Morgunblaðið - 14.11.1982, Blaðsíða 48
j^^skriftar- síminn er 830 33 mmMatiiíli j^Vpglýsinga- síminn er 2 24 80
SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1982
Sláturkostnaðurinn:
260 krónur á
hverja kind?
KOSTNAÐUR við slátrun saurtfjár í haust hcfur líklega verið nálægt 260
milljónum króna. Sláturkostnaðurinn er kr. 15,20 að meðaltali á hvert kiló
kjiits og gæra og kostar það því um 260 krónur að slátra hverri kind og sé
miðað við sauðfjárslátrun í fyrra er kostnaðurinn í haust um 257 milljónir
króna, en enn liggja ekki fyrir tölur um hver slátrunin hefur verið í haust. A
Alþingi fyrr í vikunni urðu umræður um háan sláturkostnað og gagnrýndu
þingmenn háan sláturkostnað, Matthías Bjarnason sagði m.a. að landbúnað-
urinn væri að kafna í milliliðakostnaði og Steinþór Gestsson gagnrýndi þá
ákvörðun sexmannanefndarinnar að birta ekki sundurliðun sláturkostnaðar.
Farþegaflutningar Flugleiða í ár:
Um 31,9% aukning
á N-Atlantshafinu
UM 31,9% AUKNING hefur orðið á farþegaflutningum Flugleiða á Norður- I
Atlantshafinu það sem af er árinu, að sögn Björns Theódórssonar, fram-
kvæmdastjóra markaðssviðs Flugleiða, en alls voru fluttir 169.439 farþegar
fram til 6. nóvember sl., samanborið við 128.459 farþega á sama tíma í fyrra. |
Guðmundur Sigþórsson deildar-
stjóri í landbúnaðarráðuneytinu
og ritari sexmannanefndarinnar
sagði í samtali við Mbl. að sam-
komulag hefði orðið í sexmanna-
nefndinni um að birta ekki sund-
urliðun sláturkostnaðar þar sem
ýmsir aðilar í þjóðfélaginu hefðu
verið farnir að notfæra sér ein-
staka kostnaðarliði sem að nefnd-
in ákvæði til verðlagningar eigin
þjónustu og hefði nefndin ekki tal-
ið það eðlilegt. Sömu svör gaf
Gunnar Guðbjartsson fram-
kvæmdastjóri Framleiðsluráðs
landbúnaðarins. Sláturkostnaður-
inn hefur verið birtur undanfarin
ár og sé reiknað með sama hlut-
falli einstakra liða sláturkostnað-
arins og var í fyrra er hægt að fá
grófa sundurliðun á skiptingu
sláturkostnaðarins þó ekki verði
hún nákvæm þar sem einstakir
liðir hækka misjafnlega á milii
ára.
Svo nefndir séu nokkrir liðir
samkvæmt þessum útreikningi þá
eru vinnulaun við að slátra einni
kind 67 krónur og 65 milljónir alls
í haust, fæðiskostnaður er rúmar
9 krónur við slátrun einnar kindar
og 9 milljónir alls í haust, kjöt-
skoðun og stimplun (aðallega
dýralækna) er tæpar 3 krónur á
hverja kind og 2,7 milljónir alls
við slátrun í haust, frysting er
tæpar 29 krónur á kind og tæpar
28 milljónir alls, skrifstofukostn-
Forstjóri einn-
ar tæknideild-
ar Matvæla- og
landbúnaðar-
stofnunar SÞ
„ÞAÐ er nokkurnveginn frá því
gengið að ég muni taka við
forstjórastarfi við eina af tækni-
deiidunum á landbúnaðarsviði
Matvæla- og landbúnaðarstofnun-
ar Sameinuðu þjóðanna," sagöi
Dr. Björn Sigurbjörnsson, forstjóri
Kannsóknarstofnunar landbúnað-
arins í samtali við Morgunblaðið.
„Ég er að vísu ekki búinn að
gefa lokasvar, en það er nánast
formsatriði og býst ég við, að
öllu forfallalausu, að taka við
þessu starfi um miðjan janúar
1983 og starfa þar í þrjú ár.
Starfsemi FAO skiptist í nokkur
meginsvið og er landbúnaðar-
sviðið stærst. Önnur svið eru til
dæmis fiskveiðar, skógrækt og
búnaðarhagfræði. Á landbúnað-
arsviðinu eru nokkrar tækni-
deildir, t.d. á sviði búfjárræktar
og jarðræktar, en sú deild sem
ég á að veita forstöðu, er rekin
sameiginlega af tveimur stofn-
unum Sameinuðu þjóðanna,
FAO og Alþjóða kjarnaorku-
stofnuninni, sem staðsett er í
aður við að slátra hverri kind er
tæpar 22 krónur og tæp 21 milljón
alls í haust, heildsölukostnaður er
rúmar 46 krónur á hverja kind og
45 milljónir tæpar alls, rýrnun er
tæpar 11 krónur á hverja kind og
rúmar 10 milljónir alls við viðhald
og viðgerðir eru tæpar 9 krónur
við slátrun hverrar kindar og 8
milljónir rúmar alls. Rétt er að
endurtaka að þessar tölur eru
áætlaðar miðað við fyrra ár þar
sem slátrun í haust er ekki upp-
gerð og sláturkostnaður í haust
hefur ekki fengist sundurliðaður,
tölurnar eru því ekki nákvæmar
en ættu þó að gefa góða heildar-
mynd af dæminu.
Guðmundur Sigþórsson sagði að
sláturkostnaðurinn væri reiknað-
ur út samkvæmt upplýsingum frá
sláturleyfishöfunum og ætti að
vera um meðaltalstölur að ræða.
Sláturkostnaðurinn leggst við það
verð sem bændur fá fyrir afurð-
irnar og er því ekki greiddur af
bændum heldur neytendum nema
að því leyti sem kostnaðurinn við
slátrunina gæti haft áhrif til
minnkunar sölu og því verðskerð-
ingar hjá bændum. Bændur fá
58,36 krónur fyrir hvert kíló af 1.
flokks dilkakjöti, sláturkostnaður-
inn sem við það leggst er 15,78
krónur og er sláturkostnaðurinn
því um 27% af verði til bænda í
því dæmi, en nokkuð er þetta mis-
munandi eftir flokkum.
I)r. Björn Sigurbjörnsson
Vín. Verkefni þessarar deildar
er nær eingöngu stuðningur við
landbúnaðarrannsóknir í þróun-
arlöndunum, þar sem lögð er
áhersla á nýtingu nýjustu tækni
á sviði búvísinda, með sérstöku
tilliti til notkunar geisla og
geislavirkra efna, en á því sviði
tengist þessi starfsemi Alþjóða
kjarnorkustofnuninni," sagði Dr.
Björn.
Samkvæmt upplýsingum sem
Mbl. hefur aflað sér hefur land-
búnaðarráðherra, að ósk FAO,
veitt Birni leyfi frá störfum um
þriggja ára skeið.
í Evrópuflugi félagsins hefur
orðið lítilsháttar samdráttur, en
fram til 6. nóvember sl. voru flutt-
ir 131.450 farþega, samanborið við
133.803 farþegar á sama tíma í
fyrra. Samdrátturinn milli ára er
í námunda við 1,8%.
í innanlandsfluginu hefur orðið
2,5% aukning á farþegaflutning-
um á árinu, en fram til 6. nóvem-
ber voru fluttir 197.697 farþegar á
móti 192.782 farþegum á sama
tíma í fyrra.
Flugleiðir hafa því samtals flutt
498.586 farþega það sem af er ár-
inu, samanborið við 455.044 á
sama tíma í fyrra. Aukningin
milli ára er því 9,57%.
Björn Theódórsson sagði að-
spurður að bókanir væru óvenju-
lega góðar fram til áramóta,
reyndar mun betri en á síðasta
ári, á flestum leiðum, sérstaklega
væri áberandi meira bókað á Evr-
ópu og Bandaríkin. „Þá hefur
okkur tekizt að snúa þróuninni við
í innanlandsfluginu, en þar hefur
gætt ákveðins samdráttar undan-
farin ár. Varðandi hina miklu
aukninu á Norður-Atlantshafinu,
þá er hún auðvitað ánægjuleg útaf
fyrir sig, en hins vegar eru far-
gjöld ennþá of lág. Það ríkti þol-
anlegt ástand í sumar, þegar eftir-
1 spurnin var mikil, en nú höfum við
neyðzt til að lækka verðin meira
en við höfðum gert ráð fyrir vegna
sífelldra lækkana samkeppnisfé-
laganna," sagði Björn Theódórs-
son.
Um afkomuna á árinu sagði
Björn: „Við gerum okkur ákveðnar
vonir um að verða réttum megin
við strikið, þegar upp verður stað-
ið um áramót. Hins vegar spilar
gengisþróunin verulega mikið þar
inn í, en við höfum orðið fyrir
verulegu tekjutapi vegna hennar á
árinu,“ sagði Björn Theódórsson
ennfremur.
Gunnar ekki
í prófkjörið
GIJNNAR Thoroddscn, forsætis-
ráðherra, tilkynnti kjörnefnd full-
trúaráðs sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík í gær, að hann myndi
ekki verða í framboði i prófkjöri
sjálfslæðismanna i Reykjavík 28.
og 29. nóvember.
í bréfi sínu tekur forsætis-
ráðherra fram, að hann sé and-
vígur þeim prófkjörsreglum,
sem nú eiga að gilda og að hann
muni ekki verða í framboði í
prófkjöri, sem þannig sé til
stofnað.
Sjá bls. 2: Bréf forsætisráð-
herra til kjörnefndarinnar.