Morgunblaðið - 07.11.1982, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1982
71
ÁFÖRNUto
VEGI
»
Él
Arkað á
ráðherrafund
ÞEIR voru á leið á fund Stein-
gríms Hermannssonar sjávarút-
vegsráðherra, þessir fimm herra-
menn, er Ólafur K. Magnússon
tók þessa ntvnd af þeim.
Á fundi með ráðherra var rætt
um gæðaeftirlit á fiski, en þau
mál hafa verið i brennidepli und-
anfarið. Á myndinni eru frá
vinstri: Skúli Þorleifsson, mats-
maður, Sigurður Haraldsson,
skrifstofustjóri SÍF, Valgarð J.
Ólafsson, framkvæmdastjóri
SÍF, Þorsteinn Jóhannesson frá
Reynisstað í Garði, formaður
Sölusambands ísl. fiskframieið-
enda, og Jóhann Kúld, starfs-
maður Framleiðslueftirlits.
Heiðurshjón frá
Austfjörðum
ÞESSA mvnd tók Kjartan Aðal-
steinsson, Ijósmyndari Morgun-
blaðsins á Seyðisfirði, á tónleikum
Sinfóníuhljómsveitar íslands þar í
haust. Myndin er tekin i tónleika-
hléi, og er af heiðurshjónunum
Þorsteini Ólafssyni, stöðvarstjóra
Pósts og síma á Reyðarfirði, og
Kolfinnu Ketilsdóttur, postulíns-
málara. Þau hjón áttu ekki
heimangengt þegar Sinfóníu-
hljómsveitin var með tónleika á
Eskifirði, svo þau létu sig hafa það
að aka til Seyðisfjarðar.
Þorsteinn er forseti Bridge-
sambands Austfjarða, og hefur
lengi verið ein aðalsprautan í
bridgelífi Austfirðinga, sem er
með eindæmum blómlegt. Það
munu vera um 200 manns sem
spila reglulega keppnisbridge á
Austfjörðum og einmitt nú um
næstu helgi fer fram Austur-
landsmótið í tvímenningi. Það er
til marks um stórhug þeirra
Austfirðinga, að þeir hafa boðið
núverandi íslandsmeisturum í
tvímenningi, Jóni Baldurssyni
og Val Sigurðssyni, að spila sem
gestir á mótinu.
Kolfinna hefur annað áhuga-
mál. Hún er postulínsmálari og
kennir þá listgrein flesta daga
vikunnar allan veturinn.
T
„Góðir landsmenn, við byrjum
daginn á því að snúa
okkur úr háisliðnum ..
— nei, þetta er ekki morgunleikfimin hennar Jónínu Benediktsdóttur
SLAKA, spenna, sundur, saman,
teygja, vinda, snúa og fetta.
Klukkan er 7.25 eða kannski 9.20
og Jónína Benediktsdóttir er að
búa landsmenn undir önn dagsins,
koma blóðinu á hreyfingu og
mýkja vöðvana.
Það var einhvern tíma í vor að
morgunhanarnir Valdimar Örn-
ólfsson og Magnús Pétursson
drógu sig í hlé eftir áratuga
þrotlaust starf við að lemja
landann lurkum í gegnum út-
varpið. Núna í haust tók við
hlutverki þeirra 25 ára gömul
Húsavíkurmær, Jónína Bene-
diktsdóttir.
Jónína hefur stundað nám við
McGill-háskólann í Kanada í
íþróttasálfræði undanfarin ár,
en á eftir lokaritgerð til að ljúka
MS-gráðu í þeim fræðum.
— Jónína, um hvað ætlarðu
að skrifa?
„Ekki er nú alveg ljóst hvert
ritgerðarefnið verður, enda ekki
tímabært að ræða það. Eins og
er beinist hugurinn að „hvatn-
ingu“, eða „motivation" í kennslu
og íþróttaiðkun."
— Er morgunleikfimin góð
aðferð til að fá fólk til að hreyfa
sig?
„Ég held að morgunleikfimin
sé mjög mikilvæg, eða réttara
sagt, útvarpsleikfimi, en ekkert
endilega á morgnana. Hún bæði
hjálpar fólki til að stunda lík-
amsrækt reglulega, og sinnir
líka því hlutverki að fræða menn
um það hvernig eigi að gera lík-
amsæfingar og hvers vegna."
— Þú leggur mikið upp úr
fræðslunni, er það ekki?
„Jú, ég reyni alltaf að koma
með einhvern fræðslupunkt.
Margir stunda líkamsæfingar
árum saman án þess að ná nokk-
urn tíma árangri. Það er nefni-
lega ekki sama hvernig æf-
ingarnar eru gerðar. Og út-
varpsleikfimin er að mínu viti
góður vettvangur til að kenna
fólki hvernig það á að hreyfa sig
til að fá sem mest út úr því.
Annars er formið á þættinum
þannig að fyrst er upphitun, þá
smávegis fræðsla og loks æf-
ingar."
— Ertu með fólk hjá þér tii að
gera æfingarnar þegar þú tekur
upp þættina?
„Já, það er ekki hægt annað."
— En þú notar tónlist af plöt-
um. Hefurðu orðið vör við að ein-
hverjir séu óánægðir með það að
hafa ekki „sveigjanlegan" takt-
gjafa, eins og Magnús Áneitan-
lega var?
„Örnólfur og Magnús voru
geysilega vinsælir, og því er ekki
við öðru að búast en að maður
fái einhverja gagnrýni, sérstak-
lega í sambandi við allar breyt-
ingar. En nýju fólki fylgja
óhjákvæmilega breytingar, og
mér finnst ágætt að nota tónlist
af plötum. Fólk á vonandi eftir
að venjast því.“
— Þú fæst við eitt og annað
auk morgunleikfiminnar, Jón-
ína, þú hefur skrifað greinar um
líkamsrækt í Morgunblaðið, og
svo kennirðu, ekki satt?
„Það er rétt, ég skrifaði grein-
ar í Morgunblaðið í sumar, hvað
Sigurlið stríðsár-
anna á Austfjörðum
MEÐAL mynda í líflegu riti
knattspyrnumanna á Seyðisfirði
frá síðasta sumri er að Bnna mynd
af knattspyrnumönnum Hugins
1938—1945, „sigurliði stríðsár-
anna“ eins og það heitir í blaðinu.
Lið Hugins var sigursælt á þessum
árum, en það þarf ekki að taka það
fram, að þá sem nú var mikil
keppni á milli knattspyrnumanna
af fjörðunum og ekkert gefið eftir i
þeim bardögum.
í liði H'ugins á þessari gullöld
félagsins voru eftirtaldir leik-
menn:
Standandi frá vinstri: Hrólfur
Ingólfsson, fyrrum bæjarstjóri á
Seyðisfirði, Ólafur M. Ólafsson,
útgerðarmaður, Tómas Árnason,
viðskiptaráðherra, Kristinn
Halldórsson, síðasti bóndinn í
Loðmundarfirði, nú verkamaður
á Seyðisfirði, og Björn Jónsson,
fyrrum lögregluþjónn, en hann
er látinn.
Miðröð: Haraldur heitinn Her-
mannsson, fyrrum verzlunar-
maður, Þorvarður Árnason,
framkvæmdastjóri, og Gísli Em-
ilsson frá Hátúni, verkamaður í
Hafnarfirði.
Fremsta röð: Ottó Magnússon,
starfsmaður OLÍS á Seyðisfirði,
Pétur Blöndal, forstjóri á Seyð-
isfirði, og Guðlaugur Jónsson
hjá Vinnuveitendasambandi ís-
lands.
Moifiinblaóið/RAX.
Upp med hendur og teygja á öxlum. Ingveldur Thorsteinsson starfsmadur
í auglýsingadeild útvarpsins, sex barna móðir og áhugamennskja um
leikfimi frá sex ára aldri, hlýðir fyrirskipunum Jónínu Benediktsdóttur í
upptöku á morgunleikfimi í stúdíó 4.
sem verður, og núna kenni ég í
Breiðholtsskóla. Ég er með sér-
deild, 14 ára krakka, sem ég
kenni stærðfræði og íslensku. En
auk þess er ég með dansflokk í
Breiðholtsskóla og starfa nokkuð
í athvarfsiðju skólans."
— í lokin: er það skemmtilej?t
starf að stjórna morgundansi Is-
lendinga?
„Mér finnst bæði skemmtilegt
og lærdómsríkt að vera með
þessa þætti, og ég vona sannar-
lega að mér takist að gera þá
þannig úr garði að hlustendur
hafi líka gaman af þeim, og um-
fram allt eitthvert gagn.
Þú kallar þetta morgundans.
Ég bíð spennt eftir næstu sýn-
ingu íslenska ballettsins.