki og
hljóp 400 m á 54,5 sek. Seinni dag-
inn hljóp hann 110 m grind á 15,9
sek., kastaði kringiu 44,28 metra,
stökk 4,00 í stangarstökki, kastaði
spjóti 52,06 metra og hljóp loks
1500 m á 5:19,05 mínútum.
Einn sendur
á sjúkrahús
VÍÐIR sigraöi Grindavík í A-riðli 3.
deildar, en leikurinn var spilaður í
Garðinum sl. sunnudag. Guðjón
Guðmundsson og Björgvin Björg-
vinsson skoruðu fyrir Viði í fyrri
Einn leikur í
2. deild í kvöld
EINN leikur fer fram í 2. deild ís-
landsmótsins i knattspyrnu í kvöld,
FH og Þór ma'tast klukkan 20.00 og
fer leikurinn fram í Hafnarfirði.
Þess má geta, að leikurinn mun fara
fram á malarvellinum á Kaplakrika
og allsendis er óvist hvort að nokkur
leikur geti farið fram þar á grasinu í
sumar, því einhverra hluta vegna kól
völlinn illa og er hann afar illa far-
inn um þessar mundir.
hálfleik og urðu það einu mörk
ieiksins.
Leikurinn var nokkuð harður á
köflum og eins og svo oft áður þeg-
ar þessi iið leika saman varð einn
af leikmönnum Víðis að fara af
leikvelli til aðgerðar á sjúkrahúsi.
Þessi lið léku ekki í sama riðli í
fyrra en 1980 fékk leikmaður Víðis
vægan heilahristing í heimaleikn-
um og í leiknum í Grindavík
kjálkabrotnaði einn leikmaður
Víðis.
Það má því segja að oftar sé
meira barist af kappi en forsjá í
þessum leikjum og á köflum megi
líkja ieiknum við rugby frekar en
knattspyrnu. Dómarinn, Ástráður
Gunnarsson, hafði mjög góða
stjórn á þessum leik. Tveir
Grindvíkingar fengu að sjá gula
spjaldið. AR/ÞR
Njarðvík og Þróttur
Neskaupstaó gerðu
jafntefli -
NJARÐVÍK og Þróttur frá Neskaup-
stað gerðu jafntefli 1—1 i 2. deild
íslandsmótsins í knatLspyrnu um
helgina. Njarðvíkingar áttu þó mikið
meira í leiknum og sóttu svo til án
afláLs allan leikinn, en gekk illa að
skapa sér hættuleg marktækifæri,
hvað þá að skora.
Á 6. mínútu leiksins skoruðu
Njarðvíkingar en dómarinn
dæmdi markið af, taldi að boltinn
hefði verið kominn út fyrir enda-
línu áður en fyrirgjöfin kom.
Á 43. mínútu fyrri hálfleiks
tókst Þrótturum að ná forystunni
■1-1
í leiknum. Óttar Ármannsson
skoraði með góðum skalla eftir
hornspyrnu. Markverði Njarðvík-
ur mistókst að slá boltann frá
markinu.
Eitt besta tækifæri leiksins kom
í byrjun síðari hálfleiksins. Þá átti
Ómar Hafsteinsson þrumuskot frá
markteig en rétt yfir. Það er svo
ekki fyrr en á 82. mínútu að
Njarðvík jafnar leikinn. Guð-
mundur Sighvatsson, besti maður
Njarðvíkur í leiknum, skoraði með
skalla, eftir vel framkvæmda
hornspyrnu. Leiknum lauk því
með jafntefli 1—1. Vigdís
r
(siandsmtilð 2. deild
Menotti, þjálfari Argentínu,
hafði ekki ástæðu til að fagna i
sunnudag. Hann var mjög óánægð-
ur með leik sinna manna. Nú er að
duga eða drepast hjá Argentínu-
mönnum er þeir mæta Ungverjum
í næsta leik sínum.
Sagt eftir leikinn:
„Maðurinn var
kolrangstæður“
Luis Cesar Menotti:
„Van Der Bergh var greinilega
rangstæður. Dómarinn var mjög
góður, en línuverðirnir fyrir neðan
allar hellur. Tvívegis að minnsta
kosti skjátlaðist þeim illa varðandi
rangstöðudóma. í annað skiptið
kostaði það okkur mark. Við lék-
um ekki eins vel og við getura, en
Belgarnir áttu samt ekki skilið að
vinna, jafntcfli hefði verið sann-
gjamast."
Guy Thys, þjálfari Belgíu:
„Leikaðferð okkar ruglaði Arg-
entínumenn i ríminu, þeir bjugg-
ust örugglega við því að við
myndum leika „maður á mann“
og taka Maradona sérstaklega úr
umferð. Svæðisvörn okkar kom
þeim i opna skjöldu og við henni
áttu þeir ekkert svar. Sem heild
lékum við mjög vel og við sýnd-
um og sönnuöum að það er hægt
að afgreiða Maradona án þess að
vera að fórna á hann yfirfrakka.
Ég met hann mikils, hann er
frábær knattspyrnumaður, en ég
er á móti allri stjörnudýrkun.
Knattspyrna gengur út á að allir
11 leikmennirnir standi sig.“
Ubaldo Fillol, markvörður
Argentínu:
„Van Der Bergh var svo kol-
rangstæður, að koma hefði mátt
heilu húsi milli hans og aftasta
varnarmanns okkar. Forkastan-
legt hjá dómaranum að dæma
markið ekki af.“
Diego Maradona:
„Ég vil ekki tjá mig um leikinn.
Ef þið vilduð hafa mig afsakað-
an, þá er ég þreyttur og vil ekki
tala við ykkur."
Hart barist 13. og 4. deild
UM HELGINA var að venju mikið
um að vera fyrir norðan í 3. og 4.
deild í knalLspyrnu og mikið um
hörkuleiki. En snúum okkur nú að 3.
deildinni:
HSÞ — Árroðinn 2—0
(1—0)
Þessi leikur þótti nokkuð góður
og var mikil barátta í báðum lið-
um. Mörk heimamanna gerðu þeir
Ari Hallgrímsson og Jónas Skúla-
son.
Magni — Austri 1—1
(0—0)
Leikurinn var leiðinlegur á að
horfa og einkenndist hann mjög af
afar slæmum vallarskilyrðum en
heimamenn voru þó öllu sprækari
í leiknum. Mark heimamanna
gerði Jón Ingólfsson og Sigurður
Gunnarsson svaraði fyrir Austra.
Tindastóll — Sindri 3—0
(3—0)
Heimamenn höfðu algjöra yfir-
burði í fyrri hálfleik en annars
þótti viðureignin fremur
viðburðalítil, sér í lagi í síðari
hálfleik. Mörk Tindastóls gerðu
Óskar Björnsson og Eiríkur Sverr-
isson en fyrsta mark leiksins var
sjálfsmark. Með þessum sigri hef-
ur staða Tindastóls vænkast veru-
lega meðan KS tapar fyrir austan.
4. deild.
Glóðafeykir — Vorboöinn
1—0 (0—0)
Það mun hafa verið Björn Sig-
urðsson sem gerði út um leikinn í
upphafi síðari hálfleiks. Glóða-
feykir var lengst af sá sterki í
þessum leik en framherjar liðsins
voru hreint ekki á skotskónum.
Vorboðinn saknaði einhverra
fastamanna og veikti það liðið
vissulega.
Hvöt — Svarfdælir 1—1
(0—0)
Norðangjóla háði leikmönnum
beggja liða verulega og rýrði gæði
leiksins. Með vindinn í bakið sótti
Hvöt án afláts en uppskeran var
lítil. Ásmundur Ingvarsson náði
forystu fyrir Hvöt snemma í s.h.
en jöfnunarmark Svarfdæla kom
eftir mikinn darraðardans við
mark Hvatar og mun það hafa
verið sjálfsmark og 1—1 urðu
sanngjörn úrslit leiksins.
Dagsbrún — Reynir Á.
3—5 (0—3)
Ekki skorti mörkin í þessum
fjörlega leik en úrslitin eru
Dagsbrún verulega óhagstæð því
liðið lék lengst af betur. Reynis-
menn kunna hins vegar vel til
verka við mark andstæðinga sinna
og settu 5 inn. Mörk Reynis gerðu
Garðar Nielsson 3, „hat-trick“,
örn Viðar og Björn Friðþjófsson 1
hvor. Fyrir Dagsbrún svöruðu
Valdimar Júlíusson, Sigursteinn
Vestmann og Hafþór Sigurgeirs-
son. MÞ
Enn tapa Borgnesingar
BORGNESINGAR bættu enn einu
tapinu enn í heimavelli í sarpinn á
laugardaginn þegar Völsungur frá
Húsavík vann Skallagrím í Borgar-
nesi með 4 mörkum gegn 2 i fimmtu
umferð íslandsmóLs 2. deildar í
knattspyrnu. Þeir sem leggja leið
sína á völiinn í Borgarnesi til stuðn-
ings sínum mönnum eru fyrir
nokkru farnir að bíöa eftir sigri á
heimavelli, Skallagrímur sigraði sið-
ast heima 30. maí í fyrra, eða fyrir
rúmu ári. En þeir hafa aftur á móti
verið drjúgir við stigin á útivelli sam-
anber gegn Þrótti á Neskaupstað
fyrir viku.
Bæði Skallagrímur og Völsung-
ur töldu sig eiga harma að hefna í
þessum leik. Skallagrímur vegna
þess að Völsungur stal af þeim
sigrinum í fyrra í Borgarnesi,
3—2, eftir að staðan hafði verið
2—0 fyrir heimamenn í leikhléi og
Völsungur vegna þess að Borgnes-
ingarnir fóru illa með þá á Húsa-
vík í fyrra með 3—1-sigri. En
Völsungur náði sem sé að ná sér
niðri á Borgnesingum að þessu
sinni, en annar leikur er eftir.
En leikurinn var annars opinn
og skemmtilegur á að horfa og
knattspyrnan á köflum góð.
Heimamenn fóru geist af stað með
fyrsta marki leiksins, strax á 2.
mínútu þegar Gunnar Orrason
fékk háa sendingu inn í teiginn,
tók hann laglega niður og þrumaði
í markið. Óverjandi fyrir Gunnar í
Völsungsmarkinu. Völsungur
jafnaði á 13. mínútu þegar Hannes
Karlsson átti gott skot í markið af
markteig. Á 21. mín. ná heima-
menn aftur forystunni, 2—1, með
marki Garðars Jónssonar sem
skoraði eftir að Gunnar Orrason
hafði nikkað til hans knettinum. Á
næstu mínútum gekk á ýmsu við
bæði mörkin. Halldór Skalla-
grímsmarkvörður varði glæsilega
skot Björns Olgeirssonar. Björn
var aftur á ferðinni skömmu síðar,
fékk knöttinn frír fyrir framan
markið en náði ekki að skora. Við
hitt markið gekk líka á ýmsu.
Hætta skapaðist þá oft við löng
innköst Sigurgeirs Erlendssonar
en Völsungar bægðu hættunni frá.
Á 31. mín. jafnar svo Völsungur,
Hörður Benónýsson.frír upp við
mark eftir aukaspyrnu og jafnaði
2—2, og þannig var staðan í hálf-
leik.
Skallagrímur réði lögum og lof-
um á vellinum fyrstu 30 mínútur
síðari hálfleiks og var oft nærri
því að skora. Á 12. mín. nýtti
Gunnar Orrason ekki gott tæki-
færi sem hann fékk til að skora og
á 15. mín. átti Björn Jónsson
hörkuskalla sem þversláin í Völs-
ungsmarkinu bjargaði. Þegar líð-
ur á hálfleikinn fara Húsvík-
ingarnir að sækja í sig veðrið.
Björn Olgeirsson þrumaði hátt yf-
ir úr dauðafæri og á 30. mín. skor-
aði Kristján Kristjánsson fyrir
Völsung eftir að hafa nappað
knettinum frá þremur Skalla-
grímsmönnum sem voru að leika
sér með hann inni í eigin vítateig.
Á 40. mín. kemur svo dauðadóm-
urinn yfir heimamönnum. Ást-
valdur Jóhannsson, nýkominn inn
á sem varamaður, átti þá skot á
markið, fast, en á mitt markið.
Halldór ver en missir boltann frá
sér og Jónas Hallgrímsson, hinn
varamaðurinn hjá Völsungi, sem
hafði einnig komið inn á skömmu
áður, fylgdi vel á eftir og skoraði.
Staðan þá orðin 4—2 fyrir Völs-
ung og urðu það úrslit leiksins.
Heimaliðið getur grátið þessi
úrslit því þeir léku alls ekki síðri
knattspyrnu en gestirnir. Þeir
áttu góða leikkafla sem gáfu
marktækifæri en Völsungar nýttu
marktækifærin, skoruðu sín fjög-
ur mörk og unnu þess vegna
sanngjarnan sigur.
Besti maður Skallagríms var
Björn Jónsson, en einnig áttu
Gunnar Jónsson og þó sérstaklega
Gunnar Orrason góða spretti.
Vörnin var hriplek að þessu sinni.
Hjá Völsungi var Björn Olgeirs-
son besti maður leiksins.
H.Bj.