Morgunblaðið - 16.10.1982, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1982
39
Njarðvíkingar byggja fyrir aldraða
í DAG verður tekin fyrsta skóflustunga að
hvggingu dvalarheimilis fyrir aldraða í
Njarðvík. Um er að ræða átta íbúða bygg-
Útlitsteikning af hinu nýja 8 ibúða dvalarheimili fyrir aldraða í Njarðvik, en fyrsta skóflustungan verður tekin í dag og byggingartími er áætlaður l'/i ár.
ingu. Byggingin verður staðsett við Vallar-
braut og verður fyrsta skóflustungan tekin
við athöfn kl. 2. Bæjarstjórn Njarðvíkur
byggir dvalarheimilið og hefur verið kosin
þriggja manna framkvæmdanefnd, sam-
kvæmt upplýsingum Áka Granz, forseta bæj-
arstjómar, þegar Mbl. leitaði upplýsinga hjá
honum í gær.
Þetta er fyrsta bygging fyrir aldraða í
Njarðvíkum, en Gylfi Guðjónsson arki-
tekt hefur teiknað bygginguna.
Lions-klúbbur Njarðvíkur hóf á sínum
tíma söfnun til dvalarheimilis og gefa
þeir hönnunarkostnað byggingarinnar.
Áætlaður byggingartími er eitt og hálft
ár.
Barðstrendingafélagið:
Basar og kaffisala
KVKNNADEILI) Barðstrendinga-
félagsins verður með basar og
kaffisölu í Domus Medica, sunnu-
daginn 17. október. Húsið verður
opnað klukkan 14.00.
Á basarnum verður mikið af
prjónlesi, vettlingum, sokkum,
nærfötum barna, sokkabuxum o.fl.
Brúðurúmin vinsælu ásamt glæsi-
legum brúðufatnaði. Einnig verða
kökur seldar á basarnum.
Kvennadeildin bauð eldri
Barðstrendingum til samsætis á
skírdag og þótti það takast með
afbrigðum vel. Einnig var öldruð-
um boðið í Jónsmessuferð og tóku
60 manns þátt í henni og voru þeir
mjög ánægðir og ennþá þakklát-
ari.
Komið og drekkið kaffi um leið
og þið styrkið gott málefni. Öllum
ágóða varið til að gleðja aldraða.
(FrétlaCilkynning.)
Afsakið — Þórð-
ur húsvörður
Ja, nú er það svart maður, leik-
listargagnrýnandi Morgunblaðsins
ruglast á Þórði húsverði og Alfreð
barnakennara. Með öðrum orðum
á Flosa Ólafssyni og Gísla Rúnari
Jónssyni í hlutverkum fyrr-
greindra heiðurspilta í fyrsta
þætti „Félagsheimilisins". Ég sé á
athugasemd þinni, Gísli Rúnar, frá
því í gær (á 29. síðu Morgunblaðs-
ins) að þú ert feiki móðgaður fyrir
hönd Þórðar húsvarðar. Ég finn
mig því knúinn að leiða þig í allan
sannleikann um þetta mál. Þar
sem þetta er í fyrsta og eina skipti
sem ég hefi ruglast á persónum í
leikverki tek ég athugasemd þína
mjög alvarlega og biðst hér með
margfaldrar afsökunar. „Afsakið,
Gísli Rúnar og Þórður húsvörður."
Raunar ætti ég að biðja Alfreð
barnakennara afsökunar líka. „Af-
sakið, Alfreð barnakennari og
Þórður húsvörður, á því að ég
skyldi ruglast á ykkur." Þá er bara
eftir að biðja Flosa Ólafsson afsök-
unar. „Afsakið, Flosi Ólafsson og
Gísli Rúnar, að ég skyldi ruglast á
ykkur og Þórði barnakennara, ég
meina á Þórði húsverði og Alfreð
barnakennara sem er nýfluttur að
sunnan, eða var það öfugt?" Æ,
hvernig stendur á að ég ruglast
alltaf á þessum stórmerku persón-
um sem þið vöktuð svo eftirminni-
lega til lífsins í þessum fyrsta
þætti Félagsheimilisins. Ábyrgur
leiklistargagnrýnandi má ekki
taka feil á skýrt mótuðum persón-
um þótt komið geti fyrir að þoku-
kenndar aukapersónur vefjist fyrir
honum. Ég vil enn einu sinni
þakka þér, Gísli Rúnar, fyrir vand-
lega unna athugasemd sem svipti
hulunni af þessu stórmáli.
Og vertu nú ekki sár, Gísli Rún-
ar, þátturinn var nefnilega ágætur
hjá ykkur. Mér líst líka vel á þá
hugmynd hjá Sjónvarpinu að hafa
stutta þætti sem byggðir eru á að-
sendum hugmyndum manna. Ég er
viss um að fagmenn á borð við
Hrafn Gunnlaugsson geta komið
slíkum hugmyndum í þekkilegt
myndmál. Sía í formi námskeiðs
getur hins vegar drepið slíkar
hugmyndir. Enn einu sinni, vertu
ekki sár, Gísli Rúnar, og hafðu
þökk fyrir barnakennarann, Flosi.
Ólafur M. Jóhannesson
Undanfarna mánuöi
hefur veriö unniö aö
undirbúningi þessarar
sýningar. Þaö er hreint
ótrúlegt hvað hægt er
aö gera úr þurrkuðum
blómum, rótum, trjá-
stofnum og öörum nátt-
úruefnum. Heimsækið
gróöurhúsiö um helgina
og skoöiö þessa
nýstárlegu sýningu,
eitthvað viö allra hæfi.
Sýnikennsla
kl. 2-6.
Fylgist meö þegar
listaverkin verða til,
sýnikennsla kl. 2—6.
HELGAR-
TILBOÐ
Um helgina bjóðum viö nokkrar
gerðir þurrskreytinga á sérstöku
tilboðsveröi, skreyting sem venju-
lega kostar kr. 200.-,
k-t-r ^ k -| 60---
Látiö
skreyta
í eigin „ílát“
I dag kl. 2—6 bjóöum
viö viðskiptavinum aö
koma meö eigin hluti,
vasa, skálar eöa annaö
sem skreyta á^og bíöa
og fylgjast með, meö-
an skreytingin er út-
búin.