Morgunblaðið - 16.10.1982, Page 5

Morgunblaðið - 16.10.1982, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1982 5 Edda Jónsdóttir við eitt verka ainna. Edda Jónsdóttir opnar tvær í DAG, laugardag, opnar Edda Jónsdóttir tvær myndlistarsýn- ingar, aðra í Ásmundarsal við Freyjugötu en hina í Gallerý Langbrók í Lækjargötu. í Ásmundarsal sýnir Edda sýningar teikningar, sem allar bera heitið „Ljóð um land“. Hluta af teikningunum sýndi hún fyrir skömmu í Frakklandi. í Gallerý Langbrók sýnir hún polaroid skúlptúra. Gamaldags þverflautuleikur í sal Menntaskólans í Reykjavík ALISON Melville heitir kanadísk kona. Hún leikur á gamaldags þver- flautu úr tré og er atödd hér á landi þessa dagana á vegum Musica Ant- ica. Um síðustu helgi var Melville með námskeið í Tónlistarskólan- um í Reykjavík, þar sem hún hélt fyrirlestur um þverflautuleik og þessa sérstöku tegund flautu sem hún leikur á. Melville heldur svo tónleika í dag og næsta laugardag (16. og 23. okt). Snorri Snorrason spilar með henni á gítar á fyrri tónleikunum, en á þeim síðari munu leika með henni þær Camilla Söderberg á blokkflautu, Helga Ingólfsdóttir á sembal og Ólöf Sessilía Óskars- dóttir á gömbu. Tónleikarnir verða báðir í sal Menntaskólans í Reykjavík og eru kl. 4. Þetta tónlistarfólk sem að ofan er nefnt myndar kjarna Musica Antica, en það er „félagsskapur" innan gæsalappa, eins og Snorri Snorrason orðaði það, sem var stofnaður í fyrra og hefur það að markmiði sínu að kynna eldri tónlist, bæði frá tíma endurreisn- arinnar (Renaissance) og barok- tímabilinu. Melville stundaði nám í Basel í Kanadíska konan Alison Melville leikur, en hún er hér á vegum Musica Antica Sviss, við skóla sem sérhæfir sig í eldri tónlist. Snorri, sem var við nám í sama skóla, lýsti honum sem svo að þetta væri n.k. vísinda- skóli; þar væri grúskað í gömlum gögnum og markmiðið væri að reyna að komast sem næst því að endurskapa hina gömlu tónlist eins og hún var. „Og það er einmitt markmiðið með því að leika á þessi gömlu hljóðfæri," bætti Melville við, „til- gangurinn er að tónlistin líkist sem mest því sem tónskáldin hugsuðu sér hana.“ Alison Melville og Snorri Snorrason á æfingu. Gallery Lækjartorg: Fjölsótt sýning Bat-Yosef SÝNING Bat-Yosef, eða Maríu Jós- efsdóttur, í Gallery Lækjartorgi hef- ur verið fjölsótt og hefur listamaður- inn selt liðlega 20 af verkum sínum á sýningunni. Sýningin er opin daglega 14.00—18.00 á virkum dögum og 14.00—22.00 á helgum dögum, en henni lýkur 24. október nk. Þetta er 6. einkasýning Bat-Yosef á ís- landi á 25 ára tímabili. Á mynd- inni er Bat-Yosef hjá nokkrum verka sinna í Gallery Lækjartorgi. Útvarpsráð: Ólafur Hauksson beðinn um erindi um frjálst útvarp Allmiklar umræður urðu á fundi útvarpsráðs fyrir skömmu, um erindi Helga Péturssonar, fréttaritara Ríkis- Akureyri: Nýr útibússtjóri Utvegsbankans Á FUNDI bankaráðs Útvegsbanka íslands, 13. október, var Asgrímur Hilmisson ráðinn útibússtjóri bank- ans á Akureyri frá og með 1. nóv- ember næstkomandi. Ásgrímur hefir að undanförnu verið útibússtjóri bankans í Álf- heimum 74 í Reykjavík, en var áð- ur á Seyðisfirði. Núverandi útibússtjóri, Matthí- as Guðmundsson, lætur nú af störfum samkvæmt eigin ósk. útvarpsins í Bandaríkjunum, sem hann flutti nýlega um frjálst útvarp. Kom það sjónarmið meðal annars fram í útvarpsráði, að eðlilegt væri að rödd þeirra, sem fylgjandi væru af- námi einkaréttar Ríkisútvarpsins, heyrðist einnig í útvarpinu, enda hefði málflutningur Helga Pétursson- ar verið mjög einhliða. Var að tillögu Markúsar Arnar Antonssonar samþykkt, að leita eftir því við Ólaf Hauksson blaða- mann, að hann flytti erindi um þessi mál. Var sérstaklega um það beðið, að erindi hans yrði fundið pláss á sama tíma og Helgi flutti sitt erindi, það er eftir kvöldfréttir á laugardegi. Ólafur Hauksson hefur um ára- bil starfað við blaðamennsku og haft með höndum gerð útvarps- þátta. Þá hefur hann numið fjöl- miðlafræði í Bandaríkjunum. Kópavogur: Happdrætti Sjálfstæðisflokksins SÍÐASTI innheimtudagur landshappdrættis Sjálfstæðisflokksins er í dag, laugardag. Skrifstofur Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi verða opnar frá kl. 9 til kl. 17 í dag og er þar tekið á móti greiðslum. KENWOOD chef 8ESJI í? HJALPARKOKKUmNN KENWOOD CHEF fylgir þeytari, hrærari, hnoðari, grænmetis- og ávaxtakvörn, plasthlíf yfir skál. KENWOOD CHEF er til í þremur mism. litum. Ennfremur er ávallt fyrirliggjandi úrval aukahluta, svo sem, hakkavél, grænmetisrifjárn, grænmetis- og ávaxtapressa, kartöflu- afhýðari, dósahnífur ofl. < (/) Œ. CL CJMBOÐSMENN: J L-húsið, Hringbraut 121, Reykjavík Rafha hf., Austurveri, Reykjavík. J L-húsið, Borgarnesi. Húsið, Stykkishólmi. Verslun Einars Stefánssonar, Búðardal. Kaupfélag Saurbaeinga, Skriðulandi, Dal. Póllinn h/f, ísafirði. Verslun Einars Guðfinnssonar, Bolungarvík. Verslun Sigurðar Pálmasonar, Hvammstanga Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi. Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki. Radío- og sjónvarpsþjónustan, Sauðárkróki. Kaupfélag Eyfirðinga, Akureyri. Grímur og Árni, Húsavík. Verslun Sveins Guðmundssonar, Egilsstööum. Mosfell, Hellu. Kaupfélag Árnesinga, Selfossi. Radío- og sjónvarpsþjónustan, Selfossi. Kjarni, Vestmannaeyjum. Rafvörur, Þorlákshöfn. Verslunin Bára, Grindavík. Stapafell h/f, Keflavík. RAFTÆKJADEILD [h|HEKLA HF LAUGAVEGI 170-172 SÍMAR 11687 - 21240 '0#C 1 I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.