Morgunblaðið - 14.11.1982, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1982
Aðalsafnaðar-
fundur Nessóknar:
Styður hömlur á
fóstureyðingum
Aðalsafnaðarfundur Nessóknar
í Reykjavík var haldinn 7. nóv-
ember sl. A fundinum var sam-
þykkt einróma eftirfarandi álykt-
un: Við lýsum yfir eindregnum
stuðningi við frumvarp það, sem
lagt var fram á Alþingi fyrir
skömmu af Þorvaldi Garðari
Kristjánssyni og fleirum, þar sem
gert er ráð fyrir að hömlur verði
settar gegn fóstureyðingum vegna
félagslegs vanda. Jafnframt fögn-
um við og teljum nauðsyn að
frumvarpi því, sem lagt var fram
samhliða af sömu mönnum og
fjallar um breytingar á lögum um
almannatryggingar, þar sem kveð-
ið er á um að verðandi mæðrum
skuli veitt stóraukin aðstoð eigi
þær í erfiðleikum sökum félags-
legra ástæðna. Skorum við á al-
þingismenn að veita fyrrgreindum
frumvörpum nægilegt fylgi og
brautargengi á þingi.
Menningarsamtök
Nordlendinga:
Framkvæmda-
stjóri ráðinn
Menningarsamtök Norðlend-
inga sem stofnuð voru 18. júní sl.
hafa nú ráðið Theodór Júlíusson
leikara, framkvæmdastjóra sam-
takanna.
Menningarsamtökin eru heild-
arsamtök einstaklinga og félaga
sem vinna að menningarmálum á
Norðurlandi og er tilgangur þeirra
að efla menningarlíf og menning-
arsamskipti á Norðurlandi.
Samtökin hafa fengið aðstöðu á
skrifstofu Fjórðungssambands
Norðlendinga að Glerárgötu 24,
Akureyri.
Tónleikar hjá
Kammermúsík-
klúbbnum
FYRSTU tónleikar Kammer-
músíkklúbbsins á starfsárinu
1982—83 verða að Kjarvalsstöðum
á þriðjudagskvöldið.
Þau Árni Kristjánsson, Laufey
Sigurðardóttir og Gunnar Kvaran,
flytja tríó fyrir píanó, fiðlu og
celló í C-moll, op. 101, eftir Jó-
hannes Brahms og tríó í A-moll
op. 50 eftir Piotr Tchaikovski.
JlltqpiiiMgtfcto
Metsölublad á hverjum degi!
Athugasemd
ÞAR sem nokkurs misskilnings
hefur gætt, skal tekið fram að
Dagný Helgadóttir arkitekt,
teiknaði ekki myndir sem fylgdu
með grein um glerviðbyggingar í
föstudagsblaði Mbl. Teikningarn-
ar voru teknar úr erlendu tímariti.
THE SINGELS
The First Ten Years
Meö allrabestu safnplötum sem þú nærð í á
friálsum markaöi. Tvegaja platna albúm með
23 lögum frá árinu 1973 til 1982.
RING RING / WATERLOO / SO LONG / I DO I DO I DO / SOS /
MAMMA MIA / FERNANDO / DANCING QEEN / MONEY MONEY
MONEY / KNOWING ME KNOWING YOU / THE NAME OF THE
GAME / TAKE A CHANCE OF ME / SUMMER NIGHT CITY /
CHIQUITTA / DOES YOUR MOTHER KNOW / VOULEZ—VOUS /
GIMME GIMME GIMME / I HAVE A DREAME / THE WINNER
TAKES IT ALL / SUPER TROUPER / ONE OF US / THE DAY BE-
FORE YOU CAME / UNDER ATTACK.
Pöntunarslmi: 29575/29544.