Morgunblaðið - 29.09.1982, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 29.09.1982, Qupperneq 13
44 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1982 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1982 Kappakstur: Barátta á mörgum vígstöðvum í senn A því leikur enginn vafi að „Formula 1“-keppnin er og verður hápunktur kappakstursíþróttarinnar. Mörg fræg nöfn mætti nefna í því sambandi, svo sem Niki Lauda, John Watson og Nelson Piquet, sem halda óneítanlega athygli almennings vakandi á kappakstrinum og hafa unnið miklar hetjudáðir. En ekki er allt slétt og fellt að tjaldabaki. Vegna sigra, peninga og styrkja hefur skapast viss rígur og klofningur innan íþróttarinnar. Margsinnis hefur orðið mikil óeining milli FISA, sem annast dóms- mál innan greinarinnar, og FOCA, samtaka kapp- akstursfélaga, sem oftsinnis hefði getað leitt íþróttina undír lok. Máttur peninganna Veikleiki FOCA er sá, aö risarnir Ferrari, Alfa Romeo og Renault ásamt hinum smærri frá Toleman og Osella standa fyrir utan sam- tökin. Þaö hefur orðið til þess aö oft hafa risiö upp margvísleg vandamál þegar setja átti íþrótt- inni lög og reglur. Vegna sterkrar fjárhagstööu sinnar, en þar ber hæstan Brabham-forstjórann Bernie Ecclestone, hefur FOCA náö aö sölsa undir sig mikil völd og nú hin síöari ár hefur þessi Englendingur náö svo langt, aö segja má aö hann stjórni „Formel 1" á þappírn- um. i gegnum hann og þar meö FOCA fer verölaunafé íþróttarinn- ar og tekjur af sjónvarþsuþptökum renna til samtakanna. Ecclestone hefur ennfremur gengiö svo langt aö koma því til leiðar aö FOCA er fjárhagslegur umboösaöili aö mörgum heims- meistarakeppnum handan viö höf- in blá og innan Evrópu. Því er þaö eölilegt aö hann reyni aö fá sem allra mest fyrir vöru sína og þá reyni jafnframt á aö vanda fram- boöið. Hér rísa vandamálin. Því Ren- ault, Ferrari, Fiat og Alfa Romeo líta allt öörum augum á málið. Þeir leggja aöaláhersluna á góöan árangur og aukna viröingu svo að sú háa fjárupphæö sem þeir leggja í kappaksturinn endurgreiöi sig í aukinni bílasölu til almennings og ekki sakar eilítill hagnaöur. • Bernie Ecclestone litli, kröft- ugi Englendingurinn, sem svo gott sem stjórnar öllu er viökem- ur heimsmeistarakeppninni í kappakstri. Á því hefur hann orð- iö milljónamæringur. Óttinn við turbo Hin síöari ár hafa þessi síöast- nefndu fyrirtæki verið dyggilega studd af forseta FISA, Jean Marie Balestre. En af óskiljanlegum ástæöum hefur þessi skapmikli Frakki skyndilega snúiö við blaö- inu og er nú kominn á sveif meö FOCA. Þaö er talið geta haft mjög afdrifaríkar afleiöingar þar sem flest vandamálin varöa öryggi og tæknilegu hliðina. FOCA-fyrirtækin, sem flest nota hina fimmtán ára gömlu Ford Cosworth-vól, óttast nú sam- keppnina viö turbo-vélarnar, sem kalla á aukin fjárútlát sem minni fyrirtækin myndu ekki standa und- ir. Ofan á þetta bætist svo spurn- ingin um öryggismál. Breiöari dekk, aukin hestöfl o.fl. eykur hraöann svo mjög aö mannslíkam- inn á erfitt með aö fylgja honum eftir. Hraðinn í beygjunum er svo mikill aö bílstjórinn er eins og fim- leikamaöur án öryggisnets. Biliö milli stórslyss og frábærs árangurs er orðið óhuggulega lítiö. Margir eru á þeirri skoöun aö breyta megi fyrirkomulagi keþþninnar og draga úr hættunni, án þess að þaö skaöi nokkuð íþróttina sjálfa, en FOCA er á móti þreyttum reglum, því þaö myndi gefa turbo-vélunum byr undir báöa vængi. Hins vegar berj- ast þeir fyrir aö meöalþyngd bif- reiðanna veröi lækkuö úr 580 kg í 530. „Annaöhvort þaö aö turbo-vél- arnar veröi útilokaðar frá keþpni,” segja FOCA-menn og þar njóta þeir stuönings Balestre. Og hann gengur enn lengra því hann vill frekari breytingar á bílunum, eöa nánar tiltekið aö „pilsin“ veröi numin brott því eins og bílarnir eru í dag eru þeir óþægilegir fyrir bil- stjórann. Fjaöurmagniö í þeim er svo slæmt og þeir eru svo hastir aö eftir nokkurra ára akstur mun bilstjórinn bera líkamlegan lang- varandi skaöa af akstrinum. Þyngd og vatnskassi Deilur um þyngd bílanna er eng- in ný bóla. Eitt sinn kom í Ijós eftir nákvæma athugun aö bíiar Nelson Piquet og Keke Rosberg, en þeir höföu nælt sér í 1. og 2. sætiö í heimsmeistarakeppni i Brasilíu, voru meö auka vatnskassa sem voru fylltir af vatni, en eftir vigtun fyrir keppnina var vatninu dælt af þeim og reyndust þeir þá 40 kg léttari en þeir áttu að vera. Ekki var til sérstakt ákvæöi um slíkt brot í lögunum, en túlkunin var sú aö bíllinn átti aö vera 580 kg aö þyngd fyrir keppni og eftir, aö frá- dregnu bensíni, og þar með misstu kapparnir tveir tvö efstu sætin sín. Eftir þessi málaferli var vigtun þíl- anna oröiö meiriháttar mál og varö Niki Lauda t.d. fyrir því aö missa 3. sætiö á „Zolder“-braut vegna tveggja kílóa sem vantaöi uppá rétta þyngd. Hins vegar hefur sá orörómur komist á kreik aö ekki gildi sömu reglur fyrir alla og aö einhver mis- munun eigi sér staö. Sigur og sorg Aö mörgu leyti hefur kappakst- urskeppnin gengiö vel í ár, en þó hafa tvö dauöaslys varpaö skugga sínum á hana nú sem svo oft áöur, enda íþróttin oft kölluö leikurinn viö dauöann. Á „Zolder"-brautinni í Belgíu, rétt viö endamörkin, lézt bílstjóri Ferrari-bíls, Gilles Villeneuve, og í Kanada lést italinn Roccardo Pal- etti er hann ók á kyrrstæöan Ferr- ari-bíl. Endurkoma Niki Lauda til keppninnar vakti aö vonum óskipta athygli og dró um leiö at- hygli manna frá Alan Jones, sem dró sig úr keppni í mótmælaskyni viö ríkjandi reglur keppninnar. Niki Lauda sýndi og sannaöi strax í fyrstu tveimur keppnunum aö honum er kappaksturinn í blóö borinn og braut enn blaö í sögu íþróttarinnar meö frábærum árangri sínum í keppninni sem var aö Ijúka. Keppt á 16 stöðum Heimsmeistarakeppnin í „Grand Prix“-kappakstri, „Formula 1“, fer fram á 16 stöðum víös vegar um heiminn. Keppt er viö misjafnar aöstæöur bæði hvaö varöar kapp- akstursbrautir og veöurfar. í ár hófst keppnin 23. janúar í Kyalami í Suður-Afriku. Síðan var keppt í Rio í Brasilíu í mars. Þá var haldiö til Long Beach í Bandaríkjunum. Þaöan til San Marino. Síöan kom rööin aö Belgíu og loks á þann staö sem kappaksturinn vekur hvaö mesta eftirtekt, í Monaco, en þar er keppt árlega i lok maímán- aöar. Áfram er haldið aö keppa • Alan Jones frá Ástralíu sem varð heimsmeístari í „Formula 1“-kappakstri áriö 1980 hætti keppni í ár til þess að mótmæla keppnisreglum. Jones er mjög reyndur ökumaöur og hefur unníð góða sigra á kappakstursbrautinni. • Kappakstursmennirnir eru ekki öfundsveröir af því að sitja í þröngum bílum sínum alveg negldir niður í sæti ökumannsins. En eins og sjá má á myndinni er plássiö ekki mikið og lítið sem ekkert hægt að hreyfa sig. Þá eiga ökumennirnir ekki gott með að komast út úr bílunum á skömmum tíma ef eitthvað kemur fyrir. Það er því ekki að ástæðulausu sem bílarnir eru kallaðir líkkisturnar. Þeir eru það nefnilega í orðsins fyllstu merkingu. ■■■■■■■■■■■■■■!■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ víðsvegar um heiminn og síöasta keppnin fór fram í gífurlegum hita í spilavítisborginni frægu í Banda- ríkjunum Las Vegas. Grand Prix- keppnin vekur gjfurlega athygli um heim allan og jafnan er sjónvarpað frá henni um heim allan þegar hún fer fram. Og oft og iðulega eru áhorfendur aö keppninni sjálfri um og yfir 100 þúsund talsins. Enda má mikiö koma inn af peningum til aö keppnin standi undir sér fjár- hagslega. • Tveir ökumenn létu lífið í heimsmeistarakeppninni í ár, annar þeirra var hin frægi ökuþór Villeneuve. Myndin hér aö neöan er tekin skömmu áður en hann lést. Villeneuve var í fremstu röö og þótti frábær kappakstursmaöur. Niki Lauda eitt stærsta nafn í „Formula 1“-kappakstri frá upp- hafi. Hann náöi góöum árangri í keppninni í ár þrátt fyrir að hann færi ekki meö sigur af hólmi. bessi geðugi Austurríkismaöur elskar kappakstur og þess vegna hóf hann keppni á nýjan leik. Ekki peninganna vegna að eigin sögn. Finninn Rosberg Grand-Prix meistari „Ég er í sjöunda himni. Ég er annar Norðurlandabúinn sem kem til greina sem sigurvegari í þessari íþróttagrein. Sá fyrsti var Ronnie Petterson frá Svíþjóö. En mér hef- ur tekist nokkuö sem Petterson tókst aldrei og þaö veitir mér mikla gleði,“ bætti Rosberg viö. Eins og menn muna kannski, lést Petter- son í slysi áriö 1978. Var slysiö hiö voveiflegasta og vakti mikla athygli á sínum tima. Rosberg vann aöeins einn Grand Prix-kappakstur á tímabil- inu, eini sigur hans á fimm ára ferli. Hins vegar var hann ávallt í hópi efstu manna og safnaöi því saman flestum stigum. SÍÐUSTU Grand Prix-keppninni lauk um síöustu helgi í Las Vegas í Bandaríkjunum. Áöur en keppn- in hófst var Ijóst aö keppnin um HM-titilinn stæði á milli Finnans Keke Rosbergs og frans John Watsons. Þrátt fyrir aö írinn geröi allt sem í hans valdi stóö til aö sigra í keppninni tókst honum það ekki og varö aö láta sér ann- að sætiö lynda. En aöeins sigur gat fært honum fleiri stig yfir Rosberg og um leið sigur ( HM-keppninni. Rosberg nægði hinsvegar fimmta sætiö til aö sigra. Finninn ók af öryggi og náöi titlinum. Þaö var hinsvegar ítalinn Alboeto sem sigraöi. „Heimsmeistari, ég kann vel viö nafnbótina," sagöi Finninn Keke Rosberg um helgina eftir aö hafa tryggt sér Grand Prix-titilinn í kappakstri. Hann hafnaði í fimmta sætinu í Las Vegas Grand Prix- kappakstrinum og þaö nægöi hon- um. Hann heföi þolað þaö aö vera í sjötta sætinu svo fremi sem John Watson og Niki Lauda næðu ekki aö sigra. Og þeir sigruöu ekki, þaö geröi ítalinn Alboeto á Tyrrel-bíl sínum. /Í0I Marlboro

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.