Morgunblaðið - 11.08.1982, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1982
Konung-
legar
svip-
mgndir
WILLIAM prins af Wales
tók skírn sinni með jafn-
aðarjíeði á miðvikudaft í
fyrri viku, þrátt fyrir að
frá honum heyrðust
nokkrar mótbárur er erki-
biskupinn af Canterbury,
dr. Robert Runcie, jós enni
hans vatni.
Viðstaddir athöfnina,
sem tók 25 mínutur, voru
60 gestir sem sérstaklega
var til veislunnar boðið og
16 manna konunglegur kór
sém söng fyrir prinsinn g
aðra viðstadda. Dagur
þessi var sem kunnugt er
valinn til heiðurs lang-
ömmu hans, Elísabetu
drottningarmóður, sem
varð 82 ára gömul þann
sama dag og þótti sér mik-
ill sómi sýndur.
Kftir skírnina var hald-
ið til veislu í tilefni hennar
jafnt sem afmælis Elísa-
betar drottningarmóður,
og var þar boðið upp á
kampavín og kræsingar.
Margrét prinsessa og
Andrew prins sáu sér ekki
fært að vera viðstödd at-
höfnina og varð það hváti
mikilla vangaveltna um
hugsanlegt ósætti innan
fjölskyldunnar, en tals-
maður Buckingham-hallar
hefur þvertekið fyrir að
um nokkuð slíkt sé að
ræða.
Eftir að skírnarkakan
hafði verið skorin, en hún
er samkvæmt konunglegri
hefð hluti brúðarköku
Karls prins og Díönu
prinsessu, var tilkynnt að
hluti hennar yrði gefinn
welskum varðliðum og
fallhlífahermönnum þeim
er slösuðust í Falklands-
eyjastríðinu.
Mynd þessi, sem tekin er Árið 1926, sýnir núverandi drottningu, Elísa-
betu II, í fangi móður sinnar eftir að skírn hennar var afstaðin. Þá var
hún kölluð Elísabet prinsessa og móðir hennar hertogafrúin af York.
Þessi mvnd sýnir hvar núverandi drottningarmóðir heldur á fyrsta barna-
barni sinu, Karli prins, eftir skírn hans.
Hér er Karl prins í fangi langömmu sinnar í móðurætt, Maríu drottn- Hér sést Anna prinsessa hlæjandi í fangi móður sinnar að skirn hennar
ingar, sem var ekkja Georgs V konungs. Hún lést í mars 1953, 85 ára að lokinni, en hún fór fram þann 21. október 1950.
aldri.
Karl prins og Diana prinsessa virðast stoltir og ánægðir foreldrar, enda
prinsinn hinn myndarlegasti.
Prinsinn af Wales, Vilhjálmur, virðist ekki vera neitt of sæll með myndatöku þá er fór fram að skírn hans
lokinni, en aðrir úr hinni konunglegu fjölskyldu sýnast sáttir við hlutskipti sitt.