Morgunblaðið - 16.10.1982, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1982
Undanfarin 7 ár hafa að með-
altali 20 (íanfíandi vetífarendur
eldri en 64 ára orðið fyrir
meiðslum í umferðinni á hverju
ári, ojí þar af að meðaltali 2 látið
lífið. Meðaltala KanKandi ve«far-
enda sem urðu fyrir meiðslum er
alls 133 þessi sjö ár. Það segir að
sjötti hver (<an(íandi vegfarandi
sem slasast eða deyr er eldri en
64 ára. Þessi samanburður er þó
enj;an veginn næjíiletíur, því sé
tekið tillit til fjölda hvers ald-
urshóps í landinu lætur nærri að
aldurshóparnir milli sextugs og
sjötugs séu helmingi mannfærri
en t.d. 20—30 ára hóparnir, og
fækkar ört með hverju árinu yfir
sjötugt. Að leggja fram þessar
Ur
umferðinní
15
Frá Umferðarráði
Aldraðir í umferðinni
tölur er aðeins gert til að stað-
festa um hversu alvarlegt mál er
hér að ræða.
Allir gangandi vegfarendur
sem verða fyrir bílum slasast
illa eða láta lífið. Og aldrað fólk
á sér oft litla batavon verði það
fyrir alvarlegu líkamshnjaski.
Aldrað fólk er hvatt til úti-
veru. Sumt aldrað fólk á ekki
annarra kosta völ en fara ferða
sinna til útréttinga, meira eða
minna þar sem bílaumferð er.
Aldrað fólk er seinfara, hugsar
hægar, hefur daprast sýn svo
það sér illa frá sér og hefur oft
skerta heyrn. Sjái það allt í einu
-bíl eða heyrir bílhljóð, að ekki sé
talað um ef bílstjóri flautar á
aldrað fólk, gerir það oft þveröf-
ugt við það sem bílstjórinn ætl-
aði.
Eins og hvert barn við akbraut
er lifandi viðvörunarmerki um
aðgæslu við akstur í námunda
við það, má segja hið sama um
aldrað fólk. Mörg alvarlegustu
slysin hafa orðið við gangbraut,
og má segja að þar sé hlutur
ökumanna ámælisverðastur. Sá
ökumaður, sem ekki hægir á ferð
hílsins og skerpir athyglina þeg-
ar hann nálgast gangbraut, er
ökuníðingur.
Gangandi vegfarendur verða
einnig að taka tillit til þess að
slíkir ökumenn eru á ferðinni, að
vísu stundum ágætisfólk sem
gleymir gersamlega ábyrgðar-
tilfinningu sinni við hættulegar
aðstæður. Oft spyrja menn sjálf-
an sig og aðra hvort sé hægt að
gera eitthvað til þess að koma í
veg fyrir þessi slys, að forðast
slysin, að halda sér frá hætt-
unni. Vissulega er á margan hátt
hægt að forðast slysin. í umferð-
inni þarf að vera gagnkvæmur
skilningur og skyldur milli gang-
andi og akandi vegfarenda, enda
byKgjast reglur umferðarinnar á
slíkum skyldum.
I þeim segir m.a. að gangandi
vegfarendur eigi að nota gang-
stéttir þar sem þær eru. Ef ekki
er gangstétt meðfram akbraut er
best að ganga á vinstri kanti svo
maður sjái vel bílana sem koma
á móti. Okumenn eiga ekki að
leggja bílum sínum á gangstétt.
Þeim er skylt að leggja þeim við
akbrautarbrún.
Áður en gangandi vegfarandi
fer út á akbraut á hann að gá vel
að akandi umferð, fylgjast vel
með hvort bílar koma frá hægri
eða vinstri. Fyrst er að vænta
bíls frá vinstri. Engin fjarstæða
er að vekja athygli á sér um það
að viðkomandi þurfi að komast
yfir akbrautina með því að veifa
hendi eða göngustaf. Þótt öku-
maður nemi staðar er nauðsyn-
legt að vera á verði gagnvart
öðrum bílum eða ökutækjum
sem gætu komið framhjá. Eng-
inn ökumaður ætti að stöðva bíl
til þess að hleypa gangandi veg-
faranda yfir akbraut nema vera
á verði gagnvart öðrum öku-
mönnum. Gera þeim aðvart um
ástandið með því að blikka ljósin
eða bókstaflega fara út úr bíln-
um til aðstoðar þeim aldraða. I
umferðarreglunum segir að öku-
maður skuli draga úr ferð eða
nema staðar ef gangandi vegfar-
andi er kominn út á gangbraut.
Þegar ökumenn draga úr ferð,
eða nema staðar, ætti það ávallt
að gerast nægilega fjarri
gangbrautinni, u.þ.b. 2—3 bíl-
lengdum, svo sá sem ef til vill
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
XFélaasstarf
Sjálfs lœöisfhkksim |
Sjálfstæðiskvenna-
félagið Sundafyllir
heldur aöalfund slnn á heimíli formanns, Völusteinsstræti 34, þriöju-
daginn 19. okt. kl. 8.30.
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Rætt um vetrarstarfiö
3. Nýir félagar boönir velkomnir. Stjórnin.
Kópavogur — Kópavogur
Spilakvöld
Siálfstæöisfélag Kópavogs auglýsir: Okkar vinsælu spilakvöld halda
áfram þriöjudaginn 19. október kl. 21.00. Spilaö veröur í Sjálfstæöis-
húsínu Hamraborg 1. Allir velkomnir. Kaffíveitingar.
Stjórn Sjálfstæóisfélags Kópavogs.
FUS Stefnir, Hafnarfirði
Stefnir, félag ungra sjalfstæöismanna í Hafnarfiröi, heldur framhalds-
fund sinn, þriöjudaginn 19. okt. kl. 19.30 i Sjálfstæöishúsinu Hafnar-
firöi.
Dagskrá:
1. Aöalfundarstörf.
2. Önnur mál. Stjórnin.
Aðalfundur
Aöalfundur Félags sjálfstæöismanna í Háa-
leitishverfi veröur haldinn i Valhöll, Háaleit-
isbraut 1, þriöjudaginn 19. október kl. 20.30.
Dagskrá:
Venjuleg aöalfundarstörf.
Lagabreytingar.
Önnur mál.
Gestur fundarins veröur Vilhjálmur Þ. VII-
hjálmsson. formaöur skipulagsnefndar
Reykjavikurborgar. Vilhjálmur Þ. Vllhjálmsson.
Reykjaneskjördæmi
Aöalfundur kjördæm-
isráös Sjálfstæöis-
flokksíns i Reykjanes-
kjördæmi veröur hald-
inn laugardaginn
16. október í Hamra-
borg 1, Kópavogi, og
hefst kl. 10.00
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar
2 Reiknlngar ráöslns.
3. Akvaröaö ársgjald.
4. Lagabreytingar.
5. Stjórnarkjör.
6. Kosning 10 fulltrúa í flokksráö.
7. Kosning 11 fulltrúa í kjörnefnd.
8. Undirbúningur næstu alþingiskosninga.
9. Utanríkismál í Ijósi siöustu atburöa.
Frummælandi: Geir Hallgrímsson.
10. Stjórnmálaviöhorfiö i upphafi þings.
Frummælandi: Matthías Á. Mathiesen.
11. Almennar stjórnmálaumræöur.
Stjórn Kjördæmisráös.
Einstaklingsframtak
eða ríkisforsjá
Samband ungra sjálf-
stæöismanna efnir tM
almenns stjórnmála-
fundar í Stykkls-
hólmi, laugardaginn
16. október kl. 15.00.
Ræöumenn: Geir H.
Haarde, Erlendur
Kristjánsson og
Magnús Þrándur
Þóröarson. Allt
áhugafólk velkomlö.
Garðabær
Stjórnmálaviðhorfin
í upphafi þings
Opinn fundur um stjórnmálaviöhorfin í upphafi þings i safnaöarheim-
ilinu Kirkjuhvoli mánudaginn 18. október, kl. 20.30.
Frummælendur Ólafur G. Einarsson, alþingismaöur og Pétur Sigurös-
son, alþingismaöur.
Allir velkomnir.
Sjáltstasöisfélag Qaröabajar og Bsssastaöahrepps.
Olafur Q. Elnarsson Pátur Sigurösson
Dálkinum hefur borist bréf frá
manni sem hvorki getur um nafn
né áhugamál, en hann segist óska
eftir pennavinum á aldrinum
17—70 ára:
Karl Þorsteinsson,
Box 7002,
Keykjavík.
Átján ára japönsk skolastúlka:
Hiroko Ohashi,
211 Nakanishi Nishikanki-rho,
Kakogawa-City,
Hyogo,
675 JAPAN.
Frá ísrael skrifar karlmaður og
óskar eftir pennavinum fyrir sig
og 11 ára dóttur sína. Hann er
kennari og segist hafa mikinn
áhuga á Islandi. Dóttirin óskar
eftir að skrifast á við jafnaldra
sína, stúlkur eða stráka. Hún hef-
ur mörg áhugamál, safnar m.a.
frímerkjum, jjóstkortum og mynt:
David Aghassi,
16A Hatzor St.,
52 373 Ramat-gan,
ISRAEL.
OR
Mary Aghassi,
16A Hatzor St.,
52 373 Ramat-gan,
ISKAEL.
Frá Japan skrifar 22 ára
háskólanemi. Hann er með mikinn
tónlistaráhuga, leikur m.a. á
píanó:
Yoshihiro Iwafuji,
2-5 Saiwa-So, 26-2 Tamani 1
chome Asou-ku,
Kawasaki,
Kanagawa,
215 JAPAN.
Brezkur frímerkjasafnari óskar
að komast í samband við íslenzka
safnara:
Anthony R. Fidgett,
111 Crabtree Lane,
Hemel Hempstead,
Herts. HP3 9EL,
ENGLAND.