Morgunblaðið - 15.06.1982, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 15.06.1982, Qupperneq 23
-------—----- HM PUNKTAR Þrír leikir í dag á HM í DAG fara fram þrir Itikir i hoimsmeistarakeppninni. Perú — Kamerún leika í La Coruna. IJnifverjaland — E1 Salvador í Ekhe. Skotland - N-Sjáland í Mal- Ekkiuppselt á fyrsta leikinn ÞAÐ olli framkvæmdanefnd HM-keppninnar miklum vonbrigðum að aðeins 80 þús- und áhorfendur komu til að sjá setningarhátið keppninnar og fyrsta leikinn á Nou Camp-velli Barcelona. Leikvangurinn tek- ur 120 þúsund manns og áttu allir von á þvi að uppselt yrði. Mjög ströng gæsla var á leik- vanginum meðan á letningar- athöfninni stóð. Kúmlega 1500 hundruð lögreglumenn ásamt hermönnum voru við öllu bún- ir. Perúbúar dreifa búningum PERÚBÚAR vilja gjarnan njóta vinsælda í þeim borgum sem þeir leika HM-leiki sina. í þvi skyni hafa lcikmenn liðsins dreift 1000 landsliösskyrtum til skólabarna í La Coruna. IJndir- tektir Spánverja voru svo já- kvæðar gagnvart framtaki þessu hjá Perúmönnum, að fararstjóra liðsins á Spáni hafa sent eftir nýrri sendingu, 1000 skyrtum í viðbót. Miiller ekki með í fyrstu 2 leikjunum (*ijon, Spáni. 14. júní. AP., — „ÞAÐ ER alveg Ijóst að Hansi Miiller mun ekki leika tvo fyrstu leikina með liðinu vegna meiðsla sem hann á við að stríða,“ sagði Jupp Derwall, þjálfari v-þýska landsliðsins f knattspyrnu í gærdag. Fyrsti leikur Vestur-Þjóð- verja er gegn Alsír á morgun 16. júní. Næsti leikur liðsins er svo 20. júní gegn Chile. Derw- all fór aðeins með 19 leikmenn til Spánar. Hann taldi það rétt þar sem hann sagðist ekki vilja valda vonbrigðum hjá leik- raönnum sem ekkert yrðu not- aðir. — „Best að sem fæstir séu óánægðir," sagði Derwall. jai MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ1982 23 Belgíumenn lögðu heimsmeistarana með fyrsta marki í opnunarleik HM síðan 1962 SEGJA má að úrslit í opnunarleik HM á Spáni hafi verið óvænt, en Belgíumenn gerðu sér þá lítið fyrir og sigruðu heimsmeistara Argentínu 1—0 á Nou Camp leikvanginum i Barcelona. Belgar unnu mjög svo sanngjarnan sigur eins og islenskir sjónvarpsáhorfendur gátu sjálfir séð með eigin augum á sunnudaginn. Eftir að hafa sýnt tilþrif í 10 minút- ur, varð allur leikur Argentínu- manna fremur bitlaus og frábærlega leikin vörn Belgíumanna var lengst af ekki í vændræðum. Þeir eltu Maradona ekki sérstaklega, skiptu heldur með sér verkefninu að trufla hann og léku afar áhrifaríma svæð- isvörn með rangstöðugildrum við öll tækifæri. Það var hinn 23 ára gamli Erwin Van Der Bergh sem skoraði sigurmarkið á 63. mínútu leiksins, fékk stórgóða sendingu fram i víta- teiginn frá Frank Vercauteren, lagði knöttinn fyrir sig og skoraði örugg- lega fram hjá Ubaldo Fillol. Mark- vörðurinn var einn til varnar og hik- aði í úthlaupi sínu. Eftirleikurinn var Belganum auðveldur. Argentínu- menn töldu markaskorarann hafa verið kolrangstæðan, en sjónvarps- vélar sýndu fram á að línuverðirnir höfðu á réttu aö standa, markið var fullkomlega löglegt. Argentínumenn voru frískir í byrjun og til kasta Jean Marie Pfaff í marki Belga kom strax á 17. mínútu, er hann varði þrumu- skot sem kom í kjölfarið á varnarmistökum. En síðan náðu Belgar góðum tökum á leiknum, þeir tóku miðjuna traustatökum og þó að þeir argentínsku væru leiknari, var liðsheild Belga svo miklu sterkari að með ólíkindum mátti heita. Beigar fengu tvö góð marktækifæri í fyrri hálfleiknum. Guy Van Der Missen átti skot sem Fillol varði vel og aðeins fáeinum sekúndum síðar sendi Vercauteren knöttinn fyrir markið, Alex Zerni- atinski kastaði sér fram og skall- aði að opnu argentínska markinu, en knötturinn sveif naumlega fram hjá. í síðari hálfleik höfðu Belgarnir jafnvel enn meiri yfirburði fram- an af og á 62. mínútu skoraði Van Der Bergh markið dýrmæta. Það var fyrsta mark sem skorað er í opnunarleik HM síðan 1962 þótt ótrúlegt kunni að þykja. En eftir markið fóru Argentínumenn skyndilega að láta til sín taka, þeir vöknuðu sannarlega upp við vondan draum. Diego Maradona, sem belgíska vörnin kæfði ger- samlega í leiknum, átti hörkufal- legt skot í þverslá og niður beint úr aukaspyrnu og Pfaff varði djarflega skot Mario Kempes sem fylgt hafði vel eftir. Bertoni skall- aði í stöngina úr mjög þröngu færi nokkru síðar, en er sókn argent- ínska liðsins þyngdist opnaðist vörnin æ meira hjá liðinu og þegar upp var staðið gátu heimsmeistar- arnir hrósað happi að hafa ekki fengið fleiri mörk á sig. Van Der Bergh var hársbreidd frá því að stýra fyrirgjöf frá Ceulemans í netið og Van Der Missen komst á auðan sjó og sendi knöttinn í net- ið. Hann var þó dæmdur rang- stæður, en varla hefur þar munað nema sentimetrum. Mikil spenna var allan síðari hálfleik og þó sumir hafi kannski fárast yfir knattspyrnugæðum á stundum var stemmningin með ólíkindum. Sigur Belgíumanna þótti vera enn athyglisverðari fyrir þær sakir, að liðið lék án þriggja lykilmanna, Van Moer, Van Der Eycken og Meews. Baecke, De Schriever og Van Der Missen tóku stöður þeirra og stóðu sig svo vel að þeir halda líklega stöðum sínum. Ítalía og Pólland gerðu markalaust jafntefli í mjög tilþrifalitlum leik í gær Dino Zoff, hinn fertugi markvörður ÍUlíu, lék sinn 100. landsleik fyrir ÍUliu gegn Pólverjum í gærdag. Hann hélt upp á daginn með því að halda hreinu og fór létt með, enda leikurinn mikill varnarleikur og fátt um góð markskot. ÍTALÍA og Pólland gerðu marka- laust jafntefli í frekar tilþrifalitlum leik í heimsmeisUrakeppninni í knattspyrnu í gærdag. Leikur lið- anna fór fram í Vigo, og fylgdust um 30 þúsund áhorfendur með leiknum. Það var greinilegt á leik liðanna að það var engin áhætU tekin í leikn- um. Enda virtust leikmenn vera ánægðir í leikslok með stigið sitt. En næsU víst má telja aö það verða fulía og Pólland sem komast áfram í riðlinum. Mest allan tímann fór leikur lið- anna fram á miðjunni. Fá hættu- leg marktækifæri sköpuðust, en þau skot sem á mörkin komu voru frekar máttleysisleg og markverð- irnir þurftu ekki að taka á honum stóra sínum til að verja þau. Italía átti besta marktækifæri leiksins á 81. mínútu. Þá átti Marco Tardelli þrumuskot sem small í þverslánni og hrökk síðan út á völlinn. It- alska vörnin þótti leika vel með þá Scirea og Gianpiero sem bestu menn. Bruno Conti þótti vera bestur framlínumannanna en Rossi sást varla i leiknum. Pólska liðið þótti ekki vera sannfærandi í leik sínum. Dino Zoff, sem nú er fertugur að aldri, lék sinn hundraðasta lands- leik í gærkvöldi, og hélt markinu hreinu. Enda reyndi lítið á hann. Liðin í gærdag voru þannig skip- uð, Ítalía: Dino Zoff, Claudio Gentile, Fulvio Collovatti, Gaet- ano Scirea, Antonio Cabrini, Gi- anpiero Marini, Marco Tardelli, Giancarlo Antognoni, Bruno Conti, Paolo Rossi, Francesco Graziani. Lið Póllands: Mlynarcz- yk, Majewski, Zmuda, Janas, Jal- ocha, Matysik, Boniek, Buncol, Iw- an. Keegan sæmdur OBE-orðunni KEVIN Keegan var í vikunni særad- ur bresku OBE-orðunni og lýsti hann því yfir að veitingin setti punktinn yfir i-ið á ógleymanlegri viku, en á mánudaginn varð eigin- kona hans, Jean Keegan, léttari og fylgdist Keegan með fæðingunni. „Nú á ég ekkert eftir nema að vinna HM-titil,“ sagði Keegan Ijó- mandi i samtali við fréttamenn. „Að sjálfsögðu mun ég leggja mig allan fram til þess að það megi takast. Við verðum að standa okkur vel, en ég óttast ekki mótherjana, Frakkland, Tékkóslóvakíu og Kuwait. Eg óttast miklu meira að slasa mig og geta ekki leikið, að detta niður stiga eða eitthvað óvænt sem myndi eyði- leggja fyrir manni margra mánaða þrotlausan undirbúning.1* Jennings með gegn Júgóslavíu PAT Jennings, hinn 37 ára gamli markvörður norður-írska landsliðs- ins mun leika með liðinu í fyrsta leik Norður-frlands gegn Júgóslaviu þann 17. júní næstkomandi og þykja það gleðitíðindi í Norður-Irlandi. Jennings hefur átt við þrálát meiðsli að stríða síðustu þrjá mánuðina, en með góðri hvíld og umönnun tókst læknaliði miklu að blása iífi í kapp- ann á ný og er hann tilbúinn í slagin. Jennings átti 37 ára afmæli á laug- ardaginn var. Hann hefur leikið 93 landsleiki og svo gæti hæglega farið að hann verði fyrsti írinn sem leikur 100 landsleiki. Þá er almennt búist við því að írska liðið tefli fram lang yngsta leikmanni keppninnar í leikjunum þremur. Það er hinn 17 ára gamli Norman Whiteside sem leikur með Manchester Utd., Ton Atkin- son, stjóri United, hefur lýst hon- um sem mesta efni sem komið hef- ur frá Norður-írlandi síðan George Best skaust fram á sjón- arsviðið. 'I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.