Morgunblaðið - 16.10.1982, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 16.10.1982, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1982 0tfnnbus5toLUnn sem þú seicó'*' mkf, li-fir enn qó&u li-Pi." ást er... ... aö njóta samverunn- ar. TM Reg U.S Pat Oft —all riahts reserved • 1982 Los Angeles Times Syodicate Ætli storkurinn, scm kom mcd okkur, vilji fara mcd pabba? HÖGNI HREKKVÍSI Afstada sjálfstæðismanna á ekkert skylt við hatur Kári Jónsson, Sauðárkróki, skrifar 14. október: „I Velvakanda í gær, miðviku- dag, las ég greinarstúf eftir Jón- as Pétursson, Fellabæ, er hann nefnir „Hvað má þá til varnar verða vorum sóma?" Jónas þessi mun vera fyrrverandi þingmað- ur Sjálfstæðisflokksins og einn í hópi þeirra flokksmanna, sem í upphafi máttu vart vatni halda sökum hrifningar, þegar Gunnar Thoroddsen myndaði ríkisstjórn með höfuðfjendum flokksins. Nú hafa langflestir flokks- bræðra okkar Jónasar áttað sig á því, hvílík hörmungarmistök voru framin með tilurð þessarar ríkisstjórnar. En nokkra hefur dagað uppi og í þeim hópi er nefndur Jónas. Þessi fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins sér nú enga vænlegri leið til að verja dauðvona ríkisstjórn Gunnars Thoroddsens og félaga hans en þá að vitna til forustu- greinar í Tímanum. Verður ekki annað sagt en að nú sé fokið í flest skjól. I þessari forustugrein er því haldið fram, að afstaða „stjórnarandstöðu Sjálf- stæðisflokksins" til bráðabirgða- laga ríkisstjórnarinnar sé ein- göngu sprottin af hatri á Gunn- ari Thoroddsen. Höfund þessar- ar visku, Þórarin Tímaritstjóra, kallar Jónas „gamalreyndan stjórnmálaþjark", sennilega til að koma einhvers konar gæða- stimpli á persónu Þ.Þ. Það skiptir e.t.v. litlu máli úr þessu, hvaða skoðanir Jónas Pét- ursson hefur á þessum málum yfirleitt, en manni rennur til rifja að sjá, hvernig fylgispekt sæmilegra manna við slæman málstað getur leikið þá. Ég hefði kosið fyrrverandi þingmanni Sjálfstæðisflokksins betra hlutskipti en það að grípa til lág- kúrulegustu skrifa Tímans „málstað" sínum til stuðnings. Margir sjálfstæðismenn eiga erfitt með að fyrirgefa Gunnari Thoroddsen verk hans síðustu árin, en afstaða þeirra á ekkert skylt við hatur. Það er hugar- burður brenglaðra persóna og ósæmandi manni, sem átt hefur sæti á þingi fyrir Sjálfstæðis- flokkinn, að gera slíkar skoðanir að sínum. Dauðastríð ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsen er hafið. Það getur tekið einhverjar vikur eða mánuði, en hún er dæmd til að veslast upp. Og þeir sem skópu hana verða nú að taka af- leiðingum verka sinna. Þá er að þeim komið að velta fyrir sér spurningunni stóru: „Hvað má þá til varnar verða vorum sóma?“ “ Bjóða heim vandræðum og áhættu af óþrifnaði Guðjón F. Teitsson skrifar: „Velvakandi. Sundhöll Reykjavíkur við Bar- ónsstíg var á sínum tíma teiknuð af Guðjóni Samúelssyni, húsa- meistara ríkisins, og hafa menn, sem til þekkja, löngum dáðst að því hve vel og af miklum stórhug og framsýni var þarna að verki staðið. Mun óhætt að fullyrða, að fá mannvirki í Reykjavík til þjón- ustu við almenning hafi á undan- förnum áratugum notið slíkrar viðurkenningar og vinsælda sem Sundhöllin. En öll hús þurfa aðhlynningar í tímans rás, og nýlega fór fram töluverð viðgerð á Sundhöllinni. Var sumt, sem gert var, til bóta, svo sem útbygging við suðaustur- enda hússins með tveim setkerum fyrir heitt vatn og vatnsnudd, en breytingar inni í hinni gömlu byggingu voru sumpart neikvæð- ar, og skal nefna aðstöðu hjá sturtum fyrir karlmenn. Þar voru áður 2 vatnssalerni og 4 pissstæði, sem virtist sízt fram úr hófi á slík- um stað, þar sem stundum koma tugir manna til afgreiðslu á skammri stund, og margir með knappan tíma. En nú er þarna að- eins eitt vatnssalerni og eitt pissstæði, og býður það þeim heim slíkum vandræðum og áhættu af óþrifnaði á staðnum og inni í sundlauginni sjálfri, að ekki nær nokkurri átt. Verður því að krefj- ast leiðréttingar á þessu vegna þeirra, sem Sundhöllina nota, og einnig til þess að ekki falli ómak- legur skuggi á hinn látna, upp- haflega höfund byggingarinnar í augum þeirra, sem ekki vita hið rétta í málinu." GÆTUM TUNGUNNAR Rétt er að segja: öðru hverju. Þetta er þágufall hvorugkyns af annar hver, sem merkir: sérhver annar; öðru hverju merkir því: sérhverju öðru (sinni), þ.e. annað veifið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.