Morgunblaðið - 15.06.1982, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 15.06.1982, Qupperneq 25
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ1982 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ1982 25 Valsmenn náðu $éx \ tvö stig á móti IBI — Þetta var verðskuldaður sigur hjá Val, þeir voru allan leikinn á undan í boltann. Við erum líka óvan- ir að leika við þessar aðstæður og það hafði sitt að segja. En þessi leik- ur gefur ekki rétta mynd af getu okkar. Við getum meira og eigum eftir að sýna það, sagði þjálfari IBÍ, Magnús Jónatansson, eftir að Valsmenn höfðu sjgrað ÍBÍ 1—0 í Laugardalnum á laugardag. Leikur liðanna fór fram í slagveð- ursrigningu og var mesta furða hvað leikmönnum tókst að sýna á hálum vellinum. Sérstaklega voru það Valsmenn sem reyndu að leika góða knattspyrnu og tókst það oft á tíðum en þess á milli datt leikur liðsins nokkuð niður. Mikil barátta var í leiknum all- an tímann. Fyrri hálfleikurinn nokkuð jafn, liðin skiptust'á að sækja og sköpuðu sér nokkur góð tækifæri. Gunnar Pétur átti færi á 5. mínútu, en Brynjar bjargaði vel. Hilmar Sighvatsson átti gott skot sem var varið. Valsmenn skoruðu mark á 20. mínútu leiks- ins en dómarinn Grétar Norðfjörð var full fljótur á sér að dæma aukaspyrnu, og markið var tekið af. Á 35. minútu áttu ísfirðingar þrjár hornspyrnur í röð á Vals- markið og voru þær allar hættu- legar. Eina mark leiksins kom á 41. mínútu fyrri hálfleiksins. Albert Valur 0 0 — IBI 1—0 Guðmundsson átti fast skot að marki IBI, og virtist Hreiðar markvörður vera öruggur með að ná boltanum. En skot Álberts fór í bakið á Inga Birni Albertssyni og breytti stefnu og fór í gagnstætt horn. Valsmenn höfðu því forystu í hálfleik, 1—0. Síðari hálfleikur var oft nokkuð fjörugur, leikmenn ísafjarðar h»örðust af miklum krafti og dugn- aði, en gekk illa að finna réttan takt í leik sinn. Var oft leikið meira af kappi en forsjá. Á 63. mínútu leiksins áttu ísfirðingar sitt besta marktækifæri, og þá munaði aðeins hársbreidd, að þeim tækist að jafna metin. Langt innkast frá Jóni Oddssyni skapaði hættu eins og alltaf. Jón kastaði vel inn í vítateiginn. Þar náði örn- ólfur að skalla en boltinn fór í þverslána, hrökk út og Ámundi skallaði rétt yfir. Albert Guðmundsson, sem lék nú með Val eftir langa fjarveru, átti gott skot á 75. mínutu sem var vel varið, og Ámundi átti gott færi á 85. mínútu en tókst ekki að nýta það. Lið ísafjarðar barðist feiki- lega vel í leiknum, og sýndu leik- menn mikinn dugnað. Þá virðist ekki skorta úthald, en nokkuð vantar á að liðið leiki góða knatt- spyrnu. Hreiðar markvörður átti góðan leik gegn Val, svo og þeir Haraldur Stefánsson, Gunnar Pétur Gunnarsson og Gústaf Baldvinsson. Lið Isafjarðar getur vel eins og það hefur nú þegar gert tekið stig af öllum liðunum í 1. deildinni, sýni það sömu baráttu og það hefur gert, og bæti aðeins við sig knattspyrnulega séð. Lið Vals er í greinilegri framför. Albert Guðmundsson lék með lið- inu eftir víkingu sína í vestur- heimi og breytti leik liðsins til góðs. Hann gaf góðar sendingar á samherja sína og reyndi allan tím- ann að byggja upp. Grímur Sæ- mundsen og Jón Gunnar Bergs léku vel í vörninni. Njáll Eiðsson sýndi mikla yfirferð og vann vel á miðjunni og var einn besti maður Valsliðsins í leiknum. í stuttu máli: íslandsmótið 1. deild. Valur—ÍBÍ1—0 (1—0) Mark Vals: Albert Guðmundsson á 41. mínútu. Gul spjöld: Gústaf Baldvinsson og Kristinn Kristjánsson ÍBÍ. Áhorfendur voru 643. Slagveðursrigning var meðan á leiknum stóð. Dómari var Grétar Norðfjörð. - ÞR. Knötturinn liggur í marki ísfirðinga eftir að fast skot Alberts Guðmundssonar hafði hafnað í baki Inga Björns, knötturinn breytti um stefnu og fór í netið. Hreiðar kom engum vörnum við. Heimir Karlsson, númer 11, fagnar eftir að hafa skorað fyrra mark sitt og Víkings. Ljósm. KÖE. Heimir nýtti færi sín og það dugði Vikingum til sigurs KR lék sinn besta leik í sumar en tapaði samt fyrsta leik sínum VÍKINGliR sigraði KR 2—0 á Laug- ardalsvellinum er liðin mættust í 1. deild íslandsmótsins í knattspyrnu á sunnudagskvöldið, Heimir Karlsson skoraði bæði mörkin, bæði í seinni hálfleiknum. Matsatriði er hvort sig- ur Víkings var sanngjarn eða ekki, aftur á móti er alveg öruggt að hann var stærri en efni stóðu til, því KR-ingar voru síst lakari aðilinn og bæði liðin léku á köflura prýðisgóða knattspyrnu. Gaman að sjá slíkt loks til KR-inga í sumar. Vonandi að þeir komist ekki að þeirri niðurstöðu að það taki því ekki fyrst að fyrsta tap sumarsins kom einmitt í fyrsta leiknum þar sera liðið lék mjög góða knattspymu. KR var betra liðið í fyrri hálfleik, en þrátt fyrir góða knattspyrnu var lítið um færi. KR-ingar náðu vel saman úti á vellinum og upp að víta- teignum, en þar tók vörn Víkings við knettinum og þvældi honum fram á völlinn á nýjan leik. Svona gekk fyrri hálfleikurinn lengst af. KR-ingar fengu þó eitt ákjósanlegt tækifæri er Oskar Ingimundarson komst einn inn fyrir vörn Vikings strax á 5. mínútu leiksins. Óskar hitti knöttinn hins vegar illa og hann þaut fram hjá markinu. Mörkin komu ekki fyrr en í síð- ari hálfleik og hann var aðeins fimm mínútna gamall er Víkingar skoruðu fyrra mark sitt. Það var heppnisbragur á því svo ekki sé Lið Vals: Brynjar Guömundsson 6 Úlfar Hróarsson 5 Grímur Sæmundsen 7 Þorgrímur Þráinsson 5 Jón G. Bergs 7 Njóll Eiðsson 7 Magni Pétursson (vm) 5 Hilmar Sighvatsson 5 ngi B. Albertsson 6 Þorsteinn Sigurðsson 6 Brynjar Níelsson 5 Albert Guömundsson 6 Lið IBI: Hreiðar Sigtryggsson 7 Haraldur Stefánsson 7 Gunnar Guðmundsson 5 Halldór Ólafsson 5 Guðmundur Jóhannsson (vm) 5 Órnólfur Oddsson 6 Kristinn Kristjánsson 5 Amundi Sigmundsson 6 Gústaf Baldvinsson 7 ón Oddsson 5 Gunnar P. Gunnarsson 6 Lið KA: Aðalsteinn Jóhannsson 4 Eyjólfur Ágústsson 5 Guöjón Guöjónsson 4 Haraldur Haraldsson 5 Erlingur Kristjánsson 6 Gunnar Gíslason 5 Elmar Geirsson 4 Ormar Örlygsson 4 Hinrik Þórhallsson 4 Jóhann Jakobsson 4 Ásbjörn Björnsson 4 Lið IBK: Þorsteinn Bjarnason 4 Kristinn Jóhannsson 5 Einar Á. Ólafsson 6 Ingiber Óskarsson 5 Gísli Eyjólfsson 6 Sigurður Björgvinsson 7 Rúnar Georgsson 6 Ólafur Júlíusson 6 Magnús Garðarsson 4 Daníel Eínarsson 5 Óli Þór Magnússon 6 Ingvar Guðmundsson (vm) 5 Lið Víkings: Ögmundur Kristinsson 7 Ragnar Gíslason 6 Magnús Þorvaldsson 5 Þóröur Marelsson 7 Stefán Halldórsson 6 Jóhannes Bárðarson 6 Gunnar Gunnarsson 5 Ómar Torfason 7 Aðalsteinn Aðalsteinsson 5 Jóhann Þorvarðarson 6 Heimir Karlsson 7 Helgi Helgason (vm) 6 Lið KR: Stefán Arnarsson 6 Guðjón Hilmarsson 6 Sigurður Sigurðsson 6 Ottó Guðmundsson 6 Magnús Jónsson 7 Hálfdán Örlygsson 6 Ágúst Jónsson 7 Jósteinn Einarsson 6 Óskar Ingimundarson 5 Willum Þórsson 7 Sigurður Indriðason 5 Erling Aðalsteinsson (vm) 5 Jón Bjarni Jónsson (vm) 6 Lið Fram: Guðmundur Baldursson Þorsteinn Þorsteinsson Trausti Haraldsson Sverrir Einarsson Marteinn Geirsson Halldór Arason Ólafur Hafsteinsson Viðar Þorkelsson Lárus Grótarsson Guðmundur Torfason Steinn Guöjónsson Lið IA: Bjarni Sigurðsson Guðjón Þóröarson Árni Sveinsson Sigurður Lárusson Sigurður Halldórsson Jón Áskelsson Kristján Olgeirsson Jón Alfreðsson Sigþór Ómarsson Guðbjörn Tryggvason JÚIÍU8 Pétur Ingólfsson 6 6 6 7 6 7 6 5 5 6 6 6 6 8 6 6 6 6 5 6 6 7 Víkingur:KR 2:0 meira sagt. Þórður Marelsson sendi knöttinn fyrir markið frá hægri og Heimir Karlsson tók við hinni föstu fyrirgjöf. Hann hugð- ist leggja knöttinn fyrir sig, en missti hann frá sér. Og hvert haldið þið að hann hafi misst knöttinn? Jú, í markið hjá KR og Stefán Arnarsson, markvörður liðsins, gerði ekki einu sinni til- raun til að verja „skotið". Allt þar til Víkingur skoraði annað mark sitt á 69. mínútu, voru KR-ingar mun ágengari og tvívegis lék allt á reiðiskjálfi inni í vítateig Víkings er illa gekk að þvæla knettinum út úr honum eftir fyrirgjafir. En Víkingar gerðu nánast út um leik- inn á 69. mínútu. Ottó Guð- mundsson, miðvörður KR geystist með knöttinn út úr vörninni, en skilaði honum afleitlega frá sér, beint til Ómars Torfasonar og hann sendi umsvifalaust góða stungusendingu til Heimis sem var á auðum sjó og skoraði örugg- lega og yfirvegað. KR-ingar gáfust ekki upp og nokkrum mínútum síðar átti Hálf- dán Örlygsson þrumuskot naum- lega fram hjá marki Víkings og á 79. mínútu varði Ögmundur Vík- ingsmarkvörður stórkostlega þrumuskot Magnúsar Jónssonar. Skotið var erfitt viðfangs, því ekki einungis var það firnafast, heldur breytti knötturinn mikið stefnu af varnarmanni eftir að Ögmundur hafði kastað sér. Var með ólíkind- um hvernig hann náði að vinda upp á sig og bjarga í horn. Kraft- urinn í KR fjaraði út undir lokin og þá fengu Víkingarnir nokkur færi sem hefðu átt að gefa mörk. Stefán Arnarsson varði þá fyrst vel gott skot Ómars Torfasonar, síðan sló hann skalla frá Ómari í þverslá eftir aukaspyrnu og loks góðan skalla Heimis Karlssonar eftir fyrirgjöf Þórðar Marelsson- ar. Auðvitað hefði verið skemmti- legt ef mörkin hefðu verið fleiri, en sanngjarnara hefði verið ef KR hefði skorað a.m.k. eitt. Víkingarnir áttu sæmilegan dag ef á heildina er litið. Liðið átti í vök að verjast framan af, en þá stóð vörnin vel fyrir sínu. í síðari hálfleik náði liðið sér betur á strik, Iék oft ágæta knattspyrnu og skapaði sér nokkur góð mark- tækifæri. Liðið hafði það eitt fram yfir KR, að framlínan var beittari og nýtti færi betur. Þórður Mar- elsson og Ómar Torfason voru bestu menn Víkings og auðvitað á Heimir Karlsson hrós skilið fyrir að nýta færi sín til fullnustu. Áðr- ir leikmenn skiluðu sínu prýðilega, sérstaklega Helgi Helgason sem kom inn á sem varamaður og gerði laglega hluti meðan hann var inn á. KR-ingarnir léku mjög vel lengst af úti á vellinum, liðið sýndi að það er fullfært um að leika góða knattspyrnu. Ágúst Jónsson og Willum Þórsson voru bestu menn í jöfnu liði. Varla tekur því að tína einn út öðrum fremur, en þó má geta þeirra Magnúsar Jónssonar, sem barðist eins og grenjandi ljón allan leikinn, og nýliða að nafni Jón Bjarni Jóns- son, sem sýndi góða takta eftir að hafa komið inn á sem varamaður. í stuttu máli: íslandsmótið í 1. deild, Laugar- dalsvöllur: Víkingur — KR 2—0 (0-0). Mörk Víkings: Heimir Karlsson á 50. og 69. mínútu. Áminningar: Ottó Guðmundsson. Dómari: Þorvarður Björnsson. - 88- „Vió vorum betra liðið í leiknum „ÉG ER nokkuð ánægður með leik- inn en vildi fá bæði stigin, við stefndum á að ná þeim báðum. Við vorum betri aðilinn í þessum leik,“ sagði Karl Hermannsson þjálfari Keflvíkinga eftir leik þeirra við KA á Akureyri á fdstudagskvöldið. Ohætt er að taka undir það að Kefl- víkingar hafi verið betri aðilinn í lciknum. Þeir komu mjög ákveðnir til leiks, greinilega ákveðnir að leggja sig alla fram. Leiknum lauk með markalausu jafntefli og hefur KA ekki enn skorað mark á heima- velli í sumar. Keflvíkingar voru ákveðnari lengst af í fyrri hálfleik. Þeir spil- uðu betur úti á vellinum en ekki sköpuðu þeir sér umtalsverð marktækifæri. Síðasta stundar- fjórðunginn tóku KA-menn við sér og sóttu meira og fengu þeir þá eina færi hálfleiksins, og það meira að segja dauðafæri. Ás- björn Björnsson fékk knöttinn þá aðþrengdur á markteig eftir nokk- urn darraðardans í vítateignum, en Þorsteinn Bjarnason varði skot hans mjög vel. Varla var um ann- að minnisstætt úr fyrri hálfleikn- um að ræða. í síðari hálfleik voru Keflvík- ingar mun sterkari aðilinn. Þeir náðu öllum tökum á miðjunni og framlínumennirnir voru léttleik- andi, sérstaklega Ólafur Júlíusson og Óli Þór. Keflvíkingarnir sóttu mun meira þó KA-markið kæmist ekki nema einu sinni í verulega hættu. Var það á 23. mín. hálfl. er Daníel Einarsson átti skalla af stuttu færi í innanverða stöngina, þaðan fór knötturinn í Aðalstein markvörð KA og út á völlinn og varnarmenn náðu að bjarga. Önn- ur bitastæð færi er ekki um að ræða í síðari hálfleik. Liðin: Eins og áður kom fram voru Keflvíkingarnir sterkari í þessum leik. Bestan leik í liði þeirra átti Sigurður Björgvinsson, sívinnandi og kraftmikill leikmaður. Vörnin var örugg, en hafa verður í huga að afskaplega lítið reyndi á hana, og sama er að segja um Þorstein markvörð. Hann varði einu sinni mjög vel frá Ásbirni í f.h. en þurfti annars lítið sem ekkert að beita sér. KA-liðið var mjög dauft í þessum leik og hefur ekki leikið verr á heimavelli í langan tíma. Framlínan var mjög bitlaus og miðjumennirnir náðu sér ekki á strik. Vörnin, með Erling Krist- jánsson sem besta mann, verður að teljast skásti hluti liðsins þó hún hafi oftast leikið betur. Lítið reyndi á Aðalstein í markinu. Dómari leiksins var Rafn Hjalta- lín og línuverðir hans voru Þór- oddur Hjaltalín og Kjartan Tóm- asson og stóðu þeir sig mjög vel. Leikurinn fór fram á malarvelli KA og er vonandi að þetta hafi verið síðasti malarleikur vorsins. Annað kvöld mætast hér á Akur- eyri KA og Valur í 1. deildinni og hlýtur að vera kominn tími til að spila á grasi. I stuttu máli: KA-völlur 1. deild föstudagur 11. júní. KA-ÍBK 0:0 Áhorfendur voru u.þ.b. 600 Spjöld dómarans voru algerlega látin í friði í leiknum. — sh. Fyrsti sigur Framara á Akranesi í heilan áratug ÞRÁTT fyrir að ná sínum besta leik í 1. deildinni í sumar máttu Akur- nesingar bita í það súra epli að tapa 0—1 fyrir Fram er liðin mættust á Akranesi á laugardag. Tæpast er hægt að segja að úrslit leiksins hafi verið sanngjörn. Þau tækifæri, sem sköpuðust í leiknum, voru flest í eigu Akurnesinga en óheppni og klaufaskapur kom í veg fyrir að knötturinn hafnaði í netinu. Akur- nesingar hafa nú leikið þrjá síðustu leikina án þess að skora mark. Ekki ólíkt því ástandi, sem herjaði á liðið fyrri hluta sumars er það skoraði ekki í einum 5 eða 6 leikjum í röð. Þrátt fyrir ósigurinn geta Akurnes- ingar glaðst að því leyti að knatt- spyrnan sem sýnd var var sú besta frá liðinu í sumar. Þá geta Framarar vel við unað því þetta var fyrsti sigur þeirra á Akranesi frá því 1972 er Fram varð síðast íslandsmeistari. Eina mark leiksins kora ekki fyrr en á 77. mínútu en var einkar lag- legt. Framarar fengu aukaspyrnu við hliðarlínuna á hægri vængnum. Gef- ið var vel fyrir markið og þar stökk Halldór Arason manna hæst og skallaði fallega i gagnstætt horn, 1—0. Þaö sem eftir lifði leiksins sóttu Akurnesingar af talsverðum þunga, en tókst ekki að opna vörn- ina hjá Fram svo um munaði. Hins vegar mátti ekki miklu muna rétt fyrir leikslok að Framarar bættu öðru marki sínu við. Það vakti óneitanlega dálitla at- hygli undirritaðs að sjá að Sveinbjörn Hákonarson var ekki að finna í liði Skagamanna í þess- um leik. I hans stað var kominn Júlíus Pétur Ingólfsson og greip tækifæri sitt höndum tveim. Þá var Jón Gunnlaugsson ekki með vegna meiðsla. Sigurður Lárusson var því færður aftur í miðvarð- arstöðuna og Kristján Olgeirsson kom inní liðið á ný eftir meiðsli. Með fullri virðingu fyrir Jóni Al- freðssyni, besta manni Akranes- liðsins mörg undanfarin ár, er ég á IA — Fram 0:1 því að sterkara væri að hafa hann á bekknum og Sveinbjörn inn á. Leikurinn sjálfur, svo við vind- um okkur að honum, hófst mjög fjörlega. Bæði liðin sýndu ágætis tilþrif og var hér ólíku saman að jafna ef tekið er mið af viðureign IA og Vals fyrir skömmu. Framar- ar með kornungt og skemmtilegt lið. Leikmenn eru flestir „teknisk- ir“ og hafa gott auga fyrir sam- leik. Þrátt fyrir slaka byrjun er enginn vafi á að þetta unga lið á eftir að sýna tennurnar. Liðið not- aði kantana á skemmtilegan hátt og tengiliðirnir reyndu að dreifa spilinu eins og unnt var. Strax á 6. mínútu leiksins fengu Framarar hornspyrnu. Upp úr henni skallaði Guðmundur Torfa- son rétt framhjá markinu. Skaga- menn brunuðu upp hægri kantinn og þar gaf Kristján Olgeirsson vel fyrr markið á Júlíus Pétur, en skalli hans hafnaði í hliðarnetinu. Á 15. mínútu áttu Framarar svo skemmtilegustu sókn leiksins. Marteinn Geirsson vann tækl- ingu við eigin vítateig og sendi fram á Guðmund Torfason. Hann lék aðeins áfram en skipti svo yfir á hinn kantinn þar sem Steinn Guðjónsson fékk knöttinn og brunaði í gegn. Skot hans var hins vegar alveg misheppnað þar sem hann var í ágætu færi. Fyrri hálf- leikurinn leið síðan nokkuð tíð- indalaus áfram fram til leikhlés, utan hvað Guðjón Þórðarson átti þrumufleyg að Frammarkinu, sem fór rétt yfir. Á lokamínútu fyrri hálfleiksins átti síðan Guðbjörn Tryggvason skalla ð Frammark- inu eftir fyrirgjöf Kristjáns Olgeirssonar, en rétt framhjá. Strax í upphafi síðari hálfleiks- ins átti Júlíus Pétur skalla að marki Fram eftir langa sendingu Jóns Áskelssonar, en Guðmundur Baldursson var vel staðsettur og varði án erfiðleika. Skagamenn sóttu áfram og á 57. mínútu kom falleg sókn. Árni Sveinsson, besti maður vallarins, gaf vel fyrir markið. Guðbjörn hafði betur í baráttu við Guðmund í markinu og skallaði niður í teiginn þar sem Júlíus Pétur kom á fullri ferð. Mark virtist óumflýjanlegt, en á snilldarlegan hátt tókst Sverri Einarssyni að bjarga þrumuskoti hans á marklínu. Trausti Haraldsson sýndi gamla og vel kunna takta er hann brun- aði einn upp allan kantinn á 69. mínútu. Lék alveg inn í vítateig Skagamanna þar sem hann svo hleypti af. Bjarni Sigurðsson varði skot hans vel, en hélt ekki knettin- um. Hættunni var bægt frá en með árvökulli sóknarmönnum hefði Fram hæglega geta skorað þarna. Síðasta umtalsverða atvik leiks- ins gerðist síðan þremur mínútum síðar er Sigurður Halldórsson átti þrumuskot í þverslá Frammarks- ins eftir að hafa náð knettinum á vítateig. Af upptalningunni má sjá, að sigur Framara var í tæp- asta lagi og þó kannski ekki svo mjög ef betur er að gáð. Skaga- menn voru ívið sterkari aðilinn í leiknum, en helsta hættan skapað- ist hjá Fram við horn- og auka- spyrnu, sem oft voru vel útfærðar. Árni Sveinsson var eins og fyrr sagði besti maður vallarins. Þá kom Júlíus Pétur Ingólfsson vel út hjá Skagamönnum svo og þeir Sverrir Einarsson og Halldór Arason hjá Fram. Þá sýndi Trausti Haraldsson að hann er að ná sér á strik eftir slakt síðasta sumar. Dómari leiksins var Óli Ólsen. - SSv. Lágkúra er Þór og Reynir skildu jöfn ÞAÐ Á svo sannarlega ekki af Akur- eyringum að ganga þessa dagana, fyrst fírnadaufur leikur KA og IBK á fostudagskvöld og síðan ömurlegt jafntefli Þórs og Reynis, Sandgerði, sl. laugardag. Já, hafí leikur KA og ÍBK verið slakur var þessi hálfu lak- ari og er það mál manna nyrðra að vart hafí önnur eins lágkúra sést á Akureyri eins og Akureyrarliðin hafa spilað í vor en eru þó ýmsu vanir í þeim efnum blessaðir. Svo ótrúlega sem það kann að hljóma eru þessi lið, Þór og Reynir, álitin i hópi betri liða 2. deildar en ef það er er huggun í harmi þá leika þessi lið vart verr en á laugardaginn. Miðjuþóf og háloftaspyrnur voru aðal fyrri hálfleiks, mark- tækifæri sáust varla og oftar en ekki var það tilviljun ein sem réði því hvert knötturinn fór í það og það skiptið. Heimamenn spiluðu þó betur og sköpuðu sér 2—3 kjör- in færi, einungis klaufaskapur framherja Þórs kom í veg fyrir að mark yrði skorað. Það var í fullu samræmi við lágkúruna, að það voru varnarmistök Þórsara sem urðu þess valdandi að mark var skorað, ekki samleikur Reyn- ismanna. Rúnar Steingrímsson gerði sig sekan um byrjendavillu, þversending skammt framan við eigin teig og auðvitað hafnaði hún hárfínt hjá andstæðingi. Ari H. Arason þakkaði kurteis- lega fyrir sig með því að skora örugglega framhjá Eiríki Eiríks- syni markv. Þórs og þannig stóð í hálfleik. Seinni hálfleikur var enn tíð- indaminni en sá fyrri. Raunar má segja að mark Þórs á 40. mín. síð- ari hálfleiks hafi verið hið eina verulega markverða er gerðist þessar 45 mínútur. Einstaklings- framtak Bjarna Sveinbjörnssonar tryBgði Þór annað stigið er hann lék snilldarlega upp hægri kant og gaf firna fallegan bolta fyrir mark Reynis, þar sem Örn Guðmunds- son kom aðvífandi og afburða kollspyrna hans hafnaði efst í horni marksins, mjög vel að verki verið! 1:1 urðu lokatölur þessa leiks og mega báðir aðilar vel við una samkv. gangi leiksins. Kaplakrikavöllur 2. deild FH — Pór Sandgerði Þriöjudag kl. 20. Mætiö og hvetjið FH aftur í 1. deildina. Áfram FH Meðalmennskan og tæplega það var aðal þessa leiks, barátta leikmanna ótrúlega lítil. Um ein- staka leikmenn verður ekki fjölyrt hér enda leikurinn öllum leik- mönnum verulega óhagstæður. Dómari var Birgir Óskarsson og Hnuverðir Rafn Hjaltalín og Bragi Ingimarsson og voru þeir þre- menningar beztu menn vallarins. I stuttu máli: Þórsvöllur, 2. deild, laugardaginn 12. júní. Þór — Reynir 1:1 (0:1) Mark Þórs: Örn Guðmundsson á 85. mínútu. Mark Reynis: Ari H. Arason á 43. mínútu. Áhorfendur innan við 30. Ekkert spjald gefið í leiknum. MÞ.—

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.