Morgunblaðið - 07.11.1982, Side 29

Morgunblaðið - 07.11.1982, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1982 77 \flk?AKANDI ^ SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Karmelklauslur í Mafnarfirði. „Hér á landi eru starfrækt tvö nunnuklaustur, eftir því sem ég best veit, annað þeirra í Hafnarfirði og hitt í Stykkishólmi. Munkaklaustur eru hins vegar engin hér. Hvað ætli valdi því?“ Er grundvöllur fyrir klaust- urlifnaði karla á íslandi? Kinar Ingvi Magnússon skrifar: „Heill og sæll Velvakandi og allir lesendur! Hér á landi eru starfrækt tvö nunnuklaustur, eftir því sem ég best veit, annað þeirra í Hafnarfirði og hitt í Stykkishólmi. Munkaklaustur eru hins vegar engin hér. Hvað ætli valdi því? Fyrr á öldum voru munkaklaustur allvíða hér á landi: Á þingeyrum, Munkaþverá, Klaustri í Hítardal, Þykkvabæ, á Möðruvöllum, að ógleymdu Skriðuklaustri í Fljótsdal. Nú heyra munkaklaustrin sögunni til. Skyldi enginn grundvöllur vera 26410, og opin fjóra tíma á dag frá kl. 10—12 og 13—15. Tveir stjórn- armenn, formaður og ritari, leysa af hendi þessa þjónustu gegn nokkurri þóknun. Fréttabréf var að sjálf- sögðu skrifað strax til félagsmanna sem eru nú rétt um 300 og m.a. skýrt frá þessu merka framtaki. Brátt kom í ljós að það var mikill fengur fyrir samtökin að geta opnað þessa þjónustumiðstöð. Þar var ekki aðeins hægt að leysa af hendi tíma- frek störf vegna byggingafram- kvæmdanna, heldur veita félags- mönnum margvíslega fyrirgreiðslu og upplýsingaþjónustu á ýmsum sviðum t.d. um réttindamál, at- vinnumál o.fl. o.fl. Stærstu verkefnin sem samtökin vinna nú að, auk byggingafram- kvæmdanna í Fossvogi og daglegra þjónustustarfa, eru þessi: 1. Umsókn um aðra byggingalóð, 2. byggingaáfanga, þar sem ráð- gerðar eru 40—50 íbúðir. Rík áhersla lögð á að lóðin fáist ákveðin á þessu ári, ári aldraðra. 2. Rekstur smámiðahappdrættis. Heyrt hef ég að talað hafi verið um að ágóða þess verði varið til að koma upp heilsugæsluaðstöðu í 2. byggingaáfanga samtakanna. 3. Stofnun og rekstur dagvistar- og tómstundaheimilis í Armúla 34 (Múlalundi) í samvinnu við Sam- band íslenskra berklasjúklinga og Rauða kross íslands. Þetta er stórmerk og aðkallandi fram- kvæmd. Ákveðið er að dagvistar- heimilið taki til starfa 15. nóv. nk. Ríkisstyrknum er að sjálfsögðu varið til að halda uppi þjónustu- miðstöð samtakanna, — greiða húsaleigu, hita, ljós, síma og þóknun til starfsmanna. Afgangi verður varið til hjúkrunarmála og félags- þjónustu. Eg vænti að þessi stutta greinar- gerð, þar sem drepið er á helstu at- riði með örfáum orðum, veiti fyrir- spyrjendum og öðrum nokkrar upp- lýsingar um fjölþætt störf Samtaka aldraðra í Reykjavík." fyrir klausturlifnaði karla hér á landi eða alls enginn áhugi fyrir slíku? Úti í heimi virðist klaustur- lifnaður vera að færast í vöxt eftir ládeyðu undanfarinna ára. Óvissan um framtíð heimsins og hið ákafa lífsgæðakapphlaup á hér sennilega ríkastan þátt. í stað þess að keppast við náungann um söfnun veraldlegra verðmæta og lífsgæða, í stað þess að fylla hlöður sínar, eta og drekka umfram þarfir, kjósa nú margir að hverfa úr þessari hring- iðu. Engin furða kannski. Þeir hafa skilið orðin sem Jesús sagði þeim: „Einu sinni var ríkur bóndi. Hann átti land sem borið hafði mikinn ávöxt; og hann hugsaði með sér og sagði: Hvað á ég nú að gjöra? Því að ég hefi ekki rúm, þar sem ég get látið afurðir mínar. Og hann sagði: Þetta skal ég gjöra: Rífa niður hlöður mín- ar og byggja aðrar stærri, og þar vil ég safna öllu korni mínu og auðæf- um saman. Og ég skal segja við sálu mína: Sál mín, þú hefir mikið auð- æfi, geymd til margra ára; hvíl þig nú, et og drekk og ver glöð. En Guð sagði við hann: Heimskingi, á þess- ari nóttu verður sál þín af þér heimt- uð, og hver fær þá það sem þú hefir aflað? Svo fer þeim, er safnar sér fé og er ekki ríkur hjá Guði. Þótt ein- hver hafi allsnægtir, þá er líf hans ekki tryggt með eignum hans.“ (Lúk. 12: 15-21.) Þessi orð eiga svo sannarlega er- indi til okkar í dag, þó að við lifum í þjóðfélagi, þar sem andlegum þörf- um mannsins er úthýst og þeim sagt að eta það sem úti frýs. Jesús sagði okkur að hans matur væri að gjöra vilja þess er sendi hann. Mig langar þess vegna að deila mcð ykkur framhaldi af orðum Jesú, þau eru töluð til okkar í dag miklu fremur en fyrr: „Verið ekki áhyggju- fullir um lífið, hvað þér eigið að eta, ekki heldur um líkama yðar, hverju þér eigið að klæðast, því að lífið er meira en fæðan, og líkaminn meira en klæðnaðurinn. Gætið að hröfnun- um, þeir sá ekki né uppskera, og ekki hafa þeir forðabúr né hlöðu, og Guð fæðir þá; hve miklu eruð þér fremri fuglunum. Og hver af yður getur með áhyggjum sinum aukið alin við hæð sína? Fyrst þér nú getið ekki það sem minnst er, hvers vegna eruð þér þá áhyggjufullir um allt hitt? Gætið að liljum vallarins, hversu þær vaxa; þær vinna ekki og spinna ekki heldur; en ég segi yður: Jafnvel Salómon í allri sinni dýrð var ekki svo búin sem ein þeirra. Fyrst Guð nú skrýðir svo grasið á vellinum, sem stendur í dag en á morgun verð- ur í ofn kastað, hversu miklu fremur mun hann þá klæða yður, þér lít- iltrúaðir! Og svo sé um yður, spyrjið ekki um hvað þér eigið að eta, og hvað þér eigið að drekka og verið eigi kvíðafullir eða heimtufrekir, því að eftir þessu öllu sækjast heiðingjarn- ir.“ (Lúk. 12: 22-31.) Lífsgæðakapphlaupið geisar og sælir eru þeir menn og konur sem sjá hve það gefur lítið. Lífið er of stutt til þess að maðurinn geti staðið sperrtur móti Guði og hælt sér yfir eigum sínum, því að einn dag verður hann mold eftir allt saman; sem hann var af kominn. Sælir eru þeir sem ganga inn fyrir klausturmúrinn og helga líf sitt þeim sem gaf þeim það. Eg spyr aftur: Skyldi enginn grundvölur vera fyrir klausturlifn- aði karla á íslandi?" GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Hann ræddi um tvær stefnur öndverðar hvor annarri. Rétt væri: .. um tvær stefnur hvora öndverða annarri. Betra væri þó: Hann ræddi um tvær stefnur, sem eru hvor annarri öndverðar. G3? SIG6A WöGA fi \nvt?AH tf/SS/ A/ÝJd EK A9 áVM Vlló óMWMAbJ, $0661o WÚN W miWLtáA MKlÁfáTfftl yilLUl CONSUL SOLARBEKKURINN Hann er rétta háfjallasólin. Þið veröiö brún á 8 dögum. Viö bæöi seljum og leigjum. Eigum einnig nokkra ódýra notaöa sólarbekki tyrir sólbaösstofur eöa heimili. Nýir sólbekkir kosta frá 5995 dkr. Takið eftir. Setjiö á stofn sólbaösstofu. Þaö er arö- vænlegt fyrirtæki. Einungis þarf 5m' pláss svo hægt er aö hafa bekk- inn hvar sem er. Bæjarfélög meö 500—1000 íbúa vantar sólbaðsstofur. Viö óskum eftir innflytjenda á byltingarkenndrl nýjung CONSUL SHIATSU nuddbekknum. Hann vinnur gegn bakveiki, svefnleysi og CONSUL fabrik Ringvejen 59, DK-7900 Nyköbing M. Sími 07-72 40 11. SIJðRMMARHUEIISLA Elrfkur Brum, hagfrwðingur. CPM-áætlanir -1 Markmið: — CPM eða Critical Path Method er kerfisbundin aðferö við áætlanagerö sem á að tryggja að fljótvirkasta og ódýrasta leiðin sé farin að settu marki og sparar þannig tíma, mannafla og fjár- muni. — CPM hentar hvers konar framkvæmdum hjá fyrirtækjum, hinu opinbera og einstaklingum. — CPM á að gefa stjórnendum meiri yfirsýn yfir framkvæmdirnar bæði sem heild og einstaka verkhluta. — CPM á að gera stjórnendur framkvæmdanna að raunverulegum stjórnendum. Efni: Skilgreining þátta og hugtaka. Örva- rit, hönnun tímareikninga, CPM, ákvarð- anaatriði við verkskiptingu, endurskoðun verkáætlana, upplýsingaöflun o.fl. Þátttakendur: Stjórnendur fyrirtækja, yfir- verkstjórar, og aðrir þeir sem standa fyrir framkvæmdum, eiga erindi á þetta nám- skeiö. Leiöbeinandi: Eiríkur Briem rekstrarhagfræðingur. Lauk prófi í rekstrarhagfræði frá Háskólanum í Linköping, Svíþjóð. Starfar nú sem fjár- málastjóri Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Staður: Síöumúli 23. Tími: 18.—19. nóvember kl. 14—19. 20. nóvember kl. 09—12 og 14—18 samt. 17 klst. Útflutningsverslun Markmið: Tilgangur námskeiðsins er aö gera þátttakendur hæfari til að skilja betur og leysa hin ýmsu vandamál í útflutningsstarfinu. Efni: Fjallað verður um ýmis hagnýt atriði varöandi útflutning á íslenskum iönaðarvörum, svo sem frágang og gerð útflutnings- skjala, lög og reglur sem gilda hérlendis um útflutning og erlendis um innflutning. Einnig verður drepið á forsendur fyrir þvi að fyrir- tæki geti hafið útflutning og mikilvægustu atriði varðandi mark- aðsstarfsemi erlendis. Þátttakendur: Námskeiöið er sérstaklega ætlað starfsfólki sem hefur umsjón með framkvæmd á útflutningi í útflutningsfyrir- tækjum og fyrirtækjum sem hyggja á út- flutning Leiðbeinendur. Úlfur Sigurmundsson hagfræðingur. Starf- ar nú sem framkvæmdastjóri Útflutn- ingsmiðstövðar iðnaðarins. Einnig munu kenna aðrir starfsmenn Út- flutningsmiðstöðvarinnar, en þeir eru: Edda Lína Helgason og Jens Pétur Hjaite- sted viðskiptafræðingur. Staöur: Síöumúli 23. Tími: 15.—17. nóvember kl. 14—18, samt. 12 klst. Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélagsins í síma 82930. Úlfur Sigurmundsson, hagfræöingur. STJORNUNARFELAG íslands^H SÍÐUMÚLA 23 SÍMI 82930

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.