Morgunblaðið - 29.09.1982, Síða 4

Morgunblaðið - 29.09.1982, Síða 4
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1982 Kína - fjölskylda heimsótt Börnin í Kína eru sérlega vel klædd og hreinleg ... Læknishjónin og dóttir þcirra í íbúð þeirra. Kinverjar búa þröngt, en eru engu að síður lífsglaðir og sérlega vingjarnlegir í viðmóti. Kínversk fjölskylda lifír einföldu lífi án alls munaðar — og þar í landi er mottóið: „Eitt barn nægir“ ... þvottur á snúrum er mjög algeng sjón við alla mannabústaði, hér er þó hvorki þvottavélum né þurrkurum fyrir að fara. Hvað er að gerast í Kina? l>etta land, sem hefur að geyma meira en fjórðung alls mannkyns, eða rúm- lega 1000 milljónir manna, stendur á krossgötum. Öldum saman var landið lokað að mestu, en íbúar þess skattpíndir af gírugum keisur- um. Á þcssari öld voru keisarar reknir frá völdum og um miðbik aldarinnar var komið á alþýðulýð- veldi. Kkki var það lýðveldi gamalt þegar enn var lokað fyrir framfarir og velsæld fólksins með menning- arbyltingunni, sem stóð frá 1966 til 1976. Síðan hefur margt gerst í Kína. í erlendum fréttablöðum er fylgst með þróun mála. Sýnist sitt hverjum um það, hvort dyrnar i vestur hafa opnast að fullu, hálfu, eða hvort þar er aðeins um litla rifu að ræða. í síðasta mánuði gisti Kór Öldu- túnsskóla hið mikla Kína í boði menningarráðuneytis landsins. Með í förinni var Jón Birgir Pétursson blaðamaður og lýsir hann í eftirfar- andi grein heimsókn til venjulegrar kínverskrar fjölskyldu og lýsir lifinu í landinu eins og það kom honum fyrir sjónir. „A næstu árum ætlum við bara að skemmta okkur og njóta lífs- ins,“ sagði kínverski læknirinn Chen. Ég var sestur í þægilegan stól á heimili fjölskyldu hans og konu hans við Sýningarveg í Pek- ing til að fræðast um það hvernig meðalfjölskylda í Kína lifir lífinu. Chen læknir er 64 ára og kom- inn á eftirlaun. Kona hans er 55 ára og fyrrum hjúkrunarkona og einnig hún nýtur nú eftirlauna. Auk þeirra búa í þessari litlu íbúð 15 ára dóttir þeirra, Chen Y Mian, og öldruð móðir frúarinnar. Að njóta elli- áranna í Kína „Það sem við ætlum að gera núna er að njóta lífsins, og það gerum við með því að fara út í almenningsgarðana og hitta kunningjana, fara í óperuna þegar okkur dettur í hug, og að ferðast svolítið um Kína. Til dæmis er ætlunin að skoða Wuhan-borg og eitthvað í kringum Yangtse-fljót- ið. Hér er margt að skoða og mig fýsir lítt að fara til útlanda," sagði læknirinn. Ibúð þeirra Chen-hjóna er af- skaplega lítil og allur húsbúnaður er fábrotinn og laus við prjál. Verður manni ósjálfrátt hugsað til íslenskra starfsbræðra Chens, sem áreiðanlega munu hafa komið ár sinni betur fyrir borð á hans aldri, alla vega í efnahagslegum skilningi. Þegar við íslendingarnir og kínverskt fyigdarlið komum í blokkina við Sýningarveg, standa þau hjónin á stigapallinum og fagna okkur vel. Gestrisni virðist Kínverjum eðlislæg og er fræg gegnum aldirnar. Dyrnar út á ganginn eru ekki úr eðalvið eins og við höfum vanist, hér er strengd nokkuð stíf bambusmotta fyrir dyrnar og það virðast flestir láta nægja. Fátæklegt innbú á íslenska vísu en hreint og snoturt íbúðin er ein allgóð stofa þar sem breitt rúm er í einu horninu, herbergi inn af því og örmjótt eldhús þar sem fátt er um hjálp- artæki, aðeins gaseldavél, borð og stólar, en engin margra gíra raf- magnseldavél, rafmagnsdósaupp- takarar eða annað í þeim dúr. Á veggjum eru dæmigerðar kínverskar myndir og á litlu skattholi standa vasi með piast- blómum, vekjaraklukka í glerkassa og tindósir með tei. Uppi á veggnum andspænis er gömul klukka. „Hún er orðin fimmtíu ára þessi, kínversk smíð, og hefur allt- af gengið upp á mínútu," segir læknirinn, þegar hann sér að ég skoða gömlu klukkuna. Borð og stólar virðast ekki síður hafa þjónað vel og dyggilega, en standa þó fyllilega fyrir sínu. í stuttu máli má segja, að þessi litla íbúð andi af hreinlæti, enda eru Kínverjar sagðir manna þrifnastir í umgengni allri, gólfin eru hvít- skúruð, því teppi sjást óvíða á gólfum í híbýlum fólks í Kína. 40 krónur í húsaleigu 400 í mat fyrir fjóra Chen-hjónin segja okkur að þau hafi 150 yuhan í eftirlaun á mán- uði. Eftirlaunakerfið virðist nokk- uð svipað því sem við þekkjum hjá lífeyrissjóðunum. Greitt er í hlut- falli við það hversu langan starfs- aldur fólk á að baki sér, en viðmið- unarárið er 1949, þegar Maó lýsti yfir stofnun Alþýðulýðveldis í landinu við Hlið hins himneska friðar. Nú eru 150 yuhan aðeins tæpar 1000 krónur íslenskar eftir síðustu gengisfeliingu. En að sjálfsögðu er þessi tala afstæð. Þau hjón greiða 6 yuhan fyrir húsaleiguna á mánuði hverjum, í mat fara 60 yuhan og til fata- kaupa og annars 30 yuhan. Skatt- ar eru engir. I borgunum tíðkast það varia að menn eigi sínar íbúð- ir, en það er þó til í sveitunum. Matur kostar sáralítið á okkar vísu. Þannig kostar pund af hveiti tæpa krónu, og hrísgrjónapundið 60 aura. Annað verðlag er eftir því. „Hér á árum áður var ég lyfsali, starfaði hjá öðrum, sem rökuðu saman fé á neyð fólksins. Þetta var náttúrlega fyrir byltinguna. Eftir hana fór ég að læra læknis- fræði og sé ekki eftir því,“ sagði Chen læknir. „Ég hef alltaf stund- að báðar tegundir lækninga, kín- verska akúpúnktúrinn og eins hin vestrænu læknisfræði. Báðar að- ferðirnar eiga fullan rétt á sér, allt eftir því hvert meinið er.“ Frú Chen segir okkur að í dag sé gott að vera húsmóðir í Kína. „Við höfum nóg að bíta og brenna og atvinna er nóg. Fyrir byltinguna höfðu fæstar konur vinnu utan heimilanna, en núna er algjör breyting orðin á því. Auk þess er launajafnréttið algjört." Undir þetta tók eiginmaðurinn fúslega og sagði að undir kommúnískri stjórn væri allt annað að lifa í Kína og enginn þyrfti lengur að hræðast hungur né vesöld. Kínverskur karlmaður og heimilisstörfín Hin sígilda spurning hlýtur að skjóta upp kollinum: Hjálpar herra Chen heima fyrir? Þessi spurning vekur mikla kátínu hjá viðstöddum. „Jú, Chen eldar með mér og tekur til í íbúðinni," segir frúin, „og hann er afbragðs kokk- ur,“ bætir hún síðan við og brosir breitt. Viðstaddir hlæja dátt og Chen læknir þó sýnu hæst. Unga heimasætan er einkar lag- legur unglingur og elskulegur, lít- ur út fyrir að vera mun yngri en jafnaldrar hennar íslenskir. Hún segist stefna á menntaskóla og síðan á nám í háskóla. Núna lærir hún kínversku, reikning, pólitík, efnafræði, sögu og landafræði. I síðastnefndu greininni segist hún enn ekki hafa komið auga á nafn Bing-daó (sem er kínverska nafnið á íslandi). Kemur það íslensku gestunum ekki mjög á óvart og rifjast þá upp að á sínum tíma var Kínaveldi afgreitt í íslenskum landafræðibókum með umfjöllun á hluta af blaðsíðu. Þétt byggð og félags- málastjórn Hverfið í kringum áðurnefndan Sýningarveg hýsir 16 þúsund fjöl- skyldur, 60 þúsund manns á aðeins 4 ferkílómetra svæði. Þar eru 9 stórar götur og 4 minni, allar byggingar allhábyggð fjölbýlis- hús, en íbúðir mjög litlar eins og fyrr greinir. Forstöðumaður stofnunar þeirr- ar sem fer með félagsmál hverfis- ins heitir raunar sama nafni og fjölskyldufaðirinn hér, Chen, og að mér skilst systir hans, enda átti hún heiðurinn af því að við gátum litið inn til kínverskrar fjölskyldu. Frú Chen starfar við félagsmála- stofnunina, sem rekin er á vegum Rauða krossins. Hún leiðir okkur i allan sannleika um það hvernig starfið fer fram í hennar deild, en það speglar nokkuð vel starf svip- aðra stofnana um Kína allt. Undir aðalstjórn starfa 28 nefndir sem vinna að hinum ólík- ustu verkefnum. Sem dæmi má nefna nefnd sem hugar að tak- mörkun barneigna. önnur nefnd starfar við barnagæslumál. Enn ein um kennslu og uppfræðslu barna, unglinga og fullorðinna. Þá má nefna nefnd sem vinnur að málefnum aldraðra. „Eitt barn nægir“ er slagorðið „Eitt barn nægir", er slagorðið í

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.