Morgunblaðið - 14.11.1982, Page 24

Morgunblaðið - 14.11.1982, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1982 JNtoKBm Útgefandí hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að- alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 130 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 10 kr. eintakiö. Mannkynssagan geymir fjölmörg dæmi um það, að í einræðisríkjum seilist lög- reglustjóri einræðisherrans til valda að honum látnum. Joseph Fouché var lögreglustjóri Napóleons. Hann varð forseti bráðabirgðastjórnar eftir fa.ll keisarans. Fouché sat þó ekki lengi við völd og dó í útlegð. Heinrich Himmler stjórnaði SS-sveitum Hitlers og Gestapó. Hann varð annar valdamesti maður þriðja ríkisins og dreymdi um að hrifsa völdin. Himmler var handtekinn af bandamönnum og framdi sjálfsmorð. Lavrenti Bería var lögreglustjóri Stalíns. Eftir dauða Stalíns stjórnaði Bería ríkinu í nokkra mánuði með Malenkov, hann var síðan tek- inn fastur, sakaður um drott- inssvik og drepinn. Yuri Andr- opov, fyrrum yfirmaður KGB og lögreglustjóri Brezhnevs síð- an 1967, var á föstudaginn ger- ður að aðalritara sovéska kommúnistaflokksins. Hann tók þar með við öðru af emb- ættum Brezhnevs og því valda- mesta, hitt embættið, forseti Sovétríkjanna, er tignarstaða en ekki valdastaða nema aðal- ritari flokksins leyfi. Á því leikur enginn vafi, að í Sovétríkjunum byggist valda- kerfið á þremur meginstoðum; Leynilögreglunni KGB, hernum og flokknum. Hugmyndafræð- ina segjast valdamennirnir sækja til þeirra Marx og Len- íns. Völdin sækja þeir ekki til fólksins. Sovéskir þegnar ganga í flokkinn til að tryggja sér að- stöðu og forréttindi. I gegnum flokkskerfið geta menn hafist upp til metorða í skrifræðinu. Völd hafa engir í Sovétríkjun- um nema þeir styðjist annað hvort við KGB eða herinn. í Póllandi tók herinn völdin til varnar einræðinu. í Kreml er það ekki herinn heldur leyni- lögreglan sem tekur völdin að Brezhnev látnum. Valdataka Andropovs sýnir að KGB og flokkurinn vinna nú saman í sovéska valdakerfinu. Herinn vill þó halda sínum hlut. Yuri Andropov sagði af sér lögreglustjórastarfinu í maí á þessu ári. Síðan hefur hann unnið að því að taka við af Brezhnev. Valdaskiptin gengu hratt fyrir sig. Skömmu fyrir andlátið hélt Brezhnev næsta óvenjulega ræðu til dýrðar hernum. Brezhnev skyldi þó aldrei hafa vitað hver tæki við eítir sinn dag? Var hann að milda herstjórana vegna valda- töku leynilögreglunnar? Hið fyrsta sem Andropov gerði eftir að hann hafði verið útnefndur aðalaritari var að votta hernum virðingu sína. Hann sagði, að heimsvaldasinnar myndu aldrei verða við friðarákalli og því væri brýnast að treysta á ósigr- andi mátt Rauða hersins. Sá maður hiýtur að vera sérkennilega innréttaður sem stjórnað hefur óhugnanlegri starfsemi KGB síðustu 15 ár. Andropov starfaði á sínum tíma fyrir miðstjórn kommún- istaflokksins, en sama árið og Stalín dó, 1953, hvarf hann til starfa í sovéska sendiráðinu í Ungverjalandi og var sendi- herra lands síns þar þegar Sov- étmenn brutu ungversku bylt- inguna á bak aftur í blóðbaðinu 1956. Ári síðar sneri hann aftur til starfa hjá miðstjórn flokks- ins og frá 1962 sá hann um tengslin við kommúnistaflokk- ana í leppríkjunum, en svo var hann skyndilega gerður að yfir- manni KGB, 52 ára að aldri, ár- ið 1967. Vestrænir sérfræðingar hafa látið þá skoðun í ljós, að með því að skipa Andropov sem yfirmann KGB hafi stjórnar- nefnd flokksins staðfest að hann væri svo meðfærilegur að hann væri ekki hættulegur ein- ræðisherranum en nægilega purkunarlaus til að stjórna grimmdarverkum leynilögregl- unnar sem í senn ógnar sovésk- um þegnum og öðrum ríkjum. Andropov brást ekki í lögreglu- stjórastarfinu og hann hefur notað KGB til að verða herra í Kreml. Starfsaðferðir' KGB undir stjórn Yuri Andropovs hafa verið rannsakaðar og skil- greindar á Vesturlöndum og mikið verið um þær ritað. A undanförnum árum hefur KGB lagt sig jafnvel meira fram um það en áður að dreifa alls kyns lygum á Vesturlöndum. Síðustu misseri hefur mátt lesa í „lærð- um“ greinum, að líklega væri Yuri Andropov „sveigjanlegri og frjálsyndari" en Brezhnev, hann myndi því verða Vestur- landabúum meira að skapi en hinn látni foringi. Allar vanga- veltur í þessum dúr byggjast á óljósum sovéskum heimildum. Er nokkuð eðilegra en að Andr- opov hafi skipað KGB að koma þessari ímynd af sjálfum sér á framfæri á Vesturlöndum? Megum við ekki vænta á næst- unni nýrrar „friðarsóknar" undir forystu nýs „frjálslynds" sovésks aðalaritara? Þótt Andropov segi í Kreml, að „friðarákall" Sovétríkjanna skipti engu heldur bara herinn, verður séð um að „friðarboð- skapurinn“ verði það sem Vest- urlandabúar heyra. Á næstu vikum og mánuðum mun hinn nýi leiðtogi Sovét- ríkjanna, Yuri Andropov, leit- ast við að skapa sér ímynd „sveigjanleika og frjálslyndis" á Vesturlöndum á sama tíma sem hann beitir valdinu mis- kunnarlaust heima fyrir og lætur undan öllum óskum sov- éska hersins. Samanburðar- fræðingarnir sem komast jafn- an að þeirri niðurstöðu að Bandaríkin séu heldur verra risaveldi en Sovétríkin munu kynda undir og leggja sig fram um að rugla fólk sem mest í ríminu. Sumir hafa spáð því að Andropov muni lofa bót og betrun í Afganistan til að vinna sig í álit hjá Vesturlandabúum. Fréttin um frelsun Lech Wal- esa sama dag og Andropov varð aðalritari og lausafréttir um afnám herlaga í Póllandi beina athyglinni þangað en ekki til Afganistan. Eitt er víst að Yuri Andropov mun efna til sjón- arspils til að ganga í augun á trúgjörnum Vesturlandabúum með hæfilegum blekkingum. En leiði Andropov hugann að ör- lögum þeirra Fouché, Himml- ers og Bería mun hann ekki opna stjórnkerfi kúgunarinnar heldur herða tökin. Andropov herra í Kreml f Reykjavíkurbréf ^Laugardagur 13. nóvember- Kristján Gudlaugsson látinn Þeir sem ólust upp með Loft- leiðaævintýrinu, slitu barnsskóm og komust til fullorðinsára, á þeim tveimur áratugum, sem það spannaði, munu vafalítið þeirrar skoðunar, að meira ævintýri hafi ekki gerzt í íslenzkum atvinnu- málum á þessum tíma. Það þarf ótrúlega dirfsku og framsýni til að hasla sér völl í alþjóðlegu farþega- flugi með þeim hætti sem Loft- leiðamenn gerðu á þessum árum. Þá var oft spurt manna á meðal: „Hver er heilinn á bak við þetta ævintýri?" Smátt og smátt skild- ist mönnum, að hér var enginn einn snillingur á ferð, heldur sam- valinn hópur einstaklinga, sem hver um sig lagði sinn skerf af mörkum til þess að hrinda í fram- kvæmd víðtækri byltingu í sam- göngu- og atvinnumálum þjóðar- innar sem við búum að enn í dag. Kristján Guðlaugsson, hæsta- réttarlögmaður og ritstjóri, sem nú er látinn, var einn af forystu- mönnum þessa hóps. Um hlut hans í þessu ævintýri segir Sig- urður Magnússon, blaðafulltrúi Loftleiða um áratuga skeið, í minningargrein í Morgunblaðinu, í gær, föstudag: „ ... það var e.t.v. Kristjáni fremur að þakka en ein- hverjum einum öðrum úr okkar hópi, hve forystan í félaginu reyndist samvirk og hve aðdáan- lega henni tókst að sameina okkur öll um það að vinna einhuga að öllum þeim málum, sem við töld- um að hugsanlega gætu reynzt fé- lagi okkar til góðs. En það var fyrst og fremst hinn óbilandi ein- hugur okkar allra, sem olli því hve oft við sigruðum í kröppum leik, hve unaðslegt okkur öllum þótti að mega njóta þess að verja öllum kröftum í hópi kærra samstarfs- manna þessa tvo áratugi. Kristján einangraði sig aldrei á neinum hefðartróni. Til hans gátu allir leitað með nýjar hugmyndir eða persónuieg vandamál. Öllum tók hann af sömu ljúfmennskunni, sama drengskap og þeim, sem ein- kenndi allan hans æviferil. Við fundum það réttilega og skildum, að Kristján var fremstur í okkar flokki. En hann leitaðist við að láta okkur finna, að hann teldi sig fremstan í flokki jafningja. Og það gerði hann í senn að sigursæl- um og vinmörgum fyrirliða. Þess vegna verður okkur öllum gott að muna hann.“ Það hefur verið vel ráðið hjá hinum ungu fullhugum, sem tóku við Loftleiðum fyrir bráðum þremur áratugum, að fá Kristján Guðlaugsson til liðs við sig. Hann hafði verið ritstjóri Vísis um 15 ára skeið frá 1938—1953. Ekki er ólíklegt, að þeim, sem reynslu hafa af slíkum störfum, finnist einn og hálfur áratugur við rit- stjórn dagblaðs, nálgast það að vera fullt ævistarf, en Kristján Guðlaugsson átti annað ævistarf eftir, þegar hann lét af ritstjórn Vísis. Það hefur ekki verið auðvelt verk að stýra blaði á þessu árabili mikilla umskipta í íslenzkum þjóðmálum. Aðdragandinn að lýð- veldisstofnun hefur kallað á erfið- ar ákvarðanir og síðan fyrstu ár lýðveldisins, miklir erfiðleikar í efnahagsmálum, umbrot í stjórn- málum, fyrstu skref lítiilar þjóðar til aðildar að alþjóðlegu samstarfi, samskiptin við vestrænar þjóðir í Atlantshafsbandalaginu, allt hef- ur þetta kallað á víðsýni, lífs- reynslu og margvíslega hæfileika í samskiptum við fólk, hjá þeim, sem ritstýrðu blaði, sem stóð traustum fótum í samfélaginu. Þessi reynsla hefur komið Krist- jáni Guðlaugssyni að góðum not- um, þegar hann tók við stjórnar- formennsku Loftleiða og ævintýr- ið hófst. Þar hefur hann einnig búið að þeim tengslum, sem sköp- uðust á tímum umtalsverðra af- skipta af stjórnmálum á vettvangi Sjálfstæðisflokksins, þar sem hann var um skeið í forystu ungra sjálfstæðismanna, átti sæti í mið- stjórn flokksins og var í þing- framboði á hans vegum. Þeir sem við dagblöð starfa sjá stjórnmála- atburði frá svolítið öðru sjónar- horni en margir aðrir. Ef til vill hefur það orðið til þess, að áhugi hans á frekari stjórnmálaafskipt- um hefur ekki orðið sterkari. Kunnáttumaður um ljóðagerð hafði á orði eftir að hafa lesið minningarljóð Kristjáns Guð- laugssonar um Pétur Hafstein, lögfræðing, að framlag hans til ís- lenzkrar ljóðagerðar hefði getað orðið umtalsvert, hefði hann lagt rækt við skáldskapinn. En er úr vegi að ætla að skáldskapargáfan hafi komið honum vel á Loftleiða- árum hans? Eitt af því sem til þarf að skapa slíkt ævintýri er hugmyndaflug og innblástur skálds. Með Kristjáni Guðlaugs- syni er genginn merkur maður, ljúfmenni, sem verður minnis- stæðastur öllum þeim, sem honum kynntust. Húsnædis- kreppa á höf- uðborgarsvæði Á síðustu árum hefur orðið mjög mikill samdráttur í bygg- ingu íbúðarhúsnæðis á vegum ein- staklinga — og einnig ef litið er á íbúðabyggingar í heild. Þeir sem til þekkja staðhæfa, að ungt fólk hafi orðið harðast úti. Möguleikar þess til að eignast fyrstu íbúð hafa minnkað stórlega. Þetta á bæði við um kaup og byggingu íbúðarhús- næðis. Sá samdráttur, sem orðið hefur í byggingu íbúðarhúsnæðis á valdatíma núverandi ríkisstjórn- ar, á sér efalítið margþætta orsök: 9 Byggingarsjóður ríkisins, sem lánsfjármagnað hefur 90—95% af þeim íbúðum, sem byggðar hafa verið hérlendis síðastliðna ára- tugi, hefur verið sviptur megin- tekjustofnum sínum, þ.á m. launa- skatti, sem nú rennur beint í ríkis- sjóð. 9 Lóðaskortur hefur sagt til sín á undanförnum árum hjá ýmsum sveitarfélögum, ekki sízt hér í Reykjavík á 4ra ára valdatíma vinstri meirihluta í borgarstjórn, 1978-1982. 9 Skert almenn fjárfestingargeta vegna verðlags- og kaupmáttar- þróunar og stóraukinnar skatt- heimtu, samhliða versnandi láns- fjárkjörum. Samdráttur sá í byggingu íbúð- arhúsnæðis, sem átt hefur sér stað á sl. 2 til 3 árum, hefur sagt til sín í mikilli eftirspurn eftir íbúðar- húsnæði umfram framboð, eink- um á höfuðborgarsvæðinu. Ástandið í húsnæðismálum þessa þéttbýlissvæðis er það slæmt, að ýmsir tala um húsnæðiskreppu. Þessa sér stað í verðþróun íbúðar- húsnæðis, bæði á sölu- og leigu- markaði. Þeir sem harðast verða úti í slíkri húsnæðiskreppu eru þeir sem sízt skyldi: leigjendur. Sú stefna í húsnæöismálum, sem ráð- herra húsnæðismála, formaður Alþýðubandalagsins, hefur mark- að og fylgt eftir sl. þrjú ár, hefur ekki einungis dregið verulega úr byggingu íbúðarhúsnæðis á vegum einstaklinga, einkum ungs fólks, heldur stækkað svo gjána milli eftirspurnar og framboðs íbúðar- húsnæðis, að fjöldi þeirra sem er á hrakhólum með húsnæði hefur vaxið. Byggingarsjóð- ur ríkisins Ef Byggingarsjóður, sem hið al- menna húsnæðislánakerfi grund- vallast á, hefði óskerta tekju- stofna, eins og þeir vóru í lok kjörtímabilsins 1974—1978, fengi hann í framlög 1983 a.m.k. 380 m.kr., en fær aðeins 156,5 m.kr, þó með séu taldar þær 85 m.kr. sem stjórnarliðið gerir mest úr nú. Sjóðurinn fær því langt innan við helming þess fjármagns, sem hann hefði hlotið, ef núverandi ríkisstjórn hefði látið markaða tekjustofna hans í friði, en þeir renna nú í ríkishítina. Húsnæðislánakerfið í heild, Byggingarsjóður ríkisins og Bygg- ingarsjóður verkamanna, fær og innan við helming þess, sem það hefði fengið að óskertum tekju- stofnum. Afleiðingarnar blasa hvarvetna við: Almennum nýbyggingarlánum hefur fækkað um þriðjung, langt niður fyrir það sem svarar til eðli- legrar húsnæðisþarfar, en skv. íbúaspá Þjóðhagsstofnunar þarf að bygggja u.þ.b. 2000 nýjar íbúðir á ári til að svara þörfinni. Félags- legum íbúðabyggingum fer og fækkandi, ef heldur sem horfir. En mergurinn málsins er sá, því miður, að ungu fólki og öðrum, sem vilja kaupa eða byggja sína

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.