Morgunblaðið - 23.07.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1982
5
Greinargerð frá Amarflugi hf.:
í. : -
Verið að tryggja skyn-
samlega og varanlega
samkeppni í Evrópuflugi
Vegna umræðu í fjölmiðlum og
greinargerðar Flugleiða um
breytingar á skipan áætlunar-
flugs til Mið-Evrópu vill Arnar-
flug koma eftirfarandi á fram-
færi:
Með þeirri skiptingu á flug-
leiðum til Evrópu sem nú hefur
verið ákveðin, er í raun verið að
tryggja skynsamlega og varan-
lega samkeppni í Evrópuflugi.
Landsmenn allir hafa nú á nýj-
an leik öðlast langþráðan val-
kost. Þeir geta ferðast til og frá
landinu með fleiri en einu flug-
félagi, milli fleiri áfangastaða
en nokkru sinni fyrr.
Arnarflug telur hið nýja fyr-
irkomulag tvímælalaust fram-
faraspor í íslenskum ferðamál-
um. Óheft samkeppni Flugfé-
lags Islands og Loftleiða á sín-
um tíma gaf að sönnu ekki góða
raun, enda var þá gjarnan flog-
ið til sömu borgar á sama degi
og jafnvel á sömu klukkustund-
inni. Þetta ófremdarástand
leiddi til sameiningar flugfé-
laganna.
Síðan hefur verið einokun á
áætlunarflugi milli íslands og
annarra landa. Ef marka má
viðhorf neytenda má draga í
efa að þetta fyrirkomulag hafi
gefist jafnvel og vonir stóðu til.
Hið nýja fyrirkomulag Evr-
ópuflugsins er á engan hátt
skylt eldra samkeppnisfyrir-
komulagi. Arnarflug og Flug-
leiðir munu fljúga til ólíkra
staða á ólíkum tímum. Vandséð
er á hvern hátt slíkt getur tal-
ist óhagkvæmt eða hættulegt.
Eftir sem áður munu Flug-
leiðir sitja einar að áætlunar-
flugi til allra þeirra staða sem
félagið hefur lagt áherslu á á
liðnum árum. Á sama tíma og
Flugleiðir fljúga óáreittar til
allra arðbærustu áfangastað-
anna er varla ástæða til þess að
mæta samkeppni á nýjum
flugleiðum með undirboðum í
krafti fjármagnsyfirburða.
Arnarflug heldur því hik-
laust fram að tvö flugfélög geti
starfað í millilandaflugi með
góðum árangri. Fjölþætt þjón-
usta Arnarflugs á erfiðum
flugleiðum innanlands hefur
sannað, að með hagræðingu má
stórauka samgönguþjónustu
við landsmenn. Þannig munu
áætlunarflug til Amsterdam,
Zúrich og Dússeldorf einnig
leiða til jákvæðrar samkeppni
sem veitir flugfélögunum að-
hald, eykur þjónustuna og
lækkar fargjöld.
Flugleiðir hafa ávallt tekið
samkeppni í áætlunarflugi
þunglega. Viðbrögð Flugleiða
við nýjum flugleyfum til Amst-
erdam hafa t.d. verið hastarleg,
þrátt fyrir þá staðreynd að fé-
lagið hafi haft Amsterdamflug-
leyfi upp á vasann sl. 12 ár, án
þess að hirða um aukna þjón-
ustu með áætlunarflugi til Hol-
lands. Það var ekki fyrr en á sl.
ári, er nýr aðili fékk áætlunar-
flugleyfi til Evrópu, að Flug-
leiðir tóku við sér.
í sumar sést best hvernig
samkeppnin hefur leitt af sér
aukna þjónustu og lægri far-
gjöld fyrir íslenska ferðalanga
á leið til Evrópu.
í framhaldi af því má gera
ráð fyrir að ferðamanna-
straumur til íslands aukist, þar
sem fleiri brottfararstaðir eru í
boði. Arnarflug bætist nú í hóp
þeirra fjölmörgu sem sinnt
hafa Islandskynningu erlendis.
Þeirra á meðal má nefna For-
seta íslands, alþingismenn,
Ferðamálaráð, Ferðaskrifstofu
ríkisins, íslenskar og erlendar
ferðaskrifstofur, ásamt íslensk-
um fyrirtækjum og stofnunum.
Vissulega hafa Flugleiðir
tekið þátt í íslandskynning-
unni. En kynningarstarfsemi
félagsins í Evrópu hefur þó ein-
kum beinst að Ámeríkufluginu,
eins og glöggt má sjá í útstill-
ingargluggum Flugleiða í
Amsterdam, Dússeldorf og víð-
ar.
Meginmáli skiptir að nýtil-
komin flugleyfi Arnarflugs
verða nýtt til reglubundinnar
þjónustu allt árið um kring, en
ekki einungis á þeim árstímum
sem vænlegastir eru. Amster-
damflugið mun t.d. ekki leggj-
ast niður næsta vetur, eins og
raunin varð á hjá Flugleiðum
sl. vetur.
Samkeppnin verður í fullum
gangi. Evrópuferðirnar hefjast
t.d. í Amsterdam eða London og
viðskiptvinirnir hafa mögu-
leika á því að dæma um hvar
betur sé boðið hverju sinni.
Hafa skal það er
sannara reynist
Ljóst er, að í ýmsum málum
er um djúpstæðan ágreining að
ræða milli Flugleiða og Arnar-
flugs. Ekki bætir úr skák er
Flugleiðir fara í greinargerð
sinni með ósannindi.
1. Arnarflug hefur aldrei
rætt um, eða farið þess á leit,
að starfsfólk Flugleiða í Kefla-
ÚTHLUTAÐ hefur verið styrkjum úr
Menningar- og framfarasjóði Lud-
vigs Storr fyrir árið 1982. Fimm um-
sóknir bárust um styrki úr sjóðnum,
en tilgangur hans er að stuðla að
framforum á sviði jarðefnafræði,
byggingariðnaðar og skipasmíða.
Að þessu sinni voru veittir tveir
styrkir:
Edgar Guðmundsson, verkfræð-
ingur, og Óli J. Ásmundsson, arki-
tekt, fengu styrk að upphæð kr.
50.000,00 og lán að upphæð kr.
50.000,00, til verkefnisins: „Þróun-
arvinna og bygging máttilrauna-
húss í Þorlákshöfn ásamt tilheyr-
andi rannsóknarstarfsemi“.
Áhugamannafélagið Dalaleir,
Búðardal í Dalasýslu, fékk kr.
20.000,00 til verkefnisins, „Rann-
sókn á vinnslu og notagildi ís-
lensks leirs“.
vík víkji úr starfi fyrir Arnar-
flugsfólki. Þvert á móti hefur
Arnarflug átt einkar ánægju-
legt samstarf við starfsfólk
Flugleiða og væntir þess, að svo
verði áfram. Þau samskipta-
vandamál sem upp hafa komið,
verða seint rakin til hinna dag-
legu samskipta við starfsfólk
Flugleiða, heldur takmarkast
alfarið við einstaka stjórnend-
ur félagsins.
2. Arnarflug óskaði eftir að
kaupa þjónustu af Flugleiðum
við tölvubókun í tækjum félags-
ins, þar sem eðlilegt þótti að
leita til innlendra aðila. Flug-
leiðir höfðu ekki áhuga á þess-
um viðskiptum, þrátt fyrir aug-
ljósan hag beggja aðila. Nú er
þessi þjónusta keypt af holl-
enska flugfélaginu KLM og
unnin af þarlendum starfs-
mönnum.
Það er skoðun Arnarflugs að
samkeppnin í áætlunarfluginu
eigi eftir að verða Flugleiðum,
Arnarflugi og þjóðinni allri til
góðs. Þeir sem eru góðir, þola
vel samanburð.
Arnarflug vonast til þess að
eiga í framtíðinni sem best
samskipti við traust fólk hjá
góðu félagi.
Manuela Wiesler
Ragnar Björnsson
Tónleikar í Krists-
kirkju í Landakoti
á sunnudagskvöld
í TILEFNI norræns móts kaþ-
ólskra, sem nú stendur yfir hér á
landi, verða haldnir tónleikar í
Kristskirkju nk. sunnudagskvöld
og hefjast þeir kl. 20. Þjóðleik-
húskórinn syngur Messu eftir dr.
Victor Urbancic, en hann var lengi
organisti við Kristskirkju, auk þess
sem hann var fyrsti stjórnandi
Þjóðleikhússkórsins.
Ragnar Björnsson stjórnar
kórnum á tónleikunum, en mun
auk þess leika á orgel Chaconne
yfir upphafsstef Þorlákstíða eftir
Pál ísólfsson og Chorale nr. 3 í að
moll eftir Cesar Franck.
Þá mun Manuela Wiesler leika
á flautu verk eftir Marin Marais
sem var hirðtónskáld Lúðvíks
fjórtánda, Tilbrigði um spænska
lagið La Folia, sem var eitt vin-
sælasta danslag í Evrópu á mið-
öldum.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis, en organisti Kristsk-
irkju, Leifur Þórarinsson tónsk-
áld, Iætur þess getið, að framlög-
um í minningarsjóð dr. Urbancic
og orgelsjóð kirkjunnar verða
veitt viðtaka að tónleikunum
loknum.
YAMAHA
MR50i 1982
Tveir styrkir úr
sjóði Ludvigs Storr
Eigum fyrirliggjandi
YAMAHA MR 50 til afgreiðslu strax.
Verðkr. 16.300. Greiðsluskilmálar:
Helmingur út og restin á 6 mánuðum.
BÍLABORG HF
Smiöshöföa 23, sími 81299.