Morgunblaðið - 14.11.1982, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR
SUNNUDAGUR 14. NOVEMBER 1982
Walesa laus, en enginn veit
hvar hann er niðurkominn
255. tbl. 69. árg.
Geimskutlan
Kólumbía:
Fá sér
gönguferð
í geimn-
um í dag
('ape (’anaveral, 13. nóvember. AP.
GEIMFARARNIR fjórir um
borð í geimskutlunni Kól-
umbíu, lögðu í gær drög að
því að fá sér göngutúr úti í
geimnum í dag, fyrsta skiptið
sem bandarískir geimfarar
ganga úti í geimnum í 9 ár.
Ahöfn Kólumbíu hefur lokið
aðalviðfangsefni sínu í
geimnum, að koma fyrir
tveimur gervitunglum, og
ekkert er eftir annað en
göngutúrinn í dag sem á að
standa í þrjár klukkustundir.
Eins og fram kom í Mbl. í vik-
unni, gefst fólki um allan heim
kostur á að hringja í Kólombíu og
hlera samtöl geimfaranna fjög-
urra við stjórnstöðina í Houston.
íslendingar eru ekki undanskildir
og Morgunblaðið sló tvívegis á
þráðinn. í fyrra skiptið var í
fyrstu all lengi hlýtt á þögnina
eina, en síðan ræskti einn geim-
faranna sig og baðst afsökunar á
samtaisþurrðinni, en hún stafaði
af því að þeir væru að næra sig og
hefðu þá reglu í heiðri að tala ekki
með fullan munninn!
Síðar hringdi Mbl. aftur og var
þá meira um að vera, geimfararn-
ir og stjórnstöðin voru í linnu-
lausu sambandi, en ekki verður
sagt að umræðuefnið hafi verið
aðgengilegt, mest rætt um DRA,
DAU, DRH, CRD og DIU svo
eitthvað sé nefnt. Vel heyrðist
hins vegar og ekkert til fyrirstöðu
að íslendingar forvitnist um mál-
ið. Símanúmer Kólumbíu er
13074106272. Fyrsta talan er
svæðisnúmer Bandaríkjanna.
Margaret Thatcher:
Framsal til
Sovétríkjanna
útilokað
l,un<lúnum, 13. nóvembcr. Al’.
BRESKA blaðið The Times segir í
dag, að Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra, hafi þegar útilokað þann
möguleika að framselja ('helten-
ham-njósnarann, Geoffrey I’rime, til
Sovétríkjanna og fá í skiptum vestræn-
an njónsnara, scm er í haldi í Moskvu.
Dæmi eru um að slíkt hafi gerst
áður. Til dæmis framseldu Bretar
Gordon Lonsdale til Sovétríkjanna
árið 1965 í skiptum fyrir Greville
Wynne. Lonsdale var dæmdur í 25
ára fangelsi 1961.
Prime er nú í haldi í einu ramm-
gerðasta fangelsi Breta, Long Lart-
in, aðeins 25 km frá Cheltenham-
fjarskiptastöðinni. Á næstu vikum
verður hann spurður spjörunum úr.
Gera yfirmenn bresku leyniþjónust-
unnar sér vonir um að hann gefi
upplýsingar um starfsaðferðir sov-
éskra starfsbræðra þeirra.
Varsjá, 13. nóvember. AP.
PÓlííKA innanríkisráðuneytið
staðfesti í morgun, að Lech Wal-
esa hefði verið látinn laus eftir 11
mánaða fangelsun og yfirgefið
dvalarstað sinn, Arlamow, þar
sem hann hefur dvalist að undan-
förnu.
„Við vitum ekkert hvar hann
er enn,“ sagði eiginkona hans,
Danuta, er rætt var við hana í
morgun. Engar upplýsingar var
að fá frá innanríkisráðuneyt-
inu. Fjölskylda Walesa biður
þess í ofvæni, að hann komi
heim. Leiðtogar kirkjunnar
segja, að fjölskyldunni hafi ver-
ið sagt að vænta Walesa heim
fyrir sunnudag.
„Auðvitað er ég hamingjusöm
yfir því að honum skuli hafa
verið sleppt, en ég hef enn ekki
heyrt neitt frá honum", sagði
Danuta. „Ég er hrædd um að
hann komi aldrei heim vegna
ykkar," bætti Danuta við og
beindi orðum til hóps ljósmynd-
ara og blaðamanna, sem hafa
tekið sér stöðu fyrir utan heim-
ili þeirra hjóna í Gdansk. „Þið
getið verið ánægðir," sagði hún
og benti í átt til blaðamanna,
sem biðu rólegir og sötruðu te,
sem þeim hafði verið fært af
fólki í næstu húsum.
Sem fyrr segir hefur gengið
afleitlega að fá nokkuð uppgefið
um dvalarstað Walesa nú. Talið
er að lögregla og öryggisverðir
muni fylgja honum heim, en
enginn virðist vita fyrir víst
hvenær hann kemur heim. Orð-
rómur var uppi þess efnis, að
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Gekkst undir
40 óþarfar
skurðaðgerð-
ir á 5 árum
Shrewsbury, Knglandi, 13. nóvember. AP.
TIL ryskinga kom á Shrewsbury
Royal-sjúkrahúsinu í gær, er
læknar tjáðu hinni 24 ára gömlu
Susan Jcnkins Haymond að hún
yrði ekki skorin upp vegna
blöðru í leggöngunum. Ærðist
Susan gersamlega, réðist á
starfsfólk sjúkrahússins, þeytti
slökkvitæki marga metra og stól
út um glugga áður en hún var
yfirbuguð.
Málið á sér forsögu, því Sus-
an þjáist af fyrirbæri sem kall-
að er „Munchausen-sýki“, sem
er sjúkleg uppskurðar- og
svæfingarfíkn. 40 sinnum síð-
ustu fimm árin hefur hún
gengist undir hina ýmsu upp-
skurði, búið sér til þrautir og
veikindi og síðan verið skorin
vegna einhvers sem ekki var
fyrir hendi. Meðan að hún hef-
ur verið í gæsluvarðhaldi hefur
hún síðan skaddað sjálfa sig í
þeirri von um að vera flutt á
sjúkrahús til uppskurðar.
Verjandi Susan segir að hún
sé fjarri því að vera geðveik, en
því sé ekki að neita að brestir
séu í persónuleikanum. Dómar-
inn sá ekki ástæðu til að dæma
Susan til fangelsisvistar og hið
opinbera er nú að leita að ein-
hverri heppilegri stofnun þar
sem hún myndi mæta skilningi
- og fá umönnun. 34 ára gömul
kona, að nafni Wendy Scott,
hefur lýst sig reiðubúna til að
hjálpa Susan, hún segist hafa
þjáðst af „Munchausen-sýki,“
en tekist að sigrast á sjúkd-
ómnum. Hún var lögð á sjúkra-
hús 420 sinnum og gekkst und-
ir 42 uppskurði.
Walesa kynni að koma við hjá
leiðtogum kaþólsku kirkjunnar
í Varsjá á leið sinni til Gdansk,
en þeir kváðust ekki vita til þess
að hann hefði í hyggju að koma
við hjá þeim.
Tne Economist um Brezhnev:
Persónugervingur
stöðnunarinnar
London, 13. nóvember. AP.
THE ECONOMIST, hið mikils-
metna breska vikurit, sagði á
föstudag í minningarorðum sínum
um Brezhnev, að dauði hans hefði
verið „eina framlag hans til sov-
éskrar stjórnmálasögu, sem um-
talsvert væri“.
Brezhnev er lýst sem persónu-
gervingi stöðnunarinnar og
„traustum kerfiskarli", sem
„óttaslegin yfirstéttin hlóð undir
í þeirri fullvissu, að þar með lyki
tilraunastarfseminni", sem for-
veri hans, Nikita Krusjeff, stóð
fyrir. „I þeim efnum var hann
líka traustsins verður," segir
The Economist. „Það var ekki
aðeins að hann stoppaði klukk-
una, hann sneri líka vísunum til
baka.“
I greininni er minnt á ofsóknir
Brezhnevs á hendur andófs-
mönnum innanlands og kúgun
hans á nágrannaþjóðunum, bent
á „einstrengingslegar" skoðanir
hans á því, hvað fælist í slökun
spennu, og rifjaðar upp varkárar
tilraunir hans til hressa upp á
Stalín heitinn.
„Stefna hans í utanríkis- og
innanlandsmálum var orðin
mjög gömul þegar hann komst
til valda fyrir 18 árum,“ segir
The Economist. „í Rússlandi
Brezhnevs var það aðeins eitt,
sem fylgdi tímanum: vopna-
búnaðurinn. Sá bautasteinn, sem
Brezhnev hæfir best, er kjarn-
orkuflugskeyti tengt stoppaðri
klukku."