Morgunblaðið - 14.11.1982, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1982
Athyglisverðar „músíktil-
raunir' SATT að hefjast
- standa yfir næstu fjóra fimmtudaga og lokatónleikar verða haldnir í desember
„ÞETTA er öllum opiö, en fyrst og
fremst ætlað til þess að laða fram
áhugavert efni, sem tónlistar-
menn eru að vinna að,“ sagöi Jó-
hann G. Jóhannsson er Járnsíðan
ræddi við hann og Ólaf Jónsson,
forstöðumann Tónabæjar, um
fyrírhugaðar uppákomur á vegum
SATT og Tónabæjar á næstu vik-
um.
Næstu fjórar vikur er ætlunin aö
efna til sérstakra kvölda í Tónabæ,
sem munu bera yfirskriftina „Mús-
íktilraunir '82“. Er þar hljómsveit-
um og tónlistarmönnum gefinn
kostur á að koma fram með eigið
efni og flytja. Ætlunin er að 45 at-
riði veröi á hverju hinna fjögurra
kvölda, auk þess sem ein þekkt
hljómsveit kemur fram hverju
sinni.
Fyrsta kvöldiö veröur nk.
fimmtudag, 18. nóvember. Bara-
flokkurinn kemur þar fram, en
hverjir koma fram að auki liggur
ekki Ijóst fyrir. Hljómsveitum er
bent á að hafa samband við SATT
að Hamraborg 1 í Kopavogi í síma
43380, Tónabæ í síma 35935 eöa
Gallerí Lækjartorgi í síma 15310.
Mikiö ríöur á aö hljómsveitir séu
fljótar til aö tilkynna sig því frestur-
inn til aö tilkynna þátttöku á fyrsta
kvöldið rennur út annaö kvöld,
mánudagskvöld. /Etlunin er svo aö
þátttökufrestur miðist við mánu-
dagskvöld ; hverri viku á meöan á
þessum „tilraunum" stendur.
Rétt er aö skjóta því að áhuga-
sömum hljómsveitum úti á landi,
aö SATT er reiðubúiö aö reyna að
hlaupa að einhverju leyti undir
bagga ef ferðakostnaður reynist ill
eða óviöráöanlegur. Þá er einnig
rétt að geta þess, að verði þátt-
taka meiri en svo aö hægt sé að
Ijúka þessu uppátæki á fjórum
kvöldum munu fulltrúar SATT sjá
um forval.
Eftir ýmsu er að slægjast fyrir
unga (og auövitaö gamla líka) og
efnilega tónlistarmenn. Fyrirkomu-
lagið á þessum kvöldum verður
með þeim hætti að áhorfendur fá
afhentan atkvæöaseöil áöur en at-
riöin hefjast. Tvær stigahæstu
hljómsveitirnar og/eöa listamenn-
irnir á hverju kvöldi fá síöan sæti í
sérstakri úrslitakeppni. Þremur
stigahæstu aöilunum þar veröa
veitt verölaun, sem eru fólgin í 20
stúdíótímum í einhverju eftirtalinna
hljóðvera: Hljóðrita, Stemmu,
Grettisgati, Nema, Geimsteini og
hljóöveri Axels Einarssonar, sem
öll hafa gefið SATT tímana af
þessu tilefni.
Aö loknum þessum tónlistartil-
raunum er síöan ætlunin aö gefa
besta efniö út á hljómplötu. SATT
hefur áskiliö sér allan útgáfurétt.
Verði hagnaður af fyrirtækinu
skiptist hann jafnt á milli hlutaö-
eigandi tónlistarmanna og SATT.
„Þótt við segjum aö þessi kvöld
séu öllum opin eigum viö síður von
á því að þekktari hljómsveitir
landsins tilkynni þátttöku," sagöi
Jóhann. „Annars veröa hlutaöeig-
andi aðilar aö vega þaö og meta
hver íyrir sig hvort ástæöa er til
þátttöku. Þaö er ekki ætlunin aö
þetta snúist upp í vinsældakeppni,
heldur undirstrikum viö aö þessum
kvöldum er ætlaö aö laða fram
Baraflokkurinn í
höfuðborgarreisu
efni, sem tónlistarmenn eiga í fór-
um sínum og hafa veriö aö vinna
aö, en hefur ekki átt aðgang aö
hinum almenna hljómplötumarkaöi
ekki veriö söluvara og því ekki ver-
ið gefið út á plötu.“
Þá er ekki annaö aö gera fyrir
þá, sem hafa áhuga, en aö drífa sig
í símann og tilkynna þátttöku.
Þetta er kjöriö tækifæri til að
koma sjálfum sér á framfæri hafi
menn athyglisvert efni fram aö
færa.
SSv.
Trommuleikari Bara-llokksins, aö sjálfsögöu íklæddur AC/DC-bol.
Er Þrumuvagninn
hættur starfsemi?
Eftir því sem Járnsíöan hefur
heyrt hefur Þrumuvagninn
misst undan sér hjólin og mun
um þaö bil aö leggja upp laup-
ana ef hann er ekki þegar búinn
aö því.
Ekki hefur fengist nein staö-
festing á því sem geröist en þær
heimildir, sem Járnsíðan byggir
á, herma, aö hinn nýi gitarleikavi
sveitarinnar, Örn Sigmundsson,
hafi veriö óhress meö hlutverk
sitt innan hljómsveitarinnar.
Hafi hann sagt starfinu lausu
og þá hafi bassaieikarinn, Brynj-
ólfur Stefánsson, ákveöiö aö
hætta þar sem hann þróaöist
ekkert sem tónlistarmaöur innan
Þrumuvagnsins.
Síöan hafi trommarinn, Eyjólf-
ur Jónsson, hætt og þeir Einar
Jónsson, bróðir Eyjólfs, og Eiður
Örn Eiðsson staöiö einir eftir.
Lítiö hafi því verið fyrir þá tvo
aö gera og eftir þvi sem viö höf-
um fregnað ákváöu þeir tveir í
sameiningu aö skilja. Einar mun
hyggja á sólóferil af einhverju
tagi, en hvaö hinir ætla aö taka
sér fyrir hendur er meö öllu
óljóst.
Cozy Powell í slaginn,
Whitesnake fullskipuð
Einn íslensku popprisanna,
Baraflokkurinn frá Akureyri legg-
ur land undir fót á morgun og
treöur upp á nokkrum stööum í
vikunni. Tæpast þarf aö undir-
strika hversu mikill fengur er aö
þeim noröanmönnum, sem eru
því miður allt of sjaldgæfir gestir
á höfuöborgarsvæðinu.
Fyrstu tónleikar Baraflokksins í
vikunni veröa í Menntaskólanum
viö Hamrahlíö annaö kvöld, mánu-
dagskvöld, kl. 20.30. Hugsanlegt
Cozy Powell í slaginn.
er einnig aö þeir komi einhvers
staðar fram á þriöjudag en þaö
hefur ekki veriö fastmælum bund-
iö.
Fjölbrautaskólinn á Akranesi
fær þá Akureyringa í heimsókn á
miövikudag og hefjast tónleikarnir
kl. 20.30. Væri óskandi að Skaga-
menn fjölmenntu einu sinni (svona
til tilbreytingar) þegar ein besta og
þekktasta hljómsveit landsins
treöur þar upp.
Á fimmtudagskvöld kemur
Baraflokkurinn fram á „Músíktil-
raunum ’82“, sem SATT gengst
fyrir í Tónabæ. Rétt er aö undir-
strika aö Baraflokkurinn mun hefja
upp raustina strax kl. 20 þannig aö
slóðunum er hér veitt lokaaövörun
vilji þeir berja sveitina augum.
Lokatónleikarnir veröa síöan í
Félagsstofnun stúdenta viö Hring-
braut á föstudagskvöld kl. 21.
Þær fregnir hafa nú borist aö
mannahræringum innan White-
snake sé nú endanlega lokið.
Jimmy Page leikur ekki meö, en
liösskipanin kemur engu aö síöur
nokkuö á óvart.
Sem fyrr er þaö forsprakkinn
David Coverdale, sem hoídur um
hljóðnemann. Gamla kempan Jon
Lord verður áfram með hljóm-
boröin og Mick Moody, gítarleik-
ara, snerist hugur og veröur einnig
meö áfram.
Þrír nýir höföingjar bætast í
hópinn, ákaflega mismikiö þekktir.
Fyrstan ber aö telja gítarleikarann
Galley. Bassinn veröur í öruggum
höndum Hodkinson nokkurs, sem
getið hefur sér gott orö á því app-
arati.
Þaö, sem mest kemur samt á
óvart, er aö Cozy Powell skuli taka
þaö að sér aö sitja aö baki
trommusettinu. Ekki eru nema ör-
fáir mánuðir frá því hann skildi viö
Michael Schenker Group til þess
aö taka sér langt hlé frá trommu-
leik. Þaö frí er bersýnilega á enda.
Ný plata er væntanleg frá
Whitesnake á næstu vikum. Ber
hún nafnið „Saints and sinners".
Sérstakt
kvold, 4-M.
á Broadway
áfimmtudag
SATT efnir til býsna sérstæðs
kvölds á Broadway á fimmtu-
daginn. Hefur því veriö gefið
nafnið 4M, þar sem nöfn allra
þeirra sem koma fram á
kvöldinu byrja á M.
Þaö eru þeir Magnús Eiríks-
son, Magnús Kjartansson,
Magnús Þór Sigmundsson og
hljómsveitin Mannakorn, sem
troöa upp. Mannakorn kemur
aðeins fram af þessu sérstaka
tilefni.Til stóö aö Magnús Þór
Jónsson, Megas hinn eini og
sanni, kæmi fram, en hann sá
sér þaö ekki fært sökum anna.
Á þessu kvöldi munu áöur-
nefndir tónlistarmenn flytja eig-
iö efni, gamalt og nýtt. M.a.
mun Magnús Eiríksson kynna
lög af væntanlegri sólóplötu
sinni. Ekki er aö efa aö marga
fýsir aö berja „gömlu brýnin“
augum og heyra lög, sem rifja
upp gamlar minningar, auk
annarra, sem heyra nútímanum
til.
Þetta sérstaka kvöld, 4M,
hefst kl. 19 meö borðhaldi.
Verður boðið upp á sérstakan
matseðil og aö sjálfsögðu byrja
nöfn allra réttanna á M. í lokin
mun Hljómsveit Björgvins Hall-
dórssonar leika fyrir dansi.
Þeir, sem hafa áhuga að fræö-
ast nánar um matseðil kvölds-
ins , er bent á aö hafa samband
viö Broadway sem fyrst.
Allir tónlistarmennirnir, sem
fram koma á þessu kvöldi, gefa
vinnu sína og rennur allur ágóöi
beint til SATT. Mikiö átak hefur
verið í undirbúningi vegna
byggingarhappdrættis SATT
aö undariförnu og er þetta
kvöld einn liðurinn í fjáröflun-
arstarfsemi samtakanna.
Magnús Kjartansson or eitt
M-anna fjögurra.