Morgunblaðið - 14.11.1982, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1982
37
komizt að því, hver hermaðurinn
var, hneppti Andrew prins frá sér
treyjunni á einkennisbúningnum,
sem hafði verið vandlega hneppt.
Andrew vanrækti ekki þjónust-
una og yfirmaður hersveitarinnar
hrósaði honum: „Aðeins þeir beztu
í hópi hinna ungu eru menn til að
fljúga vel þyrlum. Þeir þurfa að
hafa skarpa greind og vera gæddir
glöggri íhygli. Andrew prins hefur
hvort tveggja til að bera.“
En eitt sem var nauðsynlegast
að lifa eftir við allar þessar
ströngu hreyfingar, ef í odda
skærist, var að hlýða. Að vísu
hafði hann sem hermaður kynnst
reglum hvað snerti skipun og
hlýðni, en Filip prins faðir hans og
Anna prinsessa systir hans höfðu
kallað hann þrákálf, af því að
hann hafði átt svo erfitt með að
beygja sig og hlýða.
I Falklandseyjaferðinni var
prinsinum hlýðni og auðsveipni
nauðsynleg, hann var maðurinn
sem Argentínumenn sóttust mest
eftir að klófesta úr brezka hern-
um. Tækist það, vonuðust argent-
ínsku hershöfðingjarnir til, að
þeir gætu sigrað auðveldlega.
Yfirmaður flotans og um leið
einn úr hershöfðingjastjórninni,
Jorge Anaya, hafði sannfært þá-
verandi forsætisráðherra Galtieri
um með einni setningu, að stríðið
yrði til lykta leitt án blóðsúthell-
inga fyrir Argentínumenn: „Við
verðum aðeins að sökkva einu
skipi, „Invincible", og ná einum
manni á okkar vald. Það er And-
rew prins." En hinar miklu árásir
á flugvélamóðurskipið urðu
árangurslausar fyrir Argentínu-
menn. Eins og fyrir undur var því
hlíft við sprengjum, enda þótt In-
vincible væri skipið, sem skothríð-
in beindist mest að. Þó hæfðu
sprengjur sextán af þeim tuttugu
og þremur skipum sem voru í flot-
anum. Fjórum þeirra var sökkt.
Falklandseyjastríðið kostaði
Breta firnafé — og um eitt þúsund
manns misstu lífið.
Ef til meiriháttar meiðsla eða
sára kæmi, var Andrew sem allir
aðrir liðsforingjar sem þátt tóku í
stríðinu með morfínsskammta til
þess að deyfa mesta sársaukann.
En persónulegt hugrekki og
heppni forðuðu honum frá öllu lík-
amstjóni.
Og nú hefur hann uppskorið
laun hjá drottningunni, sem hann
kallaði aldrei nema „mömmu" í
samtali við félaga sína. Hún mun
veita honum nafnbótina Hertog-
inn af Jórvík. Að vísu er hann að-
eins 22ja ára, nokkuð ungur til
þess að hljóta þessa útnefningu,
en Andrew er kunnugt ágætt for-
dæmi, sem hann getur bent á: Þeg-
ar Georg konungur VI., faðir
Elísabetar drottningar, kom heim
úr fyrri heimsstyrjöldinni, fékk
hann þennan titil, en hann var þó
orðinn 24 ára gamall.
Prinsinn hefur þegar tekið
ákvörðun um framtíðarstöðu sína.
Næstu tólf árin ætlar hann að
vera í flotanum. Tvennt stendur
honum þá til boða, að verða flug-
kennari eða búa sig undir að verða
flugstjóri á svokallaðri „Lynch“-
þyrlu, sem komið er fyrir á freig-
átum.
Prinsinn er í leyfi eins og stend-
ur og gefst næði til þess að lesa
þau óteljandi bréf, sem honum
voru send meðan á Falklandseyja-
stríðinu stóð. Flest eru þau frá
ástföngnum ungum stúlkum. Bréf-
in hafa verið geymd í Bucking-
ham-höll, því hann vildi ekki láta
senda einkapóst sinn til vígstöðv-
anna.
Vera má, að hann finni við lest-
ur bréfanna einhverja sem verður
eiginkona hans, því að öðru hvoru
lætur prinsinn sér detta í hug að
ganga í hjónaband. í Port Stanley
lét hann eftirfarandi orð falla:
„Yndisleg sveit hérna, kjörin til að
eyða hveitibrauðsdögunum. — Og
Port Stanley er lítill fallegur bær,
— ég er ákveðinn í því að sýna
konunni minni hann í brúðkaups-
ferðinni."
Eða sagði hann þetta aðeins til
þess að glettast og gera að gamni
sínu.
NÚER ÞAÐ
SVART!
\ hli
Svart/gyllta X-G línan
er ein athyglisveróasta
hljómtækjasamstæða
á markaóinum í dag.
Við bjóðum þér þrjár mismunandi
samstæður úr þessari línu,
á hreint ótrúlegu verði:
Frá kr. 20.853.-
eða útb. kr. 6000 og afg. á 6 mán.
ðD PIOIMEER
”83 árgerð PIONEER hljómtækja er komin til landsins.
HLJOMBÆR
HUÐM*HEIMIUS*SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999-17244
t t
Útför eiginkonu minnar, móöur, tengdamóöur, ömmu og systur, JÓNÍNU KRISTÍNAR MAGNÚSDÓTTUR, Þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúö og vinarhug við andlát og útför HALLGRÍMS ODDSSONAR.
Borgarholtsbraut 25, Kópavogi,
fer fram frá Lágafellskirkju, þriöjudaginn 16. nóvember kl. 10.30. fyrrverandi útgerAarmanns.
Guójón S. Jónsaon, ÞuriAur GuAjónsdóttir, George McNeill, Lilja Hallgrimsdóttir, Árni NorAfjörA.
Evert Ingólfsson, Elín Njálsdóttir, Sigrún Hallgrímsdóttir Breazile,
Einar GuAjónsaon, Erna Pálsdóttir, Gylfi Hallgrimsson, Ása Magnúsdóttir,
barnabörn og systkini. Áslaug Hallgrímsdóttir, Reynir Svansson.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
KRISTÍN HELGADÓTTIR,
Njálsgötu 43,
verður jarösungin í Fossvogskirkju þriöjudaginn 16. nóvember kl. 15.
Þorsteinn Örn Þorsteinsson, Margrét Geirsdóttir,
Hrafnhildur Þorsteinsdóttir, Sveinn Salomonsson.
t
Innilegt þakklæti til allra sem sýndu okkur samúö við andlát og
jaröarför
GUDRUNAR AÐALHEIDAR EINARSDÓTTUR,
Austurgötu 39, HafnarfirAi.
Olav Einar Lindtveit,
Einar Hilmar.
t
Elskuleg dóttir okkar,
INGUNN HILDUR UNNSTEINSDÓTTIR,
Dalaeli 33,
er lést af slysförum 5. nóvember verður jarðsungin þriöjudaginn
16. nóvember kl. 3 frá Neskirkju.
Lilja Kristensen,
Unnsteinn Jóhannsson.
t
Síöastliöinn fimmtudag. 11. nóvember, lést í Hollandi,
SÉRA FRANZ UBAGHS SMM,
fyrrverandi sóknarprestur.
Sungin verður sálumessa fyrir hann í Dómkirkju Krists konungs
Landakoti, fimmtudaginn 18. nóvember klukkan 6 síödegis.
Hinrik H. Frehen, biskup,
séra A. George, SMM.