Morgunblaðið - 16.10.1982, Síða 16

Morgunblaðið - 16.10.1982, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1982 80 ÁRA AFMÆLI LANDAKOTSSPÍTALA í DAG „l»að er mjög margt hér sem er frábrugðið því sem gerist á öðrum sjúkrahúsum. Landakotsspítalinn hefur verið í einkaeign alveg frá upphafi. Fyrirtækið sjálft er enn i einkaeign þótt ríkið hafi keypt hús- næðið fyrir fimm árum. Sérstaða okkar liggur fyrst og fremst í því að ákvarðanataka fer fram hér innan- húss á sama tíma og forráðamenn sjúkrahúsa í opinberri eigu þurfa að ráðfæra sig við eigendurna,“ sagði Logi Guðbrandsson, framkvæmda- stjóri Landakotsspítala er Morgun- blaðið ræddi við hann og Ólaf Orn Arnarson, yfirlækni á Landakoti, i tilefni 80 ára afmælis spítalans, sem er i dag. „Það má heldur ekki gleyma því, að uppruni Landakotsspitalans er verulega frábrugðinn því sem er á öðrum sjúkrahúsum. Það voru út- lendingar, St. Jósefssysturnar, sem lengst af ráku hann og þær hafa því væntanlega dregið reynslu sína meira af rekstri sjúkrahúsa reglunnar erlendis. Þess vegna hefur spítalinn orðið frábrugðinn hinum," sagði Logi. ar er auðvitað enginn spítali“ „Læknaþjónustan á Landakoti er líka að verulegu leyti frábrugð- in,“ sagði Ólafur Örn. „Við lítum auðvitað á okkur sem hluta í heildarkerfinu. Við tökum þátt í vaktasamstarfi og ýmissi annarri samvinnu við aðrar stofnanir og höfum visst afmarkað hlutverk innan kerfisins. Hins vegar er framkvæmdin hér innanhúss tölu- vert frábrugðin. Munurinn liggur fyrst og fremst í því, að þeir sjúkl- ingar, sem leggjast hér inn, eru á ábyrgð ákveðins læknis. Á hinum spítölunum er sjúklingurinn á ábyrgð heillar deildar. Þar geta margir læknar annast sama sjúkl- inginn. Deildin er síðan á ábyrgð Guðrún Marteinsson O’Leary, Logi Guðhrandsson og Olafur Örn Arnarson með Landakotsspítalann í baksýn. MorKunblaðið/ KÖE. „Án eðlilegs tækjabúnað- Rætt við Loga Guðbrandsson, framkvæmdastjóra og, Olaf Örn Arnarsson á Landakotsspítala Þessi mynd er tekin í skrifstofu Landakotsspítalans árið 1955 og sýnir lækna í aðgerð. A myndinni eru talið frá vinstri: Systir Flavia, Systir Gabriela, Þórhallur B. Ólafsson, Stefán P. Björnsson, Haraldur Guðjónsson og Bjarni Jónsson, yfirlæknir. yfirlæknis, en yfirlæknir hér ber enga ábyrgð á sjúklingum hinna læknanna". — Ríkir þá engin sérstök deildaskipting innan Landa- kotsspítalans? „Hún er mjög iaus í reipunum og meira huglægs eðlis,“ sagði Ólafur Örn. „Hér er ekkert sem heitið getur afmörkuð deildaskipt- ing innanhúss. Rúmin hér eu nýtt fyrir næsta sjúkling, sem inn kem- ur. Það skiptir ekki máli hvort hann á að fara á lyflækninga- eða handlækningadeild. Deildirnar stækka og minnka á víxl eftir þörfinni hverju sinni.“ —Leiðir þetta þá ekki af sér mun persónulegri samskipti hjúkrunarliðs og sjúklings? „Jú, það gerir það og ennfremur verða samskipti einstakra deilda miklu nánari en e!la. Þessi spítali er rekinn sem ein heild þótt hann sé deildaskiptur," svaraði Ólafur Örn. „Þá má nefna að kaupgreiðsl- ur lækna eru með öðrum hætti hér en tíðkast annars staðar. Greiðsl- urnar byggjast á því að læknarnir fá greitt fyrir unnin störf. Það skiptir ekki máli hvort þeir vinna þau að nóttu eða degi, greiðslan er sú sama. Læknirinn er ábyrgur fyrir sínum sjúklingum allan tím- ann. Þetta fyrirkomulag hefur síð- ur en svo fælt frá okkur fólk, frek- ar að læknar hafi sóst eftir því að komast hingað. Lækniskostnaður hér er mjög sambærilegur því er gerist annars staðar. Hins vegar hafa einstakir læknar hér hærri laun en gengur og gerist. Við erum færri sem tökum þessi störf að okkur og þar af leiðandi fær hver um sig meira í sinn hlut.“ „Það má ekki gleyma því í um- ræðunni um hærri laun einstakra lækna hér,“ skaut Logi inn í, „að þegar við erum að tala um tekjur þá eru það brúttótekjur. Læknarn- ir eiga eftir að greiða eitt og ann- að af þeim, s.s. launaskatt og önn- ur launatengd gjöld og læknarnir gefa 4% af sínum brúttótekjum í styrktarsjóð spítalans. Styrktar- sjóðurinn er síðan notaður til tækjakaupa. — Er ekki eðlilegt að hneigjast að þeirri skoðun, að mun meira aðhald ríki innan Landakotsspít- alans en ríkisspítalanna, einmitt vegna þess að hann er rekinn sem einkafyrirtæki? „Engin athugun hefur farið fram á þessu og sýnist sjálfsagt sitt hverjum. Við lesum reyndar í blöðunum núna, að aðhald hljóti að vera meira í opinberum rekstri en einkarekstri. Sjálfur hef ég til- hneigingu til að vera sammála þér í þessu tilviki," sagði Logi. — Lítur þú þá svo á, Logi, að þetta aðhald sé arfleifð þess tíma er systurnar ráku spítalann? „Álveg örugglega. Það leikur enginn vafi á, að þessi spítali ber þess merki að mörgu leyti að hafa verið rekinn af systrunum. Ég held að yfirmenn spítalans líti flestir svo á, að þeir séu í vinnu hjá einkafyrirtæki. Við höfum það að keppikefli að reka spítalann á eins hagkvæman hátt og unnt er. Hann var rekinn þannig áður og við reynum að halda því merki á lofti.“ — Nú hefði mátt ætla að klausturregla hefði ekki úr svo ýkja miklu að moða. Hafa orðið miklar breytingar á tækjabúnaði frá því þær hættu rekstrinum? „Ég held í rauninni að sú breyt- ing, sem við finnum fyrir núna, hafi orðið áður en systurnar seldu spítalann," sagði Logi. „Það þarf ekki ekki að vera að þetta fylgist að. I rauninni varð afskaplega lítil breyting á stjórnun spítalans fyrstu tvö árin eftir að nunnurnar seldu Landakot." „Ég vildi gjarnan taka það fram, að allan tímann sem þær voru hér við stjórn var ákaflega gott samstarf á milli systranna annars vegar og lækna og hjúkr- unarfólks hins vegar," sagði Ólaf- ur Örn. „Við fylgdumst mjög vel með þeirri þróun sem var í sjúkra- hússrekstri þannig að ekki varð nein breyting þar á. Það sem hins vegar breyttist mest var aðstaðan til fjármögnunar reksturs sjúkra- hússins. Við héldum kannski aö það yrði eitthvað auðveldara, en höfum orðið fyrir miklum von- brigðum. Það hefur orðið mun erf- iðara að fjármagna tækjakaup og viðhald spítalans. Systrunum voru áður reiknuð laun þótt þær notuðu þau aldrei og þeir fjármunir fóru í að bæta spítalann og endurnýja. Þegar þær svo hættu störfum datt þessi liður niður. Hann hefur ekki verið bættur okkur nema að mjög takmörkuðu leyti. Við erum að því leytinu verr sett en áður. Hinu má ekki gleyma, að við höfum notið stuðnings líknarfélaga og fengið stórar peningagjafir í meira mæli en áður og það hefur hjálpað mik- ið.“ — Nýting sjúkrarúma á Landa- koti er geysileg, yfir 100%. Er þetta ekki óæskileg þróun, Ólafur? „Þetta er vissulega ekkert til að sækjast eftir. Yfir hundrað pró- sent nýting er afleitt fyrirbrigði og á ekki að gerast. Það er ekkert annað en léleg þjónusta við sjúkl- inga, að leggja þá í rúm á göngun- um,“ sagði Ólafur. Þetta gerist vegna þess að við erum í vandræð- um að koma frá okkur langlegu- sjúklingum. Það færi betur um þá sjúklinga annars staðar. Þetta húsnæði er ekki heppilegt. Það leiðir svo aftur til þess, að okkur er enn þrengri stakkur skorinn en ella. Við tökum neyðarvaktir og þær auka álagið hjá okkur geysi- lega. Sem dæmi má nefna að á þriðjudag komu inn hjá okkur 26 sjúklingar. Það þýðir að við þurf- um að draga fram rúm úr geymslu og koma fyrir á göngunum. Þetta er alls ekki það, sem við erum að sækjast eftir.“ — Hefur ekkert verið reynt til úrbóta í málefnum langlegusjúkl- inga? „Jú, það hefur nú verið reynt, en ekki gengið til þessa," sagði Ólaf- ur. „Við vorum búnir að kaupa hús við Bræðraborgarstíg með vitund heilbrigðisráðherra, en þegar til kom var það ekki leyft af fjárveit- ingavaldinu, sem ekki treysti sér til að leggja fram fjármagn til kaupanna. Þetta húsnæði hefði getað leyst okkar vanda því við gerðum ráð fyrir að koma mætti 30 sjúklingum fyrir þarna. Nú verðum við að treysta á þær lausnir, sem verið er að vinna að og sjúkrahúsin fá sameiginleg af- not af.“ — Þar sem nær fimmtungur allra sjúkrarúma er bundinn við langlegusjúklinga hlýtur það að leiða af sér, að biðlisti er langur hjá ykkur. „Jú, vissulega er svo,“ sagði Logi. „Mér er næst að halda að biðíistinn hafi talið um 600 manns síðast þegar hann var athugaður, en margir læknar eru löngu hætt- ir að skrá biðlista þar sem svo fáir komast orðið inn. Einn langlegu- sjúklingur, sem liggur í ár á Landakoti kemur í veg fyrir að 35—40 aðrir sjúklingar komist

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.