Morgunblaðið - 17.11.1982, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1982
13
Skagaströnd, Jón Kjartansson
Reykjavík, Jónas Jónsson Melum,
Jónas Jónsson Reykjavík, Kári
Jónasson Reykjavík, Kristinn
Finnbogason Reykjavík, Kristján
Benediktsson Reykjavík, Magda-
lena Sigurðardóttir ísafirði,
Magnús Olafsson Sveinsstöðum,
Magnús Óskarsson Hvanneyri,
Magnús Sigurjónsson Sauðár-
króki, Margeir Jónsson Keflavík,
Ólafur Ólafsson Hvolsvelli, Ólafur
Sverrisson Borgarnesi, Pálína
Skarphéðinsdóttir Gili, Pétur Ein-
arsson Reykjavík, Sigfús Bjarna-
son Reykjavík, Sigrún Sturludótt-
ir Reykjavík, Sigtryggur Þorláks-
son Svalbarði, Sigurður Jónsson
Seyðisfirði, Sigurður J. Sigurðsson
Keflavík, Snorri Finnlaugsson
Dalvík, Sólveig Runólfsdóttir,
Kópavogi, Steinunn Sigurðardótt-
ir Akranesi, Sveinn Bernódusson
Bolungarvík, Sveinn Jónsson Ytra
Kálfskinni, Sveinn G. Jónsson
Reykjavík, Tryggvi Gíslason Ak
ureyri, Valdemar Guðmannsson
Bakkakoti, Valdimar K. Jónsson
Reykjavík, Viggó Jörgensson
Reykjavík, Vilhjálmur Jónsson
Reykjavík, Þórir Haraldsson Ár-
nessýslu, Þorvaldur Jóhannsson
Seyðisfirði, Þrúður Helgadóttir
Mosfellssveit, Ölvir Karlsson
Þjórsártúni.
18. flokksþing
Framsóknar:
Láta gera högg-
mynd af Jónasi
frá Hriflu
Á 18. flokksþingi Framsóknar-
flokksins var samþykkt með lófa-
klappi tillaga um ad láta gera högg-
mynd af Jónasi Jónssyni frá Hriflu.
Árið 1985 eru 100 ár liðin frá
fæðingu Jónasar frá Hriflu og er
fyrirhugað að höggmyndin verði
tilbúin þá. Þá kom einnig fram að
fyrirhugað er af sama tilefni að
gefa út þók með safni sendibréfa
Jónasar.
Frá Reykvík-
ingafélaginu
NÝKJÖRIN stjórn Reykvíkingafé-
lagsins hefur haldið fyrsta fund
sinn. Var þar rætt um ýmis verkefni.
Ákveðið var að vinda að því bráðan
bug að endurnýja félagaskrá, sem að
stofni til er allar götur frá árinu
1940. Var talið heppilegast að fara
þess á leit viö félagsmenn Reykvík-
ingafélagsins aö þeir vinsamlegast
kæmu viö í Gleraugnaversluninni
Fókus i Lækjargötu 6 og létu endur-
skrá sig.
Lögheimtan
flytzt
í MAÍMÁNUÐl 1980 tók til starfa í
Reykjavík fyrirtæki sem bauð ís-
lenskum fyrirtækjum innheimtu-
þjónustu eftir svonefndri „inkasso“-
aðferð. Með þessari aðferð voru
teknar upp starfsaöferðir við inn-
heimtu skulda, sem áður höfðu ekki
tíökast hérlendis. Þessi starfsemi
hefur gefist svo vel, að nú hefur
fyrirtækið Löghejmtan hf. nýverið
tekið upp gagnavinnslu í eigin tölvu-
búnaði jafnframt því sem fyrirtækiö
hefur flutt í nýtt og rúmgott húsnæði
að Laugavegi 97 í Reykjavík.
Lögheimlan hf. er stofnuð og
starfrækt að fyrirmynd erlendra
fyrirtækja, sérstaklega svonefndra
„inkasso“-fyrirtækja á Norðurlönd-
um. Þessi fyrirtæki sjá um innheimt-
ur á skuldum fyrir viðskiptavini
sína, þá sérstaklega vanskilaskuld-
um. Notað er sérstakt innheimtu-
kerfi, sem byggist m.a. á kerfisbund-
inni notkun innheimtueyðublaða og
stöðluðum innheimtuaðgeröum.
Starfsmenn Lögheimtunnar hf. eru
nú 8 talsins.
Fræðileg vinnu-
brögð án ólyktar
Svar Davíðs Á. Gunnarssonar vegna
greinar dr. Friöriks Einarssonar læknis
ÞAÐ ER alveg rétt hjá Friðriki
Einarssyni að rekstur ríkisspítala
stenst fyllilega samanburð við það
sem best gerist bæði hjá opinber-
um aðilum og einkafyrirtækjum.
Ástæðan er fyrst og fremst sú, að
hér er gott starfslið, sem hefur
verið tilbúið að axla þá ábyrgð og
erfiðleika, sem eru því fylgjandi
að vera í fararbroddi hvað varðar
hagræðingu í heilbrigðisþjónust-
unni.
Hvað varðar skoðanir mínar á
beinum framlögum úr ríkissjóði
og daggjöldum, kann ég illa við að
mér séu gérðar þær upp. Á bls. 547
í riti heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytisins nr. 2/1980
stendur orðrétt:
„Ef sjúkrahúsin (Landspítali,
Borgarspítali og Landakotsspítali)
verða áfram rekin sem þrjár sér-
stakar rekstrarheildir einhvern
tíma, er höfundur því fylgjandi, að
rekstri þeirra verði haldið áfram
með mismunandi fjármögnunar-
kerfi. Bókhaldskerfi verði sameig-
inlegt. Komið verði á raunveru-
legri samkeppni milli þeirra um
nýtingu fjármagns í þágu almenn-
ings. Slík tilraun gæti í heild tekið
að minnsta kosti fimm ár, þannig
að 1983 lægju fyrir endanlegar
niðurstöður af samanburði. Þá
ætti að fara fram allsherjar út-
tekt.“
Eg er ennþá sömu skoðunar. Eg
hef hingað til ekki skorast undan
því að vinna fyrir heilbrigðisráð-
herra, hvort sem þeir hafa heitið
Matthías Bjarnason, Magnús
Magnússon eða Svavar Gestsson.
Fræðileg vinnubrögð hvað varð-
ar heilbrigðisþjónustu eiga að
vera hafin yfir fljótfærnislegan
skæting. Davíð Á. Gunnarsson
Námskeið og sýningar
fyrir helgarreisufarþega
í Reykjavík
í nóvember og desember verður
helgarreisufarþegum boðið upp
á þátttöku i nokkrum námskeið-
um og sýningum:
STJÓRNUNARFÉLAGIÐ
mun standa fyrir tveimur námskeiðum og fyrirlestr-
um um stjórnunarmál:
20. nóv. verður fjallað um tölvumál: — undirstaða,
möguleikar og tölvukynning.
27. nóv. verður fjallað um stjórnun minni fyrirtækja.
UNNUR ARNGRÍMSDÓTTIR
OG MÓDELSAMTÖKIN
verða með námskeið og kynningu alla laugardaga í
nóvember. M.a. verða þar tiskusýning, snyrtivöru-
kynningar, leiðbeiningar um framkomu, borðskreyt-
ingar og fleira.
RINGELBERG Í RÓSINNI
sýnir og kynnir jólaskreytingar og fleira fallegt laug-
ardagana 4. og 11. desember.
DÚDDI OG MATTI
munu sýna það nýjasta i hárgreiðslu á „Viðeyjar-
sundi" laugardagskvöldið 11.
desember og snyrtistofan SÓL OG SNYRTING mun
sýna nýjungar i andlitsförðun og snyrtingu.
Nánari upplýsingar hjá næsta umboðsmanni.
Nú fljúga allir i bæinn.
FLUGLEIDIR
Gott fólk hjá traustu félagi
Metsölublcidá hverjum degi!
GOODfYEAR
VETRARDEKK
Við vekjum athygli á að
Björg Einarsdóttir
gefur kost á sér í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
28. og 29. nóvember 1982 vegna
væntanlegra Alþingiskosninga.
• Björg var formaöur Hvatar, félags sjálfstæð-
iskvenna í Reykavík 1978—1981. Hún er í mál-
efnanefnd Sjálfstæðisflokksins um utanríkismál
og á sæti í stjórn Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavík. Björg var kjörin í miðstjórn
Sjálfstæðisflokksins á Landsfundi 1981.
• Björg skipaði 11. sæti á framboðslista Sjálf-
stæöisflokksins í Reykjavík við Alþingiskosn-
ingarnar 1979.
Hún hefur sannað það i störfum sinum
innan Sjálfstæðisflokksins og utan,
að hún á erindi á Alþingi.
Við styðjum Björgu Einarsdóttur í
prófkjörinu og hvetjum aðra til þess.
Stuðningsmenn