Morgunblaðið - 15.06.1982, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 15.06.1982, Qupperneq 48
Síminn á afgreiðslunni er 83033 i Rjúl<andi loffi ogheitbrauÓfral<l.7 ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1982 Byggingamenn fá rúmlega 20% hækkun á þremur árum Ljóst er nú, að margir tog- aranna munu ekki halda aftur til veiða, þótt samn- ingar takist milli ASÍ og VSÍ þar sem útgerðarmenn treysta sér ekki lengur að halda skipunum úti, sökum rekstartaps. Ljó«m. mbl ói.k.m. Um helmingur þess kem- ur til framkvæmda strax MEISTARASAMBAND byggingamanna og byggingamenn nártu samkomu- lagi í kjaradeilu sinni snemma í gærmorgun og er samningurinn gerður til þriggja ára, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Samningurinn gerir ráð fyrir liðlega 20% heildarlaunahækkun byggingamönnum til handa i samningstímabilinu, þar af kemur um helmingur hennar til framkvæmda nú þegar. ’ málin voru rædd í ljósi nýrra við- horfa. Síðan var ákveðið, að aðilar hittust að nýju í gærkvöldi hjá rík- issáttasemjara. Samkvæmt upplýs- ingum Mbl. var ekki að vænta tíð- inda af þeim fundi. Þeir talsmenn vinnuveitenda, sem Mbl. ræddi við voru á einu máli um, að þessi nýgerði samningur liðkaði alls ekki fyrir samningum milli ASI og VSI. Þá kom það fram í máli þeirra full- trúa verkalýðsfélaga, sem Mbl. ræddi við í gærkvöldi, að þeir áttu alls ekki von á neinum stórtíðind- um á fundi aðila í gærkvöldi. Málin yrðu einfaldlega rædd áfram í ljósi nýrra viðhorfa. Fjöldi togara að stöðv- ast vegna rekstrartaps Skuldahalinn lengri en á árunum 1967—68 Samningurinn gerir ráð fyrir al- mennri 4% launahækkun, flokka- tilfærslum, starfsaldurshækkun- um, hækkunum á verkfærapening- um og fleiri kostnaðarliðum. Auk þess kemur til veruleg leiðrétting á svokallaðri reiknitölu, eða greiðsl- um í ákvæðisvinnu. Sú hækkun kemur inn í dæmið smám saman á samningstímanum og að fullu inn- an þriggja ára. Gunnar S. Björnsson, formaður Meistarasambands bygginga- raanna, sagðist í samtali við Mbl. ekkert vilja segja um innihald samnings aðila. Við erum með stjórnarfundi í einstökum félögum í dag og síðan sambandsstjórnar- fund á morgun, og fyrr en að þeim loknum viljum við ekkert tjá okkur um málið, sagði Gunnar S. Björns- son ennfremur í samtali við Mbl. í gærkvöldi. Gunnar sagði ennfremur, að samningamenn aðila hefðu verið á stöðugum fundum síðustu fjóra sólarhringa. Við höfum setið fundi stöðugt frá því okkur var hrint út í þennan pakka, sagði Gunnar enn- fremur. Verkföllum byggingamanna, bæði innan Sambands bygginga- manna og utan gagnvart Meistara- sambandinu hefur verið aflýst með fyrirvara um samþykki félaga, en félögin héldu fundi í gærkvöldi og í dag um samningana. Þess má geta, að Rafiðnaðarsamband íslands er ekki inni í þessu dæmi og eru þeirra mál því enn óleyst. Strax þegar samningurinn hafði verið undirritaður í gærmorgun kallaði sáttanefnd samninganefnd- ir ASI og VSÍ á sinn fund, þar sem HEILDARTEKJUR Arnarflugs hf. fímmfolduðust á síðasta ári, miðað við árið 1980 og voru þær 157,9 millj- ónir króna. Ilagnaður af rekstrinum varð 4,3 milljónir sl. ár eftir greiðslu skatta, en árið áður nam tap félagsins 8(K) þúsundum króna. Earþegum í vélum félagsins fjölgaði um 10,1% á milli ára, úr 135.019 í 148.638. Þessar upplýsingar komu fram i skýrslu stjórnarformanns Arnarflugs hf., flauks Björnssonar, á aðalfundi fé- lagsins sem haldinn var í gær. I skýrslu stjórnarformanns kom ennfremur fram að vélar félagsins, sem voru átta þegar mest var sl. ár, flugu í samtals 8.969 flugstundir á síðasta ári og var leiguflug erlendis stærsti þátturinn í starfsemi fé- lagsins. Af verkefnum erlendis má nefna vöruflug fyrir Libyan Airlin- es í Líbýu, flug fyrir jórdanska STÓR hluti togaraflotans er nú bundinn við bryggju, þar sem tog- ararnir voru látnir landa í tæka tíð svo fiskvinnslustöðvarnar gætu unnið aflann fyrir lostudag, þegar verkföll hafa verið boðuð. Hins vegar er fyrirsjáanlegt að mjög margir togarar munu ekki halda til veiða, þótt samningar náist milli Heildartekjur fimmfölduðust á síðastliðnu ári flugfélagið Alia og flug fyrir Kabo Travel í Nígeríu. I leiguflugi til og frá íslandi voru fluttir 25.875 far- þegar, en 23.751 árið á undan. Varðandi innanlandsflug, kom fram hjá stjórnarformanni Arnar- flugs hf., að áætlunarflug hefði verið til 11 staða og voru farþegar alls 20.440, en 160 tonn af vörum voru flutt á innanlandsleiðum fé- lagsins. Tap var á innanlandsflug- inu, þó afkoman hefði batnað á því sviði miðað við árið 1980. Á aðalfundinum kom fram, að framhald verður á stærstu verk- f ASÍ og VSÍ, vegna rekstrartaps. Þeir útgerðarmenn, sem Mbl. ræ- ddi við í gær sögðu, að nú væri svo komið að þótt togararnir kæmu inn með fullfermi af þorski, stæði reksturinn vart undir sér og ekkert væri eftir til að borga geigvænlegt tap fyrstu fimm mánuði þessa árs. Sögðu menn, að olíuverðshækkun- efnum félagsins frá í fyrra, á þessu ári, svo sem í Líbýu og í Bretlandi. Afkoma félagsins er góð og einnig lausafjárstaða, að sögn stjórnar- formanns félagsins. í byrjun júlí hefjast áætlunarferðir félagsins til Amsterdam, Dússeldorf og Zúrich. Á fundinum voru samþykktar tillögur frá stjórn félagsins um að greiða 10% arð af hlutafé og að hlutafé félagsins verði 6,5-faldað með útgáfu jöfnunarhlutabréfa. Kjörið var í tvö sæti í stjórn fé- lagsins og voru sjálfkjörnir þeir Axel Gíslason og Sigurður Helga- son, en stjórnina skipa fimm menn. I stjórn Arnarflugs eru: Haukur Björnsson, stjórnarformaður, Arngrímur Jóhannsson, Axeí Gíslason, Björn Theodórsson og Sigurður Helgason. in hefði komið eins og köld gusa framan í menn, því fiskverðshækk- unin á dögunum hefði ekki einu sinni dugað fyrir hækkunum, sem þá voru skollnar yfir. Miklar líkur eru á að togarar Hraðfrystistöðvar- innar í Reykjavík hf. Isbjarnarins hf. Hraðfrystihúss Keflavíkur hf., Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar og Miðness hf. fari ekki út til veiða að verkfalli loknu sökum rekstarerfið- leika. Togararútgerðarmenn á Reykja- víkursvæðinu komu saman til fund- ar í gær og samþykktu að skora á stjórn Landsambands ísl. útvegs- manna að marka stefnu vegna hinna gífurlegu erfiðleika hjá togaraútgerðinni í landinu og boða útvegsmenn um allt land til fundar hið bráðasta. Benedikt Jónsson, framkvæmda- stjóri Hraðfrystihúss Keflavíkur, sagði þegar rætt var við hann, að togarar fyrirtækisins færu að lík- indum ekki aftur til veiða á næst- unni, sökum rekstrarerfiðleika. Ástandið er þannig, að jafnvel þorsktúr gerir ekki meira en að standa undir útgerðinni og er þá ekkert eftir til að borga af bullandi tapi fyrstu fimm mánuði ársins. „Það er flest, sem bendir til þess að okkar togarar fari ekki út á næstunni. Það er enginn leið til að halda útgerðinni gangandi við þær aðstæður, sem nú ríkja og því miður sé ég enga leið til að koma skipunum út,“ sagði Jón Ingvarsson, fram- kvæmdastjóri Isbjarnarins hf. „Það eru titar horfur á að okkar togarar fari út eftir verkfall," sagði Þórhallur Helgason, framkvæmda- stjóri Hraðfrystistöðvarinnar í Reykjavík hf. „Astandið var erfitt á árunum 1967 til 1968, en ég held að skuldahalinn sé tiltölulega stærri nú,“ sagði hann ennfremur. „Það verður allavega miklum erf- iðleikum háð, að fara af stað eftir verkfall, það er að segja ef það verð- ur,“ sagði Ólafur Baldur Ólafsson, framkvæmdastjóri Miðness hf. „Þetta er reyndar sá árstími, sem helst er að vænta góðs þorskafla hjá togurunum, svo að það er ekki fyrr en í síðustu lög, sem menn gefast upp. Hins vegar er það svo, að það hefur kostað mikla baráttu við að koma skipunum út að undanförnu og ef flotinn á ekki allur að stöðvast þarf að grípa til áhrífaríkra að- gerða." Á fundi togaraútgerðarmanna í gær, sagði fulltrúi Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar, að togarar fyrirtæk- isins færu ekki út til veiða að svo komnu sökum rekstrarfjárskorts. Bjarni Benediktsson togari Bæjar- útgerðar Reykjavíkur liggur nú í Reykjavíkurhöfn og hefur undir- mönnum togarans verið sagt upp störfum. Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri BÚR, sagði þeg- ar Mbl. ræddi við hann, að mennirn- ir hefðu verið afskráðir sökum verk- fallsboðana, en um leið og sýnt væri að samningar ætluðu að takast yrði skráð á togarann á ný. Sagði Björgvin, að ekki hefði verið rætt um að stöðva togara BÚR sökum rekstrarerfiðleika, þótt þeir væru miklir. Kaffí hækkar um 10,5% VERÐLAGSRÁÐ hefur sam þykkt að heimila 10,5%. hækkun á kaffi og tekur sú heimild þeg- ar gildi. Kaffipakkinn, 250 grömm, hækkar því úr 14,35 krónum í 15,85 krónur. Aðalfundur Amarflugs hf. í gær: Hagnaður af rekstri félagsins 4,3 milljónir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.