Morgunblaðið - 19.08.1982, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1982
33
fclk í
fréttum
Jean-Paul Goude fyrir (raman Ijótmynd af avörtu gydjunum ilnum tólf eem allar eru eftirmyndir Grace
Jonea.
Svartir æskudraumar
+ Jean-Paul Goude er Frakki
sem flutti til New York þegar
hann var 18 ára gamall í leit að
æskudraumi sínum. Jean Paul
fann æskudrauminn. Hann
birtist í líki hárrar og glæsilegr-
ar stúlku með afrískt blóð í
æðum. Grace Jones er dóttir
vestur-indískra innflytjenda og
ólst upp í Miðvesturríkjum
Bandaríkjanna. Með aðstoð
Jean-Paul Goude er hún nú
orðin heimsfræg sýningar-
stúlka og stjarna.
Jean-Paul skrifaði fræga
bók um leit sína að æsku-
draumi sínum, hvernig Grace
Jones birtist strax í teikningum
hans sem krakka, svört á hör-
und með þykkar varir, líkust
heiðinni svartri gyðju, og
hvernig þessi þrá hans varð
þess valdandi að hann flutti til
New York og fann Grace.
„Grace var í senn frumstæð og
fáguð og virkaði í senn sveigj-
anleg og í líkingu við mynda-
styttu,“ segir Jean-Paul
Goude. Sjónvarpskvikmynd
var gerð eftir bókinni sem hét
„Frumskógarhiti" og lék Grace
sjálfa sig í myndinni.
En einmitt þegar Grace
haföi lokið við að leika í mynd-
inni fékk hún leið á Jean-Paul
Goude og yfirgaf hann. Jean-
Paul var algerlega eyöilagður
maður, en mundi eftir orötak-
inu „ein töpuð, tíu fundnar" og
strax næsta dag birtist auglýs-
ing í blaðinu „Village Voice“
þar sem stóð að leikstjóri væri
að leita að ungum, svörtum
karlmannlegum konum með
það fyrir augun að gera kvik-
mynd. Hundrað gáfu sig fram
og Jean-Paul réð tólf. Nú er
Jean-Paul að Ijúka við gerð
kvikmyndarinnar sem líka er
gerð eftir bókinni.
J«an-Paul Gouda og Graca Jonaa
ó moóan allt lék I lyndi.
Uraco Jonos or tlgulog oins og
stytta höggvin I svartan marm-
ara.
6.
Jean-Paul hefur oft sést í
sumar á götum Parísar í fylgd
með svörtu gyðjunum sínum
tólf, og hann segist vera oröinn
ástfanginn af einni þeirra. Lýsir
hann henni svo að hún sé
„blanda af Yasser Arafat og
Övu Gardner".
COSPER
Heims
'it
(V
t
Stærsta
Stærsta „pizza“ sem bökuö hefur veriö
var 24,4 metrar í þvermál, 468 fermetrar
aö flatarmáli og 8.465 kíló. Hún var gerö
hinn 8. október 1978 á veitingahúsinu
Oma Pizza Restaurant í Glen Falls, New
York, USA.
(Heimsmetsbók Guinoss 1980)
Tilboö dagsins
Óla party pizza stærri kr. 59,90 stk.
Þú sparar kr. 20,50.
Óla party pizza minni kr. 48,90 stk.
Þú sparar kr. 16,90.
Veizlumiöstöövar pizza stærri kr. 59,90 stk.
Þú sparar kr. 20,50.
Veizlumiðstöðvar pizza minni kr. 48,90 stk.
Þú sparar kr. 16.90.
Amerískar pizzur 6 teg. — Sausage kr. 65,20 —
Sveppa kr. 73,50 — Osta kr. 55.00 — De Luxe
kr. 78,50 — Pepperoni kr. 73,50.
Kínarúllur frá Danmörku kr. 47,60 pakkinn, til-
búnar í ofninn. Lúxus fylling.
Svínabógur gratin meö blómkáli og púrrum
frá Danmörku, tilbúiö á pönnuna kr. 43,45 kg
Lambakryddhryggur á grilliö kr. 79,00 kg
Lambageiri kr. 95,00 kg
Lambalærisneiðar mareneraöar kr. 75,00 kg
Lambarif kryddlegin í „Barbecue“ kr. 28,00 kg
Frampartur útbeinaöur í
herrasteikur kr. 75,00 kg
Sænska kryddsteikin mjög vinsæl kr. 98,00 kg
Nautagrill og bógsteik aöeins kr. 64,00 kg
Opiö til kl. 6 í dag
Opiö föstudag til kl. 7
KJÖTMIÐSTÖÐIN Laugalaek 2. s. 86511
Metsö/ublad á hverjum degi!