Morgunblaðið - 16.10.1982, Page 1

Morgunblaðið - 16.10.1982, Page 1
40 SÍÐUR OG LESBÓK _________________________________________________________________________________________________________________________________________ 230. tbl. 69. árg. LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins Pólland: Lögregla sundraði þúsund syrgjendum \ arsjá, 15. október. AP. LÖGREGLA beitti í dag táragasi, öflugum vatnsdælum og eldvörpum til að dreifa meira en eitt þúsund manns, sem komu saman í dag á götum úti i stáliðnaðarbænum Nowa Huta til þess að syrgja hinn tvítuga Bogdan W'los- ik, sem lést i gær af völdum skotsára er lögreglan beitti skotvopnum þegar til óeirða kom í bænum. Lögreglan umkringdi mannfjöldann og lét síðan til skarar skriða gegn fólkinu, sem hrópaöi nafn Samstöðu í sífellu. Ríkisfjölmiðlarnir í Póllandt hafa sakað óeirðaseggi, unglinga og æsingamenn um að standa að baki óeirðunum, sem urðu í Nowa Huta. Franciczek Macharski, erkibisk- up í Kraká, bað á útisamkomunni í dag fyrir friði og sameiningu pólsku þjóðarinnar með klunna- legan stálkross, sem gerður hafði verið af vanefnum, að baki sér. Var stálkrossinn tákn verkamann- anna í Lenin-skipasmíðastöðinni. Tala þeirra, sem látið hafa lífið í átökum á milli lögreglu og óbreyttra borgara frá því herlög voru sett í desember á síðasta ári, er nú komin í 15. Wlosik er á hinn bóginn sá fyrsti sem lætur lífið eftir að starfsemi Samstöðu var bönnuð með lögum. Bretland: Verðbólgan sú lægsta í áratug l.undúnum, 15. október. AP. VERÐBOLGAN í Bretlandi fer enn minnkandi. Hún lækkaði í síðasta mánuði úr 8% niður í 7,3% á ársgrundvelli og hefur ekki veriö lægri í heilan áratug. Verðlag lækkaði að meðaltali í september um 0,1% og slíkt hefur ekki gerst í 12 ár. Verölag hefur staðið í stað undanfarna þrjá mánuði og slíkt hefur ekki gerst frá því 1967. Margaret Thatcher og stjórn hennar hefur tekist vel upp í bar- áttunni við verðbólguna á þriggja og hálfs árs valdaferli. Verðbólgan náði hámarki í maí 1980, þegar hún var 21,9%, en hefur síðan far- ið stiglækkandi. Sömu sögu er hins vegar ekki að segja af atvinnuleysinu í Bret- landi, sem farið hefur hríðversn- andi. Á valdaferli Thatcher hefur fjöldi atvinnulausra aukist um 2 milljónir manna, úr 1,3 milljónum í 3,3. Hefur atvinnuleysi ekki verið meira síðan í kreppunni miklu á fjórða áratugnum. Geysiöflug sprengja, sem komið hafði verið fyrir í sendibíl, sprakk í fyrrinótt við verksmiðju eina í Toronto i Kanada. Miklar skemmdir urðu á byggingunni eins og sjá má, en þar eru m.a. framleidd leiðsagn- arkerfi i bandarískar stýriflaugar. ap. Sjá „sprenging í Toronto" á bls. 18. Taugastríð háð í dönskum stjórnmálum: Hrossakaup að tjalda- baki auka á óvissuna kaupmannahöfn, 15. októbcr. AP. HROSSAKUP að tjaldabaki á elleftu stundu hafa varpað hul- iðshjúp yfir framtið dönsku ríkisstjórnarinnar í því tauga- stríði sem nú er háð í dönskum stjórnmálum. Stjórnin reynir nú með öll- um tiltækum ráðum að afla sér stuðnings við fyrirhugað- ar sparnaðarráðstafanir. Verði þær felldar í lokaat- kvæðagreiðslu í þinginu á morgun hefur Paul Schluter, forsætisráðherra, hótað að boða til nýrra kosninga. Framvinda þessara sparn- aðarráðstafana er í raun í höndum Framfaraflokksins, Reagan býður Sovétmönn- um meira korn til sölu Washington, 15. október. AP. IJNDIR miklum þrýstingi þingmanna Repúblikana tilkynnti Ronald Reagan, Bandaríkjaforseti, i morgun, að Sovétmönnum yrði leyft að kaupa 23 milljónir tonna korns á yfirstandandi fjárhagsári. Þessar 23 milljónir tonna eru 15 milljónum yfir því hámarki, sem til þessa hefur verið leyft. Sérstakt samþykki Bandaríkjaþings þarf til að breyta útflutningskvóta korns til Sovétríkjanna. Verði útflutn- ingsaukningin samþykkt, er hlut- deild Bandaríkjamanna í korninn- flutningi Sovétmanna þar með orð- in 55%. I útvarpsávarpi forsetans í morgun, sem sérstaklega var beint til landbúnaðarríkjanna, sagði hann, að bændur hefði orðið að þola þungar byrðar vegna korn- útflutningsbannsins, sem sett var árið 1979 af Jimmy Carter. Það hefðu verið mistök og hefði leitt til þess, að það traust sem þjóðir heimsins báru til Bandaríkja- manna, hefði beðið hnekki. „Það er ekki veikleikamerki að selja Sovétmönnum korn í auknum mæli,“ sagði Reagan. „Auðvitað vitum við ekki hvort Sovétmenn vilja kaupa allt korn sem þeim stendur til boða, en þeir eru á hött- unum eftir korni og vantar það illi- lega“. Talið er víst að tilkynning for- setans í morgun eigi eftir að falla í grýttan jarðveg hjá bandamönn- unum í Evrópu. Það var einmitt Reagan, sem bannaði bandaþjóð- um sínum í Evrópu að leggja til áður umsaminn tæknibúnað til gasleiðslunnar miklu, sem verið er að leggja frá Síberíu til V-Evrópu, vegna ástandsins í Póllandi. sem frestaði fyrirhuguðum flokksfundi síðdegis í dag. Á fundinum átti að taka ákvörðun um hvort sam- þykkja eða hafna ætti skattatillögum Schluters, sem hann hefur sjálfur nefnt „lokatilboð sitt“. Framfaraflokkurinn vill skattalækkanir en Schlúter hefur ekki ljáð máls á þeim. Mogens Glistrup, formaður flokksins, sagði í dag að hann vonaðist til þess að frestun fundarins gæfi aukið svig- rúm til frekari viðræðna við Schlúter. Sparnaðarráðstafanir stjórnarinnar hafa vakið geysilega óánægju almenn- ings og efnt var til einhverra fjölmennustu mótmæla í Danmörku í áraraðir vegna tillagna stjórnarinnar. Danska krónan hefur snar- fallið vegna þessarar óvissu undanfarna daga. I Tveir hátt- settir leyst- ir frá störf- um í gær Tel Aviv, Kcirút, 15. októbcr. AP. TVEIR háttscttir mcnn innan isravlska hcrsins hafa vrrið leystir frá störfum. Knnfremur stendur fyrir dyrum máls- sókn á hendur átta öðrum mönnum innan Israelshers vegna ósa-ntilegrar hegðunar þeirra á Vesturbakkanum. I þeim hópi eru m.a. majór og þrír aðrir lægra settir. Hinir eru óbreytt- ir. Er þeijn gefið að sök að hafa ráð- ist á fólk án tilefnis, misnotað skot- vopn og óhlýðnast skipunum, auk annarra agabrota. Áttu þessir at- burðir sér stað fyrr á þessu ári er til óeirða kom á Vesturbakkanum. Þá var í dag látið að því liggja, að málshöfðanir gæti orðið fleiri því hundruð kvartana hafa borist frá Aröbum vegna óþolandi hegðunar hermannanna. Skipst var á skotum í fjöllunum suður af Beirút í dag, fjórða daginn í röð. Eigast þar við hermenn krist- inna hægrimanna og Drúsar. Hafa fimm látist og 54 særst, svo vitað sé, frá því skærurnar hófust. Ariel Sharon, varnarmálaráð- herra ísraels, hefur hvatt til friðar milli deiluaðila. Hann sagði enn- fremurí dag, að ef bardögum linnti ekki á næstu dögum myndu ísraelar skerast í leikinn. Leiðtogar Drúsa í Israel hótuðu í gær allsherjarverk- falii ef ekki yrði tekið í taumana. Ríkisstjórn Líbanon hefur neitað að skakka leikinn af því að erjurnar eru á yfirráðasvæði Israela. Iran: Isfahani ráð- inn af dögum Nicosia, Kýpur, 15. október. Al*. AYATOLLAH Ashrafi Isfahani, einn a'óstuklerkanna í fran, var í morgun myrtur í bænastund í mosku í vesturhluta Bahtaran. Hann hafði þrívegis áður sloppið naumlega er rcynt var að ráða hann af dögum. Skýrt var frá því, að maður hefði gengið að Isfahani á meðan á bænastundinni stóð, faðmað hann og síðan sprengt hand- sprengju með þeim afleiðingum að báðir létu lífið. Ennfremur slasaðist sonur Isfahani. Hin opinbera fréttastofa í íran sakaði málaliða Bandaríkja- manna, Munafiqueen, um ódæð- ið. Munafiqueen, sem útleggst hræsnarar á íslensku, er það orð sem notað er um neðanjarðar- hreyfingu Mujahedeen Khalq, sem berst fyrir valdaafnámi klerkanna. Rannsóknar- nefnd skipuð Stokkhólmi, 15. októb r. AP. S/ENSKA STJÓRNIN, sem nú stend ur frammi fyrir þeirri staðreynd að finna ekki óþekkta kafbátinn í skerja- garðinum, þrátt fyrir tveggja vikna linnulausa leit, skipaði í dag nefnd til að rannasaka ferðir óþekktra kafbáta innan skerjagarðsins fyrir utan Stokkhólm. Tilkynning þessi kom í kjölfar þeirra fregna frá sjóhernum, að eng- in merki um veru kafbátsins hefðu fundist eftir að djúpsprengjum var varpað á stað, þar sem hljóðmerki gáfu til kynna að e. t. v. leyndist kafbátur. Sjóherinn hefur lýst því yfir að leitin muni halda áfram um óákveðinn tíma. Sjá „Kemst kafbáturinn ekki upp af eigin rammleik?" á bls. 18—19. L

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.