Morgunblaðið - 17.11.1982, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1982
Ljósm. Mbl. Kristján.
Formlegar viðræður borgaryfirvalda og menntamálaráðuneytis um yfirtöku borgarinnar á hluta Keldnalands
hófust í gær og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri. Á myndinni eru frá hægri talið: Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson borgarfulltrúi, I»órður Þ. Þorbjarnarson borgarverkfræðingur, Guðmundur Pétursson, forstöðu-
maður Keldna, Guðmundur Magnússon háskólarektor, Markús Örn Antonsson borgarfulltrúi, Vilhjálmur
Lúðvíksson, framkvæmdastjóri Rannsóknarráðs ríkisins, og Árni Gunnarsson deildarstjóri, í menntamálaráðu-
neytinu.
Flokksráðsfundur Alþýðubandalagsins um næstu helgi:
Reiknað með hörðum
deilum um Helguvík
Fram verður borin tillaga um að fundurinn verði opinn fréttamönnum
Alþýðubandalagið heldur flokks-
ráðsfund um næstu helgi og er búist
við hörðum umræðum þar um lands-
málin. Flokksráðsfundir Alþýðu-
bandalagsins hafa fram til þessa
verið lokaðir fyrir fréttamönnum, en
í upphafi fundar á föstudagskvöld
verður borin fram tillaga um að
fundurinn verði opinn.
Mbl. er kunnugt um að miklar
deilur eru innan Alþýðubanda-
lagsins vegna Helguvíkurmálsins
svonefnda og var hart deilt á
formann Alþýðubandalagsins,
Svavar Gestsson, af flokksbræðr-
um hans á fundi í Reykjanes-
kjördæmi nýverið. Alþýðubanda-
lagsmenn, sem hvað harðasta af-
stöðu hafa gegn varnarliðinu, hafa
meðal annars bent á í ádeilum sín-
um að umsvif varnarliðsins hafa
aukist hvað mest þetta kjörtíma-
bil sem Alþýðubandalagið hefur
verið í ríkisstjórn.
Að sögn Einars Karls Haralds-
sonar eru flokksráðsfundir haldn-
ir árlega þau ár sem landsfundur
er ekki haldinn, en landsfundur-
inn er æðsta vald flokksins og
haldinn þriðja hvert ár. Um 140
manns eiga sæti á flokksráðsfund-
um og verður dagskrá fundarins
með hefðbundnum hætti. Þá verð;
ur kjörin miðstjórn flokksins. í
henni eiga sæti 45, þar af eru
formaður, varafórmaður, gjald-
keri og ritari flokksins sjálfkjörn-
ir, einnig tilnefna kjördæmin tvo
menn í miðstjórn, en að öðru leyti
er miðstjórnin kjörin á fundinum.
Einar sagði að stjórnmála-
ástandið, staða ríkisstjórnarinnar,
efnahagsmál og kjördæmamálið
yrðu þau mál sem hvað mest yrðu
rædd á fundinum. Þá yrðu hús-
næðismál flokksins til umfjöllun-
ar vegna kaupa flokksins á nýju
húsnæði og skipulagsmál hans.
Einar sagði að skiptar skoðanir
væru um hvort þingið ætti að vera
opið eða lokað, en það hefði fram
til þessa verið lokað að undan-
skildu því að blaðamönnum væri
boðið til setningarathafnar og há-
degisverðar þar sem forystumenn
flokksins sætu fyrir svörum þeirra
og fundarmanna. Hann sagði að
sér væri kunnugt um að fram
myndi koma tillaga þess efnis að
opna þingið, það yrði því ákvörðun
fundarmanna sem réði því hvort
það yrði opnað.
611 hreindýr veiddust
ALLK veiddust á veiðitímabilinu í ár
611 hreindýr af 864, sem mennta-
málaráðuneytið veitti heimild til að
veidd yrðu. Hlutfall veiddra dýra af
heimild er 70,7%. Þremur hreppum
var veitt viðbótarheimild til veiða,
þar sem veitt hafði verið upp í þann
kvóta, sem upphafiega var veittur.
Langmest veiði var í Jökul-
dalshreppi, þar sem veidd voru 76
dýr, sem er einu dýri meirá en
heimilað hafði verið. Var það
raunar eini hreppurinn, ásamt
Skriðdalshreppi, þar sem veitt var
umfram heimild. I Skriðdal voru
veidd 3 dýr umfram. Nokkrir
hreppar fullnýttu kvóta sinn, en
aðrir alls ekki. í fjórum hreppum
var ekkert dýr vegið, þótt leyfi
væri til að veiða 43 dýr í þeim til
samans.
Næsthæsti hreppurinn að fjölda
felldra dýra var Borgarfjarðar-
hreppur, þar sem felld voru 56 dýr.
í Fljótsdalshreppi og Norðfjarð-
arhreppi voru veidd 55 dýr í hvor-
um hreppi, 47 dýr í Helgustaða-
hreppi, 43 í Skriðdalshreppi og 42
í Vallahreppi.
Flóðin í Siglufiröi:
„Sjórinn flæddi yfir
seturnar í sófanum“
— reyndu aö bjarga heimilistækjuin og húsmunum upp fyrir vatnselginn
„ÞAÐ var ekkert smáræði sem
gekk hér á, það flæddi á skömm-
um tíma inn i husið hjá okkur og
hætti ekki fyrr en sjór flæddi yfir
seturnar í sófanum, þannig að
dýptin var um hálfur rnetri," sagði
María Fálsdóttir í Siglufiröi í sam-
tali við Mbl. í gærkvöldi, en hún
kvað tniklar skemmdir hafa orðið
hjá þeim af völdum fióðsins.
„Það eyðilagðist allt á gólf-
inu,“ sagði María, „teppi og hús-
munir. Þetta kom svo snöggt og
sandur og drulla flutu með í
stríðum straumum. Það var því
æði margt í íbúðinni sem lenti í
vatni og við urðum m.a. að taka
rafmagn og hita af húsinu vegna
þess að frárennslið frá hitaveit-
unni rennur í ræsið hjá okkur í
kjallaranum og við urðum að
taka vatnið af til þess að dæla
ekki sjálf inn í húsið affallsvatn-
inu.“
„Síðan bryggjurnar hurfu,
gengur aldan óbrotin upp göt-
urnar," sagði Birgir Björnsson í
Siglufirði, en hús hans stendur
neðst á Aðalgötunni, „en það
flæddi um allt hjá okkur og við
vorum á hlaupum að reyna að
bjarga heimilistækjum og hús-
munum upp fyrir vatnselginn.
Vatn fór í margt og nú er að vita
hvort tækin fara í gang aftur, en
það var Iiðlega 30 sm djúpt vatn
hér á gólfinu þegar mest var.“
„Það var um kl. 9.30 sem flóðið
jókst,“ sagði Birgir, „en snjóruð-
ningur hafði gefið sig, vatnið
ruddist áfram og allt fór af stað.
Teppi og dúkar á gólfum er auð-
vitað ónýtt og veggir sjálfsagt að
einhverju leyti, en þetta er timb-
urhús. Fólk er nú að undirbúa
sig fyrir frekari ágjöf, en þetta
er svo sem alveg nóg sem komið
er.“
Tæplega 1300 flug-
farþegar tefjast
EKKERT innanlandsflug var í gær
vegna veðursins og er lauslega áætl-
að að 700 farþegar hafi beðið eftir að
8 krónur
í strætó
FARGJÖLD með Strætisvögnum
Reykjavíkur hækka frá og með deg-
inum í dag og kostar nú einstakt
fargjald fullorðins 8 krónur.
Stór farmiðaspjöld með 32 mið-
um kosta 200 krónur, en lítil með 7
miðum kosta 50 krónur. Noti
menn stóru spjöldin verður far-
gjaldið 6,25 krónur, en minni
spjöldin 7,14 krónur. Farmiðar til
aldraðra og öryrkja eru á hálf-
virði, þ.e.a.s. 32ja miða spjald
kostar 100 krónur.
Fargjöld barna kosta nú 2 krón-
ur, en séu keypt farmiðaspjöld þá
fást 44 miðar fyrir 50 krónur.
Hvert fargjald verður þá 1,14
krónur. Ofangreindar upplýsingar
fékk Morgunblaðið í fréttatilkynn-
ingu, sem því barst í gær frá
Strætisvögnum Reykjavíkur.
fært yrði til hinna ýmsu staða hér
innanlands. Þar af áttu hátt í 400
bókað far frá Reykjavík til staða
víðs vegar um landið, en gert er ráð
fyrir að um 300 hafi beðið eftir fari
utan af landi og til Reykjavíkur.
Þá urðu einnig tafir í utan-
landsfluginu. Vél sem átti að fara
til London klukkan 10.00 í gær-
morgun, fór ekki í loftið fyrr en
18.14 síðdegis með 77 farþega, sem
höfðu meira og minna þurft að
láta fyrirberast á vellinum í allan
gærdag. 105 farþegar biðu vélar-
innar í London, sem áætlað er að
komi hingað til lands um tólfleyt-
ið í dag. Þá fór vélin til Osló og
Stokkhólms ekki í loftið fyrr en
18.50 í gær, en átti upphaflega að
fara klukkan 7.15 í gærmorgun. 94
farþegar voru með vélinni og um
65 biðu hennar úti. Er gert ráð
fyrir að vélin snúi þegar við aftur
og komi hingað til lands tæplega
þrjú í nótt. Þá var ferð vélar á leið
frá Luxemborg til Bandaríkjanna,
með millilendingu hér, frestað til
dagsins í dag. Má gera ráð fyrir að
alls um 245 farþegar hafi beðið
ferðar þeirrar vélar, bæði hér og í
Luxemborg.
Albert Guðmundsson í borgarráði:
Bifreiðasektir við Versl-
unarskólann falli niður
ALBERT Guðmundsson borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins lagði
fram á fundi borgarráös í gær tillögu,
sem kveður á um að reglur um bif-
reiðastöður við Verslunarskólann
verði rýmkaðar.
TiIIagan er svohljóðandi: „Borg-
arráð felur umferðarnefnd að gera
tillögu um lausn á bifreiðastæða-
vanda Verslunarskóla íslands og
hafa í huga að niður falli sektir
lögreglu á bifreiðum nemenda á
skólatima, enda verði þær merktar
nemendum. Kannað verði hvort
leyfa beri bifreiðastöður beggja
megin Grundarstígs, frá Hellu-
sundi að Skálholtsstíg." Tillögu
þessari var vísað til umferðar-
nefndar.
Albert sagði í samtali við Mbl.
að bæði nemendur og foreldrar
væru farnir að hafa nokkuð þung-
ar áhyggjur af sektum þessum, því
algengt væri orðið að nemendur
kæmu á bifreiðum til skóla. Yfir-
leitt væru bílarnir þannig staðsett-
ir að þeir trufluðu ekki umferð, þó
þeim væri ólöglega lagt. „Það er
staðreynd að það þýðir ekki að
gera allt þetta unga fólk brotlegt
við reglur sem ekki er hægt að
framfylgja. Með þessari tillögu er
verið að viðurkenna staðreyndir og
hjálpafólki til að verða ekki brot-
legt,“ sagði Albert.
Albert sagði jafnframt, að rétt
væri að kanna hvort skólinn eða
skólafélagið hefðu sérstaka lím-
miða á bifreiðum nemenda, sem
staðfestu að þeir bílar, sem væru
við skólann, væru á vegum nem-
enda skólans, þannig að almenn-
ingur færi ekki að nota bílastæði
sem ætluð væru nemendum.
Þurfum á öðru að
halda en kúnstum
— segir Kjartan Jóhannsson um
ummæli Gunnars Thoroddsen
„MÉR finnst þetta bara einfalt bragð
hjá Gunnari Thoroddsen. Ég sagði
þetta á opinberum vettangi og það
getur ekki verið skýrara" sagði
Kjartan Jóhannsson er Mbl. leitaði
álits hans á ummælum forsætis-
ráðherra, Gunnars Thoroddsen, í
Mbl. í gær, en þar segir hann m.a. að
þar sem hann hafi ekki fengið neina
tilkynningu um það frá Alþýðu-
flokknum eða formanni hans um að
viðræðum sé slitið og á meðan hon-
um bærist hún ekki, þá gangi hann
ekki út frá því sem vísu.
Kjartan sagði einnig: „Ég er ekk-
ert gefinn fyrir brögð. Mér finnst við
þurfa á öðru að halda nú heldur en
einhverjum kúnstum." Kjartan
endurtók í lokin að honum fyndist
þetta mál skýrt og afgreitt.
Leiðrétting:
Mun rýmri regla við-
höfð við prófkjörið nú
Á MIÐSÍÐU blaðsins í gær birtist
greinargerð stjórnar fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
vegna ummæla dr. Gunnars Thorodd-
sen um tilhögun prófkjörs vegna vænt-
anlegra alþingiskosninga. Slæm mis-
tök urðu við birtingu greinargerðar-
innar, þannig að heill setningarhluti
féll úr og merkingin brenglaðist gjör-
samlcga. Umrædd málsgrein fer í
heild hér á eftir:
„Að öllu framansögðu athuguðu,
er því afdráttarlaust vísað á bug að
fyrirhugað prófkjör sjálfstæðisfé-
laganna í Reykjavík í lok þessa
mánaðar sé einhverskonar hindrun-
arhlaup og torfærur og tálmanir séu
af „vissum öflum í flokknum” lagðar
fyrir þá sem áhuga hafa á þátttöku
í prófkjörinu. Þvert á móti er
óflokksbundnum stuðningsmönnum
flokksins heimil full þátttaka í
prófkjörinu óski þeir eftir því og er
það mun rýmri regla en viðhöfð var
við prófkjörið vegna borgarstjórn-
arkosninganna í nóvember 1981,
sem var undanfari einhvers mesta
sigurs Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík frá upphafi."