Morgunblaðið - 19.08.1982, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1982
Flugstöðin á Keflavíkurflugvelli:
192 starfsmenn skora
á ríkisstjórnina
192 STARFSMENN flugstöðvarinn-
ar á Keflavíkurnugvclli hafa með
undirskriftum skorað á ríkisstjórn
ina art hefja þegar byggingu nýrrar
flugstörtvar. Segir mertal annars í
Viðræðum BSRB
og ríkis frestað
„STAÐAN er afskaplega óljós, enda
virtra'rtur rétt farnar af stað,“ sagði
Kristján Thorlacius, formartur
BSRB, í samtali við Mbl., er hann
var inntur eftir stöðu mála í samn-
jngum bandalagsins og ríkisins.
„Ríkissáttasemjari tók ákvörð-
un um það í gær, að fresta fyrir-
huguðum fundum samninga-
nefnda BSRB og ríkisins í dag og á
morgun a.m.k. fram yfir helgi og
gefa einstökum félögum og sér-
samböndum betri tíma til að ræða
um sína sérkjarasamninga.
Þær viðræður hafa staðið yfir
undanfarna daga og verður haldið
áfram fram yfir helgi. Það er því
óljóst enn, hvenær samninga-
nefndir aðila koma saman til
fundar," sagði Kristján Thorlacius
ennfremur.
Kristján sagði, að sérkjaravið-
ræðurnar tækju alltaf töluvert
langan tíma og það yrði að bíða
þar til málin væru eitthvað farin
að skýrast þar, áður en hægt væri
að meta stöðuna fyrir alvöru. Að-
ildarfélagar BSRB, ríkisstarfs-
menn og starfsmenn bæjarfélaga,
eru í dag liðlega 16 þúsund.
áskorun starfsfólksins art vinnuart-
starta, artbúnartur og umhverfi núver-
andi flugstöðvar séu slík, að nirtur-
lægjandi verði art teljast.
Fer texti áskorunar starfsfólks-
ins í heild hér á eftir:
„Við undirritaðir starsfmenn á
hinni 34 ára gömlu bráðabirgða-
flugstöð á Keflavíkurflugvelli
skorum hér með á ríkisstjórnina
að hlutast til um að hafist verði
nú þegar handa við byggingu
nýrrar flugstöðvar á Keflavíkur-
flugvelli.
Vinnuaðstaða, aðbúnaður og
umhverfi núverandi flugstöðvar
eru slík að niðurlægjandi verður
að teljast, ekki einungis gagnvart
okkur sem starfsfólki, heldur
einnig fyrir þær þúsundir Islend-
inga, sem um stöðina fara.
Þá er það skoðun okkar að að-
skilnaður herflugs og farþegaflugs
sé nauðsynlegur og í raun sjálf-
sagður þáttur í reisn íslensku
þjóðarinnar."
Nú leggja menn nótt virt dag, virt að gera allt klárt fyrir opnun sýningarinnar Heimilirt og fjölskyldan ’82, sem á
art opna á morgun. Á þessari mynd má sjá menn önnum kafna við undirbúninginn.
Ekkert samkomulag í ríkisstjórninni:
Ágreiningur í Framsókn
og Alþýðubandalaginu
Neitar Guðmundur J. að samþykkja veigamikil atriði í vísitölumálunum?
SÍÐDEGIS í gær var gert rárt fyrir því art samkomulag hefrti tekist í megin-
dráttum milli artila ríkisstjórnarinnar um aðgerðir í efnahagsmálum, en á
ríkisstjórnarfundinum sem hófst kl. 17 kom í Ijós að innbyrrtis ágreiningur
meðal bæði framsóknarmanna og alþýðubandalagsmanna kom í veg fyrir að
samstaða nærtist innan ríkisstjórnarinnar um efnahagsráðstafanir. Upp úr
viðræðunum slitnaði er ríkisstjórnin hafði setirt fund í rúmlega þrjár klukku-
stundir.
Þjónusta
nýrrar ferju
verði aukin
MORGUNBLADINU hefur borizt
eftirfarandi áskorun, samþykkt á að-
alfundi kjördæmisráðs Sjálfstærtis-
flokksins á Vestfjörðum:
„Aðalfundur kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins, haldinn á
ísafirði 13. og 14. ágúst 1982, skor-
ar á stjórnvöld að sjá svo um, að
við smíði nýs Breiðafjarðarbáts,
sem stendur til að fara að byggja,
verði þjónustumöguleikar hans
ekki minnkaðir frá því, sem nú er,
heldur auknir.
Fundurinn leggur til að tekið
verði fullt tillit til óska Breiðfirð-
inga og Vestfirðinga um smíði
bátsins og haft við þá samráð
varðandi hönnun hans. Benda má
á, sem æskilega lausn, teikningu
af ferju, sem Bátalón í Hafnar-
firði hefur gert og aðalfundur
Baldurs hf. mælti með í sumar.“
Fyrir ríkisstjórnarfundinn í
gær reiknuðu stjórnarliðar aðrir
en alþýðubandalagsmenn með að
samstaða hefði náðst, en á fundin-
um kom fram að skoðanamunur
var uppi meðal framsóknarmanna
og bakslag komið af hálfu Alþýðu-
bandalagsins. Er talið að Guð-
mundur J. Guðmundsson, þing-
maður Alþýðubandalagsins og
formaður Verkamannasambands
íslands, hafi í símtölum frá Lux-
emborg í gær harðneitað að sam-
þykkja veigamikil atriði samn-
ingsdraganna, en Guðmundur
frétti fyrst af gangi mála um há-
degisbilið í gær.
Enn er það „umgjörð" skerð-
ingarákvæða vísitölubóta á laun,
þ.e. hvernig áform ríkisstjórnar-
innar þar að lútandi skuli birt al-
þjóð, sem stendur hvað fastast í
samningaviðræðunum. Þá mun
Guðmundur J. Guðmundsson sam-
kvæmt heimildum Mbl. hafa harð-
neitað að samþykkja fyrirhugaðar
breytingar á vísitölugrundvellin-
um, og einnig lýst sig andvígan því
að verðbætur yrðu næst reiknaðar
1. janúar í stað 1. des. nk. Þá munu
önnur ágreiningsefni hafa komið
upp meðal ráðherranna á fundin-
um í gær, sem orsökuðu að slíta
varð fundi án árangurs.
Efnahagsnefnd og ráðherra-
nefnd ríkisstjórnarinnar og þing-
menn stjórnarliða funduðu stöð-
ugt í gærmorgun og fram efir
degi. Þá fundaði þingflokkur
Framsóknarflokksins í gærdag frá
kl. 13 til 16, og voru flestir bjart-
sýnir á að samkomulag næðist að
þeim fundarhöldum loknum. Rík-
isstjórnarfundur stóð síðan yfir
frá kl. 17 til 20.10, en eftir að upp
úr slitnaði kom þingflokkur Al-
þýðubandalagsins saman. Óljóst
var í gærkvöldi hvenær þingflokk-
ur Framsóknarflokksins kæmi
saman á ný, en þingmenn hans af
landsbyggðinni höfðu margir
hverjir haldið til síns heima í
gærdag, fullvissir þess að smiðs-
höggið yrði rekið á í lok ríkis-
stjórnarfundarins. Ljóst er að
efnahagsráðgjafar ríkisstjórnar-
innar og ráðherrar fá nóg að
starfa í dag. Þá munu þingmenn
einnig hafa ýmislegt til málanna
að leggja, eins og nú er komið.
Ríkisstjórnin ákvað næsta fund
sinn síðdegis í dag.
Sjá virttal virt Gurtmund J.
Gurtmundsson hér á sírtunni.
Auglýst eftir framboöum til kjör-
nefndar D-listans í Reykjavík:
Formsatriði, en
eins gott að vera
við öllu búinn
— segir Árni Sigfússon,
framkvæmdastjóri fulltrúaráðsins
Guðmundur J. Guðmundsson:
Mun hraða för minni heim
Átti mörg og löng símaviðtöl við forystumenn Alþýðubandalagsins frá Luxemborg í gær
„ÞETTA mál er ekki afgreitt, en
hins vegar er þart mikið mál og ég
mun hraða ferð minni heim. Ég
ætlarti ekki að koma fyrr en um
mánartamót, en kem heim á morg-
un eða hinn. Eram art því mun ég
hafa störtugt samband virt félaga
mína, en ég hef ekkert samband
haft virt ísland fyrr en í dag,“ sagrti
Gurtmundur J. Guðmundsson,
þingmartur Alþýðubandalagsins og
formartur Verkamannasambands
íslands, er Mbl. ræddi við hann
símleiðis til Luxemborgar í gær-
kvöldi, en Guðmundur hefur verirt
fjarverandi síðustu vikur á meðan
umrærtan um efnahagsaðgerðir
rikisstjórnarinnar hefur staðirt yfir.
Eins og fram kemur í annarri
frétt Mbl. hér á síðunni er það
álit manna, að Guðmundur hafi
sett strik í efnahagsreikning rík-
isstjórnarinnar í gær með því að
setja samflokksmönnum sínum
stólinn fyrir dyrnar varðandi
veigamikil atriði í vísitölumál-
unum, sem tekist hafði að öðru
leyti að ná samkomulagi um inn-
an þingflokks Alþýðubandalags-
ins.
Samkvæmt heimildum Mbl.
átti Guðmundur mörg og löng
símaviðtöl við forystumenn Al-
þýðubandalagsins í gær, en að
hans eigin sögn frétti hann fyrst
af gangi mála, er hann náði
símasambandi við Ólaf Ragnar
Grímsson þingflokksformann
um kl. 13 í gær. Guðmundur mun
m.a. hafa alfarið neitað að skrifa
undir að breytingar yrðu gerðar
á vísitölugrundveilinum og einn-
ig lýst sig andvígan því að vísi-
talan yrði næst reiknuð út 1.
janúar í stað 1. desember nk. Að-
spurður vildi Guðmundur ekkert
tjá sig um þessa hluti í gær-
kvöldi. Hann var spurður hvort
hann myndi samþykkja þá 10%
kjaraskerðingu sem Álþýðu-
bandalagsráðherrarnir hafa nú
þegar samþykkt 1. desember.
Hann svaraði: „Ég er nú ekki
farinn að sjá fram á að þessi
10% kjaraskerðing verði. Það
virðast vera alls konar fyrirvar-
ar og skóbætur á því. Ég vil alls
ekkert úttala mig um málið, fyrr
en ég sé þetta frá ríkisstjórninni.
Það eina, sem ég get sagt á þessu
stigi, er að ég ætlaði ekki að
koma heim fyrr en um mánaða-
mótin, en ég kem heim fyrir
helgi, jafnvel á morgun eða
hinn,“ sagði hann að lokum.
„ÞAÐ hefur engin afstaða verirt
tekin til hvort haidirt verrtur próf-
kjör erta ekki. Með þessu er ein-
göngu verið art fullnægja formsat-
rirti samkvæmt reglugerð sem þarf
art vera lokirt, hvort sem gengið
verrtur til kosninga í haust erta vor.
Hins vegar er því við að bæta að
slík óvissa ríkir nú um líf þessarar
ríkisstjórnar, að það er eins gott að
vera við öllu búinn og þessi aðgerð
var einnig ákveðin nú af þeirri
ástæðu,“ sagði Árni Sigfússon
framkvæmdastjóri fulltrúarárts
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavik
aðspurður um ástæðu þess, að
stjórn fulltrúaráðsins augiýsti í
Mbl. í gær eftir framboðum til
kjörnefndar fulltrúaráðsins vegna
Alþingiskosninga.
Árni sagði að ákvörðun þessa
efnis hefði verið tekin á síðasta
stjórnarfundi fulltrúaráðsins.
Samkvæmt 11. gr. reglugerðar
fulltrúaráðsins á að kjósa átta
manns í kjörnefndina þegar fyrir
dyrum standa Alþingis- eða borg-
arstjórnarkosningar og tekur
gangur mála nokkurn tíma, eða 20
daga. Árni sagði í lokin að hér
væri eingöngu verið að stytta
fyrirséðan undirbúningstíma, síð-
ar yrðu teknar ákvarðanir um
hvort farið yrði í prófkjör eða
ekki.
Dannebrog
í heimsókn
DANSKA konungsskipið Dannebrog
kemur í óopinbera heimsókn til Reykja-
vikur dagana 27. til 31. ágúst.
Skipið, sem Margrét Danadrottning
hefur til umráða, er á leirt frá Græn-
landi, en mertan á hátíöahöldunum
vegna 1000 ára afmælis komu Eiríks
rauöa þangað stóð, bjuggu meðal ann-
ars Margrét Danadrottning ásamt fjöl-
skyldu sinni, Ólafur Noregskonungur
og Sonja krónprinsessa og forseti ís-
lands, Vigdís Finnbogadóttir, þar um
borð. Hátíöahöldunum á Grænlandi er
þegar lokið og hafa þjóðhöfðingjarnir
þegar haldið þaðan flugleiðis.
Dannebrog er byggt á fjórða ára-
tugnum, en hefur verið endurbætt oft
síðan. Skipið hefur komið til Reykja-
víkur áður við mörg tækifæri og sein-
ast 1973 er Margrét drottning kom til
íslands í opinbera heimsókn. Skipstjóri
á Dannebrog er B. Hjorth Jensen.