Morgunblaðið - 14.11.1982, Page 44

Morgunblaðið - 14.11.1982, Page 44
FRÆG KNATTSPYRNUFÉLÚG 44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1982 BENFICA Segja má að Benfica hafi notað danska liðið AGF sem stökkbretti til margra glæstra sigra í Evrópu- keppnum. En eftir að liðið missti helstu skraut- fjaðrir sínar, svo sem hinn snjalla leikmann Euseb io, hefur stöðugt sigið á ógæfuhliðina hjá þeim. „Örninn hafa þeir en þá vantar pardusdýriö“ Á Ólympíuleikunum sumarið 1960 vann danska knattspyrnulið- ið til silfurverðlauna og var næstu mánuði á eftir farið að eygja fleiri eftirsóknarverða verðlaunagripi. í Evrópubikarkeppni meistara- liða náðu þeir svo langt að komast í fjögurra liða keppni á móti Ben- fica frá Lissabon, sem þótti að mati sérfræðinga í knattspyrnu- heiminum ekki ósigrandi and- stæðingur. Portúgal hafði á þeim tíma ekki getið sér frægðar á knattspyrnuvöllunum og Benfica var svo til óþekkt nafn utan síns heimalands. En í þeim leik brustu allar vonir Dana um aukinn frama það árið þvi honum lauk með 3— 1-sigri Portúgala á heimavelli og 4—1-sigri í Aarhus og tóku þar með lárétta stefnu á frægðartind íþróttarinnar þar sem Real Madr- id hafði áður trónað í áraraðir. Benfica Árið 1934 var Benfica eitt af stofnendum knattspyrnudeildar í Portúgal og var það frá upphafi ávallt ofarlega í deildinni, ásamt Sportin Lissahon og seinna FC Porto. Hinum skjóta uppvexti liðsins má fyrst og fremst þakka hinum auðuga forseta Benfica, Mauricio de Brito. Hann lagði í upphafi hornsteininn að fjárhagslegri upphyggingu félagsins og nýtti sér þar þá reynslu er hann hafði hlot- ið úr einkarekstri sínum varðandi þáverandi og fyrrverandi nýlend- ur Portúgala í Áfríku. Portúgal var ekki fyrsta né eina landið sem leit hýru auga til óspilltra hæfileikamanna á íþróttasviðinu sunnar á hnettin- um. En engum hefur tekist jafn vel upp í þeim efnum eins og ein- mitt Benfica, í kringum 1960. Má þar nefna stórstirnin sem þeir sóttu til Afríku, Mario Coluna, Jo- aquim Santana og Jose Aguas. I fyrrgreindum leik á móti AGF í Aarhus stóðu þeir þó í skugga hins frábæra markmanns Benfica, Costa Pereira, og útherjans, Jose Augusto, sem var þá vafalítið besti leikmaður þeirra, enda ákaft fagnað og hampað af jóskum áhorfendum eftir leikinn. Sóknarknattspyrna Hinn ungverski þjálfari, Bela Guttmann, sem í dag er kominn á eftirlaun og býr fyrir utan Lissa- bon, er sá aðili sem hvað mestan þátt átti í að leggja grundvöll að uppbyggingu liðsins á knatt- spyrnubrautinni. Guttmann hafði áður starfað í Brasilíu og flutti þaðan með sér hið vinsæla leikkerfi 4—2—4 og halda margir því fram að hann sé upphafsmaður þess kerfis. En Guttmann féll ekki fyrir þeirri freistingu að þvinga því kerfi á leikmenn Benfica, heldur framfylgdi hann þeirri skoðun sinni að þjálfara bæri að skapa '“ikkerfi í samræmi við efnivið .in og sá að Benfica-Iiðinu hent- aði betur kerfi sem byggt yrði á sóknarknattspyrnu. Þegar Benfica fór til Aarhus á sínum tíma tók Bela Guttmann með ungan svertingja, háan, myndarlegan og sérlega lipran leikmann, sem bjó yfir einstakri knatttækni. „Hann verður ein- hvern tíma góður, býst ég við,“ svaraði Guttmann fyrirspyrjend- um, sem áttu ekki orð yfir leikni þessa dökka unglings, Eusebio da Silva Ferreira. En hann fékk ekk- ert að vera með í leiknum; vermdi bekkinn og fylgdist með félögum sínum sigra danska liðið. Sama sagan endurtók sig í leik Benfica stuttu síðar er þeir sigruðu FC Barcelona 3—2 í Evrópukeppni í Bern, þá sat Eusebio einnig á varamannabekknum. Innákoma Eusebios Fyrrverandi félagar Bela Guttmanns úr félaginu FC Sao Paulo fóru eitt sinn í keppnisferð til Mosambique og komu auga á hinn unga Eusebio og bentu Guttmann á hann. Eftir harða samkeppni við annað portúgalskt félag og sjö mánaða þvarg og þras urðu málalokin þau að kappinn varð eign Benfica-félagsins. Stuttu eftir Evrópumótið keppti liðið á móti Santos (Pele var þá í liðinu) í París. Þegar staðan var orðin 5—0, Brasilíumönnum í vil, fannst þjálfaranum Guttmann óhætt að gefa Eusebio sitt fyrsta tækifæri. Á þeim hálftíma sem hann var inná í leiknum varð þessi 19 ára nýliði að knattspyrnu- manni á heimsmælikvarða. „Þetta var einna líkast draumi," sagði Eusebio mörgum árum síð- ar. „Við töpuðum 6—3 fyrir Sant- os, en mér tókst að skora öll 3 mörkin og ég var í skýjunum þeg- ar ég yfirgaf leikvanginn í París." Næstu 12 árin á eftir var Euse- bic, „svarta pardusdýrið", fastur maður í Benfica-liðinu. Og gekk það svo langt að félagið var farið að misnota hollustu hans og þvingaði hann margsinnis inn á völlinn þegar hann þarfnaðist hvíldar vegna meiðsla í hné. Gódur endir Árið 1962, í máimánuði, mætti Benfica á ólympíuleikvanginn í Amsterdam til að verja Evrópu- meistaratitil sinn á móti Real Madrid. Þar mættust risinn, sem var að hverfa til fortíðarinnar, og hin upprennandi stjarna í knatt- spyrnuheiminum, Benfica. Það var vel við hæfi að skreyta félagsfána sinn með mynd af ern- inum eins og Benfica gerði og fleira fengu þeir úr dýraríkinu, því þeim var færður húnn sem heilla- dýr rétt fyrir leikinn. Úrslit leiks- ins urðu 5—3 fyrir Benfica, Euse- bio skoraði tvö síðustu mörkin eft- ir að Real Madrid hafði leitt 2—0. Segja má að þar hafi ný kynslóð borið sigurorð af fallandi stjörnu, sem fékk hina verstu útreið þetta kvöld. Benfica baðaði sig þó ekki eins lengi í frægðarljómanum og sumir fyrirrennarar þeirra. Fernando Riera tók við þjálfarastarfinu af Guttmann og fór þá að bera á til- slökun á gömlum markmiðum. Reyndu þeir að byggja upp meiri hópsamvinnu liðsins, en draga úr einstaklingsframtakinu, en það dugði ekki gegn AC Milan, sem bar sigurorð af Benfica, 2—1. Benfica saknaði síns skeggjaða og sköllótta Germano, sem margir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.