Morgunblaðið - 15.06.1982, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ1982
37
Minning:
Guðrún Jóhanna
Einarsdóttir
Fædd 5. desember 1904
Dáin 6. júní 1982
Það er ekki skrýtið, að litlum
börnum skuli stundum vefjast
tunga um tönn, þegar þau eru beð-
in að hafa eftir nöfn mömmu og
pabba eða annarra ættingja. öll
tungumál eru vísast erfið ómálga
börnum, en líklega ekki sizt hið
íslenzka. Það tekur tíma að þjálfa
tunguna til að segja orðin, og því
er það, að nöfn ættingjanna koma
ekki alltaf rétt af vörum barnsins
í fyrstu atrennu, og kannski oftar
víðs fjarri nafninu, sem átti að
reyna að segja. Þannig var það i
bernsku minni, að þegar sagt mun
hafa verið við mig eitthvað á þessa
leið: „Segðu Gunna," þá hlýt ég að
hafa svarað: „Buwa, Buvva," eða
✓ eitthvað á þá leiðina. Ég man
þetta auðvitað ekki hót, en nokkuð
er það, að þetta sérkennilega nafn
festist við frænku mína og ævi-
vinkonu, Guðrúnu Jóhönnu, og i
innsta hring ættarinnar var hún
frá þeirri stundu aldrei nefnd öðru
nafni en Buwa af minni kynslóð.
Ég verð að geta þessa, þegar ég nú
kveð hana, þvi undir öðru nafni
þekkti ég hana ekki.
Guðrún Jóhanna fæddist 5. des-
ember 1904 í Garðhúsum í Grinda-
vík, dóttir Ólafíu Ásbjarnardóttur
og Einars G. Einarssonar, kaup-
manns og útgerðarmanns. Hún
ólst upp á merkis- og menningar-
heimili foreldra sinna og átti þar
athvarf og skjól. Leið hennar lá í
Kvennaskólann, eins og hinna
systranna frá Garðhúsum, og í
þeim skóla stundaði hún nám á
árunum 1922—24 og lauk því. Árið
1933 giftist Guðrún Einari Oddi
Kristjánssyni, skipstjóra á es.
Heklu. Þau eignuðust eina dóttur,
Erlu Guðbjörgu, sem er gift Ólafi
Sigurðssyni, skrifstofumanni hjá
Ræsi. Barnabörn Guðrúnar eru
þrjú, og einnig var hún orðin þre-
föld langamma, þegar hún lézt.
Einar Oddur, skipstjóri, fórst með
skipi sínu, Heklu, þegar það var
skotið niður af þýzkum kafbát á
leiðinni frá íslandi til Halifax,
þegar heimsstyrjöldin síðari stóð
sem hæst, hinn 29. júní 1941.
Þar náði hryllileg styrjaldar-
krumlan rétt einu sinni taki á
þeim, sem ekki átti hlut að máli og
ekkert hafði til saka unnið. Og
krumlan sú kreisti fast að vanda.
Hún tók líf og breytti lífi hiklaust.
Verst, að krumlan skuli gerð af
mannahöndum.
Eftir þetta áfall flutti Buwa
frænka mín til Grindavíkur með
dótturina, Erlu Guðbjörgu. Þar
áttu þær athvarf og skjól og þar
dvöldu þær um nokkurra ára
skeið, þar til Erla fetaði í fótspor
móður sinnar og settist í Kvenna-
skólann. Þá var tekið upp heimili
enn á ný og flutt til Reykjavíkur.
Mér kom Buwa frænka fyrir
sjónir sem hin ósigrandi kona,
sem ekkert gæti brotið á bak aft-
ur. Ég man eftir deginum þegar
fréttin um að Heklan hefði verið
skotin niður barst til fjölskyld-
unnar. Ég var kornungur, og at-
burðurinn hafði djúp áhrif á mig.
Ég gat tæplega ímyndað mér, að
nokkur lifandi vera myndi geta
tekið svo ægilegu áfalli og staðið
upprétt eftir. En það gerði Buwa
frænka — að minnsta kosti að því
er við yngri ættingjarnir gátum
bezt séð. Þá fannst mér hún ósigr-
andi. Ég botnaði ekkert í þessu
þreki.
Víst hefur þurft þrek til að
bægja burt sorginni og halda
heimili sitt öll þessi ár, fyrst með
dótturinni og síðan ein. Það hefur
líka útheimt þrek að stunda
sauma og prjón á markaðsvöru,
sem hún gerði um árabil til að
drýgja tekjur og hafa starf að
ganga að. Én slíkt þrek er auðvit-
að ekkert einsdæmi, og þótt hún
Buwa frænka væri seig eins og
bambusreyrinn, þá kom í ljós, eins
og alltaf kemur í Ijós, að hún var
ekki ósigrandi fremur en við hin
mannanna börnin. Sjúkdómur
herjaði á hana síðustu tvö árin.
Hún vistaðist á elli- og hjúkrun-
arheimilið Grund og fékk þar hina
beztu aðhlynningu og mestu fyrir-
myndar umönnun. Hún barðist
hetjulega, en bardaginn var von-
laus. Loks kom dauðinn sjálfur, og
í þetta sinn eins og líknandi hönd
til að veita frið. Hann kom til sjó-
mannskonunnar á sjálfan sjó-
mannadaginn síðasta.
Ég býst við, að Buwa frænka
hafi fegin látið í minni pokann
fyrir dauðanum. Ég er viss um, að
eftir langa, stranga göngu hefur
hún nú hlotið ljúfa hvíld og bless-
aðan frið.
Ólafur Gaukur
Lítil stúlka með glóbjart hár og
skærblá augu stendur í hópi systk-
ina sinna við gluggann í stofunni
heima og horfir útyfir hafið, sem
heldur óperusýningu við hrjúfa
Grindavíkurströndina. Leiktjöldin
eru stórbrotin og skýr, engin
fínsmíði, en litirnir fágætir og
töfrandi, leikur sjávarins óheflað-
ur og ólgandi, hljómlistin seið-
andi, frá örfínustu eintónum til
mögnuðustu háhljóma. Litla
stúlkan horfir hugfangin á þetta
meistaraspil náttúrunnar, þessa
einstæðu sýningu, sem hvergi
verður endurtekin, og skærblá
augun ljóma af hrifningu. Sú
hrifning á eftír að fylgja henni
ævilangt, hrifning fyrir því sem
fegurst verður á jörðu í lífi og list.
Þessi þáttur var einmitt ríkur í
eðli Buwu frænku minnar, Guð-
rúnar Jóhönnu Einarsdóttur frá
Garðhúsum í Grindavík, næmleiki
fyrir umhverfinu, hluttaka í sjón-
leik tímans. Hún var fagurkeri og
listunnandi, þátttakandi í lífi og
starfi, vakti yfir velferð skjólstæð-
inga sinna og vildi hag þeirra sem
bestan á leiksviði lífsins.
í þessum örfáu kveðjuorðum
mínum til hennar verður ekki sögð
löng lífssaga — hana sagði hún
sjálf. Aðeins vil ég mega þakka
henni ævilanga tryggð og vináttu
við mig og okkur öll, föður minn,
móður og systkinin.
Oft kom ég á Fálkagötuna í rás
tímans, fyrst sem skólapiltur, sem
skrapp kannski til Buvvu frænku í
frímínútum eða á heimleiðinni úr
skóla, og svo seinna meir á ferðum
mínum um borgina, þegar slóðin í
snjónum var ekki jafn bein og
fyrr, og var ævinlega jafn vel tek-
ið. Það var dálitið hressandi að
spjalla við hana um landsins gagn
og nauðsynjar og svo auðvitað
myndlistarsýningar og leikhús, en
í slíkum hlutum var hún sérfræð-
ingur.
Það eru bjartar minningar sem
verða geymdar um Buvvu frænku.
Hún var sannur unnandi lífs og
ljóss, bjartsýnisboði, sem tók
áföllum sem hetju sæmir.
Og nú er hún horfin til fundar
við vininn sinn á ströndinni við
hafið þar sem sólin skín og fegurð-
in ríkir ein.
Og hún verður sæl að nýju.
egþ
Afmælis- og
minningargreinar
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn-
ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið-
vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal einnig
getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn
látna eru ekki birt á minningarorðasíðum Morg-
unblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með
góðu línubili.
Sérstök námskeið í vaxtarrækt
fyrir unglinga (bæði kynin)
ÆFINGASTÖEMN
Engihjalla 8 - Kópavogi
Notið einstakt tækifæri
og kynnist vaxtarrækt
að eigin raun í fullkomnustu ftn
vaxtarræktarstöð á íslandi
Kynningarnámskeið fyrir 13-14 ára og 15-16 ára (bæði kynin)
Fullkomið æfingakerfi undir leiðsögn færustu vaxtarræktarmanna
Námskeiðin standa yfir í 2 vikur, alla virka daga
Námskeið fyrir 13-14 ára hefst 18. júní kl. 10 árdegis
Námskeið fyrir 15-16 ára hefst 18. júní kl. 13 síðdegis
Þátttakendur hafi með sér venjulegann íþróttafatnað og strigaskó
INNRITUN ER ÞEGAR HAFIN í SÍMA 46900|
ATHUGIÐ: Aðeins takmarkaður fjöldi þátttakenda kemst að á hvoru námskeiði fyrir sig
71 flji
ÆFIIMGASTÖÐIN - Engihjalla 8- Kópavogi - Sími 46900