Morgunblaðið - 14.11.1982, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 14.11.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1982 5 Leikrit vikunnar kl. 14.00: „Fimmtíu mínútna biðu Á dagskrá hljóðvarps kl. 14.00 er gamanleikritið „Fimmtíu mínútna bið“ eftir Charles Charras. Ing- ólfur Pálmason gerði þýð- inguna, en Lárus Pálsson er leikstjóri. Með hlutverk- in tvö fara Ævar R. Kvar- an og Helgi Skúlason. Leikritið sem er liðlega 50 mínútur á lengd var áður á dagskrá 1962. Tveir kunningjar bíða á brautarpallinum á lítilli járnbrautarstöð. Annar hefur verið í heimsókn hjá hinum og nú er sá að fylgja honum í lestina. En ferða- áætlunin stenst ekki, svo biðin verður talsvert lengri en þeir félagar hugðu. Þeir taka tal saman, og það eru ótrúlegustu hlutir sem þeim detta í hug. Mánudagsmyndin kl. 21.55: Lára — kanadísk sjónvarpsmynd A dagskrá sjónvarps á mánu- dagskvöld kl. 21.55 er kanadísk sjónvarpsmynd, Lára (Becoming Laura). Aðalhlutverk leika Jennifer Jewison, Neill Dainard og Deborah Kipp. Unglingsstúlka gerir uppreisn gegn foreldrum sínum og um- hverfi á því viðkvæma mótun- arskeiði sem er undanfari sjálfstæðrar tilveru. Jennifer Jewison í hlutverki Láru. SERVERSLUN MEÐ FINNSKAN BARNAFATNAÐ LÆKJARGÖTU 2 SÍMI22201 Fyrir jólin: Finnskir velourkjólar Náttsloppar og náttföt á böm. Sendum í póstkröfu Skíðaferðirnar til SÖLDEN í Austurríki og GRINDELVALD í hinu viðfræga j Jungfrau - Region i Sviss eru skemmtilegar nýjungar fyrir islenska skíða- menn. Staðirnir hafa verið valdir með hliðsjón af sem fjölbreyttustum skiða- I möguleikum og bæði börn og fullorðnir, byrjendur og „fullfærir" finnar þar brekkur og aðstöðu við hæfi. Og það er auðvelt að láta sér líða vel víðar en í skíðabrekkunum einum Gasthof" gistingin í Sölden J eða hótelin í Grindelvald eru heimilisleg og þægileg. veitinga- og skemmtistaðir eru fjölmargir, sundlaugar og gufuböð má víða finna og upplagt er að auka tilbreytnina í vetraríþróttunum með því að leigja sér göngu- skíði eða skauta og þiggja stutta tilsögn eða fullkomna kennslu í leiðinni. AUSTURRIKI - SOLDEN SVISS - GRINDELVALD 2ja vikna ferðir Sölden skíðasvæðið er 467 ferkílómetrar og telst stærsta skíðasvæði Austurrikis. Hæðarmismunur er 1.673 m. Auðvelt er að skiða á milli ólíkra skiðasvæða eða nema ný lönd með áætlunarvögnum sem ganga um allan Ötzdalinn. 2ja vikna ferðir. Möguleiki á framlengingu og/eða aukadvöl i Amsterdam. Eitt allra þekktasta skíðasvæði Sviss er Jungfrau - Region og einmitt þar er áfangastaður okkar í bænum Grindelvald. Hæðarmismunur er 1.422 m. og með því að ferðast um dalinn i skiðalyftum eða lestarvögnum, sem reyndar flytja þig alla leið upp á fjallatoppana, er hægt að ná yfir 2.000 m. hæðarmismun. Brottfarardagar: 27. jan, 4. feb, 18 mars. Flug: Áætlunarflug til Amsterdam og framhaldsflug til Zúrich. Akstur: U þ.b 2'k klst frá flugvelli til gististaða Gisting: Hótel Resídence og Derby hotel. Öndvegis góð hótel, öll herbergi með baði, síma, utvarpi og svölum og Derby hotel að auki með sjonvarpi og „Mini-bar ' á öllum herbergjum Morgunverður innifalinn. Fæði: Unnt er að fá 'k fæði innifalið í verði og er kvöldverður þá framreiddur á hótelunum. Lyftukort: Mu greiða i islenskum peningum fyrir brottför. Verð: Frá kr 11.600.- Innifalið: Flug. gisting með morgunverði, flutnmgur til og frá flugvelli erlendis. Brottfarardagar: 19. des, 16 jan, 30 jan, 27 feb, 13. mars Flug: Beint leiguflug til Innsbruck. Akstur: U.þ.b 1% klst. frá flugvelli til gististaða. Gisting: Fjórir „Gasthof" - gististaðir. Litil og vingjarnleg gistihús Öll herbergi með baði Morgunverður innifalinn. Fæði: Unnt er að fá Vz fæði innifalið í verði og er kvöldverður allra Sölden farþega þá framreiddur á einum stað, miðsvæðis í bænum. Lyftukort: Má greiða í islenskum peningum fyrir brottför. Verð: Frá kr. 8.900.- Innifalið: Flug, gisting með morgunverði, flutningur til og frá flugvelli erlendis. Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 Verð miðað við flug og gengi 10. nóv. 1982.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.