Morgunblaðið - 19.08.1982, Page 11

Morgunblaðið - 19.08.1982, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1982 11 Landslag í íslenskri myndlist Baula Myndlist Valtýr Pétursson í Listasafni íslands stendur nú yfir sýning á landslagsmynd- um úr eigu safnsins. Þarna eru verk eftir 27 listamenn og tala þeirra verka, sem sýnd eru, nær hálfum sjöunda tugnum. Sýning þessi spannar langt og merkilegt tímabil í íslenskri myndlist. Eins og allir vita, hefur lands- lagsmálverkið ætíð verið mjög vinsælt hér á landi, og til að byrja með var það svo að segja eingöngu á boðstólum hjá lista- mönnum okkar. í byrjun aldar- innar var landslag í myndlist sterkur þáttur í að skapa þá sjálfsmeðvitund þjóðarinnar, er seinna varð til þess, að við erum sjálfstæð þjóð, eins og stendur. Síðan hefur margt gerzt í ís- lenzkri myndlist, og sú saga verður ekki rakin hér, en á þeirri sýningu, er nú stendur í Lista- safni Islands, getur að líta verk allt frá 1916 til okkar daga. Það er því breitt svið, sem við blasir í miðsölum Listasafns Islands, og ætti fólk að notfæra sér slíka sýningu. Hún er bæði fróðleg og skemmtileg. Gefur ágætt yfirlit um meðferð listamannanna á viðfangsefnum sínum og sýnir greinilega, hve persónulega hver og einn gengur til verks. Þarna eru herleg málverk frá hendi manna eins og Kjarvals, Jóns Stefánssonar og Ásgríms. Eg held að ég geri engum órétt- læti til með því að segja, að Jón Stefánsson virðist vinna sí og æ á með þeim verkum sem Lista- safnið eignaðist úr dánarbúi hans. Það jaðrar við, að megi halda því fram, að Jón hafi verið afar lítið þekktur hér á landi á sinni tíð, en hann var mjög met- inn í því landi, þar sem hann dvaldist mestan hluta ævi sinn- ar, Danmörku. Hann hefur kom- ið afar vel fram í dagsljósið á þeim tveim sýningum, sem haldnar hafa verið að undan- förnu í Listasafninu, og er það gleðilegt. Það mætti nefna marga til sögunnar í þetta sinn. Júlíana Sveinsdóttir á þarna stórkostlegt verk frá Vest- mannaeyjum. Gunnlaugur Scheving brillerar að vanda. Snorri Árinbjarnar og Þorvald- ur Skúlason eru vel kynntir. Einnig má benda á verk eftir Ragnheiði Ream, Sigurð Sig- urðsson og Örlyg. En yngstu menn á þessari sýningu eru Magnús Pálsson með gipsmynd og Þórður Ben Sveinsson með rosastórt olíumálverk. Svona mætti lengi telja, en látum þessa ábendingu nægja. Heildarsvipur sýningarinnar er með ágætum og hvert einasta verk valið og fær að njóta sín. Sem sagt: Hér er lunginn úr ís- lenzkri myndlist um langt skeið og að mínu mati sómir landslag- ið sér vel í meðförum hinna mörgu og snjöllu málara. Ég hafði mikla og óskerta ánægju af að sjá þessa sýningu í Listasafni íslands og álít, að hún sé safninu til hins mesta sóma. Meira af slíku, ekki veitir af. Eggert Sveinbjörnsson (t.h.) i tali víð keppinauta, það er Birgir V. Hall- dórsson, sem mundar skrúfjárnið, en Hafsteinn Hauksson fylgist brosandi með. Myndin var tekin er Eggert vann að undirbúningi bílsins. (Ljósmynd: Gunnlaugur.) „Á meðan druslurnar hanga verður hörkukeppni“ segir rallkappinn Eggert Sveinbjörnsson Eggert Sveinbjörnsson er vel þekktur rallökumaður hérlendis. Hann ók Mazda RX 7-bifreið á sl. ári og náði öðru sæti í íslandsmeist- arakeppninni. í ár ekur hann Ford Escort 1600, sem rallkappinn Þór- hallur Kristjánsson átti áður og smíðaði. Eggert, ásamt aðstoöaröku- manni sínum, Guðmundi B. Guð- jónssyni, féll úr leik í Húsavikurrall- inu, eftir aö hafa náð forystu. Má því búast við þeim félögum í toppbarátt- unni i Ljómarallinu. Eggert, hver er ástæðan fyrir því að þú keppir í rallakstri, en ekki einhverri annarri akstursíþrótt? „Ja, í fyrsta lagi er ég með „króníska" bíladellu. Kvartmíla er kannski í lagi, en það er bara stutt gaman. Þú brunar beina braut á enda og þá er málið dautt. í rall- inu er maður alltaf á fullu, í Ljómarallinu í þrjá daga sam- fleytt, þ.e. ef við dettum ekki út,“ sagði Eggert. Þetta er taugastrekkjandi íþrótt, hvernig ertu á taugum í keppni? „Taugarnar eru góðar. Ég vildi að fleiri hefðu mínar taugar í keppni," svaraði Eggert. Hverjir verða keppinautarnir? Nú veit ég ekkert um Italina, en sá er kom í fyrra, sýndi ekki mik- ið. Ég dró hann uppi á fyrstu leið! Aðalkeppinautarnir verða líklega Hafsteinn Hauksson, Jóhann Hlöðversson og Bragi Guðmunds- son, sem verður á nýjum rallbíl. Á meðan druslurnar hanga verður hörkukeppni! Hvemig ætlar þú að aka erfiðustu leiðirnar í keppninni? I botni maður, í botni! Maður ekur aldrei öðruvísi en í botni, enda veitir ekkert af því vegna kraftlausrar vélar. Ef vélin fer, þá hef ég „tonnatak“-lím í hanska- hólfinu," sagði Eggert glottandi. Takið þið áhættu vegna toppbar- áttunnar? „Nei, ég tek aldrei áhættu," svaraði Eggert, en aðstoðaröku- maðurinn, Guðmundur, hló dátt við þessi ummæli. Aðspurður kvað hann þó Eggert þann besta, klapp- aði honum á bakið og hélt áfram að hlæja. Að lokum, er hætta á tímatapi vegna bilana á sérleiðum? „Nei, vinur minn, við tökum erf- iðleikana áður en við leggjum af stað. Þar að auki er ég lærður bifvélavirki, hefur þú ekki lesið símaskrána?" sagði Eggert bros- andi áður en hann lagðist undir keppnisbílinn, og hélt áfram ísetn- ingu á sérstökum gírkassa, sem í bílinn átti að fara. G.R. KRUMMAHÓLAR 2ja herb. ca. 75 fm mjög góð íbúð á 3ju hæð. Stórar suðursvalir. ÁLFASKEIÐ HF. 3ja herb. ca. 86 fm vönduö íbúð á 3. hæð. Bílskúrsplata. GOÐATÚN 3ja herb. ca. 55 fm íbúð á jaröhæö. 50 fm bílskúr fylgir. ENGIHJALLI 3ja herb. ca. 90 fm nýleg íbúð á 7. hæð. Vönduð sam- eign. Getur losnaö fljótlega. SÓLHEIMAR 3ja herb. ca. 85 fm mjög góð íbúð á 1. hæö. Nýtt bað og eldhús. SKIPASUND 3ja—4ra herb. ca. 90 fm íbúö á 1. hæð í þríbýli. Nýtt gullfallegt eldhús. KIRKJUTEIGUR 4ra herb. ca. 90 fm falleg kjallaraíbúö. Nýtt eldhús, hurðir og gluggar. FÍFUSEL 4ra herb. ca. 117 fm nýleg fal- leg íbúð á 1. hæð. Þvottur á hæðinni. Nýtt eldhús. KLEPPSVEGUR 4ra herb. íbúð á 3ju hæð ásamt aukaherb. í risi. KAPLASKJOLSVEGUR VEGUR 4ra herb. ca. 110 fm endaíbúö á 1. hæð. HRAUNBÆR Mjög hugguleg 4ra herb. íbúð á 4. hæð. Þvottur á hæð, sjónvarpshol. Stórar suöursvalir. MIÐVANGUR HF. 4ra—5 herb. ca. 120 fm íbúð á 3ju hæð. Sér svefnálma, þvott- ur á hæðinni. ÁLFASKEIÐ 5 herb. ca. 130 fm endaíbúö á 3ju hæð í blokk. Bílskúr fylgir. BREIÐVANGUR 4ra—5 herb. ca. 120 fm rúm- góð og skemmtileg íbúð á 3ju hæð. Bílskúr fylgir. DVERGABAKKI 5—6 herb. ca. 145 fm ágæt íbúð á 2. hæð í fjölbýli. BÁRUGATA 4ra—5 herb. ca. 115 fm aöal- hæð i þríbýli. Bílskúr fylgir. FLÓKAGATA— SÉRHÆÐ 8 herb. ca. 152 fm hæð og ' ris. Bílskúrsréttur. Eign sem gefur mikla möguleika. MARKADSPÍÓNUSTAN INGÓLFSSTRÆTI 4 . SIMI 26911 Róbcrt Arnl Hreið«rsjon hdl. Kaplaskjólsvegur (KR-blokkin) 4—5 herb. íbúö á 4. hæö í nýju lyftuhúsi. Tvennar svalir. Þvottahús á hæðinni. Sauna o.fl. á 7. hæö. Bílskýli. Glæsilegt útsýni. Laus strax. Einar Sigurðsson, hrl., Laugavegi 66, s. 16768, h. 42068. 2ja herb. 65 fm 4. hæð við Miðvang í Hafnarfiröi. Vönduð eign. Suö- ursvalir. 3ja herb. um 100 fm 1. hæð við Hraunbæ. Tvennar svalir, vönd- uð eign. 3ja herb. um 85 fm íbúð á 8. hæð við Hamraborg í Kópavogi. Sér smíðaðar vandaöar innrétt- Ingar. Suðursvalir. Bein sala eöa skipti á 5 herb. íbúö i blokk eða hæð eða sérhæð, einnig kemur raöhús til greina. 3ja herb. um 120 fm jaröhæö í þríbýlis- húsi viö Miöbraut á Seltjarnar- nesi. Allt sér. 3ja herb. um 95 fm endaíbúð á 2. hæð við Engihjalla í Kópavogi. Suð- ursvalir. Vandaöar innréttingar. 4ra herb. um 114 fm 2. hæð í tvíbýlishúsi við Alfaskeið í Hafnarfirði. Bílskúrsréttur. Allt sér. Geymsluris yfir allri íbúðinni. Stór og falleg ræktuö lóð. Suð- ursvalir. 4— 5 herb. um 110 fm 2. hæö við Leiru- bakka, suðvestursvalir, vand- aðar innréttingar, sér þvottahús í ibúðinni. 5— 6 herb. Um 130 fm 1. hæð við Hraunbæ. 4 svefnherb., svefn- álma, sér á gangi. Tvennar sval- ir. Vönduö eign. Bein sala eöa skipti á raöhúsi í Árbæ eða Sel- áshverfi. 6— 7 herb. 147 fm penthouse ibúð á 6. og 7. hæð við Krummahóla. Vandaö- ar innréttingar. Tvennar svalir. Bílskúrsréttur. Falleg eign. Viö Miðvang 7 herb. um 147 fm efri hæð í tvíbýlishúsi ásamt fokheldum bílskúr. Allt sér. Skipti á einbýli i Hf. æskiieg. Höfum kaupendur Okkur vantar á söluskrá allar gerðir íbúöa, sérhæðir, raöhús og einbýlishús á Stór-Reykja- víkursvæðinu. Skoðum og verðmetum samdægurs ef óskaö er. mmm inSTIiENlI AUSTURSTRÆTI 10 A 5 HÆÐ Slmi 24850 og 21970 Helgi V. Jónsson hrl. Allir þurfa híbýli 26277 ★ Spóahólar Mjög góö 2ja herb. ibúö á 3. hæö (efstu). Góð sameign. Ákveöin sala. ★ Kjarrhólmi Góð 3ja herb. íbúð á 1. hæð, ein stofa, 2 svefnherb., eldhús, bað, sér þvottahús. Suðursval- ir. Ákveðin sala. ★ Háaleitisbraut Björt 4ra herb. íbúð á jarðhæð. Ein stofa, 3 svefnherb., skáli, eldhús og bað. Sér hiti. Ðíl- skúrsplata. Ákv. sala. ★ Lundarbrekka Falleg 4ra herb. íbúð á 2. hæð. Ein stofa, 3 svefnherb., eldhús og bað. Sér þvottahús. Tvennar svalir auk 1 herb. á jaröhæö. Ákv. sala. ★ Hávallagata Hálf húseign. Eignin er 1. hæð, 5—6 herb. íbúð með sér inn- gangi. 3ja herb. íbúð á jaröhæö með sér inngangi. Eignin selst í einu eða tvennu lagi. Eignin er laus. ★ Hafnarfjörður Góð sérhæð i tvíbýlishúsi. ibúð- in er ein stofa, 3 svefnherb., eldhús, bað. íbúöin er ný- standsett og laus til afnota. ★ Hafnarfjörður — Norðurbær Á besta stað i Norðurbænum raöhús á tveim hæðum. 1. hæö, stofa, boröstofa, eldhús, búr, gesta WC. 2. hæð, 4 svefn- herb., bað, fataherb. Stór bíl- skúr. Ræktuö lóð. Mikið útsýni. Ákv. sala. ★ Smáíbúöarhverfi Húsið er á tveim hæðum. 1. hæð, stofur, eldhús, WC, þvott- ur, geymsla. 2. hæð, 4 svefn- herb. og bað. Ræktuö lóð. Stór bílskúr. Ákv. sala. ★ í smíðum Einbýlishús, raöhús á Seltjarn- arnesi, Seláshv. og Breiöholti. Einnig nokkrar lóðir á Stór- Reykjavíkursvæðinu. ★ Laugarneshverfi Snyrtilegt raðhús á tveim hæö- um. 1. hæð, tvær stofur, eld- hús, WC. 2. hæð, 4 svefnherb., bað, auk 3 herb. í kjállara sem möguleiki er að gera að 2ja herb. íbúö. Bílskúr. Ákv. sala. ★ Höfum kaupanda að 3ja—4ra herb. íbúð, helst í háhýsi. ★ Höfum kaupanda að einbýlishúsi í Hraunbæ. ★ Höfum fjársterka kaupendur að öllum stærðum íbúða, verð- leggjum samdægurs. HÍBÝU & SKIP MkMtl Htðriortur GarAaafrati 3«. Smi 2S277 Cnmfmoo Hrmgsaon. mmu 4S42S G<sli Olahson lð*mað«r

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.