Morgunblaðið - 17.11.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1982
5
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins:
Utankjörstaðakosn-
ing hefst í dag
Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla
vegna prófkjörs Sjálfstæðisflokks-
ins fyrir næstu alþingiskosningar
hefst í dag, miðvikudag, en próf-
Barnakór stofnaður
við Hallgrímskirkju
UNNIÐ ER að stofnun barnakórs við
Hallgrímskirkju og er þar um að
ræða samvinnu kirkjunnar og Tón-
listarskólans i Reykajvík. í kórnum
munu verða börn á aldrinum 6—13
ára, drengir og stúlkur, og er ekki við
það miðað að börnin búi innan safn-
aðar Hallgrímskirkju, samkvæmt
upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Þor-
gerði Ingólfsdóttur.
Tónlistarskólinn í Reykjavík
vinnur að stofnun kórsins í sam-
vinnu við kirkjuna, því möguleiki á
Prófkjör Sjálfstæðisflokks-
ins á Norðurlandi vestra:
Utankjörstaða-
atkvæða-
greiðsla hafin
Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla
vegna prófkjörs Sjálfstæðisflokksins
í Norðurlandskjördæmi vestra hófst
i gær, þriðjudaginn 16. nóvember, en
prófkjörið stendur yfir frá 17.—30.
nóvember.
Utankjörstaðaatkvæðagreiðslan
fer fram á venjulegum skrifstofu-
tíma, nema annað sé auglýst á
hverjum stað. Eftirtaldir annast
atkvæðagreiðsluna: Eiríkur Gísla-
son, Staðarskála, Karl Sigur-
geirsson, Hvammstanga, Steindór
Jónsson, Blöndugrilli, Blönduósi,
Adolf Hjörvar Berndsen, Suður-
vangi 14, Skagaströnd, Oli Blön-
dal, Siglufirði, Björn Jósef Arn-
viðarson, Hafnarstræti 8, Akur-
eyri, og skrifstofa Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík, Háaleitis-
braut 1.
í prófkjörinu skal merkja við
minnst fjögur nöfn og með tölu-
stöfum. Atkvæðisrétt hafa allir
flokksbundnir sjálfstæðismenn
frá 16 ára aldri og einnig þeir
kjósendur sem láta skrá sig til
þátttöku í prófkjörinu.
Fjórðu tónleikar
Sinfóníunnar
annað kvöld
að vefa fyrir kennaradeildir skól-
ans að fá fræðslu og reynslu við að
vinna með barnakór.
Þorgerður sagði að næstkomandi
fimmtudag, þann 18 nóvember,
færu fram prófanir barna sem
æsktu þátttöku í kórnum og sagði
Þorgerður að þar yrði um nokkurs
konar inntökupróf að ræða. Þeir
foreldrar sem áhuga hefðu á að
koma með börn sín til prófana,
ættu að koma í Hallgrímskirkju á
tímabilinu 17.30—18.35, en þá
verða börnin prófuð.
„Við vonumst til að þarna fáum
við syngjandi hóp, líka með strák-
um, ekki bara stelpum," sagði Þor-
gerður og gat þess jafnframt að
kórinn myndi einkum syngja í
tengslum við kirkjustarf, en þegar
fram í sækti og kórinn orðinn mót-
aður, yrði nemendum í Tónlistar-
skólanum gefinn kostur á að fylgj-
ast með kennslu í barnasöng.
kjörið verður 28. og 29. nóvember.
Atkvæðagreiðslan stendur yf-
ir frá klukkan 14 til 17, mánu-
daga til föstudaga og laugar-
daga frá 10—12. Utankjörstaða-
kosning stendur yfir til og með
laugardeginum 27. nóvember.
Kosið verður í skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins á 2. hæð í
Valhöll, Háaleitisbraut 1.
I prófkjörinu eiga atkvæðis-
rétt allir flokksbundnir sjálf-
stæðismenn 16 ára og eldri og
þeir stuðningsmenn Sjálfstæðis-
flokksins sem eiga munu kosn-
ingarétt í Reykjavík 1. janúar
1983. Þeir verða hins vegar að
hafa undirritað inntökubeiðni í
Sjálfstæðisflokkinn fyrir^kjör-
fund eða á honum. Þá eiga kosn-
ingarétt í prófkjöri þeir stuðn-
ingsmenn flokksins, sem eiga
munu atkvæðisrétt 1. janúar
1983 og skráð hafa sig til þátt-
töku í prófkjörinu á skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins, fyrir
klukkan 24.00, fimmtudaginn 25.
nóvember nk.
A atkvæðaseðli eru nöfn
frambjóðenda i stafrófsröð og
til þess að atkvæðaseðill teljist
gildur skal krossa framan við
nöfn 8 frambjóðenda hið fæsta
en flest 10.
OKKAR A MILLI
Endursýnd
í Háskolabíói
kl. 7.15 í dag,
Prófkjör 28. og 29. nóvember
Við munum vcita 15%-20% afslátt
á herraskyrtum dagana
15.-20. nóvember.
Lítið inn og gerið góð kaup
meðan birgðir endast.
Snorrabraut Sími 13505
Glæsibæ Sími 34350
Hamraborg - Kópavogi
Sími 46200
Miðvangi - HafnarfirÓi
Sími 53300
FJÓRÐU áskrirtartónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar Islands verða í Háskóla-
bíói annað kvöld, fimmtudaginn 18.
nóvember klukkan 20.30. Á efnisskrá
tónleikanna verður hátíðarmars úr
óperunni „Tannháuser" eftir Wagner,
sinfónía nr. 100 eftir Haydn og selló-
konsert eftir Dvorák. Stjórnandi tón-
leikanna er aðalhljómsveitarstjóri Sin-
fóníunnar hinn franski Jean-Pierre
Jaequillat. Einleikari er Gisela Ilepkat
frá Kanada.
Gisela Depkat starfaði á sínum
tíma sem fyrsti sellóleikari í Sin-
fóníuhljómsveit íslands og var þá
jafnframt kennari við Tónlistarskól-
ann í Reykjavík. Hún stundaði selló-
nám fyrst og fremst í Þýskalandi og
Bandaríkjunum og var aðalkennari
hennar Georg Neikrug. Hún vann til
alþjóðlegra verðlauna, m.a. í alþjóð-
legri keppni í Genf 1964, Tchai-
kovsky-keppninni í Moskvu 1966,
Cassado-keppninni í Florens 1969,
1971 og 1973 og í alþjóðlegu Casals-
sellókeppninni í Búdapest 1968. Þá
hafa hljómplötur, sem hún hefur
leikið á vakið hrifningu og fékk ein
þeirrá þar sem hún leikur einleiks-
verk eftir Kodaly, Hindemith og
Marc Neikrug „grand prix du
disque" frá kanadíska músikráðinu
1979.
Sjálfstæðismenn sem vilja vinna að því, að
RAGNHILDUR
HELGADÓTTIR
fái sæti á Alþingi, eru vinsamlega beðnir að hafa samband
við okkur.
Við verðum í Skipholti 19, 3. hæð, (á horni Nóatúns og
Skipholts) kl. 5—10 daglega. Símar: 19011 og 19055.
Stuðningsmenn.