Morgunblaðið - 16.10.1982, Síða 10
10_______ MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1982
Leghálskrabbamein úr öðru
sæti í það níunda á tíu árum
í TILEFNI af þeirri herferð sem
fer fram á vegum krahbameinsfé-
laganna um þessar mundir hafði
Morgunblaðið tal af Jóni l'orgeiri
Hallgrímssyni lækni sem mikið
hefur starfað að krabbameinsmál-
um hérlendis, einkum að fyrir-
bytíítjandi starfi gegn legháls-
krabbameini og brjóstakrabba-
meini.
Eina landið þar sem
fer fram skipuleg leit
að leghálskrabbameini
„Island er eina landið í heimin-
um, þar sem fer fram skipuleg
leit að leghálskrabbameini sem
nær til allra kvenna á aldrinum
25—69 ára, en það er sá aldurs-
hópui* sem Leitarstöð-B, sem rek-
in er af Krabbameinsfélagi Is-
lands, kallar inn til skoðunar. Að-
ur var rekin almenn leitarstöð,
sem var lögð niður fyrir nokkrum
árum, en Krabbameinsfélag Is-
lands hefur mikinn áhuga á að
finna sér fleiri verkefni á sviði
krabbameinsleitar. Leitarstöð-B
hóf starfsemi sína 1964, en
krabbameinsleit mun hafa byrjað
hér á landi þegar árið 1957.
Fjölmennar skoðanir á konum
hafa verið framkvæmdar vestan-
hafs og í Skandinavíu, en þar er
þó ekki hægt að tala um allsherj-
ar leit, til þess ná þær til of fárra
kvenna af heildarfjöldanum. Af
skiljanlegum ástæðum er okkur
hægara um vik að ná til allra,
vegna fámennis okkar.
Skoðanir eru framkvæmdar
hér á Stór-Reykjavíkursvæðinu, á
Akureyri, Húsavík, Sauðárkróki
Rætt viÖ Jón
Þorgeir Hall-
grímsson, lækni
og Neskaupstað og hefur leit far-
ið fram þaðan, á nærliggjandi
svæði, en auk þess hefur leitar-
stöðin hér í Reykjavík sent lækna
út um landið og má segja að skoð-
unarferðir hafi verið farnar
reglulega annað hvert ár.
Fyrst og fremst
fyrirbyggjandi starf
Um árangurinn má almennt
segja, að hann hefur ekki látið á
sér standa. A árabilinu 1966—’70
var leghálskrabbamein annað al-
gengasta krabbamein hjá konum,
aðeins brjóstakrabbamein var al-
gengara. Tíu árum síðar, árin
1976—’80, var leghálskrabbamein
komið niður í 9. sæti, hvað varðar
algengustu krabbamein hjá kon-
um.
Það er fyrst og fremst fyrir-
hyggjandi starf, sem við fram-
kvæmum með leitinni. Starfsem-
in miðast við það, að koma í veg
fyrir að sjúkdómurinn komi
fram, með því að finna einkenni
um að hans megi vera von, nógu
snemma, enda er mikill munur á
því sem nú finnst, miðað við það
sem fannst þegar byrjað var.
Reynt er að finna forstig krabba-
meinsbreytinga í leghálsi, sem
ekki eru sýnileg með berum aug-
um. Á þessu forstigi hefur við-
komandi alls engin einkenni eða
óþægindi. Það er því miður mjög
útbreiddur misskilningur hjá
fólki, að á meðan það finnur ekki
til, þá sé ekkert að. Það er ekki
fyrr en sjúkdómurinn er kominn
á alvarlegt stig, að það koma
fram einkenni eða óþægindi, þá
aðallega sem blæðingaóregla eða
útferð úr leggöngum og loks
verkir.
Allar konur komi til rann-
sóknar á tveggja ára fresti
Það sem Leitarstöð-B miðar að,
er að konur í aldursflokknum
25—69 ára, komi til rannsóknar á
tveggja ára fresti, en því miður
hefur orðið nokkur misbrestur á
því, að allar konur hafi hlýtt
kvaðningu. í mars 1981 var hafin
mikil herferð, með það fyrir aug-
um, að ná til þeirra kvenna, sem
ekki höfðu sýnt sig, en þá voru
send út bréf til allra kvenna í
Reykjavík, sem æskilegt þótti að
kæmu, en höfðu ekki komið frá
því í árslok 1976. Þarna var um 11
þúsund konur að ræða. Frá því
um haustið 1981 og fram í ágúst
1982 höfðu aðeins 23% af þeim
konum sem bréf höfðu verið send,
mætt til rannsóknar. Það eru því
um 8 þúsund konur í Reykjavík,
sem ekki hafa komið. Auk þess,
voru send út meira en 6 þúsund
bréf alls í nágreni Reykjavíkur og
höfðu þar af á sama tíma aðeins
mætt um 27%. Það er mjög mik-
ilvægt að þessar konur komi til
rannsóknar.
Þess misskilnings hefur dálítið
gætt, að konur sem hafa einu
Jón Þorgeir Hallgrímsson læknir.
sinni komið til rannsóknar, þurfi
ekki að koma aftur. Að vísu vit-
um við ekki hvað það tekur lang-
an tíma fyrir sjúkdóminn að
breytast af forstigi yfir á alvar-
legri stig, sjálfsagt er það mis-
munandi og getur í sumum til-
fellum tekið nokkur ár, en okkur
hefur þótt hyggilegt að miða við
reglubundnar skoðanir á tveggja
ára fresti. í sumum tilfellum hafa
menn þóst geta sýnt fram á að
forstigseinkenni læknist án með-
ferðar, en frumskilyrðið er auð-
vitað, að fylgjast með því hvort
einhverjar frumubreytingar
verða.
Lítið um einkenni, fyrr
en sjúkdómurinn er kom-
inn á alvarlegt stig
Ég vil enn leggja áherslu á, að
það eru lítil eða engin einkenni,
sem fylgja sjúkdómnum fyrr en
hann er kominn á mjög alvarlegt
stig og að þarna er um hópskoðun
að ræða, þar sem hægt er að
skoða stóran hóp kvenna, á til-
tölulega skömmum tíma, með
litlum mannafla.
Skoðunin felst í því, að það er
tekið sýni úr leghálsi og leggöng-
um hjá konum. Þetta er svo til
sársaukalaust. Sýnin, sem eru yf-
irborðsfrumur, eru lituð og skoð-
uð í smásjá og finnist eitthvað,
sem ætla má að séu forstigs-
breytingar eða illkynja breyt-
ingar, er framkvæmd svonefnd
leghálsspeglun og síðan vefja-
sýnitaka úr leghálsinum. Ef það
sýnir sig, að um staðbundið
krabbamein er að ræða, en stað-
bundið krabbamein er ekki ill-
kynja í vanalegum skilningi, er
framkvæmdur það sem kallaður
er keiluskurður á leghálsinum.
Það er ekki mikil aðgerð, aðeins
3—4 dagar á sjúkrahúsi og við-
komandi er alheilbrigð að aðgerð
lokinni.
Að lokum vil ég ítreka að konur
komi til reglulegra skoðana, eink-
um þær konur sem hafa fengið
kvaðningu frá Leitarstöðinni, og
hjálpi okkur þannig að útrýma
leghálskrabbameini meðal ís-
lenskra kvenna," sagði Jón Þor-
geir Hallgrímsson læknir.
Einbýlishús við Erluhraun
í Hafnarfirði til sölu
Húsiö er á einni hæö um 110 ferm. aö grunnfleti og
47 ferm. bílskúr. — Stofa, 3—4 svefnherb., skáli,
eldhús, baö og þvottahús. Falleg hraunlóö um 1300
ferm. Til greina koma skipti á 4ra—5 herb. íbúö í
Hafnarfirði helst í fjölbýlishúsi.
Árni Gunnlaugsson, hrl.
Sími 50764. — Opið í dag kl. 1—5.
Opið í dag
Lynghagi — sérhæð
120 fm 4ra herb. á 1. hæö meö bílskúr. Eign í mjög góöu ástandi.
Suðursvalir. Laus strax. Útborgun 1200 þús.
Hafnarfjörður — Norðurbær
137 fm 5—6 herb. endaíbúö á 1. hæö. Bein sala. Útborgun 1050
þús.
Breiðholt
Glæsilegt 65 fm 2ja herb. íbúö viö Vesturberg. Laus strax. Útborg-
un 570 þús.
Álfhólsvegur
56 fm 2ja herb. íbúö í þríbýlishúsi á jarðhæð. Laus strax. Útborgun
470 þús.
Hraunbær
Ca. 70 fm falleg 3ja herb. íbúö á 1. hæö. Sér inngangur. Laus strax.
Útborgun 680 þús.
Fossvogur — raðhús
á 2 hæðum ca. 90 fm aö grunnfleti meö bilskúr. Allt nýtt í eldhúsi og
baðherbergi. Getur losnaö fljótlega. Útborgun 1800 þús.
Garðabær
Einbýlishús á 2 hæöum ca. 150 fm aö grunnfleti. Mikið útsýni.
Mjög hentugt fyrir 2 íbúðir sem skiptist í 150 fm 5—6 herb. efri hæð
og 70 fm rúmgóð 2ja herb. íbúö á neöri hæð ásamt tvöföldum 50
fm bílskúr. Húsið er teiknaö sem einbýlishús. Útborgun
1750—1800 þús.
Álftanes — Hosbyhús
Glæsilegt 150 fm danskt einbýlishús með miklu risi. Húsiö er tilbúiö
að utan og neöri hæö. Mjög fallegar innréttingar, allt í dönskum stíl.
Mikið útsýni. Laust strax. Útborgun 1650—1700 þús.
Eínar Sigurðason hrl.,
Laugavegi 66. Sími 16767.
Heimasími 77182.
Granaskjól — einbýli
Höfum til sölu einbýlishús viö Granaskjól. Húsiö er
hæö og rishæö meö innbyggöum bílskúr samtals 214
fm. Selst fokhelt en frágengið aö utan og er tilbúið til
afhendingar nú þegar. Teikn. á skrifstofunni.
Fasteignasalan Hátún,
Nóatún 17,
símar 21870—20998.
Heimasími 46802.
íbúðarhæð f
Laugarásnum
5 herb. íbúð á aðalhæð í Laugarásnum til sölu.
Glæsilegt útsýni. Stór lóð. Bílskúrsréttur.
Uppl. gefur:
Guöjón Styrkársson hrl.,
Aöalstræti 9, sími 18354.
RAÐHUS
í GARÐABÆ
Til sölu er vandaö ca. 160 fm raöhús í Garöabæ. Húsið sem er á 2
hæðum, er með sérsmíðuöum innréttingum og er fullbúlö að innan
sem utan.
Á efri hæö: Svefnherbergi, barnaherbergl, sjónvarpshol, eldhús,
baðherbergi og stofa.
Á neöri hæö: 2 stór herbergi, baöherbergi meö sturtu, hol og
innbyggöur bilskúr.
Opið í dag kl. 1—3.
Húsafell
FASTEIGNASALA Langholtsveg, 115 Adalstetnn PétUrSSOP
(Bæiarleibahúsmu) simi: 81066 Bergur Guónason hdl
Opiö 13—16
í dag
Nálægt Hlemmi
Mjög góö 2ja herb. samþykkt
íbúð í kj. Hagstætt verð.
Bragagata
Snotur 3ja herb. risíbúö.
Hafnarfjörður
2ja—3ja herb. vönduð risíbúö.
Hamraborg
Góö 3ja herb. ca. 90 fm íbúö á
1. hæö. Laus strax.
Laugavegur
3ja—4ra herb. íbúð á 1. hæð.
Lindargata
3ja—4ra herb. íbúð á 1. hæð.
Falleg íbúö á góöu veröi.
Tjarnarból
Sérstaklega vönduð nýleg 6
herb. íbúð á 2. hæö.
Njálsgata
Mjög lítiö einbýlishús. Eignar-,
lóð, viöbyggingarréttur.
Vesturgata
Eldra einbýlishús, sem skipta
má í 2 íbúöir. Hagstætt verö.
Hafnarfjörður
Mikiö endurnýjað eldra einbýl-
ishús ca. 120 fm.
Hafnarfjörður
Lítiö en gott einbýlishús úr
steini ásamt 40 fm bílskúr.
Keflavík
Glæsileg 5—6 herb. íbúö.
Fasteignir sf.
Tjarnargötu 10B, 2. h.
Friörik Sigurbjörnsson, lögm.
Fridbert Njálsson, sölumaður.
Kvöldsími 12460.
AI'GLYSIN(ÍASIMÍNN KR:
_ 22480
jftlorijiuiMiiíút)